Morgunblaðið - 14.01.1968, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 14.01.1968, Qupperneq 28
ÍSLENDINGUR MYRTUR !94 á atvinnuleysisskrá VESTANHAFS — IMorðinginn ófundinn MARKÚS F. Sigurjónsson, skipstjóri, var myrtur fyrir utan heimili sitt í New Orle- ans að kvöldi sunnudagsins 7. janúar síðastliðinn. Fannst Markús á götunni liggjandi í blóði sínu um kl. 21.45 og kl. 22-56 lézt hann af völdum sára sinna. Æ tingjum Markúsar heitins barst í gæ-r bréf frá skólastjóra Page Navigation School, þar sem þeim var tilkynnt lát hans, en Markús hafði innritazt í skólann, þar eð 'hann hugðist öðlast banda rísk skipstjórnarréttindi. í einu af dagblöðum New Orleans birtist frétt um morðið. Þiar segir, að Markús hafi látizt af völdum sára, er hann hafi hlotið og árásarmaður veitti honum. Að áliti lögreglunnar hetfur morðinginn ekki búið í hverfinu. Maður sem var á gangi með hundinn sinn sá Markús, sem riðaði frá neðri enda Washing- tonstrætis, að útidyrum húss, sem síðar reyndist vera heknili hians. Maðurinn hljóp til og ætlaði að hjálpa, en sá þá að honum blæddi og kallaði því á lögregluna. Lögreglan fann blóðslóð alveg frá íbúðarhúsi Markúsar að tjörn, er var skammt frá. Markús hafði verið stimginn í hjartastað tvisvar með mjög beittum hníf eða rýtingi. Lög- reglan telur, að ekki sé um að ræða rán, því að Markús var bæði með úr sitt á sér er hann fannst, svo og pen- inga. Ennfremur segir lögregl- an, að engar líkur séu til, að Markús hafi lent í ryskingrrm. Lögreglan hefur engan grun- aðan um þetta svívirðilega morð að svo komnu máli. Þess ma geta, að sam.a dag og Markús er myitur birtist í Mbl. grein, sém byggð eir á framhaldisgrein úr tímaritinu Ægi eftir Markús'. Birtist hún í Ægi fyrir trveimur árum. Mbl. hafði í gær tal af Pétri Thorsteinsson send.herra íslands í Washington og spurði hann hvort nokkuð nýtt hefði komið fram í morðmáli Markúsar. Pétur sagðist þá vera nýbúinn að tala við lögregluyfirvöldin í New Orleans og hefði sér verið tjóð að lögreglan hefði enn eng- an grunaðan. Fáir hafi verið á ferli umrætt kvöld enda kalt í veðri.. Málið er í rannsókn. — þar af 64 verkamenn GARÐAR á Alftanesi stórskemmast í bruna Hjónin slösuðust, en börnin sluppu ómeidd HJÓNIN að Görðum á Álfta- nesi slösuðust illa, einkum hús- bóndinn Guðmundur Björnsson, þegar íbúðarhús þeirra stór- skemmdist í eldi í fyrrinótt. Brenndist Guðmndur í andliti og á höndum og var hann flutt- ur í Landsspítalann, en kona hans Helga Sveinsdóttir brennd ist á baki og fótbrotnaði. Tvö börn þeirra, tengdasonur og fjögurra vikna stúlkubarn sluppu ómeidd. Slökkviliðið í Hafnarfirði var kvatt að Görðum kl. 03:50 í fyrrinótt. Var þá magnaður eld ur á efri hæð íbúðarhússins, sem er steinhús, en veggir allir klæddir veggfóðri. Slökkvistarfið gekk greiðlega, en miklar skemmdir urðu á hæð inni og er allt innbú fólksins Framh. á bls. 27 Markús Sigurjónsson NÍUTÍU og fjórir voru skráðir atvinnulausir í Reykjavík um há degi í gær, þegar Morgunblaðið hafði samband við ráðningastofu Reykjavíkurborgar. Þa/ af voru einir 64 verkamenn og svo 30 úr öðrum stéttum. Á fundi frétta manna með Geir Hallgrímssyni, borgarstjóra, á