Morgunblaðið - 13.10.1967, Síða 22

Morgunblaðið - 13.10.1967, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. OKT. 19« Sveinn Valdimarsson — Minningarorð ÞANN 5. október sl. barst mér sú sorgarfregn, að vinur minn. og starfsfélagi, Sveinn Valdi- marsson.f.v. skipstjóri, hefði orð ið bráðkvaddur þann dag. Sveinn heitinn var á leið í bif- reið sinni frá Reykjavík til Keflavíkur, er hið óvænta og skyndilega fráfall bar að. Sveinn var Vestfnðingur að ætt. Hann var fæddur að Tungu í Önundarfirði, 24. desember ár- ið 1901. Foreldrar hans voru Þórunn Sveinsdóttir og Valdi- mar Eggertsson,, er þar bjuggu. Þótt ég kunni ekki að rekja ætt Sveins, veit ég þó, að for- feður hans voru dugnaðar bænd ur og sjósóknarar vestur þar. Sveinn var tekinn í fóstur, þá kornungur, af móðurbróður sín um Sveini Kr. Sveinssyni og konu hans Bjarneyju Jensdótt- ur, sem bjuggu á Flateyri. Fóst- urforeldra sinna minntist hann ávallt með virðingu og þakk- læti. Um tvítugt fluttist Sveinn frá Flateyri og hóf sjómennsku á ísafirði. í þá daga áttu ís- firðingar stóran fiskiskipaflota, sem margir ur.gir Vestfirðingar litu hýru auga. Sveinn var tíð- um í skipsrúmi hjá þekktum aflamönnum, svo sem Þorsteini Bróðir okkar, Sigurður Guðmundsson frá Seli í Ásahreppi, lézt á sjúkrahúsi 4. október. Jarðarförin hefur farið fram. Systkin hins látna. Eiginkona mín og móðir okk- ar Guðný Fjóla Gísladóttir sem andaðist 7. þ. m. verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju 14. þ. m. kl. 10.30 f.h. Ingvar Guðfinnsson og börn. Jarðcnför fö’ður okkar og tengdaföður Helga Árnasonar, Bláskógum 9, Hveragerði, fer fram frá Kotstrandar- kirkju laugardaginn 14. okt. kl. 2 e. h. Börn og tengdabörn. syni og eiga þau tvær dætur. Kynni okkar Svems hófust fyrir rúmlega 30 árum, á nokkuð sér stæðan hátt. Á þeim árum grúfði berklaveikin eins og svart ský yfir þessu landi, og margar fjölskyldur urðu fyrir barðinu á henni, sem kunnugt er. Það var þá, sem eiginkon- ur okkar beggja urðu tíðum að gista sjúkrahús, vegna þess að þær höfðu báðar veikzt af berkl um. Með þeim tókst vinátta, sem svo náði til ailra fjölskyldu meðlima beggja heimilianna. Ég komst að því þá, og raunar oft síðan hvern mann Sveinn hafði að geyma. Hann var góðgjarn og hógvær maður. Hann var nærgætinn og umhyggjusamur heimilisfaðir. Það kom fram á margan hátt, ekki sízt í þeirri ást og um- byggju, er hann sýndi litlu dótt urdætrunum sínum, sem voru sannkallaðir augnasteinar hans. Eftirlifandi eiginkonu, dóttur og fjölskyldu hennar bið ég guðs- blessunar. Kæri vinur. Ég og fjölskylda mín minnumst þín með söknuði og trega. Við viljum með þess- um fáu orðum þakka þér þína falslausu vináttu og tryggð. Far þú í friði. Ólafur Kristjánsson. Eyfirðingi, Guðrnundi Þorláki o. fL Árið 1929 útskrifaðist hann úr Stýrimannaskóia íslands. Eftir það var hann stýrimaður eða skipstjóri á ýmsum skipum meir enn tvo áratugi. Árið 1955 hætti Sveinn sjómennsku og gerðist eftirlitsmaður hjá Sölu- miðstöð hraðfrystihúsanna. Því starfi gegndi hann til dauðadags með þeim ágætum, að orð fór af. Þann 18. október 1930 kvænt- ist Sveinn eftirlifandi eiginkonu sinni Elínu Theódórsdóttir, ætt aðri frá ísafirði. Þau Sveinn og Elín stofnuðu heimili hér í Reykjavík og hafa þau ætíð búið hér síðan. Þau eignuðust eina dóttur barna, Halldóru, sem gift er Oddgeiri Þorleifs- Sjötugur í dag: Matthías Stefánsson Innilega þökkum við öllum þeim er sýndu okkur samúð við andlát og jarðarför móð- ur okkar og ömmu, Katrínar Pálsdóttur frá Fáskrúðsfirði. Böm og barnabörn. