Morgunblaðið - 13.12.1967, Blaðsíða 5
MORGUN3LAÐIÐ, MIÐVIK.UDAGUR 13. DES. 1967
Blindum gefin blindraúr
NÝLEGA aíhenti Magnús E.
Balvinsson úrsmiður og kona
hans Unnur Benediktsclóttir
Blindrafélaginu að gjöf 20 vönd-
uð armibandsúr í tilefni af
tuttugu ára starfsafmæli úra og
skartgripaverzlunar Magnúsar,
en í dag eru tuttugu ár siðan
hún tók til starfa.
hessi úr voru eftir beiðni
Magnúsar sérstaklega framleidd
fyrir blint fólk og eru þau með
upphleyptum púnktum á kífun-
um auk tölustafa, sem gera
blindum kleift að lesa á úrm. Að
auki eru þau útbúin til að þoia
högg og óeðlilegt hnjask.
Úrin eru framleidd af Nivada
Watoh Co., en Magnús E. Bald-
vinsson er umboðsmaður Nivada
hér á landi og byrjaði verzlun
sína fyrir tuttugu árum með úr-
um frá þeim,
Blindrafélagið flytur þeim
hjónurn innilegar þakkir fyrir I þau sýna félaginu með þessari
vinsemd og höfðingsskap, sem t veglegu gjöf.
Fortnaður Blindrafélagsins, Margrét Andrésdóttir, þakkar
„Brennur París"
— bók Collins og Lapierre komin út
í íslenzkri þýðingu
KOMIN er út í íslenzkri þýð-
ingu bók þeirra Larry Collins og
Dominique Lapierre, „Brennur
París?“ með undirtitlinum:
Spurning Adolfs Hitlers 25.
ágúst 1944.
Bókin skiptist í þrjá megin-
kafla: Ógnunin, Baráttan og
Lausnin. Fjallar hún um frelsun
Parísar úr höndum nazista, en
skipun Hitlers var afdráttarlaus:
París ber að verja, hvað sem það
kostar. „París má ekki falla í
hendur fjandmönnunum, en fari
svo, mega þeir ekki finna neitt
annað en rústabreiðu".
Höfundarnir eru báðir blaða-
menn. Larry Collins er Banda-
ríkjamaður, 38 ára gamall. —
Hann starfaði fyrir United Press
og síðar fyrir Newsweek í París,
Róm og Austurlöndum nær. Þeg
ar hann fór frá Austurlöndum
hafði hann flutt tíðindi af 13
stjórnarskiptum, sem gerð voru
með ofbeldi og átt samtöl m.a.
við Nasser, Nehru og Shahinn í
íran. Árið 1961 fór hann til Par-
ísar og hafði fréttaflutning á
hendi af úrslitaátökunum f
Alsír. f fjögur ár safnaði hann
heimildum að „Brennur París?“,
ásamt Dominique Lapierre.
Lapierre er 34 ára gamall. —
Hann var aðeins 17 ára, þegar
fyrsta bók hans kom út, en síðan
rak hver aðra um ævintýraleg-
an feril hans sem blaðamanns.
Hann var t.d. fyrstur erlendra
blaðamanna til þess að ferðast
um Sovétríkin þver og endilöng
í bíl eftir dauða Stalíns. Hann
var fyrsti blaðamaðurinn, sem
fór um borð í „Santa María“,
skipið, sem portúgalski stjórnar-
andstæðingurinn Galvao rændi
og hinn síðasti, sem talaði við
Chessmann áður en hann var
tekinn af lífi. Hann hefur verið
stríðsfréttaritari í Kóreu og
Alsír og fréttaritari Paris-Match
í Moskvu, New York og Tókíó.
Bókin „Brennur Paris?“ varð
metsölubók, þegar hún kom út
og nú hefur verið gerð kvik-
mynd eftir henni. Bókin er 331
bls. að stærð. Hersteinn Pálsson
þýddi, en útgefandi er ísafold.
Leynifélagið sjö saman
KOMIN ER út ný barnabók eftir
Enid Blyton, „Leynifélagið Sjö
saman“. Er þetta fyrsta bók í
nýjum flokki sögubóka eftir
skáldkonuna. Útgefandi er Bóka-
verzlun Sigfúsar Eymundssonar,
sem jafnframt hefur tryggt sér
útigáfurétt á þessum bókaflokki
öllum,
„Leynifélagið Sjö saman“ fjall
ar um afrek og ævin.ýri sex
drengja og einnar stúlku, sem
öll eru leiiksystkini og vinir, en
hafia nú stofnað með sér leyni-
legan félagsskap, meira að segja
mjög leynilegan í þeim filgangi
að hjálpa lögreglunni til að halda
uppi lögum og rétti. Þetia er
mjög samvalinn og dugmikill
hópur, Logandi af athafnabrá og
ævintýralöngun, en að sama
skapi drengilegur 1 öllum við-
brögðum. Að sjálfsögðu drífur
margt á dagana fyrir þeim félög-
unum og kemur sér þá vel, að
þeir láta sér ekki alli fyrir brjósti
brenna, en með hugkvæmni sinni
og hetjulund sigrast þeir á öllum
erfiðleikum og hreppa sitt hxós
að lokum — eins og vera ber.
„Leynifélagið Sjö saman“ er
Stálkross á
kírkju
NÝLEGA er lokið við að setja
upp vandaðan stálkross á turn
Hríseyjarkirkju. Er það gjöf frá
frú Lilju Valdimarsdóttur,
Strandgötu 23, Akureyri, til
miinningar um mann hennar,
Steingrím G. Guðmundsson vél-
smið, og aðra látna ástvini. Svein
björn Jónsson forstjóri Ofna-
smiðjunnar sá um simiíði kross-
ims.
Færir sóknarnefndin frú Lilju
kærar þakkir fyrir þessa mynd-
arlegu gjöf.
Frá sóknarnefnd Hríseyjar-
kirkju.
blaðsíður, prýdd fjölda
mynda eftir brezka málarann 3e-
orge Brook. Elísabet Jónsdóttir
hefur þýtt bókina á íslenzku, en
Víkingsprent séð um prentunina.
Herratizkan
idag
fyrir herra á öllum aldri, er
frá árinu 1890. Fallegt snið,
margar stærðir, munstur og lit-
ir. Lágt vei-S. Einnig úrval af
klassiskum herrafatnaði á hag-
stæðu verði.
Fatamiðstöðin er miðstöð
herratízkunnar og lága verðs-
ins.
Fatamiðstöðin
Bankastræti 9.
Andrés
Laugavegi 3.
ný barnábók eftir Enid Blyton
126
Jaok London var sannkallaður sjóari á hesthaki. Heims-
kunnur rithöfundur Irving Stone, sem m.a. annars
hefur samið ævisögu Van Goghs, gerir skemmtilega
grein fyrir æviferli Jack Londons í þessari alkunnu
bók, en Gylfi Pálsson, skólastjóri þýddi bókin á íslenzku.