Morgunblaðið - 06.02.1968, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1968
dþekktur KR-ingur
vann skjöldinn
SKJALDARGLÍMA Ármanns
var háð á laugardaginn og var
nú í fyrsta sinn keppt eftir nýj-
um reglum Glímusambandsins,
en fiær boða allmiklar breyting
ar frá hinum eldri glímulögum.
Úrslitin nú komu nokkuð á
óvart þar sem skjaldhaíi sl. ára
varð að láta sér nægja 4. sætið
í keppninni.
Skjöldinn vann að þessu sinni
ungur giímumaður úr KR, Óm-
ar Úlfarsson. Hlaut hann 5 vinn
inga ásamt Gunnari Ingvarssyni
Víkverja. Eftir 3 au'kaglímur um
1. verðlaun sigraði Ómar.
Hannes Þorkelsson Víkverja
varð þriðji að vinningafjölda
hlaut 4,5 vinninga og sama vinn
ingafjölda hlaut Sigtryggur
Sigurðsson skjaldarhafi sl. 3 ár.
KFR vann Þór
Á laugardagskvöld Iéku á Kefla-
víkurflugvelli ÍR og ÍKF í I.
deild íslandsmótsins í körfuknatt
leik. Er þetta fyrsti leikur ÍKF
á heimavelli í mótinu. Segja má
að leikurinn hafi verið hratt spil-
aður og vel leikinn á
köflum, en nokkuð harður.
ÍKF „átti“ fyrri hálfleikinn, sem
endaði 25: 18 þeim í vil. Fyrst
í síðari hálfleik komst ÍKF í
27:18. Þá tekur ÍR við og skor-
ar 14 stig, og á 8. mín. er staðan
34:28 ÍR í vil. Á 15. mín. tekst
ÍKF að komast yfir á ný 42:41.
Á síðustu mínútunni standa leik-
ar 48:47 ÍKF í vil, en þá skor-
ar Anton úr tveim vítaskotum
fyrir ÍR, og Agnar bætir einu
við og leikurinn endaði 50:48,
naumur sigur ÍR. Hjá ÍKF var
Friðþjófur með 16 stig, Jón
Helgason 11 og Sigurður Arn-
björnsson með 10 stig. Birgir
Jakobsson var lang — stigahæst
ur ÍR—inga með 22 stig. Hann
átti 100% hittni úr vítaköstum,
sem er mjög gott.
Framhald á bls. 3
Páll skorar síðasta mark FH,skapaði forystu sem Fram tókst að jafna úr vítakasti eftir venju
legan leiktíma. Myndir Mbl. Kr. Ben.
Jafntefli hjá Fram og FH
Skemmtilegur leikur topp-
liðanna í 1. deild á sunnudag
ÞAÐ var mikil spenna í iþróttahöllinni í Laugardal á sunnudags-
völdin eins og jafnan er, þegar errkiandstæðingarnir IVam og FH
eigast við. Sá leikur var næsta furðulegur fyrir margar sakir, en
svo fór áð Iiðin skildu jöfn 17:17. Þáttur Magnúsar Péturssonar dóm
ara í leiknum var líka kapítuli út af fyrir sig, því að mestan hluta
leiksins var lítið samhengi í dómum hans. Var hann ákaflega ósam
kvæmur sjálfum sér, svo miðað sé við fyrri leiki, sem hann hef-
ur dæmt — var nú allt í einu óskaplega smásmugulegur í skrefa-
talningu, óspar á dóma vegna ruðnings og dæmdi vítaköst í vafa-
sömum tilfellum.
Tvö vafasöm vítaköst.
Hitt er svo annað mál, að ekki
......Hp ...............w.f,;.nM,riiiininn,^,.^....
Akureyringar í sókn.
Akureyri vann 17:0
ver’ður sagt að annað liðið hafi
hagnazt hinu fremur á dómum
Magnúsar.
Svo dæmi séu tekin má benda
á það, að í lok leiksins, er Fram
arar höfðu forustuna 16:15, jafn
aði Páll úr vítakasti, sem dæmt
hafði verið vegna brots á
Kristján Stefánsson. Var þetta
ákaflega vafasamt, þar sem
Kristján hafði ekki nokkur tök
á því að skjóta á markið, er
brotið var á hann. Sömu sögu
er að segja um síðasta mark
leiksins, er Gunnlaugur jafnaði
17:17 úr vítakasti. Pétur fékk
knöttinn inn á línuna og var
hann í engu skotfærri, er brot-
ið var á honum. Forsenda Magn-
úsar fyrir vítakastinu var sú
að varnarmiaður FH hefði set-
ið inn í teignum til varnar, en
enginn virðist hafa komið auga
á það nema Magnús einn. Kom
þessi góðvild jafnvel leikmönn-
um Fram nokkuð á óvart.
Forysta Fram í byrjrun.
FH-ingar skoruðu fyrstu tvö
mörk leiksins, og voru Geir og
Páll þar að verki. Gunnlaugur
jafnaði fyrir Fram litlu síðar,
en liðin skiptust síðan á að
skora — 3:3 og 4:4. Þá tóku
Framarar á sig rögg og skor-
uðu fjögur mörk í rö'ð, og urðu
lokatölur hálfleiksins 8:4. Var
leikur FH í þessum hálfleik all-
ur í molum. Þeir gerðu hvað
eftir annað tilraun með nýja
leikaðferð, sem þeir réðu ekk-
ert við, heldur skapaði aðeins
sundrung. Framarar léku frem-
ur rólega og notuðu línuna mik-
ið. Reyndu þeir sjaldan lang-
skot.
Sviptingar í síðari hálfleik.
Ingólfur skorar níunda mark
Fram strax í byrjrun seinni
hálfleiks, en Páll og Geir svara
þegar í stað með tveimur mörk
um. Leikur FH var strax í upp-
hafi stórum betri en allan fyrri
hálfleik, og hægt og sígandi
vinna þeir upp forskoti'ð. Á
11. mínútu jafnar Birgir 11:11,
og Auðunn nær forustunni fyr-
ir F. H. Þeir létu ekki staðar
numið þarna, heldur juku við
forskotið og brátt var staðan
15:12.
Úrslit í vítaköstum.
Var því af sem áður var — nú
voru Framarar sem börðust af
örvæntingu — og þeir uppskáru
ríkulega. Þegar sjö mínútur eru
til leiksloka jafnar Pétur 15:15,
og Ingólfur nær forustunni aftur
fyrir Fram 16:15. Þá fá FH-ingar
dæmt víti það, sem áður er getið
um, og Páll skorar örugglega.
Framarar sækja að marki FH,
en knötturinn er dæmdur af
þeim vegna þess að Guðjón tók
mörg skref. FH-ingar ná leiftur-
sókn, og Kristján skorar stór-
glæsilega úr mjög erfiðri að-
stöðu. Aðeins 56 sekúndur til
Ieiksloka, og Framarar leita að
smugu í vamarvegg FH í örvænt
ingu. Sekúndumar liða, og er
aðeins 22 sekúndur til leiksloka.
Þá fær Pétur knöttinn inn á línu,
og víti er dæmt. Tíminn er úti,
er Gunnlaugr skorar örugglega
út vítakastinu.
Liðin
Bæði liðin áttu oft ágæta leik-
kafla í þessum leik, en voru
sarnt ákaflega mistæk. Sama má
reyndar segja um einstaka leik-
menn, t.d. átti Geir Hallsteinsson
góðan lei'k í síðari hálfieik en
hvarf hins vegar nær alveg í
fyrri hálfleik. Þá átti Auðunn og
mjög góðan leik, en lítið bar á
Erni og Birgi. Hjá Fram brugð-
ust langskytturnar illa, en hins
vegar var línuspil allgott. Guð-
jón átti nú fremur slæman dag,
og Ingólfur var heldur óöruggur
í vörninni, en dreifir spilinu þó
alltaf skemmtilega í sóknmiu.
Það var tvímælalaust styrkur
fyrir Fram að fá Sigurberg í lið-
ið, enda þótt eitthvað væri
grunnt á því góða milli hans og
Magnúsar Péturssonar.
