Morgunblaðið - 13.12.1967, Page 30

Morgunblaðið - 13.12.1967, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. DKS. 1967 20 þjóðir berjast um 11 sæti í lokakeppni í næstu HM Rætt um að „raða44 í riðla svo betra jafnvægi fáist INNAN fárra vikna verður frá því gengið hvaða lönd leika sam- an í undankeppni Heimsmeist- arakeppninnar í handknattleik, sem lýkur með úrslitum 16 liða í Frakklandi. Ljóst er þegar að meiri þátttaka verður nú en nokkru sinni. Er talið víst að að minnsta kosti 25 lönd verði með í keppninni. Frestur til að skila þátttökutilkynningum rann út 1. des., en örfáar þjóðir fengu stuttan frest tii viðbótar til að senda þátttökutilkynningu sína til alþjóðasambandsins. Tækninefnd alþjóðasambands- ins mun sennilega koma saman í janúar og skipuleggja undan- keppnian, sagði Albert Wagner framkv.stj. alþjóðasambandsins við Politiken á dögunum. Meðal þátttakenda eru „gamlir kunn- ingjar“ eins og Bandaríkin, Kanada og t.d. Túnis. 16 lið leika til úrslita í Frakk- landi og tvær þeirra þurfa ekki að taka þátt í undankeppni, Tékkar sem heimsmieistarar og Frakkar sem gestgjafar. Þá komast ,,úthafsiþjóðir“ beint í úrslitin, þ.e. ein frá Austurlönd- um fjær, ein frá Ameríku (Kanada eða Bandaríkin) og ein frá Afríku. Eftir verða iþá 11 sæti og um þau berjast að minnsta kosti 26 þjóðir í Evr- ópu. Er ætlunin að skipuleggja keppni þeirra sem allra fyrst, svo hver og einn viti 'hvaða skyldustörf bíða landsiliðanna á næsta keppnistimabili. Politiken segir að þó Danir hafi unnið silfur á sáðustu HM fái þeir enga „fyrir- greiðslu" í næstu keppni. Síð- ast hafi Danir verið í riðli með Póllandi og íslandi og muni þesisi lönd þvi ekki verða saman aftur 1969. Blað- ið segir siðan að það hafi góð- ar heimildir fyrir því, liðun- um 20 verði skipt í riðla, ým- ist með 3 eða 4 löndum og komist tvö beztu áfram í keppninni og sáðan einn riðill með 3 löndum þar sem sigur- vegarinn komist áfram. En þessi niðurröðun verður erf- ið, segir blaðið, því það mun ekki ganga friðsamlega fyrir sig að ákveða styrkleika . þjóðanna. Politiken lýkur ummælum sín um um þetta mál með því að stinga upp á „óskariðli" fyrir Dani, þæ. að Danir, Spánverjar og Luxemlborg verði saman í riðii. Kiyoshi Kobayashi leggur andstæðing sinn að velli í júdókeppni. 36 //ð frá 14 félögum faka þátt í körfuboltamófinu Þátttakan aldrei fyrr jafn mikil Þátttökutilkynningar í íslands- móti í körfuknattleik hafa aldrei fleiri borizt stjóminni en nú, þ.e. 36 lið frá 14 félögum og félagasamböndum. Metþátttaka í 2. deild. í 2. deild karla (meistarafi.) er þátttaka meiri en nokkru sinni áður. Þar munu keppa i fyrsta skipti UMF Tindastóll, Sauðárkróki, ÍMA og KA á Ak- ureyri, en auk þessara keppa Borgnesingar, Snæfellingar, HS. Skarphéðinn og ÍS. Því hefur verið ákveðið að skipta 2. deild í 2 riðla og ileika Norðlendingar sína leiki á Akureyri, en úr slitaleikurinn milli Norðlend- inga og Suður- og Vesturlands- riði'ls fer væntanlega fram í Reykjavík. Heima og heiman Önnur nýjung á þessu íslands- meistaramóti er sú, að tvö lið í I. deild karla munu