Morgunblaðið - 06.02.1968, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1968
31
Ný sdknarlota í Saigon hafin
20 þús. manns í borginni heimilislausir
- Barizt af heift um landið allf
Saigon, Washington, 5. febr.
(AP)
SKÆRULIÐAR Viet Cong
réðust í dag gegn aðalstöðv-
um lögreglunnar í Saigon,
og er talið, að Viet Cong
hafi þar með hafið aðra meiri
háttar árás sína á borgina.
Um 400 skæruliðar náðu
lögreglustöðinni á sitt vald.
Fyrr um daginn höfðu
bandarísk hernaðaryfirvöld
tilkynnt, að 500—700 skæru-
liðar leyndust í borginni, en
vitað var um þrjú herfylki
Viet Cong utan við borgina,
sem reiðuhúin voru til árása
á hana. Útgöngubannið í
Saigon var hert í dag og
hafa hermenn bandamanna
og lögreglan skipun um að
skjóta á allt, sem hreyfist á
götunum eftir kl. 11 að ísl.
tíma. Blóðugir bardagar
geisa nú um alla borgina og
sums staðar standa hverfi í
björtu báli. Stöðugt er verið
að flytja óhreytta borgara
frá heimilum sínum í þeim
hverfum, þar sem skærulið-
arnir hafa hreiðrað um sig
og eru stórskotaárásir síð-
an gerðar á hverfin. Tals-
maður bandarísku herstöðv-
aðilar beðið mikið afhroð. Seg-
ir fregnritari frönsku fréttastof-
unnar AFP, að Bandaríkj amönn
um hafi lítið orðið ágengt í borg
inni. Loftárásir hafa verið gerð-
ar á stöðvar Víet Cong í Hue,
en með litlum árangri.
Hermenn N-Vietnamstjórnar
tóku á sitt vald hæð 861 í nánd
við bandarísku stöðvarnar í Khe
Sanh í dag, en þeir voru skjót-
lega hraktir þaðan aftur. Khe
Sanh er mikilvægasta virki
Bandaríkjamanna í norðurhéruð
um S-Vietnam og skutu N-Viet-
nam hermenn af fallbyssum á
virkið, en tókst ekki að komast
nálægt því.
Frá Can Tho i Mekong-ós-
hólmunum berast þær fregnir,
að skæruliðar hafi þar gert mikl
ar árásir á helztu borgir.
Tali'ð er, að á þessu svæði
séu um 80.000 manns heim-
ilislaush og 1200 óbreyttir borg
arar hafi fallið. í Saigon er álit
ið, að 20.000 manns hafi misst
heimili sín á síðustu sjö dög-
um.
Bandaríski öldungardeildar-
þ’ngmaðurinr, Edward M. Kenn
edy sagði i dag, að kommún-
istar í Víetnam hefðu unnið
miklan pólitískan sigur í síðustu
viku. Hvatti Kennedy Banda-
ríkjastjórn til að krefjast þess
að stjórnin í S-Víetnam beitti
sér fyrir endurbótum eða verði
af hjálp Bandaríkjamanna ella.
Kennedy gagnrýndi stjórn
Johnsons forseta og sagði, að
ef stjórnin neitaði að horfast í
augu við staðreyndir í S-Víet-
nam gæti það orðið til þess að
viðbrögð bandarísku þjóðarinn-
ar til atburðanna þar yrðu gagns
laus og jafnvel hættuleg.
Öldungadeildarþingmaðurinn
Jacob K. Javits lagði til í dag,
að Bandaríkjastjórn viðurkenndi
að hernaðarlegt þrátefli hefði
orðið í Víetnam og færi þess á
leit við Sovétstjórnina, að hún
hefð’ frumkvæðið um málamiðl
un þar.
í grein í n-víetnamska dag-
blaðinu Nanh Dan er gefið í
skyn, að stjórnin í Hanoi vilji
ekki útiloka alla möguleika á
friðsamlegri lausn á Víetnam-
styrjÖldinni. Er andi þessarar
greinar í samræmi við ummæli
stjórnmálamanna í aHnoi, sem
segja að þrátt fyrir neikvæða
afstöðu Johnsons Bandaríkja-
forseta gagnvart þeim góða
vilja, sem Hanoi hefði
sýnt þá stæðu dyrnar að samn-
ngaviðræðum enn opnar, en
þessar viðræður yrðu að fara
fram eftir forskrift Hanoi-stjórn
arinnar.
Hóðtíðleg minningarathöln
í Mfl um Þórarin Björnsson
arinnar í Saigon sagði í dag,
að 17.000 skæruliðar hefðu
verið felldir í bardögunum
undanfarna daga, en ýmsir
stjórnmálafréttaritarar í Sai-
gon áiíta, að þessi tala sé
stórlega ýkt. f fréttaskeyti
NTB-fréttastofunnar segir,
að 4000 manns liafi verið
handteknir í borginni, þar
á meðal konur og börn, sem
grunuð eru um að hafa að-
stoðað Viet Cong.
Þá er enn barizt af heift í kon
ungborginni Hue og hafa báðir
Skákþing Reykjavíkur
Akureyri, 5. febrúar.