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem auðsýndu okkur samúð og vináttu, og til allra þeirra, sem veittu okkur ómetanlega aðstoð á annan hátt, vi'ð andlát og út- för konu minnar, móður, tengdamóður og ömmu. Sigríðar Bjarnadóttur, er lézt á Hrafnistu 30. sept. f. m. Pétur Gunnarsson, Ingvi Pétursson, Óskar Pétursson, Asdís Magnúsdóttir, Ásta Óskarsdóttir, Sigriður Óskarsdóttir. t Útför móður minnar og tengdamóður, t Eiginmaður minn, faðir okk- ar og afi, Guðrúnar Bjarnadóttur Jónas Sveinsson, Mýrargötu 2, Hafnarfirffi, er lézt 8. þ. m. fer fram laugardaginn 14. okt. og hefst með bæn að heimili okkar kl. 1 síðdegis. Jarðsett verður frá Hraungerðiskirkju kl. 2. Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á líknar- stofnanir. verður jarðsunginn laugar- daginn 14. október kl. 2 e. h. frá Fríkirkjunni í Hafnar- firði. Blóm eru vinsamlega afþökkuð en þeir sem vildu minnast hins látna er bent á Frikirkjuna í Hafnarfirði eða Hjarta- og æðaverndarfélag- ið. GuSbjörg Gísladóttir, Skúli Magnússon, Guffrún Jónsdóttir Miðtúni 12, Selfossi. böra og barnaböra. MATTHÍAS, bílstjóri Rafmagns- veitu Reykjavíkur, er borinn og barnfæddur Reykvíkingur. For- eldrar hans, Stefán Hannesson, ættaður af Hvalfjarðarströnd, og Guðrún Matthíasdóttir, frá Foss á í Kjós, bjuggu á Bjargi á Grímsstaðarholti,' þegar þar voru býli og sem í sveit að vera og ólu upp efnilegan barnahóp. Matthías dvaldist í sveit á sumr in þegar hann var á barnsaldri en byrjaði snemma í algengri vinnu svo sem títt var. 16 ára gamall réðist hann sem ársmað- ur til séra Halldórs á Reynivöll- um og dvaldist þar í 4 ár. Þá fór hann til sjós, fyrst á skútu Duus-félagsins en síðan á tog- ara. Var hann þá með skip- stjórunum góðkunnu Guðmundi í Nesi og Halldóri Þorsteinssyni í Háteigi þar til 1926 að hann hóf störf hjá Rafmagnsveitunni. Kynntist Matthías því atvinnu- háttum landsmanna eins og þeir höfðu verið áður og þó nýja tím anum, sem var að koma með tog urunum. Hjá Rafmagnsveitunni byrjaði hann sem bílstjóri, en Rafmagns- veitan hafði þá starfað aðeins fá ár og margt á byrjunarstigi. Hún átti þá víst einn bíl, sem búinn var út sem hálfkassabíll, líkiega IVz tonns flutningabíll eins og þá var títt, búinn nokkr- um sætum fyrir línumenn inni, en farangur aftur á palli. Á und an Matthiasi höfðu verið nokkr- ir bílstjórar en aðeins stutta Hjartans þakkir færi ég öll- um þeim er glöddu mig á 75 ára afmæli mínu þ. 20. sept- ember sl. Einkum vil ég þakka félögum Slysavarnafé- lags Islands, frændum og vin- um, dýrmætar gjafir, heim- sóknir, heillaskeyti og blóm. — Guð blessi ykkur öll. Ingibjörg Pétúrsdóttir, Reykjum. Þökkum innilega þann vinar- hug, sem okkur hjónunum var sýndur á 50 ára hjúskap- arafmæli okkar 7. okt. sl. með heimsóknum, gjöfum, heilla- skeytum og á margan annan hátt. — Lifið heiL Ólöf Guðmundsdóttir, Sigfús Baldvinsson, Fjólugötu 10, Akureyri. Af alhug þakka ég ykkur, vinir mínir, sem glödduð mig á 75 ára afmæli mínu. Hafliðl Bjarnason, Eskihlíð 8a. stund hver, því marga þurfti bílstjórinn að aðstoða og þreytt- ust því fljótt á snattinu. En Matthías reyndist óþreytandi og hefur verið að störfum hjá Raf- magnsveitunni síðan í rösk 41 ár. Má telja það langan starfs- aldur og hefur starfið ekki ávallt verið auðvelt né á allra færi að inna það af hendi svo vel sem Matthías hefur gert. Snemma byrjaði hann á að flytja línumannaflokka til og frá vinnu og gerðist um skeið einn- ig línumaður. Vaxð hann þannig einn af frumherjum meðal línu- mannanna, sem sumir höfðu einnig verið sjómenn áður. Var eins og að þeir veldust öðrum fremur til línustarfa, líklega af því að þeir þurftu að vera átaka góðir og sýnt um að klifra í staura, en þá var mikill hluti veitukerfisins ofanjarðar. Þótt Matthías gerðist línumaður, losn aði hann ekki við bílinn og svo fór, að hans varð full þörf við aksturinn og varð því bílstjórn- in aðalstarfið. Þegar að aukningu veitukerf- isins kom og aflstöðva, verða þungaflutningar eiginlega sér- grein Matthíasar, sern hann innti af hendi með frábærri atorku og lagni oft við ófullnægjandi flutn ingatæki. Hann flutti staurana í fyrri Sogslínu að Ljósafossi 1935, það sem vegir náðu til og vel það, og lét gera sér eftirvagn til þess að geta annað þessu, því staurarnir voru 12 til 14 m á lengd flestir. 1938 komu véla- flutningarnir að Ljósafossstöð- inni og vógu þyngstu stykkin 12 tonn. Það þótti mikið þá. Margar urðu ferðirnar austur að Ljósafossi, þótt ekki væru þungaflutningar, þá komu mann- flutningar, sem héldu áfram. Kom þá í góðar þarfir að fá bíl með fjögurra hjóla drifi til vetr- arferða. Var stundum torvelt að komast leiðar sinnar um Mos- fellsheiði eða Hellisheiði, þegar bílar sátu fastir í snjó, oft í löng inn tókst Matthíasi að komast á sínum bíl, oft utan vegar í snjó- Hjartanlega þakka ég öllum, sem sýndu mér vinarhug og glöddu mig með heimsóknum skeytum, blómum og öðrum gjöfum á sjötugsafmæli mínu. — Guð blessi ykkur ölL Álfur Arason. Ég þakka hjartanlega dætr- um mínum. tengdasonum, börnum þeirra og öllum vin- um mínum fyrir alla vináttu, gjafir og heillaskeyti á átt- ræðisafmæli mínu 9. okt. — Gúð blessi ykkur ölL Guðný Bjarnadóttir frá Hraunsnefi. þæfingi og kom þá oft til þess, að hann þurfti að hjálpa öðrum bílum upp úr festu, þegar fram hjá var komið. Reyndist hann ávallt úrræðagóður og laginn, því aldrei urðu vandræði eða óhöpp hjá honum í þessum ferð um, þótt tafsamar yrðu stund- um. Síðan breyttist starf Matthías- ar til þess að vera í nánara sam- bandi við skrifstofu Rafmagns- veitunnar og hin síðari ár, hafði hann á hendi m.a. það óvinsæla starf að fara til rafmangsneyt- enda, sem skulduðu og tilkynna þeim að lokun stæði til eða að loka fyrir rafmagnið. Kom þá fram lipurð hans og nærgætni við notandann eða fjölskyldu hans, sem er svo mikilsverð í því starfi og oft hefur hann þá jafnað ágreining eða stirðleika sem kominn var í millL Matthías hefur í starfi sínu kynnzt Reykjavík eins og hún var um aldamótin og eins og hún ex orðin í dag, mörgum mönnum betur. Hann þekkir veitukerfið frá fyrstu tíð og vöxt þess um borgina og út yfir á all- ar hliðar. Nú verður hann regl- um samkvæmt að láta af störf- um, enn með fulla starfskrafta. Þótt óska beri honum þess, að hann fái að njóta vel margra ára, sem eiga eftir að koma, þá er þó engum hollt að setjast fyr- ir iðjulaus að loknu erilsömu starfi. Ber því fremur að óska þess honum til handa á sjötugs- afmælinu, að hann fái tækifæri til þess að nota kunnugleika sinn og starfshæfni sem bezt og til hæfis á komandi árum. Matthías kvæntist snemma Guðrúnu Karlsdóttur frá Tjörn á Vatnsleysuströnd, er staðið hef ur við hlið manns síns og hefur reynzt honum traustur lífsföru- nautur. Þau hafa eignast 4 börn, 3 dætur og 1 son sem öll lifa. Fyrir hönd starfsfólks Raf- magnsveitunnar og fyrir eigin hönd og fjölskyidu minnar um röðum. En einhvern veg- þakka ég Matthíasi samstarfið og óska honum og skylduliði mælisdaginn og farsældar á komandi árum. Steingrímur Jónsson. Kærar þakkir til allra, sem glöddu mig á 70 ára afmæli mínu 3. okt. sl. — Guð blessi ykkur ölL Þórey Jónsdóttir, Skeiðarvogi 143. Minar beztu þakkir til allm sem glöddu mig, og sýndu mér margs konar sóma á 70 ára afmæli mínu 8. þ.m. Guðlaug Narfadóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.