Morgunblaðið - 21.12.1967, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. DES. 1967
19
Guðm. G. Hagalín
skrifar um
BÓKMENNTIR
Drífa Viðar: Fjalladalslilja.
Heimskringla. Reykjavík 1967.
ÞESSI skáldsaga er að fleira en
einu lieyiti „frá því fyrir stríð“.
í fyrsta lagi gerist hún á þeim
tíma og í öðru lagi virðist skáld-
konan laus við alla ónáttúru og
tilgerð, ekk; hafa neinar tilhneig-
ingar til æsilegra og klúrra um
hverfis atburða- og persónulýs-
inga eða vera haldin áráttu til
að freista þess að láta þoku lítt
eða ekki sbiljanlegra hugmynda
og hundakúnsta staekka sig og
breyta í einihvers konar furðu-
lega og yfirskilvitlega töfra-
konu eða galdrakind.
Drífa Viðar er fædd og upp-
alin í Reykjavík, en sagan ger-
ist öll í sveit. Hún skiptist í tvo
hluta. í fyrri hlutanum segir frá
Reykjavíkurtelpunni Höllu, sem
send er til sumardvalar hjá
frændfólki sínu sakir þess, að
móðir hennar er haettulega veik
og bóndi hennar hefur farið með
hana af landi brott til að leita
henni lækninga. Bærinn. sem
Halla dvelur á sumarlangt er
prestssetur, en presturinn er
aldraður einstæðingur, og kem-
ur hann l'ítt við sögu. En hús-
bændurnir á hieknilinu - eru
frænka hans og Höllu og bóndi
hennar. í fyrstu kemur telpunni
allt ókunnuglega fyrir, umhiverf-
ið, fólkið og viðhorf þess við
einu og öðru og þá sérstaklega
Reykjaivík og öllu, sem ber keim
af henni og iífinu þar, ennfrem-
ur heimilishættirnir og vinnu-
brögðin, og þrátt fyrir velvild
húsbændanna, er Mbast því sem
hún sé þarna útlendingur í sinu
eigin landi.
En smátt og smátt samlagast
hún þessu öllu saman. Fyrst er
það náttúran og dýrin. sem
verða henni til djúprar og inni-
legrar ánægju, en síðan eybst
Skilningur hennar á fólkinu, sér
kennum þess og viðhorfum. Hún
lærir að meta það, og loks er
svo komið, þegar hún fer er að
meira eða minna leyti eftirsjá
að öllu og öllum — og svo finn-
ur hún þá líka, að fólkið hefði
í SVEIT
gjarnan viljað, að dvöl hennar
hefði orðið lengri.
Síðari hluti sögunnar gerist
nokkrum áum síðar, þegar Halla
kemur á ný til sumardvalar hjá
frændfólki sínu. Þá hefur hún
lifað eitt og annað og öðlazt
ýmsa reynslu, En sveitin með
sínum gróðri og sinni víðáttu,
fólkið þar og dýrin — allt á
þetta ennþá hug hennar, og nú
getur hún tekið meiri og virk-
ari þátt í öllum vinnubrögðum.
En nú hafa komið til sögunnar
tilfinningar og ástríður allt að
því fulliþroska bonu. svo að sitt
hvað verður með öðrum hætti
en áður. Og ekki kalin á hjarta,
en hins vega sár í sinni hverf-
ur hiún á brott, þegar haustar
að. Og hinn stutti upphatfs- eða
formálskatfli sögunnar sýnir, að
mörgum árum síðar tekur hana
enn í gamalt ör. En skáldkonan
gætir sín vel fyrir tilfinninga-
væmni, og er það eitt af því,
sem sýriir gleggst, yfir hve góð-
um hæfileikum hún býr sem rit
höfundur.
Það gerist ekkert stórbrotið í
þessari sögu, og segja mætti, að
lýsingar á vinnubrögðum og
ýmsu smálegu væru nokkuð
langdregnar og að þar gætti
stundum óþarfa endurtekniniga.
En þetta stafar atf því. að skáld
konan lætur bæði umhverfið og
fólkið eingöngu lýsa sér eins og
það kemur Höllu fyrir sjónir og
skýrast og breytast smátt og
smátt við nánari kynni hennar
af því. Svo verður þá þarna
vandratað meðallhóifið. En víst
er um það, að flestar persónurn
ar, sem við sögu koma eða um
er rætt, verða furðu skýrar í
því Ijósi, sem kynni Höllu varpa
ytfir þær.
