Morgunblaðið - 04.02.1968, Síða 32

Morgunblaðið - 04.02.1968, Síða 32
ASKUR Sudurlandsbraut 14 — Sími 38550 SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1968 T TVÖFALT . EINANGRUNARCLER ?Oára reynsla hérlendis EGGERT KRISTJAN Féll ofan í lest í skipi í Grundarfirði Grundarfirði, 2. febrúar —. J ÖKULFELLIÐ liggur við bryggju í Grundarfirði og lest- ar frosinn fisk frá verstöðvunum á Snæfellsnesi. Snemma í morg- un vildi það óhapp til, að einn skiirverja var að fara upp úr lest skipsins og missti handfestu og datt aftuT yfir sig niður í lestina. Þetta var all hátt fall og mun pilturinn, sem er 17 ára ,gamalli, hafa meiðzt nokkuð. Hann var fluttur í land og lagð- ur í sjúkrarúm. Síðan kom lækn 11 í londhelgi VARÐSKIPIÐ, sem var að störf um í Faxaflóa tók 11 togbáta að ólöglegum veiðum á fimmtudag og föstudag. Voru teknir fimm í landhelgi í Miðnessjó á fimmtu dag og 6 á föstudag. Af þess- um 6 voru 4 þeir sömu, sem staðnir höfðu verið að ólögleg- um veiðum daginn áður. Flest- ir bátanna voru úr Keflavík, og voru mál þeirra tekin fyrir á föstudag. Einn eða tveir voru úr Reykjavík. Storfsmenn FÍ í Reykjnvíh 330 UM SÍÐUSTU áramót voru starfsmenn Flugfélags fslands í Reykjavík samtals 330, þar af 232 karlar, en 98 konur. Stærstu starfshóparnir voru skrifstofu- og afgreiðslufólk 109, flugvirkjar 45, flugmenn 41, flugfreyjur 29, hlaðmenn 19, flugvirkjanemar 14. Fjölgun frá sama tíma í fyrra er 10 manns. IVBik.il olíubrák FRÉTTARITARI Mbl. á Kópa- skeri símaði síðdegis í gær að þar bærist nú að landd geysimikil olíubrák. Væru menn alvarlega hræddir um þann fugl, sem slapp við að fara í olRma um daginn. irinn frá Stykkishólmi og tók hinn slasaða með sér á sjúkra- húsið þar. Á þes.su stigi málsins verður ekki vitað hversu alvar- leg meiðsli mannsins eru, en þau eru trúlega nokkur, þvi tals vert ber á óráðshjali hjá hon- um. — Fréttaritari. Fréttaritari blaðsims á Stykkis hólmi hafði samband við sjúkra- húsið þar um hádegið í gær. Fékk hann þær upplýsingar að meiðsli mannsins mundu ekki vera alvarleg. Hefði maðurinn fengið höfuðhögg, en um engin beinbrot væri að ræða. Lýst eftir viinum RANNSÓKNARLÖGREGLAN óskar að ná tali af tveimur mönnum sem voru staddir í Tryggvagötu á móts við Eim- skipafélag fslands um klukkan fjögur á föstudag. Þar var ekið á mannlausan bíl, en mennirnir tveir voru við bíl ekki langt frá, þar sem ákeyrslan átti sér stað. Gengið á land í Lágey MIKILL áhugi var kringum slysstaðinn, þar sem Kingston Ríkissjúður greiði 5,1 millj. króna fyrir kaupin á Viðey — yfirmatsnefnd lœkkaði matið úr 9,75 milljónum króna Peridot mun hafa farizt, á að I sem heitir Lágey. Á henni er leita á nyrðri eyju Mánareyja, j skipsbrotsmannaskýli, en mjög. i erfitt uppgöngu á eyna, þar sem j brim le kuir alltaf um hana. Það var því lítill mögu'leiki á að j komast í eyna í þeim sjó og því |. veðri sem var þarna. Frosk- menn varðskipsins, 1. og 2. stýri maður, létu þó ekki aftra sér og réðust tii uppgöngu í eyjuna í , froskabúningi. Áttu þeir erfitt I uppgöngu um stiga ,sem liggur j upp á eyna, sökum snjóhengju, sem var á brún eyjarinnar og YFIRMAT þriggja dómkvaddra manna á Viðeyjarstofu og 11,8 hekturum lands í