Morgunblaðið - 19.10.1967, Side 5

Morgunblaðið - 19.10.1967, Side 5
MORGU NBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. OKT. 1967 5 Kommúnistar heimtuðu m.a. sendiherra- embætti í Moskvu og bankastjóraembætti - Þegar reynt var að endurreisa nýsköpunarstjórnina - Síðara bindi minninga Stefáns Jóhanns Stefánssonar komið út SÍÐARA bindi Minninga Stefáns Jóhanns Stefánsson- ar, fyrrum forsætisráðherra og formanns Alþýðuflokksins er nýlega komið út hjá bóka útgáfunni „Setberg.“ Bókin er 232 blaðsíður að stærð, prýdd fjölda mynda og nafna skrá fylgir. Síðara bindi’ð hefst er lýð- veldi hefur verið stofnað á íslandi. Höfundur hefur skipt bókinni í 11 kafla. Á tín~a- mótusn, Stjórnarmyndun 1947, Utanríkismál, And- staðan innan og utan, Brotið blað, Hræðslubandalag og vinstri stjórn, Sjélfvalin úti- vist um árab:!, Svipmyndir nokkurra samtíðarmanna, Erlendir skoðanabræður, Heimilið er til heilla bezt Litið um öxl og áleiðis. í upphafi þessa síðara bind is minninga sinna ræðir Stefán Jóhann Sttfánsson.um fall nýsköpunar'-tjórnarinnar í október 1946 og tilraunir til myndu nýrrar stjórnar. Höf- undur segir m.a. frá bak- tjaldamakki kommúnista og nokkurra framsóknarmanna um myndun „vinstri stjórn- ar“ og hvernig kommúnistar undir forystu Brynjólfs Bjarnasonar reyndu allt sem þeir máttu til að koana í veg fyrir stjórnarmynduin Stef- áns Jóhanns Steflánsson ar. Hér fer á eftir kaflánn úr bók Stefáns J ihar.ns um að- dragandann að stjórnar- myndun hars: „Skömmu fyrir jól 1946 hóf Ólafur Thors nýjar tilraun- ir um endurreisn ríkisstjórn ar sinnar. En rétt eftir ára- mótin, eða 2. jan. 1947, barst Alþýðuflokknum bréf frá komimúnistum. þar sem lagt var til, að forsætisráðherra væntanlegrar „vinstri stjórn ar“ yrði annað hvort valinn þannig að þeir, kom-múnist- ar, tilnefndu hann úr Alþýðu flokknum, eða Alþýðuflokk- urinn úr hópi þeirra. Þessu svaraði þignflokkur Alþýðu- flokksins daginn eftir að til- lögu minni á þá leið, að ef til þess kæmi, að Alþýðuflokk- urinn hefði forsæti í ríkis- stjórn, myndi hann sjálfur vilja ráða því, hver til þeirr- ar forystu veldist og yfirleitt myndi flokkurinn sjólfur ákveða fuiltrúa af sinni hál-fu í ríkisstjórn, án þess að kom-múnistar ætti þar nokk- urn hlut að máii. Næst gerðist eftirminnileg ur atburður í þ-essu stjórnar- myndunaþófi. Koimmúnistar skrifuðu Kjartani Ólafssyni í Hafn arfirði bréf 4. jan, 1947 og tilkynntu h-onum, að þing flokkur þairra hefði sam- þykkt að styðja hann sem forsætisráðherra og þar með annan fulltrúa Aiþýðuflokks ins í sex manna ríkisstjórn, er Alþýðufl., Framsóknarfl., og kom-mú-.istar mynduðu, ef sam.komulag næðist um málefnagrundvöll. Óskuðu kommúnistar þess jafnframt, að Kjartan lýsi yfir því við forseta íslands, að han.r væri r-eiðubúinr. að gera ti’. raun til stjórr.armyndunar. Sama dag barst Kjartani einnig bréf frá Hermanni Jónassyni og Steingrími Steinþórssym, þar sem þeir beindu því til hans, að har.n reyndi að mynda ríkisstjórn. Kváðust þeir vilja vinna að því í Framsóknarflokknum að afla honum stuðnings. Kjartan Ólafsson tilkynnti mér þetta daginn eftir 5. jan. 1947, og óskaði þess, að það yrði tekið til umræðu í mið- stjórn Alþýðuflokksins. Hét ég að gera það á næsta fundi hennar. En bréíaskriftir þess ar þóttu mér harla einkenni- legar, þótt vitað væri um þann samleik, er þé étti sér stað með kommúnistum og sumum framsóknarmönnum um stjórnarmyndun. Ég tók þessi merkilegu bréf til umræðu á miðstjórn ar- og þingflokksfúndi 10. jan. 1947, og sa-mþykkti sé fundur einróma, að Alþýðu- flokkurinn skyldi sjálfur velja forsætisráðherrann, ef