Morgunblaðið - 04.02.1968, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 04.02.1968, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1968 3 Sr. Jón Auðuns, dómprófastur: Bæn og töfrar Ég minntist á það á sunnudag inn var, að mörgum yrðu óljós mörk milli töfra og trúar, og að inn í bænalíf nútímans teygðu sig angar gamiallar töfratrúar. Lítum örlítið nánar á þetta mál í dag. Hún er furðu lífseig sú forna trú, að bænin geti orðið tæki til þess að fá Guð til að grípa inn í lögmál efnisheimsins og upphefja þau. Elftir að hafa beð ið þannig og árangurslaust fyll- ast menn vontorigðum, gremju og kulda. f sjúkdómsneyð er Guð ákall- aður til að knýja fram bata. Hann var ekki beðinn fyrr, ekki beðinn í byrjun sjúkdóms eða fyrr um vegsömu til heilbrigðis og viljastyrk til að vinna gegn sjúkdóminum. ótoænheyrður snýr maðurinn sér þá vonsvik- inn burt, vonsvikinn og sár. Auðvitað þráir sjúkur bata, og vinur þráir bata fyrir sjúk- an vin.. En þótt bsen fyrir sjúk- um, sjálfum séð eða öðrum, sé kristnum manni sjálfsögð, þá er honurn sjálfsagðast, að biðja hinum sjúka, sjálfum sér eða öðrum, sálarrósemi og styrks til að standast hið óhjákvæmilega. „Þó ekki sem ég vi-1, heldur sem þú vilt“, sagði Kristur í Get semane. Þegar þjáningin stóra, var að nálgast. Hann kveið and artaksstund kvalaferlinum og krossinum. En hann lagði á Guðs vald það, sem framundan var, og þessvegna hlaut hann af bæn sinni þá yfirmannlegu, há- leitu rósemi, að enginn hefir bor ið þjáninguna eins og hann. í prestsstarfi mínu hef ég oft orðið þess var, að trú og töfr- ar runnu saman í hugarheiml manna, svo að bitur broddur varð í sálinni eftir vonbrigðin, þegar bænheyrsla fékkst ekki á þann hátt, sem óskað var. Síðustu vikur hafa slysfarir orðið hér og önnur hörmuleg tíðindi gerzt. Hversvegna afstýrir Guð ekki þessu spyrja menn? Hví leyfir almættið, að lítið barn verði fyr ir bifreið, skip týnist í stórsjó og vetrarhörku? Hversvegna sendir Guð ekki hjálp örmagna mannssál, sem getur ekki borið lífsiharminn lengur og villist ..vegmóður, einn“ frá fjölsfcyldu og vinum? Eins og úthaf með æðandi öld um er það mannlíf, sem Guð hefir gert. En hann fyllir öryggi og friði mannssál, sem ber gæfu til að leita hans og finna. „Þótt ég stigi upp í himininn, þá ert þú þar Þótt ég gjöri undirheima að hvílu 'minni, sjá, þú ert þar. — Við hið yzta haf mundi hönd þin leiða mig“ sagði sjáandinn á löngu liðinni öld. Þessi er sannfæring kristins manns, en ekki trú á að töfr- ar stilli storm og sjó, þar verndi Guð suma, en láti aðra vorkenn ast. Fyrir kemur að einn bjarg- ast úr lífslháska en félagar hans farast. Þá er Guð lofaður fyrir máttarverkið á þessum eina, — og það er eðlilegt þeim, sem heimta ástvininn úr helju. En vildi hann ekki sýna mátt sinn og bjarga öðrum? Verður hin- um að spyrja, sem heimtu ekki ástvin sinn heim. Ein fjölskylda fagnandi, — og víst hafði hún ástæðu til þess. En vildi Guð láta hinar fjölskyldurnar gráta? Nei. nei, ekiki svo! En leifar ævafornra hugmynda um Guð loða við triúarlif okkar enn í dag. Og af misskilinni hollustu ' við hið gamla er talið syndsam- ; legt, hásikalegt að hrófia við nokkru og spyrja. Sumir munu telja það jaðra við háskalegt trúleysi, að taka ; ekki bókstaflega það, að Jesús hafi hastað á vinda-na og vatn- ið og þá hafi allt dottið í dúna- l'ogn Er sú trú samrýmanleg þeirri guðslhugmynd, sem Fjallræðan flytur? Þeirri spurn verður að svara. Hún verður ekki afgreidd með gífuryrðum með „niðurrifs mann“, „vantrúarmenn", og ekiki með trúfræðilegum slagorð um og hroka. Hitt er háskasamlegt, að að banna mönnum í nafni trú- arinnar að hugsa og spyrja. Enda fara menn ekki að slílku, þegar þeim er varpað í eld Ufs- reynslunnar. Á slíkri trú væri valt að byggja. Enda hefir hún þrásinnis hrunið, eða núizt í beiskustu efasemdir og guðileysi, þegar verulega á hana reyndi, og