Morgunblaðið - 13.12.1967, Side 22

Morgunblaðið - 13.12.1967, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. DES. 1967 Kristín Eggertsdóttir — Minning — Fædd 3. ágúst 1924. Dáin 4. desember 1967. í DAG verður KristLn Eggerts- dótitir jarðsungin frá Fossvogs- kirkju. Vildi ég mega minnast minnar kæru bróðurdóttur með örfáum orðum. Kristín var fædd 3. ágúst 1924 í Stykkishókni. Foreldrar hennar voru hjónin Lilja Eiínborg Jóns- dóttir og Eggert Th. Grímsson. >au voru þá búsett í Stykkis- hólmi. Kristín var þriðja barn foreldra sinna, en alts urðu börnin sex, og fæddust þrjú þeirra í Reykjavík. Árið 1928 fluttist Kristin með foreldrum sinum til Reykjavikur og ólst þar upp. Á barnsaldri átti hún við vanheilsu að stríða, en eftir fermingaraldur náði hún allgóðri heilsu. Hinn 9. júní 1945 gekk hún í hjónaband með Jóhann- esi Guðmundssyni prentara frá Núpi í Haukadal í Dalasýslu. Þau eignuðust eina dóttur 22. septeimber 1946, er hlaut nafnið Lára. Fyrir rúmuim 11 érum missti Kristín heilsuna; lá fyrst hehna, en síðar í sjúkrahúsuim og síðustu árin á VífiLsstöðum, þar sem hún lézt 4. þ.m. Kristín var greind og gæflynd t Hjartkær eiginmaður minn og faðir Runólfur Sigurberg Runólfsson Austurbrún 6, andaðist a'ð heimili sínu að morgni 11. desember. Guðlaug Ólafsdóttir og börnin. ____________________________ t Konan mín, móðir okkar og fósturmóðir, Kristín Jónsdóttir frá Jaðri, Langanesi, lézt í sjúkrahúsinu Sólvangi 12. desember. Guðjón Þórðarson, börn og fósturbörn. t Útför konunnar minnar Jónínu Guðrúnar Kristmundsdóttur Jaðri, Hrunamannahreppi sem andaðist 9. des. s.í. fer fram frá Hrunakirkju 16. des. n. k. kl. 2 e. h. Bílferð frá Umferðarmiðstöðinni í Reykja vík kl. 10 f. h. Guðbergur Guðnason. kona, og bar veikindi sin með æðrulausri rósemi, enda vissi hún að óhæfct var að treysta manni hennar fyrir uppeldi dótturinnar. Jóhannes maður hennar reyndist henni alla tíð hinn trausti og góði félagi, seon sýndi einstakt þrek og rósemi í langvarandi veikindum hennar. Eftirlifandi móðir Kristínar, systkini, venzlafólk og vinir eiga þeim feðginum meira að þakka en svo, að hægt sé að tjá það með ófuIHkomnum orðum. Læknum, starfsliði og stodúsystr- um á Vífilsstaðahæli skal hér með tjáð einlæg þökk fyrir frá- bæra hjúkrun og umhyggju. Litlu eftir brúðkaup þeirra Kristinar og Jóhannesar, í byrj- un júlímánaðar 1945, fórum við t Útför móður minnar og tengdamóður, Jónínu Tómasdóttur, sem andaðist 5. þ. m. fer fram Erá Háteigskirkju, fimmtudag- inn, 14. þ. m. kl. 14 að lok- inni kveðjuathöfn á heimili okkar, Háteigsvegi 44. Jón Kjartansson, Þómý Tómasdóttir. . t Eiginmaður minn og faðir okk ar, Vilhelm Bemhöft bakarameistari, Bárugötn 12, sem lézt 4. desember verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 14. desember kl. 2 eftir hádegi. Anna Bernhöft, Guðrún Marr, Lilja Bernhöft. t Útför Þorvaldar Klemenssonar frá Jámgerðarstöðum í Grindavík, sem andaðist í Landakotsspít- ala 9. desember síðastliðinn, verður gerð frá Grindavíkur- kirkju laugardaginn 16. desem ber næstkomandi, og hefst at- höfnin kl. 13.30. Ferð verður frá Umferðar- miðstöðinni kl. 12.30. Þeir, sem vildu minnast hans, eru vinsamlega beðnir að láta líknarstofnanir njóta þess. Stefanía M. Tómasdóttir, böm, tengdabörn, baraaböm og barnabarnabarn. t Faðir minn, tengdafaðir og sonur Kristján A. Ágústsson prentari, er lézt 6. desember verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju 14. desember kl. 10.