Morgunblaðið - 13.12.1967, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. DES. 1967
25
Við inntakið.
- BÚRFELL
Fram'haJcl af bls. 19
húsin. Þetta varð hlýlegra.
Hér höfum við öll þægindi,
eins og bezt gerizt í borg og
bæ. Sameiginleg hitun fyrir
húsin, rafmagn, frystishápur
og kæðiskáipur, nægilegt heitt
vatn, þvottáhús með sjálfvirk
um vélum í hverju húsi, bað
og snyrting. Aðbúnaðurinn
er því allur fyrsta flokks. Og
hingað flytjum við inn í ðll
hús með húsgöngnum, borð-
búnaði, pottum og pönnum,
en ef við viitjnm sJkneyta með
myndum og blómum, þá g&r-
um við það sjálf.
Og hér á heimili frú Bjarg
ar og Álfþórs blasa við okk-
ur blóm, bækur, píanó,
grammófónn og útvarpstæki.
Sjónvarpið er að koma, því
fyrirhugað er að setja upp
smá endurvarpssendi á Sám-
staðamúla.
Á staðnum eru tvær verzl-
anir og þar er allar naúð-
synjar að fá og húsmæðrun-
um býðst ein ferð í mánuði
til Reykjavíkur þeim að
kostnaðarlausu, til að verzla
eða gera annað, er þeiim
þurfa þykir.
Eins og stákarnir sögðu
okkur verður mikil Luciu-
hátíð hinn 13. desember. Þar
fer söngurinn fram á sænsku,
þótt Lucian verði íslenzk og
börnin, sem þátt taka í há-
tíðinni, jafnt sænsk sem ís-
lenzk. Bjóða á þeim Gnúp-
verjum, sem vilja koma, í
heimsókn þennan dag. Fá
þeir veitingar og þar á með-
al hið sænska „glögg“, sem
er hitað rauðvin og rúsínur
og eitthvað sterkara blandað
í. Sagði frú Björg okkur að
þetta væri hin herlegasta
hressing.
Enn er þess ógetið að starfs
mennirnir við Búrfell, sem
eru nú yfir 600, stytta sér
stundir við allskonar spil og
tafl, heyja bridgekeppnir og
spila bingó, þar sem veittir
eru veglegir vinningar.
Og húsfreyjurnar hafa auk
heldur annað undirbúið baz-
ar, sem haldinn verður sam-
fara Luciuhátíðinni. Ágóðinn
verður látinn renna til góð-
gerðarfélaga í Reykjavík.
En nú tekur að líða á dag-
inn Enn næðir hann á norð-
an og nokkur skafrenningur
er úti. Vart fáum við því
betra færi suður aftur en var
hingað austur.
Áður en við förum heils-
um við þó upp á bryta stað-
arins, Þorgeir Pétursson.
Hann segir að kostgangarar
sínir séu talsvert breytilega
margir og verði starfslið hans
því að vera við því búið að
nokkrir tugir fleiri komi í
mat en upphaflega er gert
ráð fyrir. f aðalbækistöðinni
eru um fjögur hundruð kost-
gangarar nú en á þriðja
hundrað í „camp 2“ uppi við
inntakið.
Matvæli til staðariins eru
að langmestu leyti fenigin frá
Reykjavík, nema mjólk og
kartöflur frá Selfossi og sjó-
fang úr verstöðvunum Þor-
lákshöfn, Eyrarbakka og
Stokkseyri, eftir því sem verk
ast vill.
Þorgeir gerir ráð fyrir að
um eitt hundrað manns muni
dveljast við Búrfell um jólin.
Útlendingarnir fara utan í
tveimur hópum fyrir jól hinn
16. des. og 21. Koma siðan
Sjálfstæðiskonur
í Kópavogi
Hinn árlegi jólafundur Eddu verður í Sjálfstæðis-
húsinu Borgarholtsbraut 6 miðvikudaginn 13. des-
ember kl. 8.30 e.h.
Sýnikennsla í jólaskreytingum sem hr. Ringebcll
hinn þekkti blómaskreytingamaður annast.
Félagskonur! Notið þetta einstaka tækifæri
og fjölmennið.
STJÓRNIN.
Hestamannafélagið
FÁKUR
Fræðslufundur verður í Félagsheimili Fáiks í kvöld
kl. 9. Páll Agnar Pálsson yfirdýralæknir flytur
erindi og svarar fyrirspurnum um hrossasjúkdóma.
Félagar eru hvattir til að fjölmenna og mæta
stundvíslega.
SKEMMTINEFNDIN.
llniboðsmaður óskast
Dönsk sérverksmiðja sem framleiðir herra- og
drengjabuxur óskar eftir duglegum og þekktum
umboðsmanni fyrir framleiðslu sína á íslandi.
