Morgunblaðið - 04.02.1968, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1968
Landkynning, sem sómi er að
Ef til vill kann að þykja yfir-
máta, að stinga niður penna til
þess að skrifa um útgáfu daga-
tala, þar sem slíkur straumur af
dagatölum flöðir um hver áramót
inn í flest fyrirtæki í landinu,
að mörgum finnst nóg um og of
langt gengið í þeim efnum, því
í þessu sem öðru, kann að vera
vandratað meðalhófið. Sá, sem
þetta ritar, vill þó engan dóm
leggja á slíkt, heldur minnast á
eitt dagatal, dagatal Eimskipafé-
lagsins, sem honum finnst bera
af öðrum, enda þótt mörg daga-
töl séu vel gerð og vel til þeirra
vandað, bæði að því er viðvíkur
myndavali og frágangi.
Um áramótin barzt mér daga-
tal Eimskipafélagsins fyrir árið
1968. Mér hefur myndaval og
frágangur á dagatali Eimskipafé
lagsins jafnan þótt takast vel, en
þó mun óhætt að fullyrða, að
ekki hafi áður tekizt betur en
nú, enda eru myndirnar teknar
af nafnkunnum ljósmyndurum.
Það er annars orðið langt síð-
an fyrsta dagatal Eimskipafélags
ins kom út, líklega meira en 40
ár, og væri fróðlegt og skemmti-
legt að geta rakið þróunarferil
þess frá því fyrst það kom út,
en félagið hefur jafnan verið
brautryðjandi í útgáfu dagatals
hér á landi. Því miður á ég
ekki dagatöl félagsins frá fyrstu
árunum, en á seinni árum hefi
ég kappkostað að halda þeim
saman og eignast á þann hátt
gótt og fagurt myndaval ís-
lenzkra landslagsmynda. Ég veit
einnig til þess, að víða erlend-
is eru dagatöl Eimskipafélagsins
tekin fram yfir önnur dagatöl og
komið hefur fyrir að myndir úr
þeim hafa verið notaðar erlend-
is til þess að kynna ísland.
Síðastliðin tvö ár hefur félagið
sent hluthöfum sínum daga-
talið, en þeir eru nú vart færri
en 10 þúsund hér á landi. Þau
eru því ófá íslenzku heimilin víðs
vegar um landið, þar sem þil
eru prýdd með fallegum mynd-
um dagatalsins.
Árið 1965 hugðist Eimskipafé-
lagið leggja niður útgáfu daga-
talsins og kom dagatal ekki út
það árið. Þetta hefur líklega
verið gert vegna þess hve kostn-
aðarsöm svo vönduð dagatals-
útgáfa er. — Olli þessi ákvörð-
un miklum vonbrigðum og er
vonandi að Eimskipafélagið láti
útgáfuna ekki falla niður öðru
sinni, þar sem dagatalið er auk
þess að vera einhver bezta land-
kynning, sem völ er á, ómissandi
okkur hér heima á fslandi, sem
fallegum myndum unna. — Hafi
Eimskipafélagið þökk fyrir þetta
ágæta framlag sitt til landkynn-
ingar bæði heima og erlendis.
Verzlunarmaður.
Mikill lausasnjór á Suðurlandi
og dýrt að opna veginn norður
Gúmmíbáturinn frá Kingston Peridot. Myndin er tekin á hafn-
arbakkanum í Reykjavík.
Enn leitað fyrir norðan
L
MIKILL snjór er nú á vegum
um al'lt land. í Ámessýslu, Rang
árvallasýslu og Vesturhluta
SkaftafeLssýlu er mikill lausa-
snjór, og hreyfi vind verðux þar
geysilegur skafbylur. í gær var
enn fært þar víðast hvar fyrir
vöruíbíla og jeppa, en mjög var-
huigavert ð reyna að fara um á
Htlum bílum, samfcvæimt upplýs-
ingum Vegamálaskrifstofunnar.
Mýrdalssandur var í gær orðinn
ákaflega þungfær.