KVEÐJU- og minningarathöfn
um Þórarin Björsson, skólameist
ara fór fram í Menntaskólanum
á Akureyri í dag og hófst hún
kl. 13.30. Viðstaddir voru nán-
ustu vandamenn hins látna skóla
meistara, kennarar skólans og
konur þeirra og nokkrir próf-
dómarar og fyrrverandi kenn-
arar.
Nemendur sungu fyrst skóla-
sönginn, „Undir skóians mennta
merki“, en því næst flutti einn
kennarana, séra Árni Sigurðs-
son bæn. Þá söng skólakórinn
Integer vitae, en síðan flutti
Steindór Steindórsson, settur
skólameistari minningarræðu.
Að henni lokinni sungu nemend
ur sálmana „Hærra minn guð
til þín“ og „Faðir andanna".
Áskell Jónsson stýrði söng, en
frú Þórgunnur Ingimundardóttir
lék undir á píanó. Útvarpað var
frá athöfninni.
Ekki komust allir nemendur
skólans fyrir í Sal, en hátölurum
hafði verið komið fyrir í kennslu
stofum, þar sem þeir gátu hlýtt
á það, sem fram fór. Mikill al-
vörubiær og hátíðleiki hvíldi
yfir athöfninni.
Ungir kennarar hófu kistuna
út úr skólahúsinu, en sjöttubekk
ingar út af skólalóðinni í lík-
vagninn, sem þar beið. Allir við
staddir fylgdu síðan kistunni til
kirkju en á undan líkvagninum
Guðmundur vann Gunnar
Björn Þorsteinsson með 6Vi af 7.
Sjöunda umferð var tefld sl.
fimmtudagskvöld í meistara-
flokki og urðu úrslit þessi:
A-riðill. í þessum riðli lauk
aðeins einni skák milli Benónýs
Benediktssonar og Braga Hall-
dórssonar og vann Benóný. Aðr-
ar skákir fóru í bíð, eða var
frestað. Guðm. Sigurjónsson sat
yfir.
B-riðill Björn Þorsteinsson
vann Gylfa Magnússon, Jón
Kristinsson vann Júlíus Frið-
jónsson, Bragi Kristjánsson
vann Sigurð Kristjánsson en
Bjarni Magnússon og Leifur Jó-
steinson gerðu jafntefli.
Skák Hauks Kristjónssonar og
Jóhanns Þóris Jónssonar var
frestað. Frank Herlufsen sat yf-
ir.
Áttunda umferð var tefld sl.
sunnudag og urðu úrslit þessi:
A-riðill: Guðmundur vann
Gunnar Gunnarsson, Benóný
vann Stíg Herlufsen, Jón Þor-
valdsson vann Jón Pálsson, en
Hermann Ragnarsson og Bragi
Halldórsson gerðu jafntefli.
Skák Andrésar Fjeldsted og Sig
urðar Herlufsen var frestað.
Björgvin Yíglundsson sat yfir.
B-riðill. Jóhann Þórir vann
Gylfa, en Bjarni og Bragi Kr.,
og Björn og Jón Kristinsson
gerðu jafntefli. Frank og Leifur
eiga biðskák. Skák Sigurðar
Kristjánssonar og Hauks var
frestað. Júlíus sat yfir.
V nningsstaðan er nú þessi:
A-riðill: Guðmundur Sigur-
jónsson er efstur með 6% vinn-
ing (af 7 möguleigum), annar
er Gunnar Gunnarsson 6V2 (8),
Benóný Benediktsson er í þriðja
sæti með 4 (7), Björgvin Víg-
lundsson 3% (5), Jón Þorvlds-
son 3Vi (6), Andrés Fjeldsted 3 1
(6).
B-riðill: Hér hefur Björn Þor-
steinsson örugga forystu með 7
vinn nga (af 8 mögulegum),
annar er Bragi Kristjánsson 5%
(8), Jón Kristinsson 4 (6),
Bjarni Magnússon og Leifur Jó-
steinsson með 4 (7) hvor.
Aðeins tveir keppenda þeir
Guðmundur í A-riðli og Björn í
B-riðl' eru taplausir til þessa.
Fjórir keppenda í hvorum riðli
tefla síðan til úrslita um titil-
inn „Skákmeistari Reykjavíkur
1968“.
í kvöld verður 9. umferðin
tefld að Grensásvegi 46, og hefst
keppnin kl. 20.
SVO sem áður hefur verið skýrt
frá hefur verið stofnaður minn-
ingarsjóður um Þórarin Björns-
son, skólamestara. Framlögum
til sjóðsins er veitt viðtaka á
var borinn fáni skólans, sveip-
aður sorgarblæjum. í kirkjunni
söng Kirkjukór Akureyrar, sálm
inn „Þín miskunn, ó guð“ und-
ir stjórn Jakobs Tryggvasonar,
sem að lokum lék sorgarmars á
kirkjuorgelið. — Sv. P.
N-Vietnamar
mótmæla
loftárásum
STJÓRN Norður-Vietnam mót-
mælti í dag harðlega loftárásum
bandarískra flugvéla á kínversk
skip í vietnamskri höfn í síðasta
mánuði og sagði að Bandaríkin
yrðu að taka á sig fulla ábyrgð
gerða sinna.
