Morgunblaðið - 18.01.1968, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 18.01.1968, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FTMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1968 Verkefni Sinfóníuhljómsveitarinnar að kynna verk Kokkonens sem fyrst JOONAS Kokkonen, finnska tónskáldið, sem að þessu sinni hefur hlotið tónsmíða- verðlaun Norðurlandaráðs fyirr þriðju sinifóníu sína, er fæddur 13. nóvemiber 1921. Jafnframt háskólanámi. sem hann lauk með fil. mag,- prófi 1948, var hann við nám í Sibe liusar-a kademí un ni í Helsingfons og lagði aðallega stund á píanóleik. Hann braut skráðist þaðan 1049, og um svipað leyti gerðist hann kenn ari við akamedíuna í tónlist- arsögu og tónfræði. Allan fyrri hluta þessarar aldaT lifðu ung finnsk tón- stoáld í stougga Sibeliusar. Hvenær sem finns'k tónlist var nefnd, að minnsta toosti utan Finnlands ,toom mönn- um nafn hans í hug og fá nöfn önnur. Svo mikill og snjall var rómur þessa skálda jöfurs. Samt hafa allan þenn an tíma starfað í Finnlandi mörg atlhyglisverð tónstoáld, og á síðustu áratugum hafa nokkur þeirra orðið víðkunn um Norðurlönd. Eitt Þeirra er Joonas Kekkonen. Hann mun ekki hafa verið neitt undrabarn, og það er ekki fyrr en siðasta áratug- inn eða svo sem hann hefur orðið verulega áberandi í finnsku tónlistarlífi. En síðan hefur stjarna hans farið stöð ugt hækkandi, og mun nú engum blandast hugur um, að hann er meðal hinna allra merkustu tónstoálda, sem nú starfa á Norðurlöndum. Nú í dag hefur tónlistardómnefnd Norðurlandaráðs látið uppi álit sitt um það. Og áður hef ur honum hlotnazt sá heiður í heimalandi sínu að vera kjörinn félagi Finnsku aka- demiunnar. Joonas Kokkonen hefur samið tónverk margra teg- unda: sinfóníur, kammer- músík og sönglög meðal ann- ars, en sá er þetta ritar er kunnugur aðeins fáu af því. En því minnisstæðari eru þau tvö verk hans, sem hér hafa verið flutt, á tónlistarhátíðun um 1954 og nú í haust. Árið 1954 var Kokkonen enn lítt kunnur utan heimalands síns, og fáir íslendingar munu hafa vitað nokkur deili á honum. En píanókvintett hans, sem hann flutti hér sjálfur ásamt íslenzkum strengjaleikurum, gaf ótvíræða bendingu um að hér væri á ferðinni höfundur, sem vert væri að fylgjast með. Og síðan hygg ég megi segja, að hann hafi vaxið með ári hverju. Á tónlistarhátíð- inni í haust sem leið vakti verk hans, er bar nafnið Sin- fonia da camera, óskúata at- hygli áheyrenda, og margir munu hafa talið það meðal hins allra merkasta ef ekki það allra merkasta, sem dag- skrá hátíðarinnar hafði að bjóða. Verkinu, sem nú færði honum NorðurlancVráðs-verð launin er ég því miður ekki kunnugur. En verðugt verk- efni fyrir Sinfóníuhljémsveit ina okkar væri að toynna ís- lenzkum áheyrendum það við fyr.stu hentugleika. Og raun- ar væri skemmtilegt, ef sú hefð gæti komizt á, að verð- launaverk Norðurlandaráðs yrðu kynnt jafmharðan á öll- um Norðurlöndum, ef þess er nokkur toostur. Joonas Kokkonen Finnar og Íslendingar standa höllum fæti í keppn- ' inni um bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs, vegna þess að hinir þjóðirnar skilja ekki mál þeirra. Um tónlistina er þessu á annan veg farið, og nú hafa tónlistarverðlaunin fallið í hlut Finna. Er þetta mikil viðurkenning, ekki að- eins fyrir tónstoáldið Joonas Kokkonen persónulega, held- ur einnig fyrir finnska tón- menningu almennt. , Jón Þórarinsson. Sannleikur og staðreyndir Fáein atriði um skáldskap Per Olof Sundmans PER Olof Sundman, sem hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs að þessu sin/ni, er fæddur í Waxholm í Svíþjóð 4. septermher 1922. Barn að aldri fluttist hann til Stokkhólms og átti þar heima fram á fullorðinsár, en síðan tók hann sig upp ásamt konu sinni og settist að í Jámt- landi í