Á Þrengslavegi var í gær-
morgun snjólþæfingur, sem var
hreinsaður af. En skafrenningur
var mikill í gær. Og Fjallið er
alveg lokað og hefur verið ’engi.
Aftur á móti var góð færð um
Suðurnes og fyrir Hvalfjörð upp
í Borgarnes og fyrir Hvalfjörð
upp í Borgames.
Fjallvegir á Snæfellsnesi, Fróð
árbeiði og Kerlingaekarð, voru
opnaðir á föstudag og sennilega
enn færir stórum bílum í gær.
Holtavörðulheiðin var opnuð á
föstudagsmorgun og var fær
stórum bílum í gær. Er þar
orðið geysilegt fannfergi og var
áfcaflega kostnaðarsamt að opna
75 ára í dag:
Alfons Gíslason
frá Hnífsdal
ALFONS Gíslason frá Hnífsdal
é í dag 75 ára afmæli. Hann
flutti hingað til Reykjavíkur
árið 1960, og hefur átt sér heim-
ili síðan.
í heimahögum sínum í Hnífs-
dal rak Alfons verzlun og baka-
rí í fjölda ára. Jafnframt gegndi
hann mörgum opinberum störf-
um í þágu byggðarlagsins. Hann
var hreppstjóri Eyrarhrepps í
30 ár og átti sæti í hreppsnefnd
um árabil. Öll störf sín vann
Alfons af einstakri reglusemi og
árvekni.
Alfons Gíslason er frábærlega
vandaður og gegn maður. Hann
er hið mesta prúðmenni, ágæt-
lega starfhæfur, greindur vel,
greðvikinn og elskulegur í öllu
viðmóti. Þess vegna nýtur hann
trausts og vinsælda meðal allra
er kynnast honum.
Alfons er kvæntur Helgu Sig-
urða.rdóttur, ágætri og góðri
konu. Hafa þau átt fjögur börn.
Eruð þrjú þeirra á lífi og hið
mannvænlegasta fólk. Elzt
þeirra er Ólafía, sem g'ft er
Jóakim Hjartarsyni, skipstjóra í
Hnífsdal, Helga, gift Halldóri
Þórarinssyni kennara í Reykja-
vík og Þorvarður, hagfræðing-
ur, sem kvæntur er þýzkri konu,
Almut Andersen.
Heimili frú Heigu og Alfons
Gíslasonar í Hnífsdal var eitt
af öndveg sheimilunum í Hnífs-
dal.
Ég óska þessum gamla vini
innilega til hamingju á þessum
tímamótum í lífi hans um leið
og ég þakka honum og fólki
hans vináttu og tryggð á liðnum
tíma.
SBj
Alfons Gíslason dvelst utan-
bæjar í dag.
Nómskeið í linnsku 1 Háskólnnum
FINNSKI sendikennarinn við Há
skóla íslands, hum. kand. Juha
K. Peura, byrjar aftur kennslu
í finnsku fyrir almenning míð-
vikudag 7. febr. kl. 8.15 e. h. í
stofu IV, 2 hæð.
á föstudaginn. Hefur Vegagerðin
tekið þann kost að moka aðeins
einu sinni í viku, þ.e. á þriðju-
dögum, meðan þetta helzt.
Á fösitudag þurfti að moka
bæði Langadal og Vatnsskarð og
var sá vegur fær á laugardag.
Einnig var Öxnadalsheiði opnuð.
Á fimmtudag var opnaður veg
urinn frá Sauðárkróki til Siglu-
fjarðar og var fær a.m.k. á
föstudag. í Eyjafirði var í gær
fært til Dalvíkur. En óvíst var
um veginn til Húsavikur, senni-
lega var hann ófær orðinn. Þang-
að verður rutt á mánudag.
ÞÓ skipulagðri leit að brezku
togurunum sé hætt, svlpast land
róðrabátar við Skjálfandaflóa
og Axarfjörð um á þessum slóð-
um og menn rnunu einnig ganga
fjörur og fyigjast með ef eitt-
hvað kynni að koma fram.
