Morgunblaðið - 13.12.1967, Page 4
4
MORGtJNBLAÐlÐ, MÍÐVIKUDAGUR 13. DES. 19*57
>
Hverfisgötu 103.
Simi eftir lokun 31160.
LITLA
BÍLALEIGAN
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt leigugjald
Sími 14970
Eftir lokun 14970 e»a 81748
Sigurður Jónsson
BÍLALEIGAIM
- VAKUR -
Sundlaugavegi 13. Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
y.——*B/iAirrejur
RAUOARARSTÍG 31 SÍMI 22022
Til sölu
tölulager um 29 þús. dúsín,
um 300 teg. Verð og
greiðsluskilmálar hagstæð-
ir. Einnig tvíhleypt hagla-
byssa (Browning) ónotuð
og herraskautar á skóm nr.
42, nýir. Uppl. í síma 17142.
PILTAR,
EFÞlÐ EIGIV UNNUSTl/NA
ÞA Á BO HRINÍrANA /
Afar/&/7
AU-ÐVITAÐ
ALLTAF
★ Villimennska
heldur innreið sína
í gær var sagt frá því í
blöðum, að daginn áður hefði
verið farin mótmælaganga til
Bandaríska sendiráðsins til að
mótmæla stefnu Bandaríkja-
stjórnar í Víetnam. Að sögn
kommúnistablaðsins var það
Æskulýðsfylkingin, samtök
ungra kommúnista, sem geng-
ust fyrir þessari mótmæla-
göngu. Síðan segir frá þvi, að
fyrir framan sendiráðið hafi
verið brennd brúða, sem tákn-
aði Johnson, Bandaríkjafor-
seta.
Hér hafa, að dómi Velvak-
anda, gerzt mjög athyglisverðir
hlutir, sem ekki er úr vegi að
fara um nokkrum orðum. Það
er út af fyrir sig ekki nýtt í
veraldarsögunni, að menn geri
eftirmyndir af óvinum sínuim
og vinni síðan eftirmyndinni
eitthvert það tjón, seim þeir
vildu vinna fyrirmyndinni, en
geta ekki vegna fjarlægðar og
skorfs á annarri nauðsynlegri
aðstöðu. Þessi aðferð hefur
lengra en sögur ná verið iðkuð
meðal ýmsra siðlausra villi-
manna. Er þar um að ræða eina
aðferð galdurs, hermigaldur
svonefndan, en iðkendur hans
trúa þvi, að það sem gert er
eftirmyndinni komi fram á
fyrirmyndinni. í augum slíkra
villi manna hefði ekki þurft að
efast um það, að Johnson hefði
brunnið tíl ösku heima hjá sér
í Bandaríkjunum um leið og
eftirmynd hans brann hér á
Laufáfíveginum.
Yfirlýstur
manndrápsvilji
Nú ætlar Velvakandi þeim
sem að þessari tuskubrúðu-
brennu stóðu ekki þau viðhorf
einfeldnistrúar villiimannsins,
að ímynda sér að brenna eftir-
myndarinnar skaði fyrirmynd-
ina. Mun því hér fremur hafa
verið um viljayfirlýsingu að
ræða hjá brennumönnum þess-
um. Þeir hafa þá verið að lýsa
yfir þeim vilja sínum, að það
sem þeir gerðu við eftinmynd-
ina, vildu þeir gert hafa við
fyrirmyndina, ef þeir hefðu
haft tækifæri og aðstöðu til.
Þessir menn hafa þannig lýst
því yfir, að þeir vilja brenna
Bandaríkjaforseta á báli fyrir
stefnu hans í styrjöldinni í Víet
nam. Það er hlægileg þver-
stæða þegar menn þykjast
ganga fraim í nafni friðarins en
láta jafnframt í ljós opinber-
lega svo ódulbúinn manndráps-
vilja.
Við Íslendingar höfum löng-
um viljað halda okkur utan við
styrjaldir, manndráp og hvers
kyns villimennsku. Eru menn
því Ifrtrt hrifnir af því, að inn-
leiða hér atferli og hugarfar
brennumanna frá sunnudeg-
inu/m.
Leyfir lögreglan
slíkar brennur?
