Morgunblaðið - 19.10.1967, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. OKT. 1987
Síldarmjölssala Norð-
manna gengur vel
— en þá vantar nýja markaði fyrir lýsið
ÞAÐ sem af er árinu hafa Norð-
menn framleitt 390.000 tonn af
síldarmjöli, segir í norska blaS-
inu Fiskaren. Birgðimar 1.
janúar voru 160.000 tonn, en til
þessa hafa 515.00 tonn verið
seld á þessu ári og eru óseldar
birgðir því aðeins um 35.000
tonn.
Af þeim 515.00 tonnum, sem
þegar er búið að selja, eiga um
40.000 tonn að aÆhendast á
BRIDGE
TVÍMENNINGSKEPPNI Bridge-
flags Reykjavíkur hófst s.l.
þriðjudagskvöld með undan-
keppni og verður hún þrjár um
ferðir. Eftir fyrstu urnferð eru
þessi pör efst:
1. Steinþór — Vilhjálmur 264
'2. Benedikt — Lárus 262
3. Stefán — Rósmundur 261
4. Laufey — Ásgerður 261
5. Hörður — Jón 250
6. Jóhann — Ólafur 249
7. Hilmar — Jako'b 246
8. Hallur — Þórir 239
9 Stefán — Eggert 238
10. Arnar — Jakob 234
Fjörutíu og átta pör taka þátt
í keppninni, sem fram fer í
Domus Medica við Egilsg.tu
Húsið er opið fyrir áhorfendur.
Þriðja umferð tvímennings-
keppninnar fer fram 24. október
og verður þá undankeppninni
lokið. Úrslitakeppnin fer fram
í nóvember og verða spilaðar
5 umferðir. Jólakeppni félagsins
fer fram 13. og 19. desember.
Stjórn B'ridgefélags Reykja-
víkur er þanni'g skipuð:
Hjalti Elíasson, form., sími
40690, Stefán J. Guðjöhnsen,
varaform., sími 10811, Þorgeir
Sigurðsson, gjaldk., sími 33250,
Guðm. Kr. Sigurðsson, ritari,
sími 21051, Ásmundur Pálsson,
fjárm.ritari, sími 10121.
næsta ári. Norðmenn reikna þó
með að selja um 40.000 tonn af
síldarmjöli tdl viðbótar á árinu,
þannig að ef allt fer sem horfir
munu óseldar birgðir í árslok
1967 aðeins nema um 35.000
tonnum.
Hins vegar er ekki eins góða
sögu að segja af síldarlýsinu
segir blaðið. Fitumagn aflans úr
Norðursjó, aðallega makrílsins,
hefur verið svo mikið, að mun
meira lýsi hefur verið unnið en
tekizt hefur að selja. Hafa því
safnazt miklar birgðir af óseldu
síldarlýsi. Lýsið er aðallega not
að til smjörlíkisframleiðslu og
er það bundið við markaði og
neyzlu, hversu mikið er hægt
að framleiða af því.
Á þessu sviði verða því Norð
menn að vinna vel að öflun
nýrra markaða.
Rýr togaraofli
KARLSEFNI landaði í Reykja
vík í vikunni 83 tonnum, en
annars hafa togaramir siglt.
Þrír af bæj a rútger ðartögur-
unum e nú á veiðum á svæð-
inu frá Lónsdýpi austur við
Hornafjörð og vestur fyrir Jök
ul, en afli er tregur og hefur
verið það síðustu tíu daga.
Ingólfur Arnars°n er á leið-
inni til Caixhaven með 150 tonn
af blönduðum fiski, en Hall-
veig Fróðadóttir landaði þar sl.
þriðjudag 124 tonnum fyrir
tæplega 140 þús. mörk.
Einar, skipstjóri, Jóhainn og Vilhjálmur með lúðuma.
Fengu 200 kg. lúðu
út af Siglufirðl
FYRIR nokkru fékk vb. Harald-
ur Ólafsson frá Hofsósi 200 punda
lúðlu úti af Siglufirði, en bátur-
ipn vajr þar á handfærum.
Þriggja manna áhöfin er á Har-
aldi ólafssyni þeir Einar Jó-
hannsson, Skipstjóri, Jóhann Ei-
ríksson ög Vilhjálmur Geir-
mundsaan, en þiað var han>n, sem
fékk lúðuna á færið. Þeir félag-
■ar voru lengi að fást váð lúðuna,
og sérstaklega gekk þeim erfið-
lega að ná henini um borð. Gripú
MH þéttskipaður
Cat ekki tekið nemendur úr Kópavogi
eins og s. I. ár
í VIÐTALI við Mbi. í gær sagði
rektor Menntaskólans við Hamra
Míð, Guðmundur Amla/Hgsson,
að skólinn væri niú þéttskipaður
og hefðu verið teknir 180 nem-
endur í sex bekkjadeildir 3.
bekkjar, en ekki nema 160 sL ár.
