Morgunblaðið - 14.01.1968, Page 5
MOKGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JAN-OAR 196«
5
Konungsf j ölsky ldan
í fréttunum
Konungsfjölskyldtan hefur
mikið verið í fréttunum und-
anfarna d>aga. Charles prins
kom fyrst fram erlendis sem
fulltrúi hennar við minning-
arathöfn um fyrrverandi for-
sætisráðherra Ástralíu sem
fórst svo sviplega nú fyrir
Anna María prinsessa
skömmu. Drottningin flutti
þegnu-m sínum jólaóskir í
sjónvarpi og var því nú sjón-
varpað í litum í fyrsta sinn.
Philip, drottningarmaður,
gekkst undir uppskurð til að
fjarlægja meinsemid á únlið.
Fjölskyldan heimisótti hann
þangað og þá var þes>si mynd
tekin af Önnu prinsessu, sem
vakti athygli fyrir m>j!ög ný-
stárlegt úr, sem hún bar, og
er nýjasta tízka meðal ungl-
inga í Bretlandi. Anna er 17
ára og tekur bílpróf innan
skamms. Stóri bróðir ’hyggst
á hinn bóginn festa kaup á
fyrsta bílnum sínum, sem er
sportbíll af gerðinni M.G.
C-G.T.
1967 —
Ár brezku konunnar
Nú, þegar árið 1967 er lið-
ið, er ekki út vegi að líta til
baka og þá verður manni
ljóst, að það hefur verið s>ann
kallað ár konunnar hér í
Bretlandi. Karlí>eningurinn
hefur borið skarðan h'lut frá
borði. J>ingið, þar sem karlar
eru allsráðandi, lækkaði geng
ið og barðist árangurslítið við
hvert óleyst vandamiálið af
öðru. Verkföll komu í veg
fyriir, að allar tilraunir til að
rétta við fjár'haginn yrðu að
nokkru gagni. Járnbrautirn-
ar urðu að lúta í lægra haldi
fyrir nokkrum sentimetrum
af snjó. Bítlarnir sungu e.t.v.
siitt síðasta vers mieð fárán-
legri sjónvarpskvikmynd, og
knatt’spyrnan, þjóðaríþróttin
og yndi brezkra karlmanna,
var vanhelguð með alils kon-
ar skrílslátum, auðvitað af
karlmannanna hálfu. Fyrir
konurnar hefur þetta aftur á
móti verið mjög hagstætt ár.
Auðvitað hlutu þær mikla
Barbara Castle
gagnrýni, en þeim tókst þó
að ná því marki, s’em þær
settu sér, og það er meira en
hægt er að segja um 'hið svo-
kallaða st-erka kyn. >að var
kona, sem vann- stærsta og
áhrifaríkasta afrekið á sviði
þjóðlífsins árið 1>9'67. Frú
Barbara Castle tókst með
hörku og dugnaði að lögleiða
ákvæði um, að áfengi og akst
ur ættu ekki saman og að
leyfilegt væri að stöðva öku-
menn og láta þá 'bl'ása í hinn
margumtalaða og óvinsæla
belg, sem vofir nú yfir Ibrezk-
um ökumönnum. Belgurinn
var áður óþekktur nema ef
slys eða ólhöpp ’höfðu orðið
af akstri góðglaðra öku-
manna. En tölur >sanna, að
þessi nýju lög eiga fullan rétt
á sér, því slysum og óhöppum
befur fækkað ótrúlega síðan
lög þessi gengu í gildi. Það
var líka kona, sem skaut
bæði Harold Wilson og Ed-
ward Heath ref fyrir ra>ss og
vann sæti á þingi fyrir skoz'ka
þjóðernissinna. Frú Winifred
Ewing hélt innreið sína í
Frú Ewing
brezka þingið í 'Si'gurgöngu
undir sekkja'pípuleik stoltra
Skota og gaf forustumönnum
aðalflokkanna beggja ástæðu
til að 'hugsa, hvort stjórnin
yrði nokkurn tíman söm og
jöfn. Ung og lagleg stúlka,
Geraldine Jones, vann s>æti
Geraldine Jones
forseta skólafélags stúdenta í
Oxford, st’öðu s,em karlmenn
hafa haldið í 144 ár. í heimi
dægurlaganna, sem karlmenn
hafa ráðið árum saman, vann
Sandie Shaw fynsta sæti í
söngkeppni Evrópulandanna
fyrir Bretland. S'kærasta
stjarnan á tízkuhimninum
var Twiggy, sem sannaði, að
þó barm'inn skorti, er hægt
að ná langt í tízkuheiminum.
