Morgunblaðið - 13.12.1967, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 13.12.1967, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. DES. 1967 23 Sigurður Haukur Guðjónsson. skxifar um BARNA- OG UNGLINGABÆKUR Leiðtogafundur Araba í Rabat TVÖ ÆVINTYRI. Höfundur: Ármann Kr. Einars son. Skreyting: Tryggvi Magn- úsison. Káputeikning: Friðrika Geirsdóttir. Prentun og útgáfa Bókaforlag Odds Björnssonar. iÞetta er afmælisútgá'fa, því 30 ár eru liðin síðan 'höfundur sendi frá sér fyrstu bó'kina. Hefiir þessa 'merka höfundar verið getið, og það að verðleik- umi, á þessum tímamótum, í blöð um og útvarpi. Rithöfundurinn Guðmundur Gíslason Haga'lín gerir í fonmála að bók þessari grein fyrir barna- og unglinga- bókum og eins rekur hann höf- undarferil Ármanns. Það mun ekki of mælt, að fáir hafa meir lagt til af þroskandi desefni fyr- ir ibörn en höfundur þessarar bókar. Hann ,er stranglheiðarleg- uir við lesendur sína, agar mál sitt, virðist ætíð gefa sér nægan tíma til heflunar og skiilji þá fyrst við, er 'hann kann ekki betur að gera. Sjálfsagt eru það þe-ssi vinnutorögð, sem vakið hafa athygli á höfundinuim er- lendis, og hafa frændur okkar Norðmenn og Danir birt 13 bóka hans ef ég man rétt. Slíkt væri í sjálfu sér lítið hótl ef hér væri aðeins prentsvertusali á ferð, en langan lestur þarf ei í bókum höfundar til þess að sannfærast uim, að gróðinn eir lesandans, og því erum við stolt af þjóðkiynn- ingarstairfi Árpianns Ævintýrin tvö er hér birtast eru endurprentanir, því þau voru hreinlega lesin upp til agna, er þau komu út, hið fyxra sinnið. Ævintýrin eru auðsjáan- lega ætluð unglingum, sem gaman hafa af draumsýniuirm Þau eru í raun nokkuð lík, bæði fjalla um göngu í fjallið, ef svo Ármann Kr. Einarsson. mætti orða það, og um þá furðuiheima, er þjóðtrú okkar hafði þar staðsett. Höfundur teflir fram sakleysi og fegurð æskunnar móti þursum myrkurs ins, og eins og ailltaf í bókum sigrar ljósið myrki'ið. Rafljósin hafa rekið trú þá, sem er bak- grunnur ævintýranna á dyr. Forvitnilegt verður því að sjá, hvern viðgang þau hljóta að hjörtum unglinga nú. Við sem ólumst upp undir hlíðum fjaíla, við efuðumst e'kki um töfra- heima í iðrum þeirra, en þeir sem vart þekkja strá frá 'blómi, bvað 'þá hól frá fjalli, hvernig fellur þeim þessi bóik? Riof við fort'íðina leiðir ætíð af sér rót- leysi, til þess að hamla gegn slíku ,eru þessi ævintýri tvö sögð. Lesendum mun ekki leið- ast því fjörlega er sagt frá. Myndaskreytingar Tryggva og Friðriku eru skemmtilegar og auka tvímœlailaust gildi bó'kar- innar. Prentun og allur frágangur er sHkuir, að til fyrirmyndar er. Lelur stórt og hreint og pappír góður. Hafi Bókaforlag Odds Björns- sonar þökk fyrir góða bók. f.EIÐRÉTTINGAR: Þau leiðu mistök urðu í síð- asta þætti, að heiti þeirra tveggja bóka, er getið vaæ félilu niðu.r í prentun. Eins misritaðist höfundarnafn fyrri bókarinnar. Bækurnar voru: ÚLFHUNDURINN eftir Ken Anderson í þýðingu Benedikts Arn'kelssonar. DÆMISÖGUR ESÓPS í ljóð- um. , Aðrar