Morgunblaðið - 20.02.1968, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 20.02.1968, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 190« Frá umrœðum um hraðfrystiiðnaðinn: 45 milljdnir greiddar til frystihús- anna á næstunni — til þess að auðvelda rekstur þeirra á vertíðinni — Sjávarútvegsmálaráðherra gagnrýnir forustumenn hraðfrystiiðnaðarins í RÆÐU í Efri deild Alþing- is í gær gagnrýndi Eggert G. Þorsteinsson all harðlega forustumenn hraðfrystiiðnað arins, sem hann sagði að hefðu „á undanförnum árum mjög ýkt erfiðleika hans í kröfum sínum til stjórnar- valdanna og í almennum áróðri.“ Ráðherrann sagði ennfremur að „af hálfu for- ustumanna iðnaðarins hefði orðið vart verulegrar tregðu tfl þess að horfast í augu við þan raunverulega vanda, sem iðnaðurinn stendur frammi fyrir og takast á við þann vanda með raunhæfum aðgerðum. f stað þess hefur stöðugt verið leitað á náðir ríkisvaldsins um aukna að- stoð og hótunum og jafnvel hreinum ofbeldisaðgerðum beitt til að fylgja fram mál- um sínum.“ f ræðu sinni sagði sjávarútvegsmálaráð- herra einnig, að þjóðarnauð- syn væri að búa frystiiðnað- invim þau starfsskilyrði, að hann gæti vaxið og dafnað. Sjávarútvegsmálaráðherra flutti ræðu sína við fyrstu uim- ræðu í efri deild um frv. um ráðstafanir vegna sjávarútvegs- ins og rakti í upphafi þróun mála sl. fjögur ár en gerði síð- an grein fyrir viðhorfunum í málefnum hraðfrystihúsanna síð ustu vi'kur, og sérstaklega í sam bandi við gengislækkunina í nóv. Kvaðst ráðherrann vilja rifja upp nokkur meginatriði varð- andi gengislækbunina og afkomu sjávarútvegsins. í fyrsta lagi: af- koma þorskveiðanna í heild og hraðfrystiiðnaðarins sérstaklega, gat ekki ráðið úrslitum við á- kvörðun hins nýja gengis. í öðru lagi: Mikil óvissa var ríkj- andi í nóvember um verðlags- þróun íslenzkra sjávarafurða á næstunni og er það raunar enn. 1 þriðja lagi: Mikil óvissa hlaut að vera ríkjandi um afkomuhorf ur fiskvinnslunnar þar til fisk- verð hefði verið ákveðið og allar þær upplýsingar lægju fyrir sem safnað er og unnið úr í sam bandi við þá ákvörðun. f fjórða lagi: Á meðan samningum um fiskverð var ólokið mátti af rík- isvaldsins hálfu ekki með nokkru móti gefa til kynna hvort eða að hve miklu leyti eðlilegt gæti talizt að þorskveiðar eða fisk- vinnsla nytu áfram opinbers stuðnings. Sjávarútvegsmálaráðherra sagði að með tilliti til þessara staðreynda þyrfti engan að undra að gengisbreytingin hefði ekki tryggt hallalausan rekstur frystihúsanna, það hefði verið vitað frá upphafi. Hins vegar hefði nauðsynlegur stuðningur reynzt meiri en ástæða hefði ver ið til að ætla fyrir nokkrum mánuðum. Hefði verðþróun íslenzkra afurða reynzt óhag- stæð síðan gengisbreytingin var ákveðin og hefði hún brugðizt honum sem byggðar hefðu ver- ið á varfærni. Þar er fyrst og fremst um að ræða verðlækkun frystna fiskafurða í Sovétríkjun um saigði Eggert G. Þorsteinsson og einnig að engin hreyfing er enn upp á við á verði mjöls og lýsis nema síður sé. Ennfremur hefur afkoma frystihúsanna reynzt enn lakari en ástæða var til að ætla í nóvember. Aðstoðin við hraðfrystiiðnað- inn nemur 198 milljónum. Er ætlunin að hún skiptist þannig að 25 milljónir gangi til sénstakr ar viðbótar á verð línufisks. Um 148 milljónir munu verða greidd ar hraðfrystihúsunum í hlutfalli við verðmæti framleiðslu þeirra á árinu 1968 og er æthinin að tæpur þriðjungur þessarar upp- hæðar verði greiddur nú sem allra fyrst til þess að auðvelda það að rekstur frystihúsanna Framhald á bls. 27. Stjórnarfrumvarp: Hætt verði að byggja em- bættisbústaði í þéttbýli - embœttisbústaðir seldir - samrœming gerð á húsaleigu- greiðslu embœttismanna Á FUNDI í efri-deild Alþingis í gær mælti Magnús Jónsson, fjár málaráffherra fyrir stjórnar- Frystihúsin án stuðnings: 250 milljóna netatjón — hefði leitt til rekstrarstöðvunar f GREINARGERÐ fyrir frv. rík- isstjórnarinnar um ráffstafanir vegna sjávarútvegsins er gerff grein fyrir áætlunum um af- komu frystihúsanna á þessu ári og jafnframt birt samanburffar- tafla yfir afkomu þeirra 1966. Þessi tafla fyigir hér aff ofan en hér fer á eftir sá kafii í grein- argerff frv., sem fjailar um af- komu frystihúsanna þessi tvö ár: í meðfylgjandi töflu er sýnt yfirlit um afkomu hraðfrysti- húsanna á árinu 1966 og áætlun um afkomu þeirra á árinu 1968. Er taflan byggð á ni’ðurstöðum athugana Efnahagsstofnunarinn- ar og nær til 68 hraðfrystihúsa, er framleiddu um 87% af heild- arframleiðsluverðmæti iðnaðar- ins á árinu 1966. það útflutn- ingsverðlag, sem ríkjandi var um sl. áramót og það verðlag og kaupgjald, sem ríkjahdi er imn- anlands í febrúarmánuði. Auk þess að sýna afkomu allra 68 húsanna, sýnir taflan sérstak- lega afkomu þeirra 20 húsa, sem bezta afkomu höfðu á árinu 1966, þeirra 20 húsa, er lakasta afkomu höfðu, og þeirra 28 húsa, er höfðu miðlungs afkomu. Á- ætlanir hafa einnig veri'ð gerð- ar um afkomu þessara þriggja hópa á árinu 1968. Eins og yfirlitið ber með sér var afkoma húsanna slæm á ár- inu 1966. Þrátt fyrir þá opin- beru aðstoð, sem húsin fengu á því ári og talin er með í tekj- um þeirra, var brúttóhagnaður húsanna 68 aðeins 25% af af- skriftum, stofnvöxtum og leig- um og nettótap, er nam 79 m. kr. Stakk hér mjög í stúf við árin 1964 og 1965, er munu hafa verið ein beztu ár þessa iðn- aðar, en þau ár varð verulegur hreinn hagnaður á rekstrinum. Jafnframt er Ijóst, hversu mikill munur er á rekstri húsanna inn- byrðis. Þau 20 hús, er bezta af- komu höfðu, voru rekin með nokkrum nettóhagnaði, en þau 20, er lakasta afkomu höfðu, með gifurlegu nettótapi, enda var velta þessara húsa aðeins helmingur af veltu þeirra 20 beztu, enda þótt stærð húsa í þessum tveimur hópum sé svip- uð. Eins og áætlunin fyrir árið 1968 ber með sér, hefði afkom- an enn versnað mjög á því ári, ef til sérstakrar opinberrar að- stoðar hefði ekki komið. Jafn- vel 20 beztu húsin myndu hafa verið rekin með brúttótapi, þannig a'ð þau hefðu átt minna en ekkert upp í afskriftir og stofnvexti. Nettótap alls iðnað- arins er áætlað yfir 250 m.kr. Er auðséð, að slíkt ástand hefði leitt til algerrar rekstrarstöðv- unar. Sú opinbera aðstoð til iðn aðarins, sem hér er farið fram á heimild til þess að inna af hendi mun bæta afkomuna mjög mikið. Er aðstoðin miðuð við það, að 20 beztu húsin séu rek- in án nettótaps, þannig að þau eigi að fullu fyrir afskriftum, leigum og stofnvöxtum, en held- ur ekki umfram það. Afkoma iðnaðarins í heild mundi vera nokkru lakari en á árinu 1966, þar sem brúttóhagnaður mundi aðeins svara til 15% af afskrift- um, leigum og stofnvöxtum sam anborið við 25% á árinu 1966. Afkoma húsanna í miðið myndi þó vera nokkru betri en 1966, enda gert ráð fyrir, að þau njóti hlutfallslega nokkru meiri að- stoðar en önnur hús. Á hinn bóg- inn verður að gera ráð fyrir, að rekstur margra lökustu hús- anna hætti, eða um sameiningu eða samvinnu við önnur hús verði að ræða. Sú afkoma sem húsunum með þessu móti yrði búin á árinu 1968, getur að sjálfsögðu ekki verið framtíð- argrundvöllur. Það er þó aðeins endurskipulagning iðnaðarins af því tagi, sem nú er hafin, sem getur skapað slíkan grundvöll og nokkur tími hlýtur að líða, þar til hún hefur verið