hann ætti þ-ess kost að fá forsætið í ríkisstjórn. Var bréfaskriftum kommúnista og fram-sóknarmanna þar með svarað á þann eina veg, að mínu viti, sem verðu-gt var, eins og málið var í pott- inn búið. En áður en þetta svar Al- þýðuflokksins var ákveðið hafði Ólafui Thors tilkynnt mér og flokksbræðrum mín- um, 7. jan. 1947 að kommún- istar hiefðu sett honuim skil- yrði fyrir þátttóku í nýrri ríkisstjórn undir forsæti hans, sem hann teidi með öllu óaðgengiiegt. Þeir hefðu krafizt þess, að em-bættiismað ur yrði látinn taka við störf- um utanríkisráðherra af Ói- afi Thors og ar.nar ráðherra Alþýðuflokksins við við- skiptamálunum af Pétri Magnússyni að kommúnist- ar fengju sendiherraembætt- ið í Moskvu, eití bankastjóra- embættið í iandisbankanum og aðalmann eða fonmann í fjárhagsráði, sem fyrirhugað var að stofna. Átti það að vera Einar Olgeirsson. Loks hefðu þeir krsfizt þess, að Keflavíkursamningnu'm yrði sagt upp svo fijótt sem kost- ur væri. Sem vonlegt var leizt Ólafi Thors ekki á þessa kosti og gafst upp við tilraunir sínar til þess að endurreisa ný- sköpunarstjórnma. Þótti fá- um það mikið. Og satt að segja létti þungu fargi af mér, að það iiefði mátt fyrr vera. Svipaðs sinnis og sumir sjélfstæðismenn hafa verið ekki sizt Bjarni Benedikts- son. Ólafur Thors, sem hafði tekið að sér tiiraun til stjórn armynduna 17 des. 1946, til- kynnti forseta íslands 8. jan. 1947, að £-ú tilratm hefði ekki h-eppnazt. Hafði þessi öimur- lega stjórnarkreppa þé staðið í þrjé mánuði og allskonar brögð verið höfð í tafli. Hlut ust af þessu endalausa þófi aukin vandræði, enda biðu aðkallandi vandamél úrlausn ar. Brýna nauðsyn bar til þess að mynda ríkisstjórn hið bráðasta og helzt á þann veg að hún hefði stuðning öruggs m-eirihiuta é alþingi. En hvað’a réð voru fyrir hendi til slikrar etjórnar- myndunar? Stjórnarmyndun 1947. Að kvöldi hins 8. jan. 1947 hringdi Svemn Björnsson for seti til mín og bað mig að hitta sig að máli að Bessa- stöðum á tiiteknum tíma næsta dag. Að sjálflsögðu lof- aði ég því. Ekki nefndi for- setinn í símtalinu, hvaða er- in-di hann ætti við mig, en lét þess þó getið, að mig myndi e.t.v. gruna, hvað hann vildi við mig ræða. Sagði ég fátt við því, en fór þó nærri um það, því að Ól- afur Thors hafði tjéð mér, að hann hefði, um leið og hann tilkynnti forsetanum, að til- raun sín til síjórnarrwyndun- ar hefði ekki borið árangur, bent á mig til þess að reyna stjórnarmyndun. Hafði for- seti einnig létið í það skína við mig áður, að til þess gæti komið, að hann sneri sér til mín í þeim efnum. Ég fór suður að Bessastöð- um nokkru eftir hádegi 9. jan. En áður en ég fór úr alþingishúsinu bað ég þing- flokkinn að vera viðstaddan þar að rúmri klukkustund liðinni og gerði samtímis ráð- stafanir til þess að öll mið- stjórnin yrði kvödd til fundar strax á eftir. Þegar á fund forseta kom, tjáði hann mér tafarlaust þá ósk sína, að ég gerði tilraun til þess a’ð mynda ríkisstjórn, er hefði stuðning meirihluta alþingis að baki sér, lagði og um leið áherzlu á nauðsyn þess, eftir þriggja mánaða stjórnar- kreppu, að ég hraðaði þessu máli svo mikið, sem frekast væri unnt. Ég svaraði því, að enda þótt ég teldi litlar líkur til þess að mér myndi takast þetta, skyldi ég ekki skorast undan því að gera tilraunina, ef flokkur minn, sem ég myndi ráðfæra mig vi'ð strax á eftir, féllist á það, og myndi ég láta forsetann vita þetta fyrir kvöldið. Á heimleiðinni mætti ég bifreið skammt frá Bessastöðum og sá, að Brynj- ólfur Bjarnason sat í henni. Og er ég kom til Reykjavík- ur, var Hermann Jónasson að setjast upp í bifreið við