Þrátt fyrir þá fjölgun var ekki
unnt að taka nemendur úr Kópa-
vogi í skólann einfaldlega vegna
þess, að nemendum hefur fjölg-
að svo mikið á þeim svæðum,
sem aðallega fara í Hamrahlíðar-
skólann. Þangað sækja í stónum
dráttum þeir nemendur, sem eiga
Lárus Sveinsson
Kvöldvaka Stúd-
entalélags Rvíkur
Um þessar mundir er Stúd-
entafélag Reykjavíkur að hefja
vetrarstarfsemi og verður hún
með svipuðum hætti og undan-
farin ár.
Nú hefur verið ákveðinn al-
mennur fundur um skógrækt-
armál, frummælendur verða Há-
kon Bjarnason skógræktarstjóri
og Helgi Sæmundsson form.
menntamálaráðs. Fundur þessi
verður haldinn 25. okt. n. k. í
Sigtúni.
Kvöldvökur félagsins hafa
verið afar vinsælar og fjölsóttar
en sú fyrsta verður nú föst idags
kvöldið 20 okt. n. k. að Hótel
Sögu (súlnasal). Á samkomu
þessari verða ýmis skemmtiat-
riði, mun þar meðal annars sjna
listir sínar dansarinn Sigvaldi
ásamt dansrrærinni Iben Sonne.
Einnig mun koma fram á sam-
komu þessari trompetleikarinn
Lárus Sveinsson. Mun - lagaval
hans verða fjölbreytilegt, en
hljómsveit hússins mun aðstoða.
Dans verður stiginn fram eftir
kvöldi.
Dansparið
Aðgöngumiðar verða afhentir
fimmtudaginn 19 okt. n. k. frá
kl. 5—7 í anddyri Súlnasals,
einnig við innganginn frá k’..
7 föstudaginn 20. okt. en þá verð
ur húsið opnað.
heima í Hlíðunum og austan
þeirra sunnan Suðurlandsbrautar
og svo þeir nemendur úr Vogun-
um, sem rúm var fyrir.
Einar Magnússon, rektor
Menntaskólans í Reykjavík,
sagði, að nú vænu 10 bekkjar-
deildir í 3. bekk, en 9 sl. ár. Nem
endum hefði þó ekki fjölgað svo
mjög vegna þess, að nú vær.u
færri í hverri deild eða 20—24.
Hann sagði og, að skiptingin
milli skólanna væri ekki ná-
kvæm, þar sem yfirleitt væri far
ið eftir óskum nemenda, ef þeir
óskuðu sérstaklega eftir að fara
í annanhvorn skólann, en yfir-
leitt færu allir þeir nemendur í
Menntaskólann í Reykjavík, sem
ekki kæmust í hina skólana.
Gagnfræðaskóli
Akraness seftur
Akranesi 13. okt. 1967.
Gagnfræðaskólinn á Akra-
nesi var settur í Akraneskirkju
þann 3. október. Séra Jón M.
Guðjónsson las ritingarorð,
Haukur Guðlaugsson lék á org
el kirkjunnar og stjórnaði söng
og skólastjórinn, Ólafur Hauk-
ur Árnason flutti skólasetning
arræðu.
1 skólann eru innritaðir 326
nemendur og hafa nemendur
aldrei verið fleiri. Bekkjadeild
ir eru 14, en fastir kennarar
15 að skólastjóra meðtöidum.
Stundakennarar eru níu.
þeir til þess ráðs að festa kröku
*í kjaft lúðunnar, en festu síðan
bómuivír í krökuna og þá gátu
þeir dregið iúðuna um borð m,eð
bómiluvírnum.
Nýr rnssneskur
sendikennnri
f HAUST tekur til starfa nýr
rúissneskur sendikennari við
Heimspekideild Háskóla ís-
lands, ungfrú A. J. Shirochens
kaya. Kvöldnámiskeið í rúss-
nesku verða haldin fyrir al-
menning í vetur, og eru vænt
anlegir nemendur beðnir að
k«ma til viðtals sem hér segir:
byrjendur: þriðjudag 17. okt.
ki. 8,15 e.h. í II kennslustofu,
framhaldsnemendur: þriðjudag
17. okt. kl. 9,15 e.h. í II. kennslu
stofu.
Sigurður K.
*
Arnason
sýnir í Höfn
SIGURÐUR K. Árnason, Hst-
málari opnaði nýlega sýningu 1
Galerie M, Kompagnistræde 37
í Kaupmannahöfn. Á sýning-
unni eru 21 abstraktmálverk og
sækir listamaðurinn efnið i
myndir sínar í íslenzka náttúru.