Á föstudag voru gengnar fjörur
i botni Skjálfandaflóa, og hann
vestanverðan og leitaðar víkur
þair. En ekkert fannst. Skipbrots
mannaskýli eru í Naustavík og
í Þorgeirsfirði, þar sem er neyð-
artalstöð, og í eyjarnar, en það
bar engan árangur.
Gúmmíbáturinn af togaranum
Ungur tannlæknir til
Stykkishólms?
Hreppur og sýsla greiða
fyrir honum
HREPPSFÉLAGIÐ og embætt-
ismenn Snæfellssýslu eru að
vinn að því að fá tannlækni
í byggðarlagið, en enginn tann-
iækni'r hefur verið á öllu Snæ-
fellsnesi.
Mbl. fékk þær upplýsingar
hjá sýslumanni í gær, að haft
hefði verið samband við ungan
mann, sem lýkur tannlækna-
prófi í vor. Kom þessi ungi mað
ur til Stykkishólms í flugvél frá
B rni Pálssyni á föstudag, til að
líta á staðinn, ræða við sýslu-
mann, sveitarstjóra, oddvita,
héraðslækni og fleíri. Er hug-
myndin að aðstoða þennan unga
mann á einhvern hátt við að
koma sér fyrir þarna, bæði með
húsnæði og útbúnað.
Sagði sýslumaður að piltur-
inn virtist gjarnan vilja koma
til Stykkishólmis, ef aðstæðuT
leyfa og hægt verði að greiða
fyrár honum. Eitt sé víst, að verk
efni verði næg fyrir hann. Sé
fullur vilji á því á staðnum að
greiða fyrir þessu máli.
Flugvélin frá Birni Pálssyni
varð veðurteppt á Stykkishólmi
og beið þar enn veðurs í gær.
Aðoliundur Fulltrúurdðsins
í Huinurfirði
AÐALFUNDUR Fulltrúaráðs
Sjálfstæðisflokksins í Hafnar-
firði var haldinn 22. janúar sl.
Formaður Fulltrúaráðsins var
kjörinn Guðmundur Guðmunds-
son, sparisjóðsstjóri, en aðrir í
stjórn. Páll V. Daníelsson, hag-
sýslustjóri, Sveinn Guðbjarts-
son, útvarpsvirki. frú Sigurveig
Guðmundsdóttir og Árni Grétar
Finnsson, hrl.
sem rak fyrir norðan, er nú
kom nn til Slysavarnafélagsins.
Verðhæbkunir
HINN 24. janúar sl. hækkaði gas
olia úr 2.18 kr. í 2.37 hver lítri-
frá leiðslu. Að sögn verðlags-
stjóra stafar þessi hækkun af
hækkuðu innkaupsverði.
Þá hækkaði taxti leigubifreiða
stjóra um 8% í fyrradag. Er
startgjaldið nú 36 krónur á dag-
inn í stað 34, en á kvöldin er það
43 í stað 41 króna.
í fyrradag hækkaði einnig
verðið á rúgbrauði og normal-
brauði. Rúgbrauðið hækkaði úr
13.20 kr. í 15.30 kr. en normal-
brauðið úr 14.20 kr. í 16.30.
\ -----------------
Fræðslustjófi
rúðinn í
Hnfnuriirði
Á FUNDI bæjarstjórnar Hafn-
arfjarðar sl. þriðjudag var sam-
þykkt að ráða Helga Jónasson,,
fræðslustjóra Hafnarfjarðar. —
Mun hann sem fræðslustjóri
verða framkvæmdastjóri fræðslu
ráðs Hafnarfjarðar og einnig
hafa yfirumsjón með æskulýðs-
og íþróttastarfi í bænum.
Hinn nýi fræðslustjóri Hafnar-
fjarðar lauk prófi frá Kennara-
skólanum 1955 og var skólastjóri
á Svalbarðsströnd 1956—1957.
Frá 1957 hefur hann verið kenn-
ari við Lækjarskólann í Hafnar-
firði og yfirkennari frá 1962.
Hann hefur unnið mikið að æsku
lýðsmálum í Hafnarfirði og verið
barnaverndarfulltrúi í Hafnar-
firði í fjögur ár.