nú leika í fyrsta skipti heima og að heim- isn, en Þór og ÍKF rnumi væntan lega leika 5 leiki hvort á íheima- velli. Mótið mun væntanlega hefj- ast um miðjan janúar 1.968. Stjórnarfundir í KKÍ verða haldnir í íþróttamiðstöðinni í Laugardal á fimmtudögum kl. 17.30—19.00. Sími KKÍ er 30965. Stjórnina skipa: Bogi Þor- steinsson, form; Magnús Björns- son, varaform.; Gunnar Peter- sen, ritari; Þráinn Scheving, gjaldkeri; Magnús Sigurðsson, bréfritari; Jón Eysteinsson form. laga- og leikreglanefndar og Helgi Sigurðsson, form út- breiðslunefndar. Heimsfrægur júdó- kappi hjá Ármanni GLÍMUDEILD Ármanns hefur fengið japanskan prófessor í júdófræðum, Kiyoshi Kobayashi að nafni, til þess að skipuleggja júdódeild Ármanns og kennsl- una við hana ásamt kennurum deildarinnar. Kiyoshi er læknir að mennt, en hann er nú pró- fessor við Kodakan, aðalstöðvar alþjóða-júdósamtakanna, sem eru staðsettar í Japan. Kiyoshi hefur verið á ferðalagi undan- farið um mörg lönd til þess að skipuleggja kennslu í júdó, og Athyglisverðasta skáldsaga ársins Móru$aá Valshantri og meistari Jón eftir Guðmund Gíslason Hagalín hefur þegar vakið einróma lof gagnrýnenda og allra annarra er lesið hafa bókina. Erlendtir Jónsson segir í Morgunblaðinu: „ . . . . er mergurinn málsins, að Márus á Valshamri og meistari Jón er skemmtilegasta og líklega einnig bezt rituð skáldsaga Hagalins, . . .“ Eiríkur Hreinn Finnbogason segir í Vísi: ,,En þau skil sem hann gerir efninu núna, næstu hálfri öld ríkari af ritreynslu og lífsreynslu, eru á þann veg, að ég sé ekki betur en verkið jafnist við stærstu risin í skáldsagnagérð hans“. Hörður Bergmann segir í Þjóðviljanum: „Guðmur.dur Hagalín hefur skrifað nýja hetjusögu“. Tryggið ykkur eintak af Márusi á Valshamri og meistara Jóni. Missið ekki af beztu skáldsögu ársins. SKUGGSJÁ kemur hann hingað frá Afríku. f júdó er hægt að hafa gráður allt upp í 10 dan og hefur Kiy- oshi 7 dan, en það eru aðeins 3 menn utan Japan, sem hafa þá gráðu. 7 dan er svartbeltingur, en hæsta gráða hér á landi enn- þá er 2 dan. í Japan er júdó kennt í almennum skólum og í æðri skólum er júdó skyldu- grein. Kiyoshi mun verða hér í u.þ.b. viku og skipuleggja kennslu og kenna hjá þeim rúm- lega hundrað júdómönnum, sem eru að læra hjá júdódeild Ár- manns. Olympíueldur tendruður Olympíueldurinn var tendr aður í gríska bænum Olympíiu sL laugardag. Konstiantin kon ungur var til staðar ásamt fulltrúum grísku og frönsku Olympíunefndarinnar. Síðan átti að flytja eldinn flugleiðiis til Larissa í Mið- Grikklandi. Síðan munu skíða rnenn bera hann upp á Ol- ympstind, en eftir það verð- ur eldurinn /luttur tid Aþenu. Þar verður hann tendraður á gaimla Olympíuleikvanginum og síðan annað blys afhent frönsku Olympíunefndmni til flutnings til Grenoble, þar sem Vetrarleikarniir hefjasit í febrúar. Enskir íþróttafréttamenn hafa kjörið Mike Hailwood „íþróttamann ársins“ og Beryl Burton „íþróttakonu ársins" Hailwood er heimsmeistari á mótorhjóli en Burton heims- meistari í hjólreiðum á þjóð- vegum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.