Morgunblaðið - 06.02.1968, Page 21

Morgunblaðið - 06.02.1968, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1968 21 Séð frá ísafjarðarkaupstað yfir fjörðinn, þar sem togarinn Ross Cleveland fórst og til Snæfjalla- strandar, þar sem Notts Country strandaði. Ljósm. Magnús Jóh. Westmoreland haro- lega gagnrýndur Lundúnum, 5. febr. — (AP) TVÖ brezk stórblöð skýrðu frá því á sunnudaginn, að háværar kröfur væru uppi um það, að tjaldabaki í Was- hington, að William G. Westmoreland, yfirmanni alls herafla Bandaríkja- manna í Vietnam, yrði vikið úr embætti. Dagblaðið „The People“, sem gefið er út í 5 millj. eintaka, segir, að West- moreland hafi fullvissað stjórnina í Washington mán- uðum saman, að nánár gæt- ur væru hafðar á skærulið- lýsingar um gang styrjaldar- innar. Auk þess styddisf West- moreland við úreltar herfræði- kenningar og sæist yfir stjórn- málalega þætti þessa stríðs. Þá segir fréttaritari „Observ- ers“ í Washington, að Johnson, forseti, hafi viðurkennt, að bæði honum og Westmoreland hefðu orðið á skyssur í rekstri stríðs- ins. Þá segir „Observer“ að mik- illar óánægju gætti í Washing- ton með þá fullvissu Westmore- lands, að allt væri hægt að rétt- læta með tölu fallinna óvina, — tölu, sem margir leg'ðu hvort eð er lítinn trúnað á. - HARMLEIKUR - SJOSLYS Framhald af bls. 17. Komst einn áleiðis til lands? í ísafjarðardjúpi var ofsaveð- ur í nótt og fyrrinótt og munu 22 togarar hafa leitað vars í Djúpinu í fyrrakvöld. í nótt er leið má segja að hver hafi haft nóg með sig. Um aðstoð við einn eða annan hafi ekki verið að ræða. Brezki togarinn Ross Cleve- land H 61 fórst í nótt út af Arnarnesi í ísafjarðardjúpi og með honum 19 manna áhöfn. Um fangsmikil leit var gerð eftir að fréttist að togarinn væri í háska og hefur við leit fundizt lík eins skipverja rétt fyrir utan Súðavík. Einnig hafa fundizt inn viðir úr björgunarbáti úr tré og sömuleiðis flekar úr botni báts. Er talið að togaranum hafi hvolft vegna mikillar ísingar, en eins og fyrr er sagt voru tveir tog- arar þarna nálægt, Kingston Em erald og Kingston Andalusite. Skipstjórinn á Kingston Anda lusite taldi sig hafa séð Ross Cleveland hverfa og telur að enginn hafi komizt frá borði. Hins vegar er það hald manna hér að björgunarbátur skipsins hafi komizt frá skipinu. Telja menn þá líklegt að skipverji sá, sem fannst látinn í fjörunni utan De Gaulle ekki móðgaður — vangaveltur vegna ummœla Brandts París, Baden, Baden, 4. febr. — AP — NTB — UTANRÍKISRÁÐHERRA V- Þýzkalands, Willy Brandt sagði í útvarpsviðtali á sunnudag, að Þjóðverjum væri nauðsyn að vernda hin góðu tengsl við Frakka. Sólarhring áður hafði allt farið í bál og brand út af ummælum sem höfð voru eftir utanríkisráðherranum, og mikil pólitísk deila var í uppsiglingu. Fréttastofan DPA hafði eftir Brandt, að vinátta landanna yrði yfirsterkari hinni stíflyndu alls ráðandi stefnu í Frakklandi, og að forseti landsins væri sjúkur af valdgræðgi. Talsmaður vest- urfþýzku stjórnarinnar, Ahlers fékk í flýti seguibandsspólu með orðum Brandts og voru orð hans á þessa leið: „Samband Frakka og Þjóðverja er djúpt í hugum fólksins, sem byggir löndin tvö. Það er æskilegt, einkum fyrir yngxi kynslóðina. Ég vona, að þessi tengsl séu svo sterk, að meira að segja hin ósveigjanlega stjórn hafi ekki möguleika á að raska þeim.