Morgunblaðið - 06.02.1968, Blaðsíða 10
10
MORGUN'BLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1968
Harmleikur á hafinu
Þessi mynd er af togaranum St. Achilleus, systurskipi St. Rom
anus, en hann var af sömu gerð.
KVÍÐI, ótti og harmur hafa
orðið hlutskipti aðstand-
enda og vina 60 enskra sjó-
manna, sem farizt hafa í
fjórum skipstöpum á
skömmu tímabili. Af þess-
um mönnum fórust 59
manns með togurunum St.
Romanus, Kingston Peridot
og Ross Cleveland frá Hull
og 1 með Notts County frá
Grimsby. Frá afdrifum
tveggja síðarnefndu togar-
anna og áhafna þeirra er
skýrt frá annars staðar hér
í blaðinu í dag, en hér á
eftir verður rakin harma-
saga togaranna St. Roman-
us og Kingston Paridots, svo
og þau viðbrögð, sem hvarf
þeirra og áhafna þeirra hef-
ur vakið. Atburðir þessir
hafa að sjálfsögðu vakið
feiknarlega athygli í Bret-
landi og þá ekki hvað sízt
að sjálfsögðu í heimaborg
togaranna sjálfra, Hull. —
Konur og mæður sjómanna
hafa staðið fyrir fundarhöld
um og beitt sér fyrir því, að
þessir atburðir yrðu teknir
fyrir í brezka þinginu og af
ríkisstjórn Bretlands. Nú,
þegar jafn válegir at-
burðir hafa orðið að "nýju,
má fullvíst telja, að þeir
muni vekja enn meiri at-
hygli og að á opinberum
vettvangi í Bretlandi muni
fara fram miklar umræður
um, því svo voveiflegir at-
burðir hafi gerzt og hvort
ekki hafi mátt koma í veg
fyrir þá.
Hvarf St. Romanus.
St. Romanus fór frá Hull
hinn 10. jan. sl. og hélt til
veiða á fiskimiðin við Lofoten
í Noregi. Togarinn var 600 tonn
að stærð og í eigu útgerðar-
félagsins Thos. Hamling & Co.
Ltd. Áhöfn hans var 20 manns.
Eftir að samband við togarann
rofnaði mjög fljótlega eftir
brottför hans, var gripið til
allra mögulegra ráðstafanna
til þess að komast að raun um,
hvar togarinn væri staddur en
án árangurs.
Um tíma var haldið, að annar
togari, St. Mathew hefði haft
samband við St. Romanus fyrir
utan Lofoten 13. janúar, en
síðar kom í ljós, að það hafði
verið St. Andronieus, systur-
skip St. Romanus, sem er af
svipaðri gerð og síðastnefndi
togarinn.
Síðast mun hafa heyrzt í
St. Romanus 11. jan., en þá
heyrði mb. Víkingur III frá
ísafirði neyðarkall frá togar-
anum, en þar sem hann var
mörg hundruð mílur frá fs
landi og nær öðrum löndum og
auk þess annar brezkur togari
að hafa samband við hann,
töldu skipsmenn á Víkingi, að
þeir gætu ekkert aðhafzt, eins
og fram kemur í viðtali frétta-
ritara Morgunbl. 30. janúar sl.
við Ásgeir Sölvason skip-
stjóra á Víkingi.
f brezka blaðinu „Fishing
News‘ eru höfð eftirfarandi um
mæli eftir Mr. A. Robinson,
aðalframkvæmdastjóra útgerð
arfyrirtækis togarans, þar sem
hann sagði, að sér hefði verið
skýrt frá því, að neyðarkall
frá togaranum hefði heyrzt af
islenzkum fiskibáti inni á firði
við ísland. Robinson sagði enn
fremur: — Togarinn var of
langt í burtu, til þess að þeir
gætu gert neitt.
Að áliti sérfræðinga var það
talið mjög ólíklegt, að kall
hefði getað heyrzt alla þessa
fjarlægu leið til íslands en
samt ekki heyrzt á stöðum á
strönd Noregs eða af skipum
á þessu svæði.
Skipstjóri St. Romanus hét
James Wheeldon frá Hull.
Þetta var fyrsta ferð hans með
þennan togara, en allan starfs-
feril sinn sem togaraskipstjóri
hafði hann starfað hjá þessu
sama fyrirtæki. Hann var
kvæntur og átti tvö börn.
Fyrirspum í brezka þinginu.
Á togaranum var enginn loft
Þetta er Lillian Bilocca, sem
haft hefur forystuna í aðgerð-
um kvenna í Hull fyrir kröfum
um aukið öryggi sjómanna.
skeytameður, en Wheeldon
hafði tekið loftskeytamanns-
próf. í neðri deild brezka þings
ins fyrra mánudag spurði Mc
Namara, þingmaður fyrir Hull
North Mr. J.P.W. Malla-
lieu aðstoðarsiglingarmálaráð
herra, hvað hann gæti sagt
varðandi hvarf togarans og leit
að honum.
