Morgunblaðið - 20.04.1968, Blaðsíða 8
1
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1068
Nauðtmganippboð
Eftir fcröfu bæjarfógetans í Kópavogi og GjaMheimt-
unnar í Reykjavík fer fram nauðungaroppboð að
Síðumúla 17, hér í borg, miðvikudagÍDn 24. apríl n.k.
kl. 10.30 árdegis og verður þar selt: Raíkn. borvél, loft-
pressa, 3 rennibekkir og 1 stór rennibafckur, talið eign
Eysteins Leifssonar h.f.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
______________Borgarfógetaembættið i Reykjavík.
Nauðmigaruppboð
Eftir kröfu Árna Guðjónssonar hrl., og Gjalcfheiant-
unnar í Reykjavík fer fram nauðungaruppboð að Lang-
holtsvegi 89, hér í borg, miðvikudagmn 24. apríl n.k.
kl. 11 árdegis og verður þar selt: Kæliborð Levin,
frystiborð og búðarvog, talið eign Holtskjörs h.f.
Langholtsvegi 89.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
______________Borgarfógetaemhættiff í Reykjavík.
ÚTBOÐ
Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í að byggja dælu-
hús, undirstöður véla, leiðslustokk o. fl. fyrir gas-
aflstöð í nágrenni Straumsvíkur, og er tilboðsfrestur
til 6. maí n.k. útboðsgögn eru afhent í skrifstofu
Lauidsvirkjunar, Suðurlandsbraut 14, Reykjavík,
gegn skilatryggingu að fjárhæð kr. 2.000,—.
Reykjavík. 10. apríl 1968.
LANDSVIRKJUN.
I.O.G.T.
Þingsfúha Reykjnvíkur
Aðalfundur þingstúlku Reykjavíkur verður settur
í Góðtemplarahúsinu við Templarasund, laugar-
daginn 20. apríl 1968 kl. 2 e.h. stundvíslega.
Dagskrá: Stigveiting.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Þ. T.
BLADBURÐARFOLK
OSKAST
í eftirtaíin hverfi
AÐALSTRÆTI,
Talið við afgreiðsluna i sima 10100
■ i
Stuðningsmenn
GUNNARS THORODDSEN
haía opnað
SKBirSTOFU
í Pósthússtræti 13,
sími 84500
Stuðningsfólk!
Hafið samband
við skrifstofuna.
Meff því aff gerast umferffar- vörffur, verffur auffveldara fyr-
ir þig að aðlagast breyttum akstursháttum með tilkomu
hægri umferðar.
Umferðarveriirnir
LEITAÐ hefur verið til al-
mennings um að gegna sjálf-
boðaliðsstörfum við umferðar-
vörzlu á H-daginn, 26. maí til
2. júní. Umferðarverðir geta
allir orðið sem eru 15 ára og
eldri. Gert er ráð fyrir, að um
1600 sjálfboðaliða þurfi til
starfa á öllu landinu, þar af
um 1450 á höfuðborgarsvæðinu
SVEINN KRISTINSSON SKRIFAR UM:
KVIKMYNDIR
Tónabíó
Goldfinger
Ensk mynd, gerff eftir sögu
Jan Flemmings
Leikstjóri: Guy Hamilton
Vafalaust hefur flestum kvik-
myndahússgestum orðið léttir að
því, er milljónarinn „Goldfing-
er“ komst að þeirri niðurstöðu,
að hann hefði enn um stund
betri not af James Bond lifandi
en dauðum og hætti því við að
saga hann kvikan í sundur. Eins
og málin skipast í kvikmynd-
inni, