Morgunblaðið - 13.10.1967, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 13.10.1967, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. OKT. 1967 MAYSIE GREIC: JJ| Læknirinn og dansmærin hafði oft dreymt um að fá að koma til Ameríku, en hún hafði ekki hugsað sér það nema í sambandi við dans-starfsemi sína. Hana langaði til að dansa þar, í einhverjum fína nætur- klúbbnum í New York og kom- ast svo kannski að lokum til Hollywood. Hún hafði næstum náð hámarki í list sinni hérna megin hafs, en langaði til að komast lengra. — Ef ég kæmi með yður til Ameriku, hr. Hennesy, munduð bér þá leyfa mér að halda áfram að dansa? Honum var ekkert vel við þessa spurningu. — Ég hafði vonað, að þér fynduð eittjivað annað til að eyða tímanum við en dans. — Já, en dansinn er mitt líf og yndi. — Þér gætuð fundið eitthvert annað áhugamál en dansinn. Ég hef nokkuð annað í huga handa yður. En eins og ég sagði, verður það að bíða betri tíma. En fyrir vestan gæti ég útvegað yður eig in bíl. Þér munduð verða eins og húsmóðir í húsi mínu — og raun veruleg húsmóðir með tíð og tíma, vona ég. Hann yppti öxl- um. — Jæja, þá er ég búinn að segja það. Ég veit, að ég hefði ekki átt að vera svo bráðlátur að segja það í dag. En eins og ég hef sagt, þá vorum við Graee ails ekki hamingjusöm saman, þegar þér komuð hér í húsið. Ég vildi fá skilnað Ég vildi eignast raunverulega eiginkonu til þess að búa mér heimili. Raunverulegt heimili handa okk ur Dickie. En enda þótt Grace fæddi mér son, var hún aldrei neitt annað eða meira en létt- úðardrós. Hún ætlaði sér aldrei að setjast að um kyrrt fyrir al- vöru. — Þér ættuð ekki að tala um hana í kvöld, hr. Hennesy, bað hún. — Ég skil. En augnaráðið var biðjandi. — Hef ég talað af mér? Kannski hef ég það. En hugsun- in um yður hefur alltaf verið efst í huga mínum. Reynið að skilja það, 'Yvonne. Röddin var auðmjúk. Yvonne brosti fyrirgefningar- brosi og stóð upp. — Ég ætla að reyna að gleyma mestu af því, sem þér hafið sagt í kvöld, hr. Hennesy, og ég skal athuga þetta með að koma vestur með yður. En þegar Dickie er farinn að verða mest allan daginn í skólanum, verður ekkert til að binda mig heima. Þá gæti ég sem bezt haidið áfram að dansa. — Er dansinn yður svona mik ilvægur? — Já, það er hann. Kannski gæti ég sætt mig við að hætta, ef ég væri komin alveg uppá hátindinn. En þér skiljið, að ég er búin að strita svo lengi við þetta og svo hrynur allt snögg- Frá Jfeklu Corselett Teigund 420 er framleidd úr beztu lycrateygju, sem völ er á. 1 framstykki er fyrsta flokíks satinteygja. Stoppaðar sfcálar. Litir: Hvítt og svart. Söluumboð: Davíð S. Jónsson Þingholtsstr. 18 - Símj 24333 H & R Johnson Ltd. NEFNIÐ HARMONY OG ÞÉR FÁIÐ ÞAÐ FALLEGASTA Harmony, einlitu og æðóttu postulínsflísarnar frá H&R Johnson, þykja sérstaklega smekklegar. Sannfærizt sjálf með því að skoða í byggingar- vöruverzlunum litprentaða bæklinga, þar sem sýnd- ir eru aiiir helztu möguleikar í litasamsetningum. Biðjið verzlunarmanninn að sýna yður HARMONY flísarnar og HARMONY bæklinginn — og hann er með á nótunum. HARMONY flísarnar fáið þér hjá eftirtöldum bygg- ingavöruverzlunum: Byggingavöruverzlun Kópavogs * Kársnesbraut 2, Kópavogi, sími 41010. j§H. Benediktsson hf. ™ Suðurlandsbraut 4, sími 38300. Hj