Morgunblaðið - 18.01.1968, Síða 20

Morgunblaðið - 18.01.1968, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. JANUAR 1968 MARY ROBERTS RINEHART: SKYSSAN MIKLA Hvernig datt þér i hug að taka krókódílstöskuna með í svona ferð? tim. ex það misskilningur. Þeir eru búnir að taka hann Julian Stoddard, svo það er ofseint að reyna að gera neitt. Mig hryllti við að heyra þetta. Ég man eftir, að ég andvarpaði yfiir því að hafa orðið völd að handtöku Julians, enda þótt ég vissi ekki hvernig, og loksins sagði ég honum aRa söguna: um myndina af Margaret, stefnumót mitt við hana, og hún hefði tjáð þetta satt vera, og svo hugíboð mirtt þarna á brautinni, að ein- hver væri á eftir mér. Hann hlustaði rólegur á mig. — Ertu viss um, að það hafi ekki verið Stoddard, sem reyndi að kála þér? — Já, það mundi hann aldrei gera. — Maðurinn getur gert sitt af hverju til að losna við rafmagns stólinn, sagði hann þurrlega. — f>ú vissir þetrta um Margery og það vissi enginn annar. Jafnvel þessi Connor-kvenmaður, eftir því sem þú segir, vissi ekki, að hún hefði gifzt Stoddard. — Hann vissi alls ekki, að ég var þarna á staðnum. — Hvernig getur þú vitað það? Það er fullt af runnum kring um laugina. Hann getur vel hafa elt konuna sína út og heynt hvert orð, sem þið sögðuð. Þetta lítur illa út, Pat. Þeir vita, hvað fyrir þig kom, og þessvegna tóku þeir hann fastan. — Ég veit ekki sjálf, hvað fyr- ir mig kom. >á sagði hann mér frá því. Gus hefði verið hræddur um mig, og þegar ég kom ekki afrtur, tók hann heimilistoílinn og fór að leita að mér. Fyrst fór hann niður í þorpið, en klukkan tólf var hann aftur kominn upp á Hólinn. Bíllinn minn var ókom- inn, svo að hann kallaði á Reyn- olds og spurði hann, hvert ég hefði farið. — Til Stoddards, sagði hann, — ég heyrði þegar hún talaði um það í símann. Gus fór hálfgert að skammast sín. Hann var rétrt að því kom- inn að ganga frá bílnum og láta þetta gott heita. En þá mundi hann skipun Tonys að láta mig ekki fara eina út að kvöldi dags. Loksins ók hann yfÍT að búgarð- inum og fann bílinn minn þar á torautinni, en húsið almyrkvað. — Honum leizt ekki á þertta, sagði Jim. — Hann steig út og svipaðist um. Það var talsvert dimmt og hefðirðu ekki verið í þessari hvitu kápu, hefði honum sézt yfir þig. En þarna varstu .... þér hafði verið fleygt niðúr í tóma laugina, og þú virtist vera dauð. Mér skildist, að þarna hefði verið talsvert uppistand, þegar komið var með mig heim. Bill Sterling var hræddur um höfuð kúputorot og Tony vakti upp skurðlækni í borginni og fékk hann til að koma. Hann vildi fara með mig í sjúkrahús til myndatöku en Tony afstýrði því. — Ef nokkuð þarf að gera, verð- ur það gert hér, sagði hann. Ég vil að hægt sé að vaka yfir henni. Hún á ekki að fara sömu leiðina og Evans. Ég var ekkert brotin. Ég hafði bara fengið högg, enda þótt ég andvarpaði þegar ég heyrði, að þeir hefðu rakað toletrt á höfðinu á mér og saurnað hann með fjór- um sporum. Svo höfðu þeir gefið mér sprautu til þess að róa mig, og nokkuð af tímanum hafði ég verið sofandi. — Þú varst heldur betur þreytt, sagði Jim og stóð upp. — Nú ætrtirðu að hvíla þig vel. Við getum víst ekkert gert fyrir hann Stoddard. Þeir halda hann sann- an að sök. Og það virtist svo sem þeir héldu það. Það var auðvitað litli maðurinn, sem svo lírtið bar á, sem hafði komið því til leiðac. Ég var ekki fyrr farinn út frá ungfrú Connor, en hann gekk inn og sýndi matseljunni merkið sitt. — Er hér nokkur kona, sem heitir Connor? sagði hann. Ég vildi gjarna tala við hana. 61 — Guð minn góður! sagði kon- an og ætlaði að hniga niður. — Lögreglan? — Ég þarf bara að tala við 'hana. Hún hefur ekkert gert fyrir sér. Hann kom að henni þar sem hún var að þvo upp eftir tesam- kvæmið okkar og raula fyrir munni sér. Litli maðurinn gekk inn og skellti hurðinni á mat- seljuna. — Þetta er allt í lagi, ungfrú Connor, sagði hann. — Ég þarf rétt að tala við yður. Þér þekkrtuð einu sinni stúlku, sem hét Marguerite Weston, er ekki svo? Hún þerraði hendurnar og glápti á hann. — Hvað um hana? Hún er þó ekki dáin? — Nei, að því ég bezt veit, sagði hann brosandi. — Ég vil bara fá lýsingu á henni, annað var það nú ekki. Hún hefur erft einhverja peninga, og við þurf- um að ná í hana. — Virkilega? Það var gaman fyrir hana. Ég á mynd af henni, en það eru fimmtán ár síðan hún var tekin. En hún gertur verið betra en ekkert fyrir því. Andlitið á litla manninum breytti ekki svip þegar hann sá myndina. — Ég þyrfti að fá að taka hana með mér, sagði hann. — Vona