Málið á bókinni er yfirleiti
eðlilegt og óþvingað, en þó eru
á því brotalöm á stöku stað, og
stíllinn er ekki alls staðar sam-
felldur eða laus við hnökra. Það
liggur við að skáldafiákurinn val
hoppi á stöku stað, en sá gangur
þykir aðalpersónunni í sögunni
sá Ijótasti, sem hestur bregður
4ra og 5 herhergja íbúð í Foss-
vogi
Höfum til sölu 4ra herb. íbúð í Fossvogi, um 88
ferm. tilb. undir tréverk og málningu með tvö-
földu gleri og miðstöðvarlögn. Sameign utanhúss
og innan pússuð. Einnig höfum við 5 herb. íbúð
130 ferm., selst fokheld með miðstöðvarlögn. fbúð-
ir þessar eru endaíbúðir með suðursvölum. Teikn-
ingar af íbúðum þessum liggja fyrir á skrifstofu
vorri.
TRYGGINGAR OG FASTEIGNIR,
Austurstræti 10A. 5. haeð.
Sími 24850. Kvöldsími 37272.
Óskagjöf
húsmóðurinnar!
EU
Hrærivélar
4 stœrðir
20 ára reynsla
Varahlutaþjónusta
Laugavegi 15.
Sími 1-33-33.
j
fyrir sig. Samt er það í rauninrii
merkast við þessa sögu. hve
skáldkonunni tekst að jafnaði að
samræma stílinn gerð persónunn
ar, sem söguna segir. Þrátt fyrir
einstök mistök hefur henni lán-
azt það með ólíkindum vel —
eins og líka auðsjáanlega að
vera hún sjálm ía llri gerð þess-
arar sögu.
Guðmundur Gislason Hagalín.
LATTU ADRA DEYJfl
JflMES
| LÁTTU AÐRA DEYJA
eftir lan Fleming — hý saga j
I um hinn frœga njósnaFa
James Bond — kr. 160.00
TÍMAVÉLIN
eftir snillinginn H. G. Wells
talið mesta listaverk hans — |
kr. 140.00
Iroyall SPILAVITIÐ
I eftir lon Fleming —
I um brezka njósnarann
I Jomes Bond 007 — kr 1 60.001
Bókaútgáfan
Hildur
VOLVO — eigendur
OG AÐRIR VIÐSKÍPTAVINIR ATHUGIÐ:
Varahlutaverzlun okkar verður lokuð milli jóla
og nýárs og jafnvel 2. janúar vegna vörutalningar.
/
(,Lirmai Sk^eimon h.f.
Suðurlandsbraul 16 - Reykjavlk - Simnefni. »Volv8r« - S[mi 35200
Ballerup
h r æ r i v®é I a r
— 4 stærðir —
Fullkomnasta úrval,
sem völ er á.
• FALLEGAR
• VANDAÐAR
• FJÖLHÆFAR
Hræra — þeyta — hnoða — hakka — skilja
skræla — rífa — pressa — mala — bianda
móta — bora — bóna — bursta — skerpa
D)ra
0.
Ballina
w NÝ
BRAGI RÆRIVI AFBRA' GÐsJ
TÆKNI A
* Elektrónisk hraðastilling * Sama afl á öllum
hröðum * Sjálfvirkur tímarofi * Stálskál
* Hulin rafmagnssnúra: dregst inn í vélina
* Mjög öflugur 400 W mótor * Yfirálags-
öryggi * Beinar tengingar allra aukatækja.
Ballerup
BaUerup
HAND-
hrærivél MILLI-
Fæst með STÆRÐ
standi og skál. Fæst í 5 litum.
Mörg aukatæki Fjöldi tækja.
STÓR-hrærivél
650 W. Fyrir
mötuneyti, skip
og stór heimili.
ÁBYRGÐ OG TRAUST VIÐGERÐARbJÓNUSTA
Fyrsta flokks frá
Sími 2-44-20
Suðurgötu 10, Rvík.
FÖNIX