maðurinn hafði mesta þörf fyrir blessun heilbrigðrar trú- ar. Vetur í sveit SNÝTUR föðurins berast eins og angan af nýrri tilíhlökkun inn í svefninn, og fótatak hans inn til stóra bróður í næsta herbergi er frekari staðfesting þess, að dagur sé runninn. Hl-æjandi bjartur verður nann um það er lýkur, kannski lífca á litinn eins og kolatoingur. Nú staulast pabtoi í þung- lamalegri morgunskímunni fram í eldlhús, þar sem hann tendrar ljós og kveikir undir hafragrautarpottinum. Marrið í eldlhúöhurðinni blandast sveín rofunum, og hljómfaiíLið af rödd um þeirra í eldlhúsinu gjörir vakandi dagvitund væra og hljóðláta og næstum því óað- skiljanlega svefninum. Litla systir finnur inn í svefn inn, að hver þögn á sér merk- ingu í framvindu morgunsins og hver raddiblær er áfangi á vit nýju dagstarfi Nú spyr hann, hvort hann vilji ekki meiri graut. Nú minnir hann á nestið og vettlingana. Það er lengd setninganna og fallandi raddlhreimsins, sem tengir kvöldsvæfa hugsun litlu systúr við morgunattourði bæjarins. Og draumurinn við mjúkan koddann tekur á sig ýmiss kon- ar gervi af kviku eldihússins1. Loksins hefir strákurinn drattazt af stað í skólann, og eftir samkomulagi m-illi pabba og li-tlu systur á hann nú að koma og gjöra henni viðvart. Allt af er h-ann jafnhiss-a á, að hún skuli spretta upp um leið og hann þokast inn úr my-rkri gættinni. Hann hefir heldur aldrei verið fræddur á. að það eru þessar in-dælu morgunsnýt- ur hans, sem tengja svefn- drukkinn huga litlu systur við nýjan dag. Kannski er það eina leyndarmálið, sem hún á sér og hefir ald-rei trúað hon- um fyrir. Hvu-tti gjamma-r úti fyri-r ein og hann er vanur, þegar hon- uim hefr verið hleypt út á morgnana, Og á meðan borðar ltla systir hafragrautinn sinn úr rósóttri skál. Það er ekki af því, að litla sy-stir geti ekki borðað grautinn sinn af diski eins og annað fólk. Þessi skál er kostulegri og dýrmæt- ari en önnur matarílát á bæn- um og litla systir var gefin h.n í tannfé. Grautarspónminn í h-enni ber líka enn þá í sér keim ævintýranna, sem pabbi og mamma sögðu henni, meðan þau mötuðu hana, þegar hún var lftil. 'Paibbi og litla systir eru samsærismenn. Þau læð-ast um á tánum, meðan litla systir finnur hundadallinn og setur í hann graut og skófir m-eð dá- litlu útáláti, en palbbi hi'tar undir katlin-um og l-a-gar kaffi. Þau vita bæði, að ekkert gleð- ur mömmu meir á morgnana en vakna við rjúkandi kaffi, sem henni er fært í rúmið. Ekki svo að skilja, að hún h-efir eklki al-lt af látið þau færa sér í rúmið. en þau ætla að gjöra það í vetur. Og þau eru ekki að gjöra þ-etta fyrir mömmu eina, þó að hún ei-gi það meira en s-kilið. Bráðum verður li-tla systir stóra systir á bænum, en það tölum við ekki um. í dag ætlar litla systir ekki út í fjós með pabba. Veðrið er svo leiðinlegt, úrhellisrigning og rok, en litla systir minnir pa-bba á að gefa honum Brandi, sem gegnir veigamiklu hiut- verki við búskapi-nn, eins og allir gjöra raunar á þessum b-æ. Og patobi lofa-r að gefa honum hreyturna-r úr Búibót, því að litl-a systir eignar sér hana. Að-a-lástæða þess, að litla syst ir fer ekki í fjósið n-úna, er satt að s-egja sú, að hún má efcki vera að því. Hún þarf að læra heima- og það alveg svika- laust, þó að hún sé ekki nema aðra vikuna í skólanum. Það er líka eins gott að h-erða sig, því að litl-a systir ætlar sér að reyna að skáka stóra bróð- ur og fá ei-n-s h-átt eða hærra í lestri en hann. Iss, hann er svoddan letingi. Og um fengi- tímann vill hann helzt ekki ta-la um annað en hrútana. Þeir-, sem gætu heinlega drepið hann. Það hefði að minnsta kosti ekki verið gam-an að verða mi-lli þeirra um daginn, þegar þeir lentu sa-m-an Hall- inskíði og Hösmagi. Þeir voru báðir orðnir allblóðu-gir og linntu efcki látum fyrr en þeir kræktust sam-an á honunum, svo að þeir gá-tu ekki losað sig aftu-r af eigin rammleik, Pabbi sagði