Ráðherrann sagði, að leit úr
lofti og á sjó hefði hafizt 26.
janúar samkv. beiðni eigenda
O'g væri henni haldið álfram frá
Noregsströndum til íslands.
Hann bætti því við, að hann
fylgdist náið með framvindu
mála og biði þess, hver árang-
ur yrði að leitinni, áður en
hann ákvæði, til hvaða frek-
ari ráðstafanna skyldi gripið.
Fletcher—Cooke þingmaður
úr Darven—kjördæmi spurði
ráðherrann, hvort hann gerði
sér grein fyrir hinni ótrúlegu
töf, sem orðið hefði, síðan síð-
ast var haft samband við togar
ann 10. janúar og nú væru
næstum komin janúarlok?
Hann sagði enn fremur, að
orðrómur væri á kreiki um, að
enginn loftskeytamaður hefði
verið um borð.
í svari sínu við því, hve
langur tími hefði liðið, áður en
skýrt var frá hvarfi togarans,
sagði Mallieu, að hann viður-
kenndi, að það væri óvenju-
legt. En hann sagði, að það
væri talsvert algengt, að skip-
stjóri annaðist störf loftskeyta-
manns.
Hvarf Kingston Peridots
Togarinn Kingston Peridot
var 658 tonn að stærð og í
eigu útgerðarfyrirtækisins Hell
yer Bros. Á honum var 20
manna áhöfn. Kingston Peridot
sigldi áleiðis á fiskimið við ís-
land sama dag og St. Roman-
us hélt úr höfn í Hull eða 10.
janúar sl. Síðast heyrðist til
Kingston Peridots kl. 10 að
morgni á föstudaginn var, er
skipið var statt fyrir vestan
Grímsey og hafði þá samband
við systurskip sitt, Kingston
Saridus. Síðan hefur ekkert til
Þessi mynd er af sjómannshjón
um í Hull. James Gregory, en
svo heitir maðurinn sagði: —
Þessir ungu skipstjórar taka á
sig mikla áhættu.
skipsins spurt og er það talið
af ásamt allri áhöfn þess, enda
búið að leita mjög mikið úr
lofti, á láði og legi á stóru
svæði kringum Brekann, þar
sem talið er, að togarinn hafi
farizt. Þess skal getið, að sér-
stakur loftskeytamaður var á
togaranum.
Áskorun til Wilsons forsætis-
ráðherra
Hvarf togaranna tveggja
vakti að vonum mikla athygli.
Hull hafði misst 40 sjómenn og
áttu því margir um sárt að
binda. Ekkjur sjómannanna
sendu Wilson forsætisráðherra
áskorun, sem greint var frá
hér í blaðinu sl. föstudag.
I þessari áskorun eru borin
fram almenn mótmæli og kraf-
izt algerrar endurskoðunar á
aðstæðum um borð í skipunum.
Því er mótmælt, að ráðnir séu
á skipin óreyndir menn, menn
sem ekki hafi sjóferðarbækur.
Þá er þess krafizt, að fullkom-
in skoðun og viðgerð fari fram
á togurunum til undirbún-
ings hverri veiðiferð. Þá var
þess enn fremur krafizt, að
sjómennirnir og skipstjórarnir
fái hækkuð laun í áhættusöm-
Framhal'd á bls. 21
Gsræ
| Of cliff-
ítkatmr
■ÍcSSK:
TFjSE*'"-'5
Onethousand
million pounds
worth of _
confidence.0
Kroadcast with Prof.Barnafd, 4^cl?iied 'j
S- - JIIIV MKTIOMHL
■sS^gii
= _ I Pi ■ l
Blöð í Bretlandi hafa skrifað mjög mikið um hvarf togaranna St.
Romanus og Kingston Peridots. Þetta er mynd af einni síðu úr
blaðinu The Times si. föstudag, en örin bendir á þriggja dálka
fyrirsögn: Rules broken, fishermen say (Regiur brotnar, segja
sjómenn).
Road dealhs |Srf
do»ii jgjin
i ir03 JKJ $ dttíáWfk
Trawlermen’s wives. to try ‘diplomacy’
ín Briéf___
£10,000 scheme to aid anglers . |
..■ ‘ - ...
Þessi síða er tekin úr sama blaði á iaugardag. Örin bendir á
fimm dálka fyrirsögn, þar sem sagt er frá aðgerðum eigin-
kvenna togarasjómanna.
Hið víðáttumikla svæði, þar sem Ieit fór fram að togaranum
St. Romanus, er merkt með punktalínu á kortið. Á meðan leitin
stóð yfir, var leitað á 2.800 mílna svæði á dag.