Hin opinbera fréttastofa Hanoi
stjórnarinnar sagði að utanríkis-
ráðuneyti N-Vietnam hefði birt
mójtmælin á laugardaginn.
Árás á kínversku skipin varð
hinn 20. og 27. janúar. Sam-
kvæmt fréttum urðu miklar
skemmdir á skipunum tveimutr
og að minnsta kosti 6 af áhöfn
þeirra meiddust.
Akureyri, hjá húsverði mennta-
skólans þar, hjá Gunnlaugi
Kristinssyni í Kaupfélagi Eyfirð
inga og í bókaverzluninni Bók-
val, Hafnarstræti 94.
IViinningarsjóður
Þórarins, skólameistara
- HEIÐRÚN
Framhald af bls. 32
Allir bátar við Djúp munu
úta í dag og í ráði var að fá
flugvél, ef veður leyfði til leit-
ar. Leitað verður á sömu slóð-
um í dag og í gær, og þó sér-
staklega á fjörum, sem vart hef
ur orðið reka.
Vélbátur nn Heiðrún er eign
Einars Guðfinnssonar, útgerðar-
manns í Bolungarvík og keypti
hann bátin frá Sandgerði fyrir
um það bil tveimur árum. Er
hann var gerður út frá Sand-
gerði bar hann nafnið Páll Páls-
son. Skipið er smíðað á Ak-ra-
nesi 1963, eikarskip 154 vergar
lestir.
Ví&a takmarkað
síoiasamband
- sambandslaust við Raufar-
höfn og Þórshöfn
NOKKRAR skemmdir urðu á
símalínum í óveðrinu um helg-
ina. Gunnlaugur Briem, póst- og
símamálastjóri, tjáffi Mbl. í gær,
aff víffa væri símasamband tak-
markaff og sambandslaust var
viff Raufrhöfn og Þórshöfn. Þá
tókst ekki aff ná sambandi viff
Borgarfjörff eystri í gær.
Símalínurnar til Raufarhafnar
og Þórshafnar slitnuðu allar, en
samband var á milli staðanna
í gær. Takmarkað símasamband
var við Hólmavík, Hvamms-
tanga, Blönduós, og línan milli
Stykkighólms og Búðardals var
slitin.
Lélegt símasamband var við
Ólafsvík í gær og línan til
Grundarfjarðar var óvirk, einnig
var iélegt símasamband milli
Grundarfjarðar og Ólafsvíkur.
Ekki kvaðst póst- og síma-
málastjóri vita um fleiri
skemmdir á símalínum, en sagði
að sér hefðu enn ekki borizt
skýrslur úr sumum sveitum
landsins.
Gífurleg ófœrö
um helgina
ALLIR vegir urffu ófærir um
helgina vegna fannfergLs effa
óveffurs, aff því er Vegagerffin
tjáffi Mbl. í gær. Ekki höfðu
enn borizt frekari upplýsingar,
en þó var vitaff. aff í gær var
ófært um Vestfirffi og Norffur-
land vestra, en þar var allt á
kafi í snjó. Á Norffurlandi eystra
var mikil ófærff og eins á Austur-
landi, en Vegagerffin hafffi ekki
haft neinar spurnir af ástand-
inu þar.
Engir bílar munu hafa teppzt
Engir bílar munu hafa teppzt
á lengri leiðum, en einhver brögð
voru að því á þeim skemmri.
Fólk tepptist vegna ófærðarinn-
ar í skíðaskálum og eitthvað í
danshúsum.
Unnið var að því að opna veg-
inn til Selfoss í gær, og var síð-
degis orðið fært um Þrengsli
fyrir stóra bíla. Þá var einnig
víða fært um Suðurland, en þó
var ófært til Stokkseyrar og
Eyrarbakka.
í Borgarfirði var ástandið svip-
að og á Suðurlandi.
í dag mun ætlunin að reyna
Tókíó, 4. febr. AP.
DAGBLAÐ Alþýðunnar í Pek-
ing segir á sunnudag, að bylt-
ingaröfl í Inidónesíu séu að hefja
skæruliðahernað á stórum svæð-
um í landinu. Því er bætt við,
að Indónesíu stjórn hamri sífellt
á óeirðafréttum frá kínverska
Alþýðulýðveldinu til að reyna að
draga athygli manna frá því,
sem sé að gerast í þeirra eigin
landi.
að opna fjallvegi á Snæfellsnesi
og vestur í Dali um Bröttu-
brekku og eins Norðurlandsveg,
en verið getur, að það dragist
fram á miðvikudag, ef veður
hamlar.
Siötuqs-
aimæli
SJÖTUGUR er í dag Sigurjón
Sigurbjörnsson Hringbraut 103,
aðalbókari hjá Bæjarútgerð
Reykjavíkur.
Hann verður staddur að heim
ili sonar síns, Einars Sigurjóns-
sonar, Me staravöllum 7.
Afmæliskveðja til hans, mun
birtast í blaðinu síðar.