Hraðskautahlaup og listhlaup á
skautum kennt á Akureyri
FYRSTA bæjakeppnin í ís-
hokkí, sem fram fer hér á Iandi
var háð á skautavelli Skauta-
félags Akureyrar síðdegis á laug
ardag. Þar áttust við sveitir
Reykvíkinga og Akureyringa.
Keppninni lauk með yfirburða-
sigrri Akureyringa, 17 mörkum
gegn 0.
Að kappleiknum loknum af-
henti Hermann Sigtryggsson
iþróttafulltrúi sigurvegurunum
verðlaunagrip, (farandgrip sem
Sjóvátryggingafélag íslands gaf.
(Umboð Kristjáns P. Guðnumds
sonar).
Á sunnudaginn var háð hrað-
keppni. Hver leikur stóð 2x15
mín. Fyrir hádegi keppti A-lið
Reykvíkinga og drengir (14—
17 ára úr skautafél. Ak., sem
sigruðu með 3 mörkum gegn 2
og B-lið Reykvíkinga og B-lið
Akureyringa, sem sigraði með 7
gegn 1.
Eftir hádegi keppti A-lið
Reykjavíkur og B-lið Akureyr-
inga. Reykvíkingar sigruðu 5
gégn 3. Loks áttust við B-lið
Reykvíkinga og drengjasveit
Akureyrar sem sigraði með 9
gegn 0. Vann drengjalíðið þann
ig báða leiki sína.
Æfingar standa nú yfir hjá
Skautafélagi Akureyrar bæði í
listhlaupi og hraðhiaupi og ver
ið er að athuga möguieika á að
koma á Norðurlandsmóti í
skautagreinum. í þessari viku
hefst kennsla í listhlaupi. Kenn*
ari verður Gralf Bohnsack.
HAUKAR hafa mjög sótt í sig
veðrið í síðustu leikjum sínum
og er liðið óþekkjanlegt frá
fyrstu leikjunum í íslandsmót-
inu i haust. í fyrrakvöld sigraði
liðið KR-inga með 22:14 og voru
Haukar vel að þessum sigri kom
nir. Léku leikmenn Hauka af
skynsemi, tókst að gera Gísla
Blöndal, sem hefur verið helzta
langskytta KR-inga, óvirkan,
þannig að lítið var um snörp
skot að marki Hauka. Þá hefur
það efiaust haft mikið að segja
fyrir KR-inga, að Kari Jóhanns
son gat ekki leikið með vegna
meiðsla.
Lið Hauka er skipað mjög
traustum leikmönnum, sem eru
ákaflega áþekkir að getu. Liðið
hefur ágætar langskyttur, þar
sem þeir eru Þórður, Ólafur og
Viðar, og einnig harða og ó-
eigingjarna línuleikmenn, svo
sem Stefán Jónsson og Sigurð
Jóakimsson.
KR-liðið er ungt að árum,
skipað liprum leikmönnum, en
þá skortir flesta meiri skothörku
að Gísla Blöndal undanskyldum,
en í leiknum í fyrrakvöld nýttist
hann mjög illa. Eflaust hefur
fjarvera Karls haft áhrif á leik
liðsins gegn Haukum og hafa
menn því vart fengið þar rétta
mynd af styrkleika liðsins. Sig
urður Óskarsson kom bezt frá
leiknum á sunnudag og er óðum
að komast í sitt gamla form, —
alltaf mjög traustur í vörn og
gerði margt mjög laglegt inn á
línunni.
KR-ingar skoruðu fyrsta mark
ið í leiknum. en Haukar jöfnuðu
strax og náðu forustunni. Var
leikurinn framan af nokkuð jafn
enda þótt Haukarrnir hefðu jafn
an frumkvæðið. í hálfleik var
staðan 12:8 Haukum í vil.
Um miðjan síðari hálfleik fór
mjög að síga á ógæfuhliðina fyr-
ir KR-inga. Var staðan þá 17-14
Haukum í vil, en það sem eftir
var skoruðu þeir 5 mörk gegn
aðeins tveimur mörkum KR-inga
Urðu lokatölur því 22:16.