Morgunblaðið - 01.02.1968, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1%8
7
Sjötíu ára er í dag, Ólafía Ás-
björnsdóttir frá Hvammi í Dýra-
firði, nú til heimilis að Faxabraut
37A, Keflavík.
Þaann 17. desember voru gefin
saman í hjónanband í Háteigs-
kirkju af séra Jóni Þorvarðarsyni,
ungfrú Þóra Björk Jóhannesdóttir
og Baldur Halldórsson, stýrimanna
skólanemi. Heimili þeirra er að
Holtagerði 66, Kópavogi.
Nýlega voru gefin saman í Kálfa
fellsstaðarkirkju, A.-Skaft. af séra
Fjalar Sigurjónssyni, ungffrú Anna
Fjalarsdóttir og Gísli Skúlason. —
Heimili þeirra er að Bergstaðastr.
42.
Akranesferðtr Þ. t>. |».
Frá Akranesi mánudaga. þriðju-
daga, fimmtudaga og laugardaga
kl. 8, miðvikudaga og föstudaga
kl. 12, sunnudaga kl. 4.15.
Frá Reykjavík kl. 6 alla daga
nema laugardaga kl. 2 og sunnu-
daga ki. 9.
L,oftleiðir h.f.: Leifur Eiríksson
er væntanlegur frá NY kkl. 08,30.
Heldur áfram til Luxemborgar kl.
09,30. Væntanlegur til baka frá Lux
emborg kl. 01,00. Heldur áfram til
NY kl. 02,00. Snorri Þorfinnsson fer
til Oslóar, Khafnar og Helsingfors
kl. 09,30. Þorvaldur Eiríksson er
væntanlegur frá Khöfn, Gautaborg
og Osló kl. 00,30.
Skipadeild SÍS: Arnarfell fer í
dag frá Hull til Þorlákshafnar og
Reykjavíkur. Jökulfell lestar á Vest
fjörðum. Dísarfell fer í dag frá Rott
erdam til Austfjarða. Litlafell losar
á Austfjörðum. Helgafell fór í gær
frá Húsavík til Rotterdam. Stapa-
fell er væntanlegt til Rotterdam i
dag. Mælifell fer í dag frá Þor-
lákshöfn til Reyðarfjarðar og Odda.
Skipaútgerð ríkisins: Esja er á
Austurlandshöfnum á norðurleið.
Herjólfur fer frá Vestmannaeyjum
kl. 21.00 i kvöld til Rvíkur. Herðu
breið er á Norðurlandshöfnum á
austurleið. Baldur fór til Snæfells-
ness- og Breiðafjarðarhafna í gær-
kvöldi.
Flugfélag íslands h.f.: Gullfaxi
fer til Glasgow og Khafnar kl. 9,30
í dag. Væntanlegur aftur til Kefla
víkur kl. 19.20 í kvöld. Fer til Lund
úna kl. 10,00 í fyrramálið. Innan-
landsflug: í dag er áætlað að fljúga
ttil Akureyrar (2 ferðir), Vestm,-
eyja (2 ferðir), Patreksfjarðar, ísa
fjarðar, Egilsstaða og Sauðárkróks.
ar.
Hafskip h.f.: Lanagá er í Gdynia.
Laxá fór frá Bilbao 30. jan. til Rott
erdam. Rangá fór frá Rotterdam
30. jan. til Reyðarfj. Selá er í
Rotterdam.
Pan American þota kom í morg-
un kl. 6.05 frá NY. Fór kl. 06.45 til
Glasgow og Khafnar. Væntanleg
aftur frá Khöfn og Glasgow í kvöld
kl. 18,25 og fer til NY kl. 19.15
Eimskipafélag íslands h.f.: Bakka
foss fer frá Moss í dag til Gauta-
borgar og Khafnar. Brúarfoss fer
frá Norfolk á morgun til NY.
Dettifoss fer á Walkom á morgun
til Kotka og Rvíkur. Fjallfoss fór
frá NY 26. jan. til Rvíkur. Goða-
foss fór frá Siglufirði 28. jan. til
Zeebrugge, Grimsby, Rotterdam,
Rostock og Hamborgar. Gullfoss
fór frá Khöfn í gær til Kristian-
sand, Thorshavn og Rvíkur. Lag-
arfoss er í Þorlákshöfn. Mánafoss
fór frá Antwerpen í gær til Hull,
Leith og Rvíkur. Reykjafoss fór
frá Gufunesi 27. jana. til Hamborg
ar og Rotterdam. Selfoss fer frá
Tálknafirði í gær til Grundafjarð
ar og Raufarhafnar. Tungufoss fór
frá Færeyjum í gær til Fáskrúðs
fjarðar og Raufarhafnar. Askja
fór frá Hull 30. jan. til Rvíkur.