fram- kvæmd og árangur hennar hef- "r komið í ljós. frumvarpi er fjallar um breyt- ingu á lögum um íbúðarhús- næffi í eigu ríkisins. ' í ræffu ráffherra kom fram aff 'mikiff ósamræmi er í gildandi lögum um byggingu embættis- bústaða, og reyndar ekki til laga ákvæffi um bústaði fyrir sum em bætti. Frumvarpiff miffar aff þVi, aff hætt verffi aff byggja embættis- 'bústaffi, nema í þeim landshlut- um þar sem sérstakir staffhættir gera slíkt nauffsynlegt, og aff em hættisbústaffir verffi seldir. Þá Verffi ennfremur settar sam- ræmdar reglur um húsaleigu- greiffsiur embættismanna. Frum varpiff gerir ráff fyrir því, aff lög þessi taki gildi efti því sem húverandi embættismenn hætta störfum, þannig aff þeir missi ekki hlunnindi sín. f ræðu sinni sagði Magnús Jónsson m.a., að um embættis búsitaði hefðu gilt margar mis- munandi löggjafir og segja mætti, að það værí óeðlilegt að ekki væri tekið til gagngerðar athugunar og grundvallarbreyt- ingar þau sjónarmið sem gilt Ihefðu um bústaðina. Meðan til- tölulega fáir embætismenn voru, ‘náði þessi löggjöf til þeirra að verulegu leyti, en nú eru orðin mörg embætti sem eru utan þessa kerfis, þótt segja megi, að það séu alveg jafngild rök fyr- ir því að þeir embættismenn nytu þessara hlunninda. Til undirbúndngs á þessu máli var fulltrúum frá þeim ráðuneyt um sem embættisbústaðir falla undir, falið að rannsaka þetta mál og gera síðan tillögur um hvernig hægt værj að samræma gildandi ákvæði við núverandi viðhorf og aðstöði* í sambandi við stjórnsýslukerfið. Núgildandi regiur Ráðherra vék síðan að núgild- andi reglum og lagaákvæðum um embættisbústaði og sagðj m. a.: Um embættisbústaði héraðs- dýralækna er í lögum frá 1957 mælt svo fyrir, að ríkisstjórnin skuli þar til ful'lnægt er hús- •næðisþörf þeirra láta byggja eft 'ir því sem fé er veitt til í fjár- lögum, íbúðarhús handa héraðs- dýralækni. Bústöðum eða íbúðum hefur verið komið upp fyrir kennara og skólastjóra bændaskólanna og garðyrkj.uskóla ríkisins. Það er ekki séð, að nein lagaákvæði gildi um þessa bústaði, en þar sem skólarnir eru staðsettir úti á landi, hefur það reynzt sjálf- gert, að reyna að koma slíkum bústöðum upp. Sama er að segja um húsmæðraskóla í sveit um, o g ennfremur um sand- græðslu ríkiisins í Gunnarsholti. Framhald á bls. 27. Afkoma hraðfrystihúsa 1966 ásamt áætlun. fyrir 1968. Miðað við 68 hús. 1966 1968 68 hús 20 heztu 28 miðhús 20 lökustu 68 hús 20 beztu 28 miðhús 20 lökustu Tekjur m.kr. 1822 667 836 318 1952 715 893 344 Gjöld: Hrácfniskostnaður m.kr. 909 328 418 162 1 079 388 408 193 Annar breytilegur kostn. m.kr. 773 263 356 154 883 301 407 176 Viðhald og viðgerðir .... m.kr. 63 21 31 11 71 24 34 12 Rekstrarvextir m.kr. 45 12 17 15 52 14 20 18 Tekjuskattur m.kr. 4 2 3 — — — — — 1795 626 825 342 2 085 727 959 399 Brúttóhagnaður m.kr. 27 41 11 -f- 24 •4-133 4- 12 -j- 66 4- 55 Afskriftir, stofnvextir og lcigur . m.kr. 106 31 45 30 121 35 52 34 Hreinn hagnaður m.kr. ~ 79 10 -í- 34 -4- 54 4-254 4- 47 4-118 4- 89 Brúttóhagnaður í hlutfalli við afskriftir og stofnv ... % 25 132 25 -f- 80 4-110 4- 34 4-127 4-162 Áætlað framlag1) m.kr. 151 47 81 23 Afkoma að fengnu framlagi: — — — — Brúttóhagnaður m.kr. 18 35 15 4- 32 Hreinn hagnaður ........ m.kr. 4-103 0 4- 37 4- 66 Brúttóhagnaður í hlutfalli við afskriftir og stofnv % 15 100 29 4- 94 1) Miðað við að 87% af lieildarframlagi að upphæð 173 m.kr. komi i hlut l»essara 68 húsa. Af þessari upphæð skiptist 148 m.kr. hlutfallslega eftir framleiðsluverðmæti, en 26 in.kr. komi i hlut „miðhúsa'*.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.