TOCAN konfektion,
Hobro, Danmark.
Til sölu
Meroedes Benz 190 árg. ’63. Fallegur bíll,
skipti koma tii greina.
Saab árg. ’67 4ra dyra. Volkswagen árg. ’66.
BÍLASALA GUÐMUNDAR,
Bergþórugötu 3, símar 19032, 20070.
án sölusk.
aftur eftir áramót. Megin-
þorri íslendinganna fer til
síns heima, þeir sem það
geta.
Jólamatur verður líkt og
gerist á venjulegu heimili.
Svínasteikin á aðfangadag og
svo hangikjöt, en lútfiskur
fyrir Svíana eftir því sem
hægt verður.
Starfslið brytans er 5 kokk
ar, 3 í neðra mötuneytinu og
tveir í hinu efra, auk þess
kjötskurðarmaður og svo 21
starfsstúlka við framreiðslu á
báðum stöðum.
Við spyrjum nánar um
matseldina og Þorgeir hefir á
því engar vöflur, heldur fær
okkur matseðil fyrir heilan
mánuð, sem sýnir hádegis-
verð og kvöldverð alla dag-
ana. Ávallt eru í hverri viku
4 fiskmáltíðir og 10 kjötmál-
tíðir. Til morgunverðar er
hafragrautur, kornflakes,
kaffi, te og mjólk, fimm teg-
undir af brauði og mikið af
áleggi, allskonar pylsur og
ostar. Einnig er kvöldkaffi
með kökum og fimm tegund-
um af brauði og fjórum teg-
undum af áleggi.
Við spyrjum líka hvernig
útlendingunum falli mataræð-
ið. — Þetta eru flest Svíar og
þeir una vel mataræðinu fái
þeir aðeins næga síld. Við
framreiðum síld eins fjöl-
breytilega og við getum, nýja,
soðna, steikta, jafnvel afvatn
aða og steikta, marineraða,
kryddaða og í gaffalbitum.
Það er alveg sama hvernig
við matbúum síldina fyrir
Svíana. Þeir neyta hennar
ávallt með ánægju. Einu sinni
fengum við nýja síld og steikt
um. Hér eru um 100 Svíar.
Þeir neyttu_ 500 sílda í einni
máltíð. Og íslendingarnir eru
líka farnir að ganga í síldina.
Þeim er að lærast að meta
hana. Þetta er frábær réttur,
hvernig svo sem hann er fram
reiddur. Hollur, góður og ekki
sízt ódýr, segir Þorgeir að
lokum.
Við endum þessa ferð á
snotru heimili Þorgeirs bryta.
Dagurinn hefir flogið frá okk
ur með norðankulinu. Þegar
við komum gerðum við okk-
ur í hugarlund að hér væri
ömurlegt að dveljast um há-
vetur. En við höfðum komizt
að raun um annað. Hér unir
hver glaður við sítt. Umhverf-
ið er kalt og hrjóstrugt. En
vilji fólksins til að una hag
sínum ræður mestu um
ánægjuna af dvölinni. Fjöl-
skyldumar, sem við hittum,
létu vel yfir og við fundum
að það, sem sumir héldu ef-
laust að væri einmanalegur
og forheimskandi staður inni
í miðjum auðnum óbyggða
okkar kalda vetrar, er hlýtt
hverfi, þar sem sá hefir nóg
sér nægja lætur.
— vig.
VALSAUGA
OG BRÆÐURNIR
HANS HVÍTU
eftir ULF ULLER.
Þetta er þriðja bókin í þcssum
skcmmtilega bókafiokki — sem
allir röskir strákar lesa sér til
ánægju. — Valsauga hcfur verið
gerður útiægur úr herbiíðum
Indíánanna en tekst að flýja til
landncmabæjarins, sem kallaður
er Pálsbær. Þar hittir hann Sún-
on Henson og vini sína Kidda og
Jonna, og sameiginlega tekst
þeim, ásamt Emi rauða, að brjót-
ast áfram með áríðandi póstsend-
ingu alla leið til Lúðvíksborgar,
gcgn um iandsvæði sem er mor-
andi af óvinveittum Indíánum, —
Sögurnar um Valsauga eru ósviknar indíána-
sögur, sem allir strákar eru hrifnir af.
Biöjib bóksalann yöar aö sýna yöur BÓKAFORLAGSBÆKURNAR
BÓK AFORLAG ODDS B J Ö RNSSONAR
A K U R E V R I
Sængur-
gjofin
Nytsamasta gjöfin fyrir
imgbörn 3ja mánaða til
göngualdurs.
Æfingarólan — vísindalega
uppbyggð, — sem nú fer
sigurför um öll lönd.
*
Obreytt verð
PÓSTSENDUM
U Austurstraeii 12