Morgunblaðið - 13.10.1967, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 13.10.1967, Blaðsíða 32
B U Ð I N Þekktustu vöruifierkin, mesta fjölbreytnin FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 1967 i?n mm VMwVJWVWt \ TVÖFALT 1 EINANGRUNARGLER 20ára reynsla hérlendis 1 BÖRNUNUM fjórum, sem hrifin voru úr greipum dauðans í höfninni á Skagaströnd síðastl. mið- vikudag, líður nú vel og virðast hrakningarnir ekki ætla að hafa nein alvar- leg eftirköst. Þó voru tvö þeirra ennþá rúmliggjandi þegar blaðamenn Morg- unblaðsins komu í heim- sókn í gær. Þrjú barnanna eru systkin og eru foreldr- ar þeirra þau Sigurður Magnússon og Dórothea Hallgrímsdóttir. Það ríkti mikil glaðværð á heimili þeirra þegar okkur bar að garði. Börnin voru þegar búin að gleyma volkinu og voru að leika sér, glöð og ánægð. Dórothea var ekki búin að gleyma at- burðunum, en hún var líka glöð sem börnin, glaðari en orð fá lýst. Þar var lík-a stödd íjórtán ára stúlka, In,ga Sigríð’ur Stefánsdóttir. Hún hafði séð til barnanna, þar sem flek- ann var að reka frá landi, og umsvifalaust kastað sér til sunds með það fyrir aug- Þau voru sael og hamingjusöm systkinin þrjú eftir að hafa verið heimt úr helju. Magnús Sigríður og Jósep voru að mestu búin að ná sér eftir volkið, en Jósep (lengst til hægri) var þó enn í rúminu. Sigga litla og Magnús léku við hann og styttu honum stundir. PB Fiölin snrakk. við erum að sökkva" — hrópaði eitt harnanna f jögurra í örvæntingu um leið og sjórinn laukst yfir höfuð þeirra um að reyna að dralga ha>nn að landi aftur. Þó að hug- rekkið hafi ekiki skort er vafasamt, að hún hefði getað það, miklar líkur til þess að hún hefði örmagnazt fljót- lega í köldum sjón>um. En hún sneri samt ekki við fyrr en hún sá, að Rúnar og Fritz voru búnir að hrinda bátn- um fram, og lagðir af stað til þjangar. (Ljósm.: Ól. K. M.) „Við erum að sökkva.“ „Ég man lítið nema hvað ég varð óskapdega hrædd. Ég var að leita að börnunum, þegar ég sá flekann undan landi. Hann var þá ekki far- inn að siga neitt, en var að reka frá. Éig fór úr peys- unni, sparkaði af mér skón- um, fleygði frá mér úrinu og stökk út í. Framhald á bls. 3 Höfðu nœrri skotið prestinn af vangá SÁ atburður gerðist í nágrenni Þórshafnar, að piltar um tvítugt I HK fóru á fuglaveiðar. Ætluðu þeir að skjóta sér í soðið, en skömmu eftir að þeir höfðu hafið veið- arnar skall á niðaþoka. Héldu þeir félagar þó áfram að skjóta, því að nóg mun hafa verið um fugla. En piltarnir týndu brátt átt- um, án þess að þeir yrðu þess varir. PrestUT sóknarinnar var á ferð í nágrenninu. Vissi hann ekki fyrr til en .eitt skotið þaut fram hjá honum. Það mun þó hafa verið hrein tilviljun að skotið var í átt til prestsins, að því er sögumaður Mbl. tjáði blaðinu. Piltarnir urðu að vonum ótta- slegnir, er þeir urðu þess varir, hversu nærri hælum hurð hafði skollið. Birígir Finnsson. SigurðiHr Bjamason. Jónas G. Rafna*. Þingforsetar kjörnir í gœr Björn Jónsson segir sig úr Sósíalistafl. SAMKVÆMT áreiðanlegum upplýsingum, sem Mbl. hef- ur aflað sér, hefur Björn Jónsson, alþm. og formaður Verkalýðsfélagsins Einingar á Akureyri sagt sig úr Sósíalistaflokknum. Mun þetta hafa gerzt fyrir nokkr- um dögum. Björn Jónsson hefur gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum á vegum Sósíalistaflokksins, setið Framhald á bls 31 — Birgir Finnsson forseti Sameinaðs Alþingis, Sigurður Bjarnason forseti Neðri-deildar og Jónas C. Ratnar torseti Efri-deildar í GÆR fór fram kosning þing- forseta Alþingis. Einnig voru kosnir skrifarar þingdeilda og í kjörbréfanefnd. Austurstræti teppulugt REYKVÍKINGA og a»ra, sem leið eiga um Austurstræti í dag mun áreiðanlega reka í roga- stanz, því að í dag miun hluti af gangstéttinni fyrlr framan hús Silla og Valda ver»a lagður gulu Framhald á bls 31 Forseti Sameinaðs Alþingis var kjörinn Birgir Finnsson, for- seti Neðri deildar Sigurður Bjamason og forseti Efri deildar Jónas G. Rafnar. Birgir Finns- son og Sigurður Bjarnason gegndu báðir forsetastörfum á síðasta Alþingi, en þá var for- seti Efri deildar Sigurður Ó. Ólason. Kemur nú Jónas G. Rafnar í hans stað. Framhald á bls. 19 SLATRUOU HESTI Á VÍDAVANGI TVEIR lögregluþjónar komu í fyrradag að fjórum mönnum, sem voru að flá hross í Mos- fellssveit, skammt frá Korpúlfs- stöðum. Slíkt er brot á heil- brigðissamþykkt, því að svo er kveðið á, að slátrun skuli fara fram í sláturhúsi og undir eftir- liti dýralæknis. Á Korpúlfsstöðum er full- komið sláturhús og hefði mönn- unum verið í lófa lagið að slátra hrossinu þar. Málið er í rann- sókn og enn hefur ekkert brot- legt komið fram í þvi, annað en það sem áður er sagt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.