villur nenni ég ekki að eltast við. Bið útgefendur afsök- unar á þessum leiðu mistökum. Sig. Haukur Guðjónsson. Loftleiðamálið Kaupmannahöfn, 11. deseimber. Einkaskeyti til Mbl. Samgöngumálaráðherra Dan- merkur, Noregs, Finnlancls og Svíþjóðar komu saman til fund- ar á Iaugardag og ræddu þar meðal annars Loftleiðamálið. Kynntu þeir sér fyrirliggjandi flugáætlanir og grundvöllinn fyrir samkeppni Loftleiða og SAS í framtíðinni. Loftleiðamálið verður nú rætt hjá ríkisstjórnum hvers viðkom andi lands fyrir sig, og að því loknu veirða fljótilega teknir upp saimningar við fulltrúa ís- lenzku stjórnarinnar um lend- ingarleyfi Loftleiða ó Norður- löndum. — Rytgaard. Kairo, 11. des. — NTB — UTANRÍKISRÁÐHERRAR og aðrir háttsettir embættismenn Arabaríkjanna komu saman um helgina í Kairo til að undirbúa fund æðstu manna Arabaríkj- anna, sem fyrirhugaður er í Rab at í Marokko 17. janúar nlt. Ráðherrarnir ræddu meðal annars hvaða mál skyldi tókin til meðferðar á fundinum í Rab- at og gerðu uppkast að dagskrá, þar sem gert var ráð fyrir eft- irfarandi umræðuefnuim: 1. Afstaða Arabaríkjanna eftir friðartilraunir þær, sem Sam- einuðiu þjóðirnar hafa staðið fyr ir í Austurlöndum nær. 2. Sameiginleg afstaða Araba- ríkjanna til þess að neyða ísrael Nýr forstjóri Osta- og smjörsölunnar Á stjórnarfundi Osta- og smjörsölunnar s.f. hinn 6. þ.m. var Óskar H. Gunnarsson ráðinn framkvæmdastjóri fyrirtækisins frá 1. janúar 1968 í stað Sigurð- ar 'heitins Benediktssonar, sem lézt 22. október síðastliðinn. Óskar H. Gunnarsson er fædd- ur í Stykkisihólmi 31. öktóber 1932 ,sonur hjónanna Hildar Vig fúsdóttur og Gunnars Jónatans- sonar ráðunauts. Óskar stundaði nám við Samvinnuskólann 19ö0 til 1952 og var við framhaldsnám í Svíþjóð eitt ár. Árið 1953 réðst hann til starfa hjá Samíbandi ís- lenzkra samvinnufélaga og starf- aði 'hjiá ýmsum deildum þess þar til í október 1958, að hann réðst til þess að láta af hendi her- nuimin landsvæði. 3. Hvernig unnt sé að styrkja áhrif og samheldni Arafoarílkj- anna. Einnig verða rædd hermál og stjórnmála- og efnahagsleg áhrif deilunnar við ísrael. HLns veg- ar er haft eftir góðum heimild- um, að ekki verði ræitt uim frið- aráætlun Sameinuðu þjóðanna, þar sem gert er ráð fyrir, að ísraelsmenn hverfi frá her- numdu landsvæðunum, sáttfús- ari afstöðu Arabaríkjanna til ís- raels og að tryggðar séu frjálls- ar siglingar um alþjóðlegar sigl- ingaleiðir í Austurlöndum nær, og er þá Súezskurður meðtal- inn. til Osta- og smjörsölunnar s.f., sem þá var verið að koma á laggirnar, og var skrifstofuscjóri hennar fram til 1965. Kona Óskars er Unnur Agnars dóttir fró Akureyri. halda ALMENIMAM HÁDEGISVERÐARFUIMD á morgun, fimmtudag 14. desember kl 13.00 að Hótel Sögu. Dagskrá: GERRÆÐI IViEIRIHLIiTA VERÐLAGSMEFIMDAR í SETMIMGt VERÐLAGSAKVÆÐA Kaupmenn og verzlunareigendur fjölmennið. Tilkynna þarf þátttöku til skrifstofu Kaupmannasamtakanna í síma 19390, og 15841. * Kaupmannasamtök Islands

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.