Pennavinir
Yuan-Lianag Tsai,
15 Min-Fu Road,
Puli Nanton Hsien,
Taiwan, Free China
(R.O.)
óskar eftir bréfasambandi við ís-
lending, helzt stúlku. Hann er 19
ára og leggur stund á húsagerðar
list á Taiwan eyju. Hefur mikinn
áhuga á íslandi.
Mr. Robert,
Jean-Marc, 2 rue de Lorraine,
08 Charleville-Méziéres
(Lier) France.
Stúdent með áhuga á að heimsækja
ísland, vill bréfasamband við ís-
lenzkan pilt eða stúlku, skrifar
ensku, þýzku og frönsku.
Marie-Francoise Hédin
95 Rue Maréchal Joffre,
76 Le Havre, (S-M),
France,
vill samband við íslending 18—30
ára. Er sjálf 23 ára.
Tékkneskur karlmaður með á-
huga á póstkortasöfnun, skrifar
ensku, þýzku, frönsku, óskar eftir
íslenzkum pennavinum.
Dr. A. Majrich,
ÚSTÍ, n. L. Mosnova 34,
Tshecoslovaqiue, C.S.S.R.
Börn heima kl. S
Börn eiga ekki heima á götunni
Verndið börnin gegn hættum og
freistingum götunnar og stuðlið
með því að bættum siðum og
betra heimilislífi.
m ANDLEG HREYSTI-AIJLRA HEILLB
■GEÐVERNDARFÉLAG [SLANDSB
IWunið eítir
smáfuglnnuiu
Munið eftir að gefa smáfugl-
| unum, strax og bjart er orðið.
Fuglafóður Sólskrikjusjóðsins
fæst vonandi í næstu búð.
Minningarspj öld
Minningarspjöld Margrétarsjóðs,
styrktarsjóðs Zontaklúbbs Reykja-
víkur til hjálpar heyrnardaufum
börnum eru seld á eftirtöldum stöð
um: Gleraugnasölunni Fókus, Lækj
argötu 6B, Fjölritunarstofu Friede
Briem, Bergstaðastrætti 69, Sigríði
Bachmann, Landsspitalanum og
Hólmfríði Baldvinsson, Freyjugötu
36.
Minningarkort Hjartaverndar
fást í skrifstofu samtakanna, Aust-
urstræti 17, 6. hæð, sími 19420, alla
virka daga frá kl. 9—5, nema laug-
ardaga júlí og ágúst.
Minningarspjöld minningarsjóðs
frú Önnu Ingvarsdóttur fást í
Reykjavík í Bókabúð Æskunnar,
Kirkjuhvoli, og á ísafirði í Bóka-
verzlun Jónasar Tómassonar og
hjá Sigurði Jónasyni, prentsmiðju-
stjóra.
Minningarspjöld Barnaspítala-
sjóðs Hringsins, fást á eftirtöldum
stöðum: Skartgripaverzlun Jóhann
esar Norðfjörð, Eymundssonarkjall
aranum, Þorsteinsbúð, Snorra-
braut 61, Vesturbæjarapótek, Holts
apótek og hjá Sigríði Bachmann,
yfirhjúkrunarkonu Landsspítalans.
Minningargjafasjóður Landspít-
alans. Minningarspjöld sjóðsins
fást á eftirtöldum stöðum: Verzlun
in Ócúlus, Austurstræti 7, Verzl-
unin Vík, Laugavegi 52, og hjá
Sigríði Bachmann, forstöðukonu
Landspítalans. — Samúðarskeyti
sjóðsins afgreiðir Landssíminn.
Minningarspjöld Heimilissjóðs
Hjúkrunarfélags íslands eru seld
á eftirtöldum stöðum: Hjá Önnu Ó.
Johnsen, Túngötu 7, Bjarneyju
Samúelsdóttur, Eskihlíð 6A, Elínu
Eggerz Stefánsson, Herjólfsgötu 10,
Hf., Guðrúnu L. Þorkelsdóttur,
Skeiðarvogi 9, Maríu Hansen, Vífil
stöðum, Ragnhildi Jóhannsdóttur,
Sjúkrahúsi Hvítabandsins, Sigríði
Bachmann, Landspítalanum, Sig-
ríði Eiríksdóttur, Aragötu 2, Mar-
gréti Jóhannesdóttur, Heilsuvernd-
arstöðinni, og Maríu Finnsdóttur,
Kleppsspítalanum.