föstudag. var rætt um atvinnuieysi m.a. og sagði borgarstjóri að breytingar væru á atvinnuleysisskráning- unni frá degi til dags. Þannig hetfðu 4 verkamönnum i verið útveguð vinna er ljóst '■ væri, að meðan vertíðarstörf | hefðu ekki hafizt mundi ekki! unnt að átta sig á framtíðarþró- un þessara mála. Múrarafélagið hefur haft sam- band við borgina um að flýtt verði tengingu húsa í Fossvogs- hverfi við hitaveitu og teldi að hitaskortur hefði dregið úr verk efnum þar. Sagði borgarstjóri að nú væru flest fjölbýlisihús í hverfinu ýmist tengd eða hægt að tengja þau þegar óskað væri. Aðspurður um hvers vegna Þormóður goði hefði verið send- ur í klössun erlendis, sagði borg- arstjóri, að ráðunautar BÚR hefðu eindregið ráðið frá því að láta framkvæma hana hér þar sem það mundi taka of langan tíma en hér væri ura miííni hátt- ar klössun að ræða, sem mundi taka um hálfan mánuð. Mæðgurnar að Görðum. Frá vinstri: Þórunn Guðmundsdóttir, dóttir hennar, sem varð fjögurra vikna í gær, og frlú Helga Sveinsdóttir. (Ljósm. Mbl: ÓL. K. M.) Áttum fótum fjör aö launa — segir frú Helga Sveinsdóttir að Görðum á Álftanesi, sem fótbrotnaði, er hún féll á hálku „VIÐ áttum fótum fjör að menn Mbl. (heimsóttu hana í 1, launa í nótt“, sagði frú Helga gær. Helga dvelur nú að Sveinsdóttir, þegar frétta- Grund, sem er næsti bær við Garða, ásamt börnum sínum og tengdasyni. en maður henn air, Guðmundur Björnsson liggur í Landakotsspítala. „Það mun hafa verið laiust fyrir klukkan fjögur, sem við urðum vör við eldinn. Guðmundur var sofnaður og einnig Axel tengdasonur okk ar og Helgi sonur okkar, en hann svaf niðri í kjallaira. Við mæðgurnar vöktum hins vegar yfir litlu telpunni og Framh. á bls. 27 Heita vatnið í Kópavogi hefur hækkað um 49% Axel Ström Óskarsson. tengdasonur hjónanna, stendur við skápinn rsem eldurinn kom upp í. Á myndinni sést sím- inn, sem ógerlegt reyndist að komast í vegna eldsins. (Ljúsm. Mbl.: ÓL. K. M.) VATNSGJOLD hjá Kyndistöð Kópavogs hafa hækkað frá því í september um 49%, að þvi er Ólafur Jensson, bæjarverkfræð- ingur í Kópavogi tjái Mbl. í gær. Verð á hverju tonni vatns hækkaði í september úr 10 krón- um í 13 krónur, eða um 30% og var það leiðrétting á of lágu verði, auk þess sem tekið var tillit til hækkaðs olíuverðs í júlí mánuði. Við hækkunina í september var og sett ný gjaldskrá fyrir kynidistöðina og olíuverð og bygg ingarvísitala tekin sem viðmið- un verðs. Jafnframt var fasta- gjald hækkað úr 40 aurum á rúmmetra húss í 50 aura. Breyt- ingar á gjaldskrá höfðu ekki ver ið gerðar þ ásíðan á árin,u 1954. Fjarhitunargjöld frá kyndistöð- inni hækkuðu aftur frá og með desemberreikniingi. Hækkaði þá úr 13 krónum í 14.90. Þeiirri hækkun olli hækkað olíuverð í nóvemberlok. Sú hækkun nem- ur 14.62% og er heildarhækkun frá því í sepember því 49%. Um 100 tengingar eru nú við kyndistöðina, en íbúðir í Kópa- vogi eru um 2000. í suimar er ætlunin að Kópavogsbær bori eftir vatni innarlega við Ný- býlaveg. Sagði Ólafur Jensson, að boranir Reykjavíkurborgar 1 Bleisgurióf hefðu vakið vonir yfir vailda í Kópavogi um að vatn fengist þar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.