al- þingishúsið, einnig á leið til Bessastaða. Síðar fékk ég vissu um það, að báðir þessir þing- menn hefðu heimsótt forset- ann þennan dag eftir þeirra eigin ósk, án kvaðningar af hans hálfu. Brynjólfur mun hafa innt hann eftir því hvort mér hefði verið falið að reyna að mynda stjórn, og forseti sagt svo vera, og myndi hann Stefán Jóh. Stefánsson láta skrifstofu sína gefa út tilkynningu um það um kvöld ið. Hef ég ástæðu til að ætla, að Brynjólfur hafi lýst mik- illi vanþóknun sinni á þess- ari ákvörðun forsetans og skýrt frá þeirri skoðun sinni, sem alkunnug var, að hann hefði, álitfð að annaðhvort hefði átt að fela þetta Her- manni Jónassyni, sem for- manni stærsta „vinstri flokks ins“, eða Kjartani Ólafssyni í Hafnarfirði, sem fengið hafði áskoranir kommúnista og for- ystumanna í Framsóknar- flokknum um að gera tilraun til þess að mynda „vinstri stjórn”. Mun forseti hafa svarað því einu, að hann hefði þegar tekið ákvarðanir sínar og þar við sæti. Hermann Jónasson spurði forseta að því, hverjum hann myndi fela áð gera nýja til- raun til stjórnarmyndunar. Mun forseti hafa skýrt hon- um frá því, en Hermann ekki beinlínis látið í ljós neina skoðun á ákvörðun hans. Eftir að ég kom frá forset- anum hélt ég fund með þing- flokki og miðstjórn Alþýðu- flokksins; sátu þann fund 23 þingmenn og miðstjórnar- menn. Skýrði ég þeim frá samtalinu við forseta og bar það undir þá, hvort þeir féll- ust á, að ég gerði tilraun til stjórnarmyndunar. Sögðu þeir allir já, að vi'ðhöfðu nafnakalli, Þar með var sú ákvörðun tekin. Ég hafði tekið að mér erfitt og vandasamt verk. En ég taldi það skyldu mína að skor ast ekki undan því.“ Mutreiðslubók fllice B. Toklos • NÝLEGA kom út hjá Det Schönbergske Forlag í Kaup- mannahöfn matreiðslubók Alice B. Toklas í danskri þýðingu Annabeth og Jens Kruuse. Er þetta bók upp á um það þrjú hundruð blaðsíður og þar er að finna uppskriftir og frásagnir af lífi þeirra Alice B. Toklas og skáldkonunnar Gertrud Stein. Á umslagi segir m.a. „Sá dag- ur kann að koma, að Gertrud Stein verði minnzt fyrir það eitt að hafa búið til lykilsetn- ingu nútímaskáldskapar: „Rós er rós er rós er rós . . .“ og að hafa snætt með Alice B. Toklas. í um það bil hólfa öld dvaldist þessi at'hyglisverða bandaríska kona í Frakklandi og skrifaði, kynnti sér list, átti þátt í og hafði áhrif á mótun nútíma- skáldskapar — og borðaði. Vin- kona hennar, einkaritari og ráðskona Alice B. Toklas, borð- aði líka. Þær áttu sameiginlega djúpa virðingu fyrir franskri matargerð. I2Uov£unWní>it» RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA AFGREIÐSLA'SKRIFSTOFA SÍMI 10«10D ÞORFINNUR EGILSSON, héraðsdómslögmaður Austurstræti 14, sími 21920 Opið 2—6 e. h. IIÖRÐUR ÓLAFSSON hæstaréttarlögmaður Löggiltur skjalaþýðandi og dómtúlkur (enska). Austurstr. 14 - Sími 10332 og 35673. LESIÐ MIG! Til sölu sem nýtt, hið vandaða ameríska alfræðisafn The American peoples cencyclo- pædia á mjög góðu verði. Á sama stað óskar ungur maður með stúdentsmennítun eftir atvinnu fyrri hluta dags eðá ó kvöldin, flest kemur til greina. Uppl. í síma 33091 kl. 12—13,30 og 17—20. Fjaðrir fjaðrablöð hl'óðkútar púströr o. fl. varahlutir í margar gerðir bifreiða Bílavörubúðin FJÖÐRIN Laugavegi 168 Sími 24180 Atvinna óskost Stúlka með gagnfræðapróf, óskar eftir atvinnu við skrif- stoustörf eða simavörziu. Til- boð merkt: „Atvinna strax — 2585 — 218“ sendist afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir 22. okt. ÓTTARYNGVASON héroðsdómslögmoður M Alflutn bmgsskri fstof a BLÖNDUHLfÐ I • SfMI 21296

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.