Morgunblaðið - 01.02.1968, Page 1
28 SIÐUR
4
Mesta leiftursókn Viet Cong í Vietnam
— Barizf frá IVfekong til Hue
— Herlög gengin í gildi í Suður
Vietnam — Viet Cong i sókn
— I\l-Vie(namar hafa safnað
50.OOO manna herliði sunnan
hlutlausa belfisins
Saigon, Washington, 31. jan. — (AP-NTB)
SKÆRULIÐAR Viet Cong og herflokkar N-Vietnamstjórn-
ar hafa umkringt konungsborgina Hue. að sögn talsmanns
Bandaríkjahers í Saigon í dag. Barizt hefur verið á götum
Hue í dag, og samkvæmt síðustu fregnum hafa skærulið-
arnir töglin og hagldirnar í þeim bardögum. Fréttastofa
N-Vietnam segir hersveitir Viet Cong hafa náð Hue á sitt
vald. og einnig héraðsborginni Quang Tri skammt sunnan
hlutlausa beltisins. Fréttastofan sagði, að Viet Cong hefði
gert miklar árásir á borgina Zam Ky suður af Danang, og
væri borgin nú í þeirri höndum. Þá hafa skæruliðarnir og
hermenn N-Vietnam gert stórfelldar fallbyssuárásir á
hafnarborgina Qui Nohn, 275 km norðaustur af Saigon og
sprengt í loft upp skotfærageymslur Bandaríkjamanna. I
annarri meiriháttar hafnarborg í S-Vietnam, Nha Trang,
322 km norðaustur af Saigon, gerðu Viet Cong skæruliðar
geysiharðar árársir á 3 bækistöðvar Bandaríkjamanna, að
sögn fyrrnefndrar fréttastofu. Talsmenn Bandaríkjahers
hafa ekki borið neina þessara fregna til baka.
Ilerflokkar Bandarikjamanna voru fluttir í þyrlum til sendir áðsins, er Viet Cong gerðu
árás á það, og lentu þyriurnar á þaki sendiráðsins. Mynd þessi var tekin af fyrstu þyrlun-
um, sem komu á bardagasvæð ið. — (AP-mynd).
• Hér er um að ræða mestu
leiftursókn, sem Þjóðfrelsisfylk-
ingin, sem nefnir sig svo, og her-
menn Hanoi-stjórnarinnar hafa
gert í allri sögu Vietnam-styrj-
aldarinnar.
• Nguyen Van Thieu, forseti
S-Vietnam, hefur lýst því yfir,
að herlög séu gengin í gildi í
S-Vietnam. Hefur forsetinn bann
að fundarhöld, utan húss og inn-
an. og skemmtanir.
Óstaðfestar fregnir herma, að
komið hafi til tals með banda-
rískum ráðamönnum í Saigon, að
flytja íbúana í burtu úr nokkr-
um hverfum borgarinnar til að
hægara verði um vik að ráða
niðurlögum skæruliðanna, sem
þar leynast.
Bandaríkjamönnum „refsað"
Fréttastofa N-Vietnam, sem
áður var vitnað til, sagði í dag.
að skænuliðum Viet Cong hefði
verið fyrirskipað, að refsa óvægi
lega bandarískum hermönnu.m
og „svikurum" í valdastólum í
Saigon. Sagði fréttastofan, að
miðstjórn Þjóðfrelsishreyfingar-
innar hefði gefið út þessa til-
skipun.