að yðu.r sé sama. Þér fáið hana aftur. Hann stakk henni varlega í veskið sitt, og ungfrú Connor var öll eitt bros þegar hún fylgdi honum til dyra. Matseljan var forvitin, en hin vildi ekkert segja henni. — Það er bara vinkona mín, se'm hefur erft peninga, sagði hún, og fór svo brosandi upp í herbergið sitt. Lögreglan hafði verið að leita fyrir sér á laugardag, og þar með rannsaka árásina á mig. Svo síð- degis á sunnudag hafði hún sent efrtir Julian Stoddard. Stewart saksóknari sat við skrifborðið sitt, með litlu myndina af Margery fyrir framan sig. Nú tók hann hana upp. Þekkið þér þessa mynd, hr. Stoddard? Julian tók myndina. Hann hlýt ur að hafa vitað, hvað á seyði var, en höndin skalf samt ekki. — Já, þebta er konan mín, sagði hann. Enginn hreyfði sig í hertoerg- inu. Þarna voru einir sex menn, lögreglufulltrúinn, Hopper, yfir- maður morðdeildarinnar, og ein- ir tveir eða þrír aðrir. Aðeins Stewart horfði á hann litl-u svíns augunum sínum. — Hún hét Marguerite Weston? — Já, ég giftist henni eftir að hún var skilin við Donald Morg- an. — Þér vissuð, að hún hafði gifzt honum og hann svo yfirgef- ið hana? — Já. Stewart hallaði siér aftur í sæt inu. — Ég skil, sagði hann. — Svo að þér urðuð þá ekki sérlega hrifinn, þegar hann skilaði sér aftur? Ekki sízrt vegna þess, að þér höfðuð leynt fortíð konunn- ar yðar? Er það ekki rétt? — Fortíð hennar kcxm ekki öðr um við en henni og mér. — Svona, svona, hr. Stoddard. Þarna var um fleira að ræða. Þér og konan yðar höfðuð vierið að borga peninga fyrir að leyna því, var ekki svo? Þetta var sniðug spurning. Jafnvel Hopper, sem hafði fund- ið hana upp, var ekki ailitof vifis í sinni sök. En Julian sjálfur leit upp, móðgaður. — Ég hef ekki látið neinn kúga út úx mér fé, sagði hann, og var formlegur. — Ég vil halda því fram, að einhver hafi verið að því, hr. Stoddard. Kannski konan yðar? Þeir létu það gott heita, en einn maðurinn gekk úrt eftir bendingu frá Hopper. Jafnvel þá hef ég efazt um, að Julian hafi skilið, hvernig mál hans stóð. En eftir næstu spurningu hlýrtur hann að hafa s'kilið það. — Hitt- uð þér Morgan eftir að hann kom heim? — Áldrei. — Hitti konan yðar hann? — Nei. — Eruð þér alveg viss um það? — Hárviss. Þá toilaði honum sjálfsstjórnin. Hann stóð upp. — Ég veit satt að segja ekki um hvað þetta snýst. Ekki drap ég hann, ef þér eigið við það Stewart. Hvers vegna ætti ég að bíða í tólf ár og gera svo aðra eins vitleysu? Hann ætlaði ekki að vera hér til fram'búðar, heldur var hann á förum. Og sízit af öllu vildi hann valda nokkru uppnámi,\ en það hefði morðið á honum einmitt gent. Saksóknarinn hallaði sér afit- ur í sætinu með ánægjusvip. — Setjizt þér niður, hr. Stodd ard, sagði hann vingjarnlega. — Ég skal fljótlega segja yður um hvað þetta snýst. Við skulum hverfa til baka til tímans þegar Morgan var myntur. Hvenær fór- uð þér úr Klaustrinu þá? — Rétt um miðnætti. — Gangandi? — Já, gangandi. Þannig er þetta ekki nema hálf míla heim til mín. — Hvenær komust þér heim? — Það er ég ekki alveg viss um. Ég hafði hitt og þertrta um að hugsa, og labbaði svo um nokkra stund. — Sá yður nokkur á leiðinni, eða þegar þér komuð heim? — Ég er hrœddur um ekki. — Hvað um konuna yðar? — Hún var sofandi. — Þér voruð þá nokkuð örugg- ur, ha? sagði Stewart. — Ekkert hneyksli og ekkert uppnám. En svo fór allt í háaloft. Ég skii. — Nei, það fór ekkert í háa- loft, eins og þér kallið það, svar aði Julian serttlega og virðulega. Vitanlega trúðu þeir honum ekki. Þeir rökrtu upp viðburði næturinnar. Hann gæti vel hafa hringt til Morgans og sett hon- um stefnumót í leikhúsinu. Það var hringt rtil Morgans, sam- 'kvæmt framiburði konu hans. Hann hefði getað hitt hann þar, og ...... — Þetta er hlægilegt! Til hvers hefði ég átt að hitta hann þar? Það voru hundruð aðrir staðir úr að velja. En Stewart sat við sinn keip, vægðarlaus. — Hversvegna fór konan yðar snemma heim þetta kvöld? Var það samkvæmt sam- komuilagi við yður? Nú varð hann vondur. Hann roðnaði og kreppti hnefana. — End'urtakið þér þetta, hr. Srtew- arrt, og þá skal ég reka tennurn- ar í yður ofan í lygahálsinn á yður með hnefanum. En Stewart, sem hafði þarna nægilegit varnarlið, bnosti bara. — Gott og vel, Stoddard. Ég skal leggja spilin á borðið. Við trú- um því, að þér hafði drepið Morg an þarna um nóttina, að þér haf- ið tekið bílinn, sem hann var 1 og komið líkinu fyxir þar sem það fannst, að þér hafið síðan ekið toílnum niður í gilið, síkammt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.