Minningarspjöld húsbygginga-
sjóðs KFUM og K eru af afgreidd
á þessum stöðum: Gestur Gamal-
íelsson, Vistaíg 4, sími 50162, verzl-
un Þórðar Þórðarsonar, Suður-
götu 36, sími 50303, og hjá Jóel Fr.
Ingvarssyni, Strandgötu 21, simi
50095.
Minningarspjöld Sálarrannsókn-
arfélags íslands fást hjá Bóka-
verzlun Snæbjarnar Jónssonar,
Hafnarstræti 9, og á skrifstofu fé-
lagsins, Garðastræti 8, sími 18130
(opin á miðvikud. kl. 17.30—19).
Minningarspjöld
Langholtskirkju
fást hjá: Blómaverzluninni Dögg,
Álfheimum 6, Ingibjörgu Þórðar-
dóttur, Sólheimum 17, Guðrúnu
Claessen, Langholtsvegi 157, Jónu
Þorbjarnardóttur, Langholtsvegi 67
og verzluninni Njálsgötu 1.
Minningarspjöld
Styrktarfélags vangefinna fást i
Bókabúð Æskunnar, verzl. Hlín,
Skólavörðustíg 18 og á skrifstofu
félagsins La.ugavegi 11, sími 15941.
Minningarspjöld Minningarsjóðs
Maríu Jónsdóttur, flugfreyju, fást i
verzluninni Occulus, Austurstræti
7, verzl. Lsing, Hverfisgötu 64,
snyrtistofunni Valhöll, Laugavegi
25 og Maríu Ólafsdóttur, Dverga-
steini, Reyðarfirði.
Minningarspjöld Heilsuhælis-
sjóðs Náttúrulækningafélags fs-
lands fást í Hafnarfirði hjá Jóni
Sigurgeirssyni, Hverfisgötu 13 B,
sími 50433, og í Garðahreppi hjá
Erlu Jónsdóttur, Smáraflöt 37,
simi 51637.
Minningarspjöld Kvenfél. Hafn-
arfjarðarkirkju fást á eftirtöldum
stöðum: Bókabúð Olivers, Bóka-
búð Böðvars, blómabúðinni
Burkna og verzlun Þórðar Þórð-
arsonar.
Vil kaupa bíl, Skoda, árg. ’55—’58. Uppl. í síma 52308 eftir kl. 9. Óska eftir að taka á leigu söluturn eða nýlenduvöru- verzlun. — Tilboð merkt: „5038“ leggist inn á afgr. Mbl.
Kona, reglusöm getur fengið fría, um mán- aðardvöl á Mallorka, með eldri, traustum manni. — Sendið símanr. á afgr. Mbl. merkt: ,,Njáll — 5320“. Ekta loðhúfur mjög fallegar á börn og unglinga. Kjusulag með dúskum. — Póstsendum. — Kleppsvegi 68, 3. h. t. v. Sími 30138.
Oska eftir að taka á leigu nú þegar 2ja—3ja herb. íbúð. Uppl. í síma 52145. Vélrita og þýði á íslenzku, ensku, frönsku, spænsku. Uppl. í síma 50487 milli kl. 6 og 8 eftir hádegi.
Frá Barðstrendinwafélaginu
c c
Skemmtifundurinn 3. feb. fellur niður. Fundur
málfundadeildar verður í Tjarnarbúð fimmtud. 8.
feb. kl. 20.30.
Stjórnm.
IJtsala — hljómplötur
Okkar árlega útsaia á hljómplötum hófst í dag.
Mikill afsláttur.
Hljóðfærahús Reykjavikur
Laugavegi 96.
Einbýlishús í Garðahreppi
Til sölu einbýlishús í smíðum.
130 ferm. ásamt 50 ferm. í kjallara.
Hagkvæmir greiðsluskilmálar.
Ship & Fasteígnír
AUSTURSTRÆTI 18 • SÍMl 21735 • EFTIR LOKUN 36329
N auðimgar uppboð
sem auglýst var í 41., 42. og 43 tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1966 á húseigninni nr. 39 við Tjarnargötu,
hér í borg, þingl. eign Gunnhildar Halldórsdóttur,
fer fram eftir kröfu Jóhanns Ragnarssonar hdl.,
Jóhannesar Lárussonar hrl., Stefáns Thorarensen
h.f., Hákonar H. Kristjónssonar hdl., Sigurðar Sig-
urðssonar hrl., Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrenn-
is, veðdeildar Landsbankans, Magnúsar Fr. Árna-
sonar hrl., Búnaðarbanka íslands og Jóns N. Sig-
urðssonar hrl., á eigninni sjálfri, þriðjudaginn 6.
febrúar 1968, kl. 3 síðdegis.
Kr. Kristjánsson, settur uppboðshaidari.