Þingholtabúi skrifar til
velvakanda í tilefni tuskubrúðu
brennunnar á sunnudaginn. —
Hann kveðst hafa verið þar nær
staddur og spyr hvernig á því
standi að lögreglan leyfi slíkar
brennur á almannafæri og ef
hún haifi ekki leyft þessa
brennu, hversvegna hún láti
hana þá viðgangast. Segir
hann að sér finnist að lögreglan
hefði átt að grípa fram fyrir
hendurnar á brennumönnum og
slökkva í tuskuibrúðu þeirra.
Velvakandí veit ekkert um
þetta. Hann veit ekki hvort
brenna hefur verið leyfð af rétt
um lögregluyfirvöldum, né
hvort lögreglumenn hafa aðeins
kinokað sér við að grípa fram
fyir hendurnar á brennumönn-
um. En um hitt er Valvakanda
fullkunnugt, að þegar slíkar
brúður eru brenndar í hópi villi
manna þar sem því er jafn-
framt trúað að brenna eftir-
myndarinnar skaði fyrirmynd-
inaina. þá er stranglega bannað
að hindra framgajig brennunn-
ar. Þá verða nærstaddir að
halda sig í haefilegri fjarlægð og
hafa hægt um sig, í þæsta lagi
mega þeir raula galdrastef. Ann
arsars gaati svo farið, að hermi-
galdurinn bæri ekki tilætluð
áhrif. En hvort um eitthvað
slíkt hefur verið að ræða hér
skal ósagt látið.
'Á' Brauðverðið
Reykjavík, nóv. ’67.
Velvakandi góður!
í Mbl. 25. nóv. er grein eftir
bakarameistara, sem ber sig illa
yfir of lágu verði á brauðvöru,
útseldri frá eigin bakaríi. Það
má lengi deila um verð, en um
gæði vil ég mega segja nokkur
orð.
Gott er að geta fengið nýtt
brauð daglega, en að geta ekki
geymt það deginum lengur án
þess að það skemmist er væg-
ast sagt ófremdarástand.
Nú spyr ég, er það efninu að
kenna? Bakaram. segir marga
undrast að gerlegt sé að reka
brauðgerð með svo lágu verði
á brauði, þ. e. a. s. lágt verð að
hans dómi. Ég hef aldrei heyrt
húsmóður hvað þá heldur hús-
bónda kvarta yfir of lágu brauð
verði. Sá góði maður, bakaram.,
miðar verð og kaup við frænd-
ur okkar á Norðurlöndum. skul-
urn við einniig minnast á gæði
og endingu. Um innflutning á
brauðvöru, á bakaðri vöru.
gætu bakarar lært mikið, tök-
um t. d. margumtalaða tertu-
botna. Ég var í þeirri aðstöðu,
að geta kynnt mér ágæti þeirra.
Þeir eru seldir í hverri kjörbúð
hjá Dönskum og þar er
ekki farið í launkofa með
neitt. Á hvern pakka sem inni-
heldur 3 stk. botna er dagsetn-
ing sem segir til um að þessi
sending sé jafngóð eftir 3 vik-
ur. Er þetta ekki vöruvöndun?
Þess vegna lái ég engum sem
gjarnan vill hafa aðstöðu til að
kaupa t. d. erlenda tertubotna,
þótt við kannske ek'ki höfum
efni á því gjaldeyrislega séð,
en það er önnur saga.
Það sannasrt alltaf betur mál-
tækið: „Enginn er búmaður
nema hann barmi sér“, á ég þar
við háttvirtan bakarameistara.
J. M.
Bílaverkstæði
til sölu á góðum stað, góð kjör. Tilboð merkt: „5996“
sendist afgr. Mbl. fyrir 15. þ. m.
SÖNGKERFI
Óskum eftir að kaupa, eða taka á leigu notað söng-
kerfi. Nánari upplýsingar í síma 18263 kl. 6—8
í dag og næstu daga.
FYRIR ÞA SEM
FYLGJAST MEÐ
FRJ/AI-S
VIERZLLJIM
Áskriftarsími 82300.
Úrval leikíanga
Bílabrautir, batterísbílar, traktorar og
ruggustólar fyrir börn.
Járnbrautir, flugvélar. — Ótal margt fleira.
Gjörið svo vel og lítið inn.
FRÍSTUNDABÚÐIN
Veltusundi 1 — Sími 18722.
borðstofuhúsgögnin
ERU LANDSÞEKKT FYRIR
VERÐ OG GÆÐI.
* 1
Simi-22900
Laugaveg 26