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á félagið Hjarta- vernd. Ágúst Kristjánsson, Sigurlaug Jónsdóttir, Ágúst Jósefsson. í sumarleyfisferð vestur að Búð- um á Snæfellsnesi á vegum Breið firðingafélagsins, og var það þeirra brúðkaupsferð. Þá fyrst kynntist ég Jóhannesi, og hefur eigi .fallið skuggi á þann góða dreng öll árin síðan. Við gengum á Búðakilett og um Búðahraun og ég man alltaf hvað Kristín dáðist að fegurð hraunsins og fjölskrúði jurtagróðurs þar. Einn daginn gengum við á Snæfellsjökul, upp á hæsta tind. Við gengum á jökulinn austan frá, en suðvestur af honum niður að Dagverðará. Ég undraðist þá þrek hennar og þolgæði, því að þetta var allerfið ganga, en mjög ánægjuleg, því að við vorum heppin með veður. Ég man hvað við vorum öll glöð á efsta tindinum um hádegið í heiðríkjunni, enda gott skyggni til allra átta. Kannski hefur þetta verið fyrsta og síðasta fjall- ganga Kristínar. Ég þakka þér, Stína mín, allar ánægjustundirnar, sem þú veittir mér og mínum. Blessuð sé sú minning, sem um þig lifir í hug- um okkar, sem þekktum þig. Eiginmanni þínum og dóttur ykkar votta ég samúð rrúna, svo og móður þinni og systkinum. Davíð Ó. Grímsson. Lára Pálsdótti - Kveðja - F. 10/12 1900. — D 6/7 1967 KVEÐJA FRÁ VINUM Þú kvaddir víðlendið heiða og Holtin græn, og Holtin víðlendu senda þakkir og bæn. Þú opnaðir faðminn því lífi, sem lasburða fer, og lífið sendi þér skilniing, og kross þinn ber. Af veikluðum kröftum kyntirðu fórnarbál, og kærleikur þinn fór að vaxa í náungans sál. Mold er græðara góð. Seytlar vætla um vin. Rót að kerinu krýpur, Gegnum gneipa lund þytur frelsis fer. Bros í þögninni brumar. Kvöl á stoltri stund ávöxt birtu ber. Gleði semur við sumar. Það saknar þín runni og rjóður og rósir og vetrargróður. Og gestir, er gafstu hlýju, gefa þér þakkir að nýju. Það þakkar þér bóndi og bróðir og börnin, er varstu sem móðir. Þú áttir, Lára, aðeins bros og kross, við eigum land, sem brauztu fyrir oss. Þú kveður aldrei Holt í heiði græn, því hýðið sprengir rós af þinni bæn. Vinir. Skoteldor MJÖG strangar reglur gilda um sölu og notkun skotelda og varða brot á þeim sektum og einnig eru ólöglegir skoteldar gerðir upptækir. Slökkviliðsstjóri veit- ir 'heimild til sölu á ákoteldum, en lögreglustjóri stjórnar inn- flutningi á þeim. Skotelda má að- eins selja á tímabilhxu frá 27. desem'ber til 6. janúar, að báðum dögum meðtöldum. Skriflegar umsóknir um söluileyfi á skoteld- um verða að hafa borizt slökkvi- liðsstjóra fyrir 15. ’desemlber ár hvert. Söluleyfi á skoteldum er bund- ið eftirfarandi skilyrðum: 1. Gerð skotelda skal vera sam- þykkt af slökkviliðsstjóranum í Reykjavfk. 2. Algjört bann er við sölu svonefndra kínverja. 