Að loikum er ekki úr vegi
Twiggy
að minnast á konuna, sem öll
um óþekkt 'komst á fors'íður
allra brezku dagblaðanna i
nóvember sl. Utanlandsverzl-
un Breta hafði vikum saman
verið í algjöru öngþveiti
vegna verkfalla ‘haánarverka-
manna um allt land. Þá birt-
ist frú Cooper skyndilega á
sjónarsviðinu, óþekkt eigin-
kona hafnarverkamanns og
gerði það, sem óteljandi
fjölda fó.lks hafði langað til
að gera. Hún gaf forustu-
Tilboð
óskast í eftirtaldar bifreiðar, skemmdar eftir
árekstur. Volkswagen árg. 1959, Mercury Comet árg.
1961. Trabant station árg. 1964. Moskwitch árg. 1957.
Bifreiðarnar eru til sýnis í bifreiðageymsluF.Í.B.
Hvaleyrarholti Hafnarfirði sími 12581. Tilboðin
miðast við núverandi ástand bifreiðanna. Tlboðin
sendist Tjónadeild Hagtrygginga h.f. fyrir 20. jan.
1968.
Frú Cooper
manni hafnarverkamannanna,
Jack Dash, vel útil’átinn löðr-
ung. Verkfallið leystist stuttu
seinna. Ekkert er hægt að
sanna um orsakir þess, en
margir mundu án efa velja
frú Rosetta Cooper „Konu
ársins 1967“.
Sean Connery vinsælastur
Frétta'blað fcvikmyndaiðnað
arins, „Motion Picture Her-
ald“, útnefndi fyrix skemmstu
Sean Connery vinsælasta
leikara ánsins, og er það
fjórða árið í röð, sem ’hann
hlýtur þann titil.
Jul’ie Christie var í sama
blaði kjörin vinsælasta leik-
kona ársins, en eins og kunn-
ugt er, hefur hún orðið fræg
fyrir leik sinn í kvikmynd-
unum „Doctor Zhivago“ og
„Far from the Madding
Crowd“, að myndinni „Darl-
ing“ ógleymdri. „The Sound
of Music“ er vinsælasta kvik-
myndin þriðja árið í röð.
Hvað gerist 1968?
Um áramótin freistast
menn oft tiil að geta sér til,
hvað hið nýja ár kunni að
bera í skauti sér. Til gamans
er ekki úr vegi að nefna nokk
uð af því, sem Maurice Wood
ruiff, sem sagður er hafa
mdkla hæfilelka til að sjá
fram í framtíðina, segir um
árið 1968. Skyggnigáfa hans
segir honum, að styrjöldinni í
Vietnam muni ljúka, og Jöhn
son iforseti verði ekki endtur-
kjörinn forseti Bandarlkj-
ann-a ,en í hans stað komi nýr
forseti, sem að öllum ltkind-
um beri upþhafsstafinn „R“.
Harold Wil'soh á í alvarlegri
andstöðu við flokksbræður
sína eftir næstkomfandi jún-ír
mánuð. Edward Heatth mun
auka mjög á vinsældlr sínar.
Einn af brezku konungsfjöl-
skyldunni mun opin'bera trú-
lofun sína og giftingardagur-
inn verður ákveðinn. Fidel
Fnamhald á bls. 18.
TEPPA- OG
DREGLABÚTAR
ÓDÝRT - ÓDÝRT
Seljum i nokkra daga
feppa- og dregla-
afganga mjög ódýrt.
Notið þetta
sérstaka tœkifœri.
GEYSIR HF.
Teppa- og dregladeildin
Vesturgötu 1.