Morgunblaðið - 06.02.1968, Síða 17

Morgunblaðið - 06.02.1968, Síða 17
MORGUN'BLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1968 17 — „Versta íshafsveður í manna minniHn" — se-pr' Framihald af bls. 1. Sá togarann hverfa Um 20 brezkir togarar höfðu leitað vars í veðrinu í ísafjarðar djiúpi. Kl. 23.40 hafði Kingston Andalusite samband við Ross Cleveland H 61, sem bað um að fylgst væri rneð sér, þar sem um að skipið kynni að kantra á togurunum. Nú missti hún bróð ur sinn, Philip Gay, sem var skipstjóri á Ross Cleveland. Hún mætti á einum mótmælafundin- um í gærmorgun, en fékk tauga áfall og var borin heim. En hún mun samt ætla til U&ndon með sendinefndinni í dag. I gær voru lagðar fram spurn Rosis Cleveland, sem fórst. Torfasonar og viðtal er hann átti við skipherrann á Óðni, eftir björgun skipverja á Notts Coun ty. ÍSAFIRÐI, 5. febrúar — Varð- skipið Óðinn kom kl. 2.30 í dag inn til ísafjarðar með þá 18 menn af brezka togaranum Notts Coun vegna yfirísingar. Það var gert. Kl. 23.53 sáu skipverjar á King- ston Andalusite skyndilega hvar Ross Cleveland hvarf — bæði af radarskerminum og ljós- in af honum á sömu stundu. Tog- ararnir voru þá mjög nálægt hvor öðrurn 3 sjómílur út af Arnarnesi. í gær fannst svo eitt lík og hlutar úr báti rekið Arnarnesi. Skömmu seinna eða laust fyrii miðnætti strandaði Notts Coun ty svo á Snæfjallaströndinni. Missti hann báða báta sína. Óð- inn kom fljótlega á strandstað. en þar sem veðrið var þannig að ekki var viðlit að athafna sig, var mönnunum sagt að halda kyrru fyrir um borð. Og það var ekki fyrr en kl. 13.40 í gær að varðskipsmenn komust yfir í togarann og gátu bjargað 18 mönnum. Einn var þá látinn. Verður nánar sagt frá báðum slysunum í frétt frá Isafirði hér fyrir neðan. Barðist fyrir öryggi — missti brcður sinn. Mbl. átti í gær tal við einn af blaðamönnum Hull Daily Mail, Charles Levett. Sagði hann að þessi áföll, missir þriggja togara með 59 menn, hefði fengið geysi- lega mikið á íbúa Hull og þar ríkti mikil sorg. Konurnar, sem misstu menn sína, svo og aðrar sjómannskonur hefðu skrifað á- skorunarskjal, sem fjögurra kvenna nefnd mundi fara með í dag í þingið, House of Commons. Hafði forsætisráðherrann falið fiskimálanáðherra og siglinga- málaráðherra að taka á móti þe m. Ein af konunum, Mrs. Christ- ine Smallbone, sem er í sendi- nefndinni, byrjaði fyrir nokkrum vikum ásamt hinum herferð til að auka öryggi og bæta ástand ingar í þinginu í London. Sigl- ingamálaráðherra lýsti því yfir að hann mundi strax láta fara fram skyndirannsókn vegna Ross Cleveland slyssins. Og formleg rannsókn fari fram strax og því verði við komið. ty frá Grimsby, sem þeir höfðu bjargað. Einn var látinn af vos- búð, þegar björgunin varð. Nokkrir skipverja voru mikið kalnir á höndum og munu ein- hverjir þeirra hafa verið lagðir á sjúkrahús hér og allir voru Brezku blöðin segja frá enn einu hörmulegu sjóslysi við fsiand. skipið var þá statt út af Vest- fjörðum. Segir Sigurður: Sáust fyrst í 0.3 mílur frá — Héldum við strax af stað Togarmn Notts County GY 643, sem strandaði á Snæfjallaströnd inni. — Allir hér í Hull eru sam- mála um að þessir síðustu skips- tapar muni enn leggja þunga á- herzlu á kröfur kvennanna, sem lagðar verða fram á morgun, sagði Levett að lokum. Og þessi hörmulegu sjóslys snerta alla í- búa bæjarins. Skipverjar illa haldnir — einn látinn. Hér fer á eftir frásögn frétta- ritara Mbl. á ísafirði, Högna þeir fremur illa haldnir. Hinir gista á Skátaheimilinu, þar sem búið hefur verið um þá og þeim veitt hin bezta aðhlynning. Mbl. átti í dag tal við Sigurð Árnason, skipherra á Óðni, og spurði hann um þennan atburð. Sigurður sagði, að varðskipið hefði verið beðið aðstoðar þegar leki kom að brezka togaranum Wyre Mariner í fyrradag. Varð- norður í Isafjarðardjúp og höf- síðan. Við fréttum skömmu eftir miðnætti í nótt að brezki togar- inn Notts County frá Grimsiby væri strandaður undan Snæfjalla strönd, og héldum þá strax af stað þangað. Við komum á stað- inn um kl. 2 í nótt. Þá var NA fárvirði og svarta bylur. Togar- inn virtist vera strandaður fyrir utan eyðibýlið Sandeyri, líklega fram af Berjadalsá. Ofsinn var svo mikill að það var ekki fyrr en á hádegi í dag, að við komum auga á togarann. Vorum við þá 0,3 sjómílur frá honum. Geysi- mikil ísing hafði hlaðizt á varð- skipið í gærkvöldi og leituðum við þá í var í Jökulfjörðum til að höggva klakann af. Þegar við komum að togar- anum sáum við strax að vonlaust var að aðhafast nokkuð fyrr en með morgninum og fóruim við að svipast eftir Heiðrúnu II og vorum að því fram undir kl. 8 í morgun. En við urðum einzkis varir. Fórum við þá á strand- staðinn og vorum þar þangað til við höfðum bjargað mönnunum. Varðsk psmenn fóru í gúmmí- bát með utanborðsmótor og höfðu meðferðis 2 óuippblásna gúmmí- björgunarbáta. Komust þeir upp að togaranum og blésu þar upp bátana. Settu þeir skipbrotsmenn um borð í þá og voru bátarnir síðar dregnir fram að varðskip- inu. Tókst þessi björgun giftu- samlega. Björguðust 18 menn, en einn var látinn af vosbúð. Vegna óveðurs var líkið skilið eftir um borð í togaranum. Skipbrotsmenn voru fremur illa haldnir. Hafði þá kalið á höndum. En við héldum til fsa- fjarðar og settum mennina hér á land. Ég vil ætla að togarinn sé lítið skemmdur. Líklega hefur komið gat á botninn og sjórinn komizt í vélarrúmið, en af þessu hefi ég óljósar fregnir. Togar- inn er 1120 tonn að stærð. Framhald á bls. 21. Brezki togarinn Notts County strandaði þarna undir Snæfjallaströndinni. Uppdráttur, sem sýnir afstöðuna við ísafjarðardjúp. Efri krossinn sýnir hvar togarinn Notts County strandaði, neðri krossinn hvar Ross Cleveland fórst út af Arnarnesi, þar sem rekið er lík og hrak úr björgunrbáti.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.