Viðey, sem rikissjóður kaupir, var lagt fram í gær. Er matsverðið ákveðið 5,1 millj. króna og er þetta end- anlegt mat. en í undirmati voru þessar eignir metnar á 9,75 millj. króna. Yfirmatið framkvæmdu Einar Arnalds, hæstaréttardóm- arþ Kristján Karlsson, erindreki og Aðalsteinn Guðjohnsen, verk- manni Gullbringu og Kjósar- sýslu. í fyrrvetur var undirritaður samningur milli ríkissjóðs og eig anda Viðeyjar, Stephans Stephen sen kaupm., um kaup ríkissjóðs í Viðeyjarstofu og 11,8 hektur- um lands í Viðey. í samningnum varð kveðið á, að söluverð skyldi ákveðið með j matsgerð þriggja manna og í ! samningnum var einnig heim- j að skjóta niðurstöðu undirmats- nefndar til endanlegs yfirmats. í undirmatsnefnd voru: Guð- lau.gur Þorvaldsson, prófessor, til nefndur af kaupanda, Páll A. Pálsson hrl. tilnefndur af selj- anda og samkomulag varð um Hörð Þórðarson, sparisjóðssitjóra, sem oddamann. Fram’hald á bls. 31 j lá yfir efri enda stigans, svo að I þeir urðu að grafa sig í gegn. I Þar sem nokkrir hrafnar höfðu j tekið sér bólfestu á þaki skýlis- j ins, bjuggust sumir við að ef til vill mundi finnast eitthvað í j skipbotsmannaskýlinu, en það reyndist autt og tómt. Enginn hafði verlð þar. Myndin sýnir annan frosk- manninn ganga á land í Lágey. Þótti för þeirra í eyna mikið af- rek. Froskmennirnir voru þeir Þorvaldur Axeisson og Kristinn Árnason. fræðingur, dómkvaddir af sýslu- ild til handa kaupandanum um Gott skíðafæri Fjölskyldur fara í sleða- og skíðaferðir Þessi mynd var tekin um síðustu helgi niður yfir skíðabrekk na við Sk.ðaskálann í Hvera- dólum, þar sem skíðafólk fer í svigi niður og bílafjöldi er við skálann. MIKILL snjór er kominn í skíða löndin kringum Reykjavík og munu vafalaust margiir nota tækifærið til að bregða sér á skíði um hélgina. Mbl. hafði í gær samband við Óla Ólason í Skíðaskáianum í Hveradölum, sem sagði að þar væri skíðafæri með aibezta móti, hvort sem er til að renna sér í brekkum eða fara í gönguferðir. Snjór er mik ill og svo jafnfailinn að hann þekur vel hraunið. í gær var blankalogn í Hveradölum og gott veður, þó ekki sæi til sól- ar. Óli sagði að nú að undan- förnu hefði verið bezta skíða- færi, sem hann hefði séð síðan hann kom i Skíðaskálann fyrjr 3 árum. Snjór.nn væri orðinn svo þéttur cg mikill, því marg- sinnis hefði rignt og fryst og síð- an væri lausasnjór ofan á. Góðviðrisdaga að undanförnu hefur því verið margt um mann inn í skíðabrekkunum í Hvera- dölum. Heilar fjölskyldur hafa kom'ð saman, og á virkum dög- um konur með born sín. Og nú eru skólarnir að byrja að fara i skíðaferðir. Ákaflega er mikið um að fólk hafi með sér sleða, einkum plastþoturnar svoköll- uðu. Og renna sér á þeim börn og fullorðnir. Sjást feitir feður skemmta sér vel á sleðum barn- anna. Búið var að panta upp öll her bergi í Skíðaskálanum yfir helg ina, og farið að taka pantanir um svefnpláss í svefnpokum á dýnu.n á gólfum. Skíðalyftan er í gangi og brekkurnar lýstar upp eftir að fer að dimma. Fært hef- ur venð upp í skíðaskála í smá bílum hingað til, a.m.k. meðan ekki hvessir. En ferðir eru um helgar frá Umferðarmiðstöðinni, k., 10 og 1 á sunnudögum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.