Morgunblaðið - 06.02.1968, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRUAR 196»
Garðahreppur
Næstu daga verður íarið um hreppinn og flækings-
köttum útrýmt.
Þeir sem eiga ketti eru þvi beðnir að halda þeim inn-
an dyra eða merkja þá með hálsbandi.
Heilbrigðisnefnd.
Hnotan auglýsir
Næstu daga seljum við nokkrar tegundir húsgagna
með miklum afslætli.
Komið og gerið góð kaup.
HNOTAN, húsgagnaverzlun
Þórsgötu 1 — Sími 20820.
Gröfur - Loftpressur
Höfum ávallt til leigu hinar fjölþættu Massey-Ferguson
skurðgröfur og loftpressur í minni eða stærri verk.
Tíma- eða ákvæðisvinna.
Upplýsingar í síma 31422 heima 32160 og 81999.
B ó k h a 1 d
Maður, sem hefur góða þekkingu á bókhaldi óskast,
sem aðalbókari. Tiiboð sendist Morgunblaðinu fyrir
10. febrúar, merkt: „Umfangsmikið bókhald 5361“.
Frá Verzlunarskóla íslands
Skráning til inntökuprófs inn í 1. bekk Verzlunar-
skóla íslands er hafin. Skréning fer fram í skrifstofu
skólans, Grundarstíg 24.
Skólastjóri.
r
Oskilahestur!
Rauður hestur sennil. 4ra vetra, mark sýlt h. stýft
fj. a. v. var seldur í Biskupstungnahreppi.
Innlausnarfrestur til 6. júní 1968.
Hreppstjórinn.
Blikksmiðja!
Hef opnað blikksmiðju að Súðavogi 34.
Annast hvers konar blikksmiði.
BJARNI ÓLAFSSON.
Nauðungaruppboð
að kröfu skattheimtumanns ríkissjóðs í Keflavík,
tollstjórans í Reykjavík, sýslumannsins í Þingeyjar-
sýslu og Loga Guðbrandssonar verða bifreiðarnar
ö—12, Ö- 243, Ö—496, ö—568, Ö-845, Ö—945,
ö—1133, Ö—1134, Þ—295 seldar á opinberu uppboði,
sem haldið verður við bifreiðaverkstæði Suðurnesja,
Vesturbraut 34, Keflavík, í dag kl. 14.
Keflavík, 1. febrúar 1968.
Bæjarfógetinn í Keflavík.
Tamningarstöð
á vegum Hestamannafélagsins Harðar, verður starf-
rækl í Laxnesi frá 17. febrúar til 20. apríl.
Þátttaka tiikynnist Bjarna á Reynivöllum eða Hreini
í Helgadal fyrir 12. þessa mánaðar.
Stjórn Harðar.
Jónína Arnesen
Kveðja
f DAG kveðjum við Jónínu
Arnesen nokkrir frændur hennar
og vinir. Jónína frænka var fædd
á Skagaströnd 22. júní 1877. For-
eldrar hennar voru Friðrik Möll
er, þá verzlunarstjóri, síðar póst
meistari á Akureyri og Ragnheið
ur Jónsdóttir frá Helgavatni í
Vatnsdal. Við sem erum nú að
byrja að taka saman föggur okk-
ar, hugsum með hrærðum huga
til góða fólksins, sem við höfum
kynnzt á lífsleiðinni.
Ég átti því láni að fagna að
dvelja á heimili frænku, ungur
stúdent. Þá kynntist ég henni
nánar en öllum öðrum á því góða
heimili. Það heimili stóð í Brekku
götu 14 á Akureyri. Þar var hátt
til lofts og vítt til veggja. Stóð
á föstum rótum gamalla Akur-
eyringa. En Jónína frænka var
sú sem gæddi þetta stóra hús
hlýleika.
Maður hennar Jón Arnesen var
alltaf önnum kafinn. En frænka
hafði alltaf stundir aflögu. Við
höfðum sameiginlegt áhugamál.
Að ganga á vit hins fagra um-
hverfis, setjast niður og tala um
lífið. Já, kæra frænka, sem betur
fór átti ég eftir að njóta vináttu
þinnar á langri ævi. Þú varst
móðursystir mín og ég naut þess
kærleika, sem þú hafðir bundið
við móður mína í bernsku.
Góða frænka, nú ertu öll. En í
hugum og hjörtum sonar þíns og
ættingja þinna lifir minning um
góða og skemmtilega konu. Þú
varst svo þroskuð að þú óttaðist
ekki dauðann. Á tíræðisaldri
varstu reiðubúinn í trú og von.
Kæra frænka, vertu æfinlega
Guði falin.
Þ. Ól.
Notaðir bílar
Cortina 4ra dyra árg. 1966.
Skoda Oktavia, 2ja dyra árg. 1962
til sýnis og sölu.
HR. KRISTJÁNSSON H.F.
U M B 0 II I tJ SUDURLANDSBRAUT 2 • SÍMI 3 53 00
Frá hinum heimsþekktu tóbaksekrum
Kentucky í Ameríku kemur þessi
úrvals tóbaksblanda
Sir Walter Raleigh...
ilmar ffnt... pakkast rétt...
bragðast bezt. Geymist 44%
lengur ferkst í handhægu
loftþéttu pokunum.
SIRWALTER
RALEIGH