í framhaldi af þessu gerðu
sjátlfsmorðssveitir Viet Conig leift
urárás á bandaríska sendiráðið
í Saigon með véibyssum, skrið-
dreka’byssum og handsprenigjum,
réðust gegn forsetahöllinm,
frömdu mikil skemimdiarverk á
útvarpsstöðinni og sprengdu í
loft upp nokkrar lögreglustöðvar
í þonpum skammt norður af Sai-
gon. Þeir gerðu einnig stórfelld-
ar sprengjiuvörpuárásir á Tan
Son Nhut fluig'völlinn norður af
Saigon, er hann mun hinn fjöl-
farnasti í heimi um þessar mund-
ir. Borgarar, sem bjuggu í nánd
við flugvöninn hafa skýrt frá
því. að skæruliðarnir hafi skipað
þeim að verða á brott vegna
þess, að þeir ætluðu að gereyði-
leggja flugvöllinn. Miklar
skemmdir urðu á honum og
herma óstaðfestar fregnir, að
honum hafi verið lokað fyrir um
ferð i bili. Alls gerðu Viet Cong
skæru.liðar heiftarlegar sprengju
árásir frá jörðu á níu stórflug-
velli Bandaríkjamanna víðsveg-
a um S-Vietnam í gær og í dag.
Niu stærri bongir í landinu og
allmargar smærri hafa iegið und
ir stöðugium árásum skærulið-
anna og N-Vietnam-hermanna í
tvo sólarhTÍnga.
í kvöld kcm til nýrra átaka
milli 20 skæruliða og ihermanna
S-Vietnam í hálfbyiggðu hóteli í
grennd við forsetahöUina í Sai-
gon. Sjónarvottar skýra frá því,
að skæruliðarnir hafi komið ak-
andi í bifreiðum með ’hátalara og
kallað í þá: „Opnið hliðin. Þetta
er Þjóðfralsishreyfingin“. Árás-
inni á forsetahöUina var hrundið
viðstöðulítið.
Sá atburður, sem einna mesta
athygli hefur vakið, er árás
sjálfsmorðssveitanna á banda-
ríska sendiráðið í Saigon aðfara-
nótt miðvikudags. Nítján skæru-
liðum tókst að komast alla leið
að bygginigunni cg inn í kjallara
hennar og neðstu hæðir. Skutu
þeir fyrst af skriðdrekabyssum
á dyr sendiráðsins og veggi og
ollu mikilum skemmdum á bygg-
iragunni, sem er átta hæðir. Sjó-
liðar og lögregla úr bandaríska
hernum 'komu á staðinn í þyrlum
og lentu á þaki byiggingarinnar
og börðust að sögn þeirra sj’álfra
á göngum þriggja neðstu ‘hæð-
anna unz þeir höfðu yfirbugað
skæruliðanna. Yfirmaður herafla
B'andaríkjanna í S-Vietnam, «
Framh. á bls. 27
Baunsgaard í forsæti
3. flokka stjórnar
— Samkomulag um stjórnarmyndun
Særð kona með börn sín leitar skjóls undir húsvegg í Saigon,
er skæruliðar Viet Cong fara með eyðileggingu og morðum
um götur borgarinnar. (AP- mynd).
Kaupmannahöfn, 31. jan
úar. NTB.
BORGARAFLOKKARNIR í
Danmörku, Vinstriflokkur-
inn, Róttæki Vinstri flokkur-
inn og íhaldsflokkurinn,
hafa náð samkomulagi um
myndun samsteypustjórnar,
sagði Hilmar Baunsgaard úr
Róttæka flokknum í kvöld.
Friðrik konungur hefur fal-
ið honum að kanna mögu-
leika á stjórnarmyndun.
Baunsgaard skýrði frá siam
komulaginu að loknum síð-
ustu fundum sánum með
helztu leiðtogum hinna
þriggja flokka.
Kl. 11 á morgun gengur
Baunsgaard á fund konungs
og skýrir honum frá árangri
viðræðnanna. Síðan munu
fulltrúar hinna þriggja flokka
ganga frá ráðherralistanum
og á föstudaginn er talið lík-
legt að Baunsgaard ljúki end
anlegla við stjórnarmyndun-
ina.
Eftirfarandi fréttaskeyti
barst Mbl. í gærkvöldi frá
fréttaritara blaðsins í Kaup-
mannaliöfn, Gunnar Ryt-
gaard:
Fullvíst þykir nú, að þrjú
ráðherrasæti í hinni nýju