Morgunblaðið - 13.12.1967, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.12.1967, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. DES. 1967 Vetrarhjálpin í Hafnarfirði — tekin til starfa VETRARHJALPIN í Hafnarfirði sem starfar á vegum safnaðanna í bænum, er að hefja starfsemi sína að þessu sinni. Þe‘ta er 29. starfsárið, en sl. ár var úthlutað samtals 160 þúsund krónum í 119 staði. Það var mesta úthlutun Vetrarhjálparinn ar til þess tíma. Skátar hafa jafnan aðstoðað Vetrarhjálpina með fjársöfnun og i fyrra söfnuðu þeir 5.800 krónum og er það mesta fjár- söfnun þeirra frá upphafi. Framlag bæjarsjó'ðs Hafnar- fjarðar var 50 þúsund krónur, en annað barst nefndinni beint frá einstaklingum og fyrirtækjum. Reksturskostnaður Vetrarhjálp arinnar er enginn og hefur aldrei verið. 1 fyrra safnaðist ennfremur all mikill fatnaður og sá Mæðra- styrksnefndin í Hafnarfirði um úthlutun á honum. Skátar munu fara um Hafnar- fjörð næstu kvöld til söfnunar fyrir Vetrarhjálpina og munu þeir einnig taka á móti loforðum um fatagjafir. Einnig taka nefnd armenn á móti fjárframlögum, en þeir eru séra Garðar Þorsteins son, formaður, séra Bragi Bene- diktsson, Fríkirkjuprestur, Guð- jón Magnússon, skósmíðameist- ari, Stefán Sigurðsson, kaupmað ur og Þórður Þórðarson, fram- færslufulltrúi. Nefndin óskar eftir að heim- sóknir og ábendingar um styrk- veitingar berist henni eigi síðar en 18. desember. Lifðu lífinu lifandi Leiðavísír um hamingjuleit FYRIR nokkrum árum kom út hér á landi bókin „Vörðuð leið til líísha,mingiu“ eftir Norman Vincent Peale. Hafði sú bók vak- ið heimsathygli. Baldvin Þ. Kristjánsson þýddi bókina á ís- lenzku og má segja að henni hafi verið mjög vel tekið hér á landi. Nú hefur Baldvin Þ. Kristj ánson þýtt aðra bók eftir sama höfund. Er hún nýlega komin út hjá bókaútgáfunni „Lindin". Ber hún titilinn: „Lifðu lífinu lifandi." Bækur Norman Vincent Pe- ale hafa fengið mjög góða dóma viða um heim og eru taldax fela í sér mikla lífsspeki og marg- vislegar leiðbeiningar uim, hvernig unnt sé að öðlast sanna lífshamingju og lifa innihalds- ríku og jákvæðu lífi. Baldvin Þ. Kristjánsson Varðarfélagar NÚ eru aðein þrir dagar þangað til dregið verður í happdrætti Sjálfstæðisflokksins, og eru því Varðarfélagar beðnir um að gera skil sem allra fyrst. Skrif- sbofa happdrættisins er í Sjálf- stæðishúsin-u við AusturvöU. Bókaútgáfan Æ.S.K. í Hólastifti „Sólrún og sonur vitavaröarins" - eftir sr. Jón Kr. ísfeld. Hljómplatan ,,Jólavaka" að koma út Akureyri, 10. desember. BÓKAÚTGÁFA ÆSK í Hóla- stifti sendir nú frá sér fjórðu bókina, sem hún kefur út, að þessu sinni „Sólrún og sonur vitavarðarins“ eftir sr. Jón Kr. ísæeld á Bólstað. Sagan er ætluð 12 — 16 ára unglingum og er algerlega sjálfstæð saga, þótt hún sé framhald sögunnar „Son- ur vitavarðarins“, sem út kom fyrir 2 árum og seldist upp á skömmum tíma. Bókin er 140 bls. að stærð, með myndum eftir Balthazar, en mynd á titilsíðu gerði sr. Bolli Gústavsson. Prent smiðja Björns Jónsson h/f, Akur eyri, prentaði bókina. — Aðrar útgáfubækur ÆSK eru Bítlar eða bláklukkur eftir Jennu og Hreiðar, 1966, og Unga kirkjan, söngbók til notkunar í kirkjum og í kristilegum æskulýðsfélög- uon, sem út kom fyrr á þessu hausti. Af