Norður-Svíþjóð þar sem þau hjónin hafa til skamms tíma rekið fjalla- hótel . Þar bjó Sundman, þegar fyrsta bók hans, smásagna- safnið Jágarna kom ú.t. Sjálf- ur hefur Sundman alla tíð lagt áherzlu á mikilvægi þeirra áhrifa er víðáttan og snævi þakið fjallalandslagið í Jámtlandi hafa haft á við- horf hans og skáldskapariðk- un: „f strjálbýlinu ... er hægt að öðlast heildarsýn yfir ör- lög hvers einstaklings, þar eru meiri mögulei'kar á að geta brotið til mergjar að- stöðu hans í manniegu sam- félagi“, segir hann. En búferla flutningurinn opnaði líka augu Sundmans fyrir öðru mikilvægu atriði sem hefur orðið afdrifaríkt fyrir hann sem rithöfund: hin ólíku sjónarhorn, sem hver atburð- ur, hver sannleikur, er und- ir orpinn, hvernig sannleik- urinn og það sem við höldum að sé óyggjandi veruleiki, breytist eftir því hvaðan hann er séður og hver lítur hann, eða segir frá honum. Og Sundman hefur komizt að þeirri niðurstöðu í bókum sínum, að staðreyndir segi okkur í rauninni ekkert um þau sannindi sem í þeim fel- izt, því að undir þeim leyn- izt eitthvað nýtt, og en-n nýtt. Aðeins yfirborðið er nokkurn veginn óyggjandi. í bók sinni Tvá dagar, tv& nátter stendur þetta: „Stundum langar mann að vita hvað einhver annar er að hugsa eða brjóta heiiann um. Maður getur auðvitað spurt hann að því. Kannski svarar hann. Þar fyrir veit maður ekki hvað hann er að hugsa — eða hvað hann er að brjóta heilann um. Maður veit aðeins hverju hann svarar“. Raunhlítur, hlutbundinn frásagnarháttur Sundmans er því að öllu leyti í sam- ræmi við þetta grunvallar- viðhorf hans. Hann hefur með tímanum náð ótrúlegri ieitoni og jafnvægi í stíl, þar sem ekkert virðist ofsagt, en lesandinn verður lika að hafa sig ailan við, því að hvert einaista smáatriði verður þan.nig ómissandi hluti heild- armyndarinnar. ísienzkir lesendur hafa kannski gaman af að vita, að sænski gagnrýnandinn, C. G. Bjurström, hefur bent á tengsl milli stíls íslendinga- sagnanna og stíls Sundmans. Tvær bækur Sundmans voru skáldsögur, Undersökn- ingen kom út árið 1958 og Skytten árið 1960, og gerast báðar í Norður-Svíþjóð. Und- ersökningen byggist á sann- sögulegum atburði og lýsir viðleitni eftirlitsmanns áfeng- isvarnarnefndar þar nyrðra til að fá úr því skonið, hvort forstjóri stóriðju þar á staðn- um sé áfengi-ssjúklingur eða ekki. Eftirlitsmaðurinn komst að þeirri niðurstöðu ein.ni, að eftirgrennslanir gátu á engan hátt gert honum kleift að fá úr því skorið heiðarlega og afdráttarlaust, hvernig ástatt var um manninn; þótt hægt sé að rekja trúverðuglega yf- irheyrzlur og rannsóknir, er gersamlega ókleift að komazt að óyggjandi niðurstöðu, við vitum aldrei -nema við fær- umst æ fjær þeim sannleika sem við erum að leita að. Niðurstaða verður því í raun- inni engin, skilingur okkar á náunganum getur aldrei orðið endanlegur eða afdrátt arlaus þrátt fyrir allar þær staðreyndir sem við höfum í höndum. Með skáldsögunni „Expedi- tionen“ sem toom út árið Per Olof Sundman 1962, aflaði Sundman sér einnig frægðar erlendis. Bók in var þýdd á frönsku og hlaut mikið lof gagnrýnenda þar í landi og var síðan þýdd á fjölmörg önnur tungumál. Þar með má segja að ísinn hafi verið brotinn og mun ó- hætt að fullyrða. að ný bók frá hendi Sundmans þyki tíð indi meðal bókmenntafólks í Evrópu. Fram að þessu hafði sögusvið Sundmans verið Norður Svíþjóð, Expeditionen gerist hins vegar í Afríku. Sagan byggir að notokru á dag bó'karbrotum Stanleys úr leið angri hans inn í frumskóga Afríku til að leita Kanji pasja, leiðangursmanns sem horfið hefur inn í frumskóg- ana og etoki skilað sér aftur. Eftir því sem líður á bókina verður þó takmark þessa leið angurs æ hverfulla; leiðang- urinn verður að lokum tak- mark í sjálfum sér, og sam- skipti milli manna í þessu einangraða