Morgunblaðið - 21.12.1967, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. D15S. 1907
MEO HRAUSTUM MÖHNUM
- sem lyfta rúmlega fjórðung
tonns í senn —
ÞAÐ voru sannarlega hraustir
menn, sem blaðamaður og ljós-
myndari Mbl. fyrirhittu uppi í
félagsheimili Ármanns við Sig-
tún s.l. laugardag. Þar voru
samankomnir nokkrir lyftinga-
menn úr ÍR, KR, og Ármanni og
háðu þar keppni í nokkrum
greinum lyftinga. Stjórnandi
mótsins var hinn gamalkunni
íþróttakappi Þorsteinn Löve, en
hann er sem kunnugt er vel lið-
tækur lyftingamaður.
Blaðamaðurinn hafði aldrei
séð lyftingar áður, nema þá á
kvikmyndum, og sannarlega
fannst manni þetta vera tröllsleg
átök. Tveir af köppunum létu sig
t. d. ekki muna um það, að Iyfta
vel fjórðung úr tonhi, í svoköll-
uðu „togi“.
Annars voru það ekki hinar
venjulegu keppnisgreinar lyft-
inga sem menn spreyttu sig
þarna á, heldur nokkrar undir-
stöðuigreinar. Lyftingamenmmir
ástunda miklar æfiingar, sögðu,
að ekki væri óalgengtt að þeir
æfðu 4—6 sinnum í viku. Og ór-
angurinn hefur líka verdð góður
og nægir að minna á, að Óskar
Sigurpálsson var þriðji í síroum
þyngdarflokki á Norðurlanda-
mótinu i lyftingum og Guð-
mundur Sigurðsson fimímti í sín-
um. Síðan hefur þessum köppum
farið verulega fram og eru ekki
lan.gt frá því að komast í
„heimsklassa".
Fynsta keppniisgreinin á laug-
ardaginn var „pressa". Þá ligg-
ur lyftingamaðurinn á bákinu é
þar til gerðum bekk ag lyftir
lóðum upp með beinum örmum.
Sigurvegarinn í þessari grein
varð Björn Lárusson, KR. Ljrfti'
haron 172% kg. Næsta keppnis-
grein var „hnébeygja". Þá taka
]yftingamennirnir lóðin af statífi
sem er í axlarhæð, beygja sig
niður með það og rísa síðan upp
aftur. Óskar Sigurpálsson sigraði
i þessari grein. Lyfti 222% kg.
Þriðja greinin var „tog". Þá
tekur lyftingamðurinn lóð, sem
standa á gólfinu og réttir sig
upp með það. Sigurvegarinn varð
Bjöm Lárusson, lyfti 262% kg.
SamtaiLs lyfti Björn 652 kg,% sem
mun vera nýtt íslandsmet í þess-
ari grein. Óskar Sigurpálsson
Ijrfti 635 kg., en það mun einnig
vera íslandsmet í hans þyngdar-
flokki.
Aðrir keppendur í mótinu voru
Svavar Carlsen, sem lyfti 590
kg., Guðm.undur Sigurðsson
572% kg., Sveinn Sigurjónsson
510 kg, og Bogi Siigurðsson, en
honum mistókst í hnébeygjunni
og varð að hætta keppninni.
Nú segir það hirosvegar ekki
alla söguna þegar sagt er að þessi
eða hinn hafi lyft ákveðnum
þunga. Tekið er tillit til þess hve
þungur maðurinn er sjálfur, og
þeim skipt niður í flokka eftir
því. Þanniig er t. d. Björn í
þungaflokki, Óskar í miilliþ.unga-
flokki og Guðmundur Sigurðsson
i létt-þungaflokki.
Þorsteinn Löve sagði okkur, að
þeir sem stunduðu reglulega
lyftingar væru 10—12, og væri
Óskar Sigurpálsson dró ekki af sér. Hann varð þriðji á Norð-
urlandamótinu í sínum þyngd arflokki.
GRILL
GRILLFIX grillofnarnir eru
þeir fallegustu og fullkomn-
ustu á markaðinum. vestur-
þýzk framleiðsla.
★ INFRA-RAUÐIR geislar
innbyggður mótor
if þrískiptur hiti
ir sjálfvirkur klukkurofj
ic innbyggt ljós
★ öryggislampi
if lok og hitapanna að ofan
ir fjölbreyttir fylgihlutir
GRILLFIX fyrir sælkera
og þá sem vjlja hollan mat
— og húsmæðurnar spara
tíma og fyrirhöfn og losna
við steikarbræluna.
2
Stærðir
FÖNIX
Sími 2-44-20 . Suðurgata 10
Murdo McDougall
vill þjálfa hér á landi
HINN vellþekkti unglingaþjálf-
ari í knattspyrnu, Murdo Mc
DougaU, sem oftsinnis hefur
dvalið hér og þjálfað unga knatt
spyrnumenn með góðum árangri
hjá Val, Fram og KR, hefuT ný-
lega skrifað kunningja sínum
hér og beðið hann að koma því
á framfæri, að hann hafi mi'kinn
áhuga á að koma hingað næsta
sumar, eða fyrr, og taka upp
þráðinn sem þjálfari á ný.
Þeir sem kynnu að hafa áhuga
fyrir að komast í samtoand við
Murdo, sem niú býr í Glasgow,
eru beðnir að snúa sér til Björg-
vins Schram.
„Massage66 hanzkar
Hinir margeftirspurðu nudd og baðhanzkar eru
komnir aftur.
J. Þorláksson & Norðmann h.f.
Bankastræti 11.■
Lokað í dag.
vegna jarðarfarar Sveins Helgasonar.
SVEINN HELGASON H.F.
SflflB ÁRGERÐ 1966-1967
óskast keyptur. Staðgreiðsla. Upplýsingar í síma
17947.
Björn Lárusson í erfiðri stöðu í hnébeygjunni.
sérstaklega góð samheldni og r um greinum ljrftinga. Og að enn
góður andi innan hópsins, þrótt stærra marki keppa beztu lyft-
fyrir að engin væri annars bróð- ingarmennirnir — Ólympíuleikj-
ir í leik. Lyftingamenn áforma unum í Mexicó, og ef svo heldur
að halda annað mót á næstunni, s-em horfir er ekki fráleitt, að
og þegar líður að vori mun hadd- þeir ættu þangað erirodi.
ið íslandsmeistaramót í nokkr- '
Evrdpubikararnir
DREGIÐ hefur verið í EVrópu-
bikarkeppni meistaraliða í átta
liða úrslitum og deika fyrr-
nefndu liðin fyrri leikinn á
heimavelli:
Eintrac'ht Braunsdhweig — Ju-
verotus, Ítalíu
Vasas, Budapest — Benefica,
Portúgal
Rea Madrid — Sparta, Prag
Gornik, Zabre — Manch. Utd.
Bikarhafar:
Mosk'va-Torpedo, USSR — Car-
diff City
Olympique Lyonaise, Fr, — S.V.
Hamhurg
Standard Liege — A. C. Milan
Valenzia, Spáni — Bayern
Munchen
Annað úrslitaliðið í heims-
meistarakeppninni í Englandi,
Vestur-Þýzkaland, hefur verið
slegið út úr Evrópulbikarkeppni
landsliða. Þjóðverjar, sem leika
í 4. riðli, verða að lálta sér lynda
annað sætið í riðlinum eftir jafn
tefli í Tirana gegn Albaníu, 0-0.
Júgóslavía er efst í riðlinum og
heldur áfram í úrslitakeppmnni.
í 2. riðli eru Portúgalir í
„hættu“. Þar eru Búilgarar efstir.
Lækjarskólinn vann
HINNI árlegu knattspyrnu-
keppni barnaskólanna í Hafnar-
firði lauk fyrir nokkru, en í
keppni þessari er keppt um
fagra silfurbikara, sem Albert
Guðmundsson og Axel Kristjáns-
son hafa gefið. Keppni þessi fór
í fyrsta skipti fram í fyrravetur
fyrir tilstilli Geirs Hallsteins-
sonar, íþróttakennara og sá hann
um keppnina einnig í ár.
í k-eppni þessari taka þáttt 11,
12 og 13 ára bekkir barnaskól-
anna, en 13 ára bekkirnir eru
raunverulega 1. bekkir Flens-
borgarskólans, en bekkir eru
ennþé ti'l húisa í barnaskólunum,
þar sem húsrými er ekki fyrir
hendi í Flensborg.
Keppnin í ár var mjög
skemmtileg og margir, leikjanna
nokkuð jafnir, þó munur hafi
verið nokkur í sumum þeirra.
Sigurvegarar í Öldutúnsskólan-
um urðu drengir úr 13 ára J sem
sigruðu 12 ára K í úrsliitaleik
3:0. — Myndin hér að ofan er
af 12 ára F, sem sigruðu keppn-
ina í Lækjarskólanum. Alils voru
leiknir 10 leikir í keppni Lækj-
arskólans, en viðhöfð er útslátt-
arkeppni. Drengirndr úr 12 ára
F léku al'ls 4 leiki, þeir unnu 12
ára D 7:1, 12 ára E 4:3, 11 ára
B 12:0 og í úrslitaleik unniu þeir
13 ára C 1:0 eftir m.jög jafnan
og skemmtilegan leik.