Bítlum eða bláklukk- um eru nú aðeins fáein eintök óseld í bókabúðum Þá er um þessar mundir að, koma út hljómplatan „Jólavaka" á vegum ÆSK í Hólastifti og Fálkans h/f í Reykjavík. Birgir Helgason söngkennari, stjórnaði upptökunni, sem fram fór í Akureyrarkirkju. Börn á Akur- eyri syngja jólasálma og jólalög, og^ Elsa Friðrikka Eðvarðsdóttir (12 ára) les jólaguðspjallið (Lúkas 2, —4). Meðal laganna, sem börnin syngja, er „Kom blíða tíð“ eftir Birgi Helgason, sem nú beyrist í fyrsta sinn, og gamalt íslenzkt sálmalag, „Þá hátíð fer að höndum ein“ í út- setningu Sigursveins D. Krist- inssonar. Þá hefir Birgir samið undirleik fyrir orgel við fram- sögn jólaguðspjallsins. Platan er gerð eftir þýzkri fyrirmynd og er gefin út í þeim tilgangi að stuðla að helgistund- um á heimilum um jólahátíðina. Á kápu er mynd af syngjandi börnum við orgelið í Akureyrar- kirkju. — Sv. P. Lítið að frétta af hverasvæðinu LÍKLEGT er að hverasvæðið við Reykjanesvita sé mjög svipað, sagði Jón Jónsson, jarðfræðing- ur, í viðtali við Mbl. í gær. Jón kvaðst ekki hafa farið suður á svæðið nýlega, en vera á förum þangað næstu daga. Hið virka svæði hafði flutzt Sr. Jón Kr. ísfeld-og tveir félagar i Æskulýðsfélagi Akur- eyrarkirkju skoða nýútkomna bók frá Bókaútgáfu ÆSK í Hólastifti. Sláturfélagið opnar nýja kjðrbúð — þá stærstu sem til er í Rvík SLÁTURFÉLAG Suðurlands opn aði nýja kjörbúð að Háaleitis- braut 68 í Reykjavík í gær, og leysir hún af hólmi aðra minni verzlun, sem félagið hefur rekið þar síðan 1965. Að Háaleitis- braut 68 er að rísa fullkomin verziunarmiðstöð. Þar er þegar auk kjörbúðar SS, fullkomið bak arí, vefnaðarvörubúð, og síðar opna þar apótek, mjólkurbúð. blómabúð .gjafabúð og fleiri fyrir tæki. í Háaleitishverfi og nágranna- hverfunum býr stcr hluti íbúa Reykjavíkur, þessi hverfi eru tiltölulega ný o~ til skamms tíma hefur vantað hér um slóðir fullkomnar verzlanir og þjón- ustufyrirtæki fyrir íbúana. Heí- ur þetta að sjálfsögðu verið til óþæginda fyrir íbúana og til tjóns fyrir framlt'ðendur, sem þurfa að koma vörum sínum á markað. Það er því fagnaðar- efni báðum aðilum, að risin er fyrri áfangi viðskiptamiðstöðvar, sem skipulag bæjarins hefur gert ráð fyrir á þessum stað. í þeim hluta. sem er eign S.S., mun fé- lagið leggja kapp á að starfrækja framvegis með glæsibrag full- komna kjörbúð sem áreiðanlega er stærsta kjörbúð bæjarins og sennilega fullkomnasta kjörbúð landsins. Fleiri verzlanir og þjón ustufyrirtæki ýmissa aðila munu síðar bætast við í þetta hús og í þann áfanga, sem síðar verður byggður á þessari lóð. Þegar er starfandi í húsinu hið fullkomn- asta bakari vefnaðarvörubúð er að taka til starfa, síðar opna apótek. mjólkurbúð, blóma- og gjafavörubúð, o.m.fl. fyrirtæki. Það hafa margir lagt hönd að byggingu viðskiptamiðstöðvar- nnar. Arkitektar Teiknistofunnar Ármúla 3, Gísli Halldórsson, Jós- ef Reynis og Ólafur Júlíusson, hafa gert teikningar að.