“ Ambassador Vest- urÞýzkalands í París var á sunnudagskvöld kvaddur til franska utanríkisráðuneytisins til viðræðna og stjórnmálafrétta ritarar litu mjög alvarlegum aug um á miálið. Orð Brandts voru birt sam- tímis því að Luebke, forseti V- Þýzkalands og De Gaul'le, lyftu glösum í sendiráði Þjóðverja í París. f ávarpi De Gaulle var- aði hann Luebke við því, að láta einhver öfl eyðileggja vin- áttu ríkjanna. Blaðafulltrúi sósíaldemókrata birti síðar hin umdeildu orð og kvaðst hafa þau beint af blöð- um þeim, sem Brandt hefði hrip að hjá sér. Þar stóð: „Frönsk vinátta, einkuim meðal unga fólksins, á sér svo djúpar rætur, að duglitlar stjórnir geta ekki eyðilagt hana.“ Þegar talsmaðurinn Ahlers var spurður um hverniig stæði á misræmi í því, sem hann hafði birt og hins vegar blaðafulltrú- inn, svaraði hann því aðeins til að hann hefði sit't beint frá Brandt sjálfum. vert við Súðavík hafi komizt langleiðina í land, annað hvort í björgunarbátnum, sem rekið hefur út eða með einhverju öðru sem flot var í. Það síðasta sem vitað er frá RossCleveland er að Ijós skipsins hurfu rétt fyrirmið nætti og eftir það sást togarinn ekki í ratsjá. — H.T. Ross Cleveland H 61 hét áður Cape Cleveland og var byggður í Aberdeen 1949. Hann er 659 lestir að stærð. um Viet Cong. Því væri það hann, sem bæri ábyrgðina á því, að Bandaríkjamen í SA- Asíu hefðu beðið mikinn álitshnekki með síðustu að- gerðum Viet Cong. „The Sunday Times“ segir, að gagnrýni á Westmoreland hafi mjög aukizt upp á síðkastið að tjladabaki í Washington. Álitið er þar, segir bla'ðið, að West- moreland hafi gefið Johnson Bandaríkjaforseta rangar upp- Ekkert miðar í samkomulagsátt - f Pueblo-deilunni Seoul, Tókíó, Washington, 5. feb, AP. Varutanríkisráðherra Jap- ans, Nobuhiko Ushiba, tjáði fréttamönnum í dag, að am- bassador Bandaríkjanna í Japan, Alexis Johnson hafi vísað á bug fréttum frá Seoul þess efnis, að Bandaríkin og N-Kórea hefðu komizt að sam komulagi um að áhöfn Pue- blos yrði leyst úr haldi. í þessum fregnum sagði, að stjórn N-Kóreu hefði fyrir sitt leyti samþykkt að leysa úr haldi áhöfnina, ef Banda- ríkjastjórn bæðist formlega afsökunar fyrir að hafa látið skip sitt rjtifa landhelgi N- Kóreu. Uslhiiba' sagði, að bandaríski amibassadorinn hefði tjiáð sér, að fregnirnar væru tilhæfulausar og Bandaríkjastjórn héldi fast Þorrinn blótaður í Hreða- vatnsskála alla nóttina meðan óveðrið geisaði úti fyrir ÞEGAR ofviðrið braist á skömmu eftir miðnætti á laugardag, var fólk úr Norðuirárdal, Stafholts- tungum og Borgarnesi að blóta þorra í Hreðavatnsskála. Brá fólkið á það ráð að halda þoirra- blótinu áfram, þar til veður lægði á sunnudagsmorgun, og skemmtu menn sér hið bezta meðan hríðin hamaðist á húsinu. Leopold Jóhannisson í Hreða- vatnsskiála sagði Mbl. í gær að þetta- hefði verið versta veður, sem hann myndi til í 8 ár, en það hefði bjargað miklu, hve frostið var vægt. Alls mættu 120—130 manns til þorrahlótsins í Hreðavatnsskiála á laugardagslkvöldið og var þetta tíunda þorralblótið, sem haldið er í sveitinnd. Ekki treysti fólkið sér til að leggja af stað beimleiðis, þegar óveðrið var skollið á, og var skemmtuninni fram baldið til klukkan átta á sunnudagsmorg- un. Á fjórða tímanum um nótt- ina- fór fólk á fjórum bílum og ætlaði að freista þess að ná heim, en tveir bílanna sneru við og hinir festust. Var gerð- ur út leiðangur frá Hreða- vatnsskála um sexleytið og bíl- unum bjargað til baka aftur. Einn lagði af stað niður í Borgar fjörð á fimmta tímanum, en vililt ist út af veginum og festist. Þegar hríðinni ha-fði sllotað á sunnudagsmorgorgun, fóru gest- ir að tínast heim á leið og kom- ust flestir heim á sunnudag. Fólk af efstu bæjum Norðurárdals náði þó eklki heim fyrr en síð- degis 1 gær, þar eð snjóskriða hafði fallið á veginn hjiá Hvammi og lokað leiðinni. Sagði Leopold, að síðuistu gest irnir hefðu farið frá sér klukkan tvö í gær, en það