JárnvörubúS KRON ^ Hverfisgötu 52, sími 15345. !;v Isleifur Jónsson hf., byggingavöruverzlun, Bolholti 4, stmi 36920. ; y KEA byggingavörudeild, * Akureyri, sími 21400. Byggingavöruverzlun Akureyrar ™ Glerárgötu 20, sími 11538. Sveinn R. Eiðsson * Sunnuhvoli, Fáskrúðsfirði. Einkaumboð: John Lindsay hf. AÐALSTRÆTI 8, SÍMAR 15789 OG 10960 lega saman. Ég bíð bara eftir að tala aftur við Seilier lækni, til að fá að vita, hvenær mér er óhætt að byrja aftur. — Æ, verið þér ekki að hugsa um það, Yvonne. Það gæti þýtt sama sem, að við yrð’um að skilja. Þó að við sleppum alveg Dickie, þá pruð þér rr.ér svo dýr- mæt — trúið því. Honum var sýnilega alvara, og röddin var orðin ofurlítið kjökrandi. Aftur hikaði hún. Hversu mikils virði var henni danslist- in? Einu sinni hafði hún verið mikilvæg. En hún vssi, að hún hefði með ánægju viljað gefa hana frá sér, til þess að giftast Marcei Sellier. — Góða 1 nótt, hr. Hennesy, sagði hún loksins. — Ég held, að við höfum talað nóg í kvöld. • /— Ég kann að hafa sagt meira en ég átti að gera, sagði hann í iðrunartóm — Og það bið ég yð ur að fyrirgefa. En svo sagði hann, næstum biðjandi: — Getið þér ekki vanið yður við að kalla mig Aron? Að minnsta kosti þeg ar við erum ein saman. y — Það væri einkennilegt. — Það þyrftfi það ekki að vera. Það færir okkur nær hvort öðru. Mér mundi ekki lengur finnast ég vera húsbóndi yðar, þegar við erum ein. Ég skil alveg, að á almannafæri mund- uð þér verða að kalla mig hr. Hennesy, en við skulum ekki gera það endranær. Hún hikaði, en henni virtist ekkert athugavert -við að láta þetta undan honum. — Gott og vel......Aron. Hún brosti snöggvast til hans og gekk út. 16. kafli. Næsta föstudag fór h.ún með strætisvagni til Nice til þess að hitta Tim. Bíllinn var en.n í viðgerð. Þetta var löng leið í miklum hita og vagninn hristist og vaggaði. Hún vissi vel, að Aron hefði lánað henni bílinn sinn og bílstjórann, hefði hún aðeins nefnt það, en hún vildi ekki láta hann vita, að hún ætl- aði að hitta Tim. Hann vildi yfir leitt helzt ekki, að hún færi neitt út. — Ég veit vel, að það er frí- dagurinn yðar, Yvonne, en ég hélt, eins og ástatt er, þá mund- uð þér heldur vilja vera heima. — Ég þarf að hitta kunningja mína í Nice, sagði hún. — Það var aftalað fyrir löngu. Þeir verða búnir að útbúa kvöldverð handa mér. Hún vissi, að þetta var ekki annað en nauðungarlygi, en hún vissi líka, að enn þoldi hann ekki að ‘heyra Tim nefndan á nafn. Og hún þóttist bera eins konar ábyrgð á Tim. Hvað hafð ist hann að? Á hverju lifði hann? Hann beið hennar á biðstöð- inni. Hann var enn vel til fara. Föún voru vönduð, en þau voru tekin að þarfnast hreinsunar og pressunar. Laglega andlitið á honum var orðið tekið. Hún fann til einhverrar meðaumkun- ar með honum — næstum móð- urlegrar. Hann fölnaði upp þegar hann sá hana, en flýtti sér að nálgast hana með útrétta hönd. Hann ætlaði að taka hana í fang sér, en hún hörfaði undan. Hann glotti. — Þú átt við, að við séum hér of mikið á almanna færi, Yvonne? Eða ertu kannski hætt að elska mig? En hann glotti enn og blátu augun virt- ust mana hana til að segja, að hún elskaði hann ekki lengur. En hún leyfði honum að taka Jig undir arminn, er þau gengu buri ■ r

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.