þessari verzlunarmiðstöð, múrarameist- ari hefur verið Hallgrímur Magnússon, trésmíðameistari Arnljótur Guðmundsson. pípu- lagningameistari Kristinn Auð- unsson, rafvirkjameistarar Gunn laugur Óskarsson og Guðni Helga son, dúklagningameistari Stefán Jónsson, málarameistari Ingvi Jóhannsson. Kælikerfi hefur Gísli Ágústsson annast, talkerfi og hátalarakerfi firmað Vélar og Viðtæki, rafmagnsteikningar hef- ur Jóhann Indriðason gert og lofthitakerfi er skipulagt af Kristjáni Flygenring. lofthita- kerfið byggt með yfirþrýstingi og mun það stuðla að meira hreinlæti og halda burtu ryki. Blikksmiðjan Skeifunni 3 setti upp lofthitunina. í verzluninni er Schindlerlyfta, sett upp af Björgvin Kristóferssyni og starfs mönnum hans. Flest kæliborð- in eru frá sænsku Levin-verk- smiðjunum, innréttingar sáu um Ingólfur Pálsson og Jónas Magn ússon, en söluhillur og borð í verzluninni eru frá brezka fyrir tækinu Beanstalk L.t.d., Chi- dhester. Hin fljótvirku kassa- borð við útgang úr verzluninni eru framleidd af bandaríska fyrirtækinu Spee-dee Checkout Systems, Inc. í hinni nýju kjörbúð eru ýms- ar nýjungar í verzlunarrekstri. Innkaupavenjur borgarbúa hafa breytzt mikið á seinni árum. Virðast óskir viðskiptamanna hníga í þá átt, að verzlunar- rekstri sé þannig komið fyrir. að unnt sé að kaupa sem mest í einu og komast þannig af með færri innkaupaferðir. Vegna þessa hefu verið lögð áherzla á að hafa verzlunina rúmgóða, breiða ganga svo að unnt sé að gea mikil vöruinnkaup í einu á þægilegan hátt. Aðaláherzlan mun verða lögð á fjölbreytt úr- val kjöts og kjötvara og einnig verða á boðstólum margar vöru- tegundir í stórum einingum á hagkvæmara verði en þegar minna er keypt í einu. í ræðu, sem forstjóri S.S., Jón H. Bergs, hélt, þegar verzlunin Framhald á bls. 12 nokkuð norðar, er Jón hafði síð- ast fréttir af því. Höfðu þá kom- ið upp leirpyttir og hvæsandi hverir, þar sem áður var aðeins velgja í jörðu. Athugosemd Mbl. hefur borizt eftirfarandi: „Ein af fyrirsögnum Morgun- blaðsins — nánar tiltekið 10. þ.m. má lesa eftirfarandi á blaðsíðu 31. ,,Nefnd kannar mjólkurum- búðarmálið. Skipuð hefur verið nefnd, sem í eiga sæti fulFrúar úr flestum ráðuneytum, til að kanna svo- nefnd mjólkurumbúðarmál“. Svo mörg eru þau orð. En Morgunblaðið gleymir aðalatrið- inu, sem er, að í nefndinni er enginn fulltrúi frá heilbrigðis- málaráðuneytinu, frá því ráðu- neyti, sem hefur þó með þessi mál að gera. eða frá þeim stofn- unum ,sem vinna á þess vegum í mjólkur og matvælaeftirliti landsins. Þar má til nefna land- læknisembættið, héraðslækna, heilbrigðisnefndir og mjólkur- eftirlit ríkisins. Þegar undirritaður byrjaði að starfa í mjólkurmálum landsins fyrir ca. 21. ári, þá voru vöru- gæðin aðalatriðið en ekki um- búðirnar. Nú er hins vegar svo komið hjá „sumum“. að gæði vörunnar er aukaatriði, en um- búðirnar aðalatriðið. Rétt er að geta þess, að um- rædd grein í Morgunblaðinu er ófeðruð. Eg óska öllum landsmönnum árs og friðar á komandi ári. Reykjavík 11. des. »1967. Kári Guðmundsson“. Aths.: Hér var um að ræða venju- lega frétt og því ekki rætt uan annað en staðreyndir málsins. Það er því út í hött að Mbl. hafi „gleymt aðalatriðinu". Um fað- erni fréttarinnar má taka frarn. að það þolir hvaða blóðprufu sem er. ritstj. Stjórn og forstjóri SS, ásamt verzlunarstjóra nýju verzlunarinnar. Frá v.: Iielgi Haraidsson, Pétur Ottesen, Jón Bergs, forstjóri, Sigurður Tómasson, Siggeir Lárusson, Gísli Andrésson og Guðjón Guðjónsson, verzlunarstjóri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.