3. Gæta skal fyllstu varúðar víð geymslu og afgreiðslu skot- eldanna. 4. Óheimilt er: a) Að selja skotelda til barna 6 ára og yngri. b) Að selja stóra flugelda til yngri en 16 ára. c) Áð selja skotelda, sem eru eldri en 2ja ára. d) Að reykja og fara með op- inn eld, þar sem geymisla skoteldanna og afgreiðsla fer fram. 5. Áletrun á skoteldum skal vera á íslenzku. Umbúðir skulu aðkenndar sérstökum aðvörunarlímiböndum eða á annan fullnægjandi hátt. 6. Farið verði eftir nánari ákvöð un eftirlitsmanns um fyrir- komulag. 7. Á öllum skoteldum skal þess getið, hvaða ár þeir eru fram- leiddir, og er ’bannað að selja skotelda, sem eru meira en tveggja ára gamlir. Sérstök ástæða sr til að vara við alls konar heiimatilbúnum sprengjum, en mörg dæmi eru til um slys af þeirra völdum. Eftir ára flóð verður skúraskin. Dögg í þögninni drýpur. Leikfélog Ólofsvíkur frumsýnir Fjölskyldun í uppnúmi Innilegustu þakkir færum við öllum þeim, sem á einn eða annan hátt sýndu okkur vin- semd og samúð við fráfall og jarðarför fsleiks Þorsteinssonar söðlasmiðs, Lokastíg 10. Fanný Þórarinsdóttir, Sigurþór tsleiksson, Sesselja ísleiksdóttir, Ólöf Isleiksdóttir, Daníel Oddsson, Haukur Þorsteinsson. Hugheilar þakkir fyrir aúð- sýnda samúð við andlát og jarðarför Láru M. Sigurðardóttur Aðstandendur. Ólafsvík, 8. des LEIKFÉLAG ÓLÁFSVÍKUR frumsýndi gamanleikinn Fjöl- skyldan í uppnámi eftir Harry Delf í Félagsheimili Ólafsvíkur í gærkvöldi. Leikstjóri er Krist- ján Jónsson. Sýningunni var mjög vel tekið og var leikendum og leikstjóra þakkað með dynj- andi lófataki að lokinni sýningu. Leikendur emx Lúðvík Þórar- insson, Gréta Jóhannesdóttir, Emanúel Ragnarsson Nína Steinsdóttir, Þórmundur Þórar- insson, Kristín Þórðardóttir, Krist ín Sæmundsdóttir og Regína Svavarsdóttir. Jólatrés- skemmtanir SÆKJA þarf um leyff til að halda jólatrésskemmtanir bæði til slökkviliðsstjóra og lögreglu- stjóra. Slökkviliðsstjóri úrskurð- ar, hvort fyrirhugað húsnæði sé fullnægjandi, en lögreglustjóri veitir skemmtanaleyfi svo sem venja er. Slökkvilið hefur jafnan bruna- vaktir á skemmtistöðum, þegar þar eru haldnar jólatrésskemmt- anir. Ýmis fyrirtæki vilja halda jólatrésskemmtanir í eigin húsa kynnum og þarf auðvitað leyfi fyrir þeim sem öðrum. Venju- lega hefur slökkvilið ekki bruna vaktir í þeim tilfellum, en fyr- irtækin verða að geta sýnt fram á fulltnægjandi brunavarnir áð- ur en leyfi fæst. Gæta skal þess sérstaklega að fara ekki óvarlega með eld ná- lægt jólatrénu og fullorðið fólk skyldi varast að reykja innan um böm, þar sem ýmis gervi- fataefnj eru mjög eldfim. Ætlunin er að sýna leikinn hé á laugardag og síðan í nágranna sveitum á næstunni. Hinrik. AU6LYSINGAR SÍIVII SS*4*80 Þakka gjafir, skeyti og aðra vináttu mér auðsýnda á sex- tugsafmæli mínu 10. þ.m. Sigurður Loftsson, Hrafnhólum. ÞAKKARAVARP Hjartans þakklæti færi ég öll- um þeim, sem heimsóttu mig og glöddu á 75 ára afmælis- degi mínum. Ég óska ykkur öllum árs og friðar. Guð blessi ykkur öll. Friðdóra Friðriksdóttir, Ólafsvík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.