Morgunblaðið - 20.04.1968, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1908
Hetnd sovézkra yfirvalda:
20 manns
kommúnistaflokknum
— fyrir stuðning við Ginzburg og félaga
hans. Aðrir reknir úr stéttarfélögum og
sviptir fríðindum. Brezhnev boðar
harðar refsingar þeim, er láti uppi
óánœgju og mótmœli
| ÞÆR fregnir berast nú
frá Moskvu, að tuttugu
manns, sem skrifuðu und-
ir mótmælaskjöl til yfir-
Brezhnev.
valdanna vegna dómanna
i yfir Aleander Ginzburg og
i félögum hans á dögunum,
hafi verið reknir úr sov-
ézka kommúnistaflokkn-
um. — Meðal þeirra eru
margir vísindamenn, bók-
menntamenn og listamenn
og flestir eru þeir úr
flokksdeildunum í Moskvu,
Leningrad og Akademgor-
od, vísindamiðstöðinni í
Síberíu.
Síðastliðinn þriðjudag tók
hæstiréttur Sovétlýðveldisins
Rússlands til meðferðar áfrýj-
un hinna dæmdu og vísaði
málinu frá, óbreyttu, eftir all-
langan fund. Ekki er vitað
hva'ð þar fór fram, því hvorki
voru þar viðstaddir hinir á-
kærðu, ættingjar þeirra, vinir
eða fréttamenn, sem vænta
mætti að flyttu sannar frá-
sagnir af fundinum.
Ljóst er nú orðið, að sov-
Ginzburg.
ézka leyniþjónustan skrifaði \
hjá sér nöfn allra þeirra, er \
skrifuðu undir mótmælaskjöl í
vegna réttarhaldanna og dóm- /
anna í máli Ginzburgs Oig fé- ;
laga. Síðan hefur hún sent «
nöfn þessi til flokksdeildanna (
í heimahögum viðkomandi að í
ila og stjórnir þeirra séð um 7
að afgreiða brottrekstur \
þeirra úr flokknum. Vita'ð er, (
að fólkið, sem skrifaði undir, í
var kallað á sérstaka viðræðu 7
fundi, áður en gengið var frá \
brottvikningunum, og því gef k
inn kostur á að sjá sig um i
hönd og „iðrast" opinberlega. 7
Nokkrir gerðu það, og sögðu, I
að dr. Pavel Litvinov, vinur t
Ginzbergs, er stóð fyrir imd- (
irskriftasöfnununum, hefði /
véláð þá til að skrifa undir. \
En flestir stóðu við það, sem 1
þeir höfðu gert. Aðrir fundir i
voru haldnir til þess að ræða /
framkomu óflokksbundinna \
manna vegna málsins og hef- 1
ur nokkrum þeirra verið vís- (
að úr stéttafélögum þeirra og /
þeir sviptir ýmsum fríðindum. 7
| Flokksstjórnin hefur það \
sem af er þessu ári, hert (
töluvert tök sín á mennta- og l
listamönnum sovézkum og er 7
svo að sjá, segja fréttamenn í \
Moskvu, sem henni hafi tekizt \
að þagga um sinn niður í öll- í
um mótmælaröddum. Og talið 7
er víst, að viðkomandi aðilar 1
hafi allir verið sviptir flokks-
skírteinum sinum, áður en
aðalritari flokksins, Leonid
Brezhnev, lýsti því yfir 29.
marz sl., að þeir, sem hefðu
uppi óánægjuraddir og mót-
mælastarfsemi gegn stefnu og
ákvörðunum yfirvaldanna,
hvort heldur þeir væru flokks
bundnir eða ekki, yrðu „látn-
ir sæta harðri refsingu fyrir
skammarlega starfsemi sína“,
eins og flokksritarinn komst
að orði.
Strokufangi frá Missouri eftir-
iýstur vegna morösins á dr. King
Rétt nafn „Galts", sem grunaður er um
morðið, er James Earl Ray
Wasihington, 19. apríl
(AP-NTB)
BANDAWÍSKA ríkislögregl-
an, F.B.I., skýrði frá því í dag
að maðurinn sem eftirlýstur
er fyrir morð á dr. Martin
Luther King og gengið hefur
undir nafninu Eric Starvo
Galt, héti í rauninni James
Earl Ray, væri 40 ára og
strokufangi frá ríkisfangels-
inu í Missouri.
Talsmaður FBI sagði að lög-
reglan hefði komizt að réttu
nafni Rays með rannsóknum á
fingraförnum, sem fundizt höfðu
á morðstaðnum í Memphis. Voru
fingraför þessi borin saman við
fingraför 53 þúsund eftirlýstra
glæpamanna í skjalasafni ríkis-
lögreglunnar, og kom þá í ljós að
„Galt“, sem notað hefur fleiri
fölsk nöfn, var James Earl Ray.