líka, að þeir 'hefðu verið lúpulegir, þegar hann kom að þeim svona sam- ankræiktum. Hann ætlaði jafn- vel ekki að geta losað þá. Stóri bróðir komst alluir á loft, þegar pabbi sagði honum frá þessu-, og þarna gat hann verið að tönnlast á þvi lengi á eftir, að sér þætti verst að hafa ekki séð þá stangast. Svo þarf líka að hjólpa mömmu við inniverkin. Það þarf að sópa o.g hlaupa með ruslið og h-ell-a úr geispu-nni út í tunnu. Það þa-rf að sækja kartöflur niður í kjall-ara, og það þarf að búa um rúmin. Og svo þarf að horfa á mömmu, hverni-g hún hressist eftir katffi sopann. Hún teygir úr sér í rúminu og geispar makinda- lega. Það er aldrei eins gott að vera ein með mömmu og þegar henni lið-ur svona vel, eins og til að m-ynda eftir morg u-nsopann sinn. Og mamma segist vera hepp in að eiga svona stóra og dug- lega stúlku, sem hjálpar til í bænum. Hún segist ekki vita, hvernig hún færi að á morgn- ana, ef h-ún hefði ekki litlu systuir til að taka til og hjálpa- sé við morgunverkin. Og mamma segi-r, að sér 1-íð-i miklu betur á morgnanna, síðan hún hætti að reykja. Fyrir bragð- ið getur hún líka keypt hnakk beizli, sem þær ætla að gefa pabba í afmælisgjöf í vor. Og litlu systur fellur vel að mega taka þátt í mor-gunihamingju mömmu. og hún er allt af að sannfærast betur og betur um, hverjum hún vilji helzt líkjast, þegar hún veður stór. Værð morgunsin-s líðu-r fram áreynslulaust, eins og reykur, s-em lykkjast upp um stromp- inn í logni. Og inn í þessari hátíðlegu kyrrð birtist mömmu svipur stóra bróður, sem nú er í skólanum. Hvernig skyldi hon um nú takast að skila kvæð- inu sínu blessuðu-m? Eiginlega sofnuðu þau bæði út frá því í gærkvöldi: Þögull þorri heyrir/ þetta harmakvein,/ en gefu-r grið ei nein,/ glíkuir hörðum stein. Það var öldungiis sama-, hve oft þau höfðu yfir þessar hend- ingar, a-ldrei bar neinn skugga á þetta þolinmóða og spyrjandi bros, er hvorki skilst við hann í vöiku né svefni. En líka-st til mundi hann al-d-rei blómgast við iðju sveitarinnar og verða hugfanginn af a-ngan moldar ein-s og litla systiir. Einhvern veginn finnst henni al-lt af hann vera m-eð skipti- lykil í h-endinni, einis og h-ann pabbi hans var, þega-r hún sá hann fyrst. Bjarni Sigurðsson. «$-—--------------------------- Góð rækjuveiði í djúpinu fsafirði, 2. febrú-ar. UNDANFARNA tvo daga hefur verið ágætis sjóveður að undan- gengnum miklum umhleyping- um, en þá bregður svo við að afli er sáratregur og hafa bát- arnir ekki fengið nema um ©g rétt yfir tvær iestir í róðri. Hinsvegar hafa rækjuveiðar gengið mjög vel í ísatfjaTðar- djúpi, frá því að þær hótfust á nýjan lei'k fyrir tveim vilkum. H-afa sumir bátanna fengið leyfðan vikuskamm-t, þrjár lest- ir, á þrem og fjórurn dögum. Stöku bátar hafa fengi-ð fró 1200 og allt upp í 1500 kg. í róðri og er rækjan mjög stór og falleg. Atihygli vekur, að nær ekkert veiðist atf rækju í inndjúpimu, sem jafnan hafa þó reynzt beztu miðin, og hefur rækjan á þessari vertíð haldið sig miklu utar en venja hetfur verið. — H. T. LEIPZIG Sýningartímar: 3. — 12. 3. 1968 Sýning á iðnaðar- og neyzluvörum 1. — 8. 9. 1968 Neyzluvörur Á kaupstefnunni í Leipzig sem er elzta og umfangsmesta vörusýning í heimi, getið þér fylgzt með þróun f ramleiðslunnar í yðar atvinnugrein. — Þar mætast iðnrekendur og kau psýslumenn, vísindamenn og iðn- fræðingar, hvaðanæva úr heimi. — í Leipzig sýna framleiðendur frá 70 löndum í austri og vestri vörur sín ar í 60 skýrt aðgreindum vöruflokk- um. Leipzig styður þannig að fram þróun heimsviðskipta og tækniþró- unar. Heimsækið Leipzig miðstöð alþjóðlegra viðskipta. Kaupstefnuskírteini sem jafnframt gilda sem vegabréfsáritun fáið þér hjá umboðsmönnum: KAUPSTEFN UNNI — REYKJAVÍK Pósthús- stræti 13, Símar: 10509 og 24397 eða við landamæri DDR. KAUPSTEFNAN í LEIPZIG Þýzka alþýðulýðveldið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.