samfélagi verður höfuðviðfangsefnið. Sögumenn eru tveir, annar hvítur yfir- maður, um uppruna hins verður það eitt vitað, að hann er ekki hvítur, hann starfar sem túlkur leiðangursins og stundum gefa þessir tveir sögu menn lesandanum hver sína mynd af sama atburði og ber þá vitanlega etoki saman, en oftast fer svo, að gerólík við horf þeirra ráða söguþræði. En leiðangurinn sem er orð- inn takmark í sjálfu sér og endar í rauninni aldrei, sýnir þó að lokum að þessir ólíku fulltrúar mianntoyns og sam- féla.gs standa jafnir að vígi: enginn á þess kost að snúa við, allir verða þeir að seigl- ast og halda áfram göngunni. Þanni.g eru þeim sett hin sömu mannlegu kjör. Mér hefur því miður ekki enn gefizt kostur að kynna mér nýjustu bók Sundmans, þá er nú hefur verið verð- launuð. Hún heitir Ingenjör Andrées luftfárd. Eins og í Expeditionen byggir Sund- man þessa sögu sína á sann- sögulegum atburði. Sumarið 1897 héldu þrír menn til á SpitZbergen og hugðust ná til norðurpólsin.s í loftbelg. Hörmuleg afdrif þessara manna eru flestum kunn, en á dagbókarbrotum sem fund- ust árið 1933 byggir Sund- man sögu sína. Hann hefur unnið að henni í þrjú ár, kynnt sér allt um loftbelgi og aðstæður þær sem leiðang ur Andrées bjó við og erfið- lei'ka sem hann varð að greiða fram úr. Meðan bókin var enn í samningu las ég viðtal sem sænskur blaðamaður átti við Sundman. Orð Sundmans verð ég að tilfæra eftir minni, en þau voru eitthvað á þessa leið: Mig langaði til að vita hvaða afl það væri sem ræki manninn út í svo gersamlega vonlaust og háleitt fyrirtæki. Svava Jakobsdóttir. - MINNING og síðar á Þingvöllum, undi hún sér vel innan um blóm og gróð- ur í faðmi íslenzkrar náttúru. Á yngri árum stundaði hún mik ið útilíf, einkum sund, og ég minnist margra ánægjustunda með þessari góðu frænku, þegar ég kom fyrst til höfuðborgar- innar, unglingstelpa, til þess að keppa á sundmóti. Hún hafði lifandi áhuga á öllu, sem við unga fólkfð vorum þá að fást við og var félagi okkar í starfi og leik. Tvívegis dvaldi Lára vestan hafs með sonum sínum sem þar eru búsettir og naut þess að vera með ættfólki sínu þar og kanna ókunna stigu. Hlýhugur margra fylgir hinni greindu og glæsilegu konu burt úr þessum heimi, og ég veit að ég mæli fyrir munn fjölda frænda og vina, er ég flyt henni að leiðar- lokum innilegar þakkir fyrir vin áttu og tryggð. Sjálf þakka ég henni órofa vináttu og góðvild við móður mína og okkur öll og lýk kveðju minni með orðunum, sem Lára sjálf valdi, er hún skrifaði um móður sína látna: „Orðstír deyr aldregi hveim sér gó’ðan getr“. Börnum hennar votta ég ein- læga samúð og bið þessarar góðu og gáfuðu frænku minnar blessunar guðs í nýjum heim- kynnum. Anna Snorradóttir. VIÐ sátum við sjúkrabeð þinn, og vonuðum, að kallið mikla kæmi ekki nú í þetta sinn. Þá opnuðust dyrnar og sonar- dóttir þín kom ixm, með soninn sinn litla á arminum. Þá færð- ist eins og bros um varir þínar, og kærleikurinn, sem þú barst til allra þinna afkomenda, skein á andliti þínu, um leið og þú horfðir í saklaus barnsaugun, og straukst hendi um höfuð og litl- ar hendur. En sú kennd, sem er háleitust í fari hverrar móður, er ástin til barna hennar, og þá kennd átt- ir þú í ríkum mæli. En kallið kom, og nú ert þú horfin okkur, og margt höfum við að þakka frá liðnum árum, er þú í önn dagsins gazt ætíð stutt okkur með ráðum og dáð, og boðið til dvalar á heimili þínu. Hönd þín var styrk til starfs- ins, og mikið var einnig sálar- þrek þitt, og kjarkur í baráttu lífsins. Miklu dagsverki er lokið, en sæll er sá, sem vinnur á meðan dagur er. Minninguna um þig munum við geyma í hjörtum okkar, og bi'ðjum þér blessunar Guðs á landi lifenda. Systur þínar. AUGLVSINGAR SÍMI 22.4*80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.