voru tveir Dalamenn og ætluðu þeir gang- andi Bröttubrekku. Þetta var ágætis þorrablót, sagði Leopold, og eflaust verð- ur það okkur öllum minnisstætt, þegar fram líða stundir. við þá skoðun sína, að Pueblo hefði aldrei rofið n-kóre,ska land helgi. Á blaðamannafundi í Washing ton í dag, sagði folaðafull'trúi ut- anríkisráðuneytisins, Robert Mc Closbey, að sú staðreynd, að samningaviðræður stæðu nú yfir milli Bandaríj anna og N-Kóreu væri veigamifcið spor í áttinia til að fá áhöfn Pueblos og Skipið sjálfft leyst úr haldi. Hins vegar varaði hann við því, að menn gerðu sér of háar huigmyndir um að lausn fengist á þessu vanda- máll þegar í stað. Sagði hann, að enlgan veginn væri séð fyrir endann á samningaviðræðunum. McCloskey kvaðst engu hafa við að bæta þau ummæli Rusks utanríkisráðherra og McNamara, landvarnarráðlherra, í útvarpi á sunnudag, að þeir hefðu enga ástæðu til að ætla að Puefolo hefði brotið n-kóresk lög, en þeir myndu fyrst vita það fiyrir víst eftir að haffa rætt við skip- stjóra Puefolbs og óhiöfnina. Við- urkenning ráðherranna á þvi, að þeir gætu ekki útilokað, að n-kóresk lög hefðu verið brotin í þeasu tilviki virtist undirbún- ingur að fformlegri afsökunar- beiðni af háltfu Bandarífcjastjórn- ar. Aðspurður sagði McCloskey, að þriðjí fundur fulltrúa stjórna N-Kóreu og Bandaríkjanna hefði verið haldinn í Panumjon í dag. Hann kvaðst ekki vita hvort um fleiri sMka fundi yrði að ræða, en benti á, að stjórnin í Was- hington hefði nána samviinnu við stjórnina í Seoul um lausn þessa vandamáls. Framhald af bls. 10 um veiðiferðum og að um borð í öllum skipum verði loftskeyta menn. Og loks, að skipin verði útbúin með varahluti, sem séu ávallt um borð, svo að hægt sé að gera við úti á sjó. I „Rekið mig burt með valdi“ Það er frú Lillian Bilocca, harðgerð kona og dæmigerð þeirra eiginkvenna, sem fyrir er að finna í Hull, er stjórnar mótmælaaðgerðum og öðrum að gerðum kvenna í HuU í því skyni að öryggi togarasjómann á hafi úti verði bætt. Á föstu- daginn var lýsti hún yfir: —Ef nokkurt skip hyggst sigla héðan úr höfn án full- kominnar áhafnar og án loft- skeytamanns, þá mun ég stíga um borð og þá mun verða að beita valdi til þess að fjarlægja mig. Á laugardag var hins vegar ákveðið á fundi eiginkvenna og mæðra sjómanna í Hull að reyna að ffá fram viðræður um öryggisráðstaffanir. Var kjörin nefnd í þessu skyni og frú Bilocca kjörin formaður hennar til þess að knýja fram auknar öryggisráðstafanir. Ljóst er að þessir voveilegu atburðir og aðgerðir kvenn- anna og annarra hafa skapað mikla ólgu á meðal sjómanna í Hull. Á laugardag neitaði höfn togarans Kingston Sir- cons, systurskips Kingston Peri dots, að fara með skipinu og staðhæfðu sjómennimir að ör- yggi skipsins væri áfátt. Sögðu þeir, að aðeins 16 úrelt björg- unarbelti væru til í skipinu ætluð 20 mönnum. Þá væri eld- hætta í skipinu og slökkviút- búnaður gallaður. Enn fremur væru fleiri atriði, sem öryggi snerti, ekki eins og vera bæri. Fánar voru þá á hálfa stöng við höfnina í Hull vegna sjó- mannanna af St. Romanus, en Kingston Peridot var þá ekki enn talinn af opinberlega. Á fundi kvenna þá um dag- inn, lýsti frú Bilocca því yfir, að hún myndi krefjast þess að fá að ganga á fund forsætis- ráðherrans til þess að reyna að fá kröfunum um aukið ör- yggi framgengt og var þessum ummælum hennar tekið með miklu lófataki. AUGLYSINGAR SÍMI SS*4*8Q Selst ódýrt Vél úr Buick Roadmaster árg. 1952 með nýjum vara- hlutum til sölu. Einnig tvær sjálfskiptingar úr sama b£L Upplýsingar í síma 81855 og á kvöldin 82247.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.