Þetta er fyrsta sýning Sigurðar
í Danmörku og verður hún opin
til mánaðarloka.
Barkeley-
stúdentar
mótmæla
Berkeley, Oakland, 17. okt.,
AP—NTB.
Þúsundir stúdenta söfnuðust
saman við Berkeley-háskói-
ann, stærsta háskóla Banda-
ríkjanna, í dag til að taka
þátt í fjöldamótmælaaðgerð-
um við herskráningarstöðina
í Oakland. Aðgerðir þessar
eru hinar mestu, sem beint
hefur verið gegn þátttöku
Bandaríkjanna í styrjöldinni
í Víetnam. Alls munu um
3.500 stúdentar hafa tekið
þátt í mótmælaaðgerðunum
í Oakland og reyndu þeir m.
a. að loka herskráningarstöð-
inni þar.
AHt að 300 Iögreglumenn með
táragassprengjur og kylfur að
vopni réðust til atlögu gegn stúd
entaskaranum í Oakland og
ruddu strætin umhverfis her-
skráningarstöðina á nokkrum
mínútum. Talið er að 18 stúd-
entar hafi særzt í átökunum,
nokkrir alvarlega.
Kvöldið áður höfðu 5.000 stúd-
entar við Berkeley safnast sam-
an og bren.it herkva'ðningar-
spjöld sín í mótmælaskyni við
aðgerðir Bandaríkjamanna í
Víetnam-stríðinu.
OLAFUR SIGURÐSSON SKRIFAR UM
KVIKMYNDIR
Nýja bíó.
MODESTV BLAISE
MARGIR hafa orðið til að
stæla stíl Ian Fleming í riti, en
enn fieiri hafa þó orðið tál þess
að stæla kvikmyndir, sem gerð-
ar hafa verið eftir sögum hans.
Enda líður varia sú vika, að
ekki sé auglýst tovikmynd í
James Bond stii Meginhlutinn
af öllum þessum stælingum hief
ur verið lélegur, en þó til und-
antekningar, svo sem „Maðurinn
frá Istanbul" og fiedri.
Bókin Modesty Blaise er ekki
bein stæling, en þó greinileg af-
leiðing bókanna um James
Bond. Ef hún hefði verið skrifuð
á undan þeim, hefði hún verið
beinlínis fáránleg. Það sem ein-
kennir Bond og afkomendur, er
mikill og glæsilegur ytri búr.að-
ur, í húsum, fötuim og bílum.
Einnig mikil notkun alls kyns
óvenjulegs útibúnaðar og tækja,
sérlega raftækja.
Höfundur Modety Blaise hef-
ur fundið upp á því snjallræði,
að hafa aðalhetjuna kvenmann,
í stað hinna venjulegu karl-
manna. Hann veitir síðan konu
þessard óvenjuiega fegurð, veru
liega glæpahneigð. snilli í mieð-
ferð vopna, mikla kunnáttu í
bardögum o.s.frv. Stúlku þessa
leikur Monica Vitti af hæfilegu
skopskyni.
Aðstoðarmaður hennar er
Terence Stamp, einn af mörg-
um góðum, ungum enskum leik
urum, sem lítur út eins og hann
sé nýlega sloppmn úr fangelsi
eða rétt ófarinn þangað.
Gerir þó hiutverkinu góð
skil.
Dirk Bogarde leikur glæpa-
foringjann Gabriel, sem er kunn
ur að snilli, en hefur þó oft
orðið að láta í minni pokann
fyrir Modesty Blaise.
Eins og aðrar myndir í svo-
kölluðum James Bond stíl, er
þessi mynd gjörsneydd alvöru
og oft létt og fyndin. Ekki er
ráðlegt fyrir fóik að sjá hana,
sem leitar djúprar kenningar,
raunsæis eða aivóruþunga, en
ekki er myndin verri fyrir það.
í dóm um aðra kvikmynd, 1
vikuritinu Time, sem út kom
síðasta fiimmtudag, er minnzt á
Modiesty Blaise. Segir að sú
mynd sé „,the homosexiest since
Modiesty Blaise.“
Dæmi: Dirk Bogarde kemur
siglaradi að eyjunni sinni i Mið-
jarðarhafinu á rauðum og hvít-
um seglbát með bleik segl, geng
ur í land í hvítum fötum, með
ljósfjólubláa sólhlíf, upp á sval
ir með gulu og bleiku gólfi.
Það má vera að þessi sena og
margar fleiri likar gleðd augu
einhverra, en hætt er við að
þeir séu flieiri, sem finnst þetta
.nokkuð mikið. Verður ekki ann
að sagt, en að Time hafi rétt
fyrir sér um þessa mynd.
Þrátt fyrir þetta er myndin
skemmtileg og margt annað,
sem vegur upp á móti þessu.