Ray þessi er frá Alton í Uii-
nois. Hann hætti ungur námi, og
frá febrúar 1946 þar til í desem-
ber 1948 gegndi hann hérþjón-
ustu, en var rekinn úr hernum
vegna getuleysis. Meðan á her-
þjónustunni stóð var hann dæmd
ur til þriggja mánaða þrælkun-
arvinnu fyrir drykkjuskap. Eft-
ir að hann gerðist á ný óbreytt-
ur borgari komst hann fljótt í
kynni við lögregluna. Hann var
fyrst handtekinn 1949, og þá
dæmdur fyrir innbrot í Los Ang-
eles. Hann var dæmdur árið
1962 í Chicago fyrir rán, og var
þá vopnaður er hann drýgði
glæpinn. 1955 var hann svo hand
tekinn í Missouri og dæmdur
fyrir að falsa póstávísanir. Vitað
er að hann hefur „gist“ fangelsi
í Los Angeles í Kaliforníu,
Joliet og Pontiac í Illinois, og
Leavenworth í Kansas.
Talsmaður FBI segir að meðal
þeirra nafna, sem Ray hefur not
að á glæpaferli sínum, séu Jam-
es Walton, W. C. Herron og Jam
es O’Conna.
Ray segist vera fæddur í Tlli-
nois 10. marz 1928. Hann er 175
sentimetra hár og vegur 73-78
kíló. Hann er bláeygur með dökk
leitt hár og ör á enninu. Hann
Þeíta er mynd af „Eric Starvo
Galt“ ,sem FBI hefur birt. Aug-
un eru hér teiknuð inn á mynd-
ina, því hún er gerð eftir ljós-
mynd þar sem „Gait“ var með
lokuð augu.
Vér morðingjar
Frumsýning í kvöld
í dag eru liðin 18 ár frá því að Þjóleikhúsið tók til starfa. Þetta
kvöld verður frumsýning í Þjóðleikhúsinu á hinu þekkta leikriti
Guðmundar Kambans. Vér morðingjar, en þann 8. júní n. k. eru
liðin 80 ár frá fæðingu Guðmundar Kambans. Leiksjóri er Benedikt
Árnason, en aðalhlutverkin eru leikin af Kristbjörgu Kjeld og
Gunnari Eyjólfssyni og er myndin af þeim í hlutverkum sínum.
Efri-deild Alþingis ólyktnr t
nm Vietmom
EFRI deild Alþingis sam-
þykkti í gær með fimmtán
samhljóða atkvæðum þings-
ályktun um ófriðinn í Víet-
nam. Segir í ályktuninni, að
stór hætta sé á, að styrjöld
þessi geti, hvenær sem er,
breiðst út og orðið upphaf
nýrrar heimsstyrjaldar. Fagn-
að er ákvörðun Bandaríkj-
anna um takmörkun loftárása
á Norður-Víetnam og sagt, að
hún megi einskis láta ófreist-
að að ná samkomulagi um
frið.
Tillagan hljóðar svo:
Deildin ályktar að lýsa yf-
ir þeirri skoðun sinni, að
deiluefni styrjaldaraðila í
Víetnam beri að leysa með
friðsamlegum hætti.
Stór hætta er á því, að
styrjöld þessi geti hvenær
sem er breiðst út og orðið
upphaf nýrrar heimsstyrjald-
ar, auk þess sem áframhald-
andi styrjaldarrekstur eykur
sífellt langvarandi hörmungar
víetnömsku þjóðarinnar.
Með þeirri takrnörkun loft-
árása á Norður-Víetnam, sem
ríkisstjórn Bandaríkjanna hef
ur nýlega ákveðið, og þeim já
kvæðu viðbrögðum, sem
stjórnin í Hanoi hefur sýnt í
deilunni. Má einskis láta ó-
freistað til að nota þetta tæki-
færi sem bezt, svo að vopna-
hléi og viðræðum um friðar-
samninga verði komið á. Tel-
ur deildin, að þessu verði nú
helzt fram komið með því:
1. að ríkisstjóm Bandaríkj-
anna stöðvi allar loftárás-
ir á Norður-Víetnam, en
jafnframt dragi stjórn
Norður-Víetnam, og Víet
Cong-hreyfingin úr sóknar
aðgerðum af sinni hálfu og
láti þannig í ljós ótvíræð-
an vilja til að ganga til
samninga;
2. að auk ríkisstjórnar Banda
ríkjanna og ríkisstjórnar
Norður-Víetnam verði rík
istjórnin í Saigon og Víet
Cong-hreyfingin aðilar að
samningsgerðinni;
3. að öflugu sáttastarfi í deil-
unni verði haldið uppi á
vettvangi Sameinuðu þjóð-
Felur deildin ríkisstjórninni
að framfylgja þessari ályktun
á alþjóðavettvangi.
hefur starfað aðallega sem bak-
ari og verkamaður, en mikið
verið á flækingi.
Lögreglan í Bandaríkjunum
hefur leitað Rays fráþví 20. júlí
í fyrra, þegar hann var skráður
hjá FBI sem eftirlýstur flótta-
maður frá ríkisfangelsinu í Jeff-
erson City í Missouri. Þaðan
strauk hann 23. apríl í fyrra eft-
ir að hafa setið inni í rúm sjö ár.
Var hann dæmdur til tuttugu ára
fangelsisvistar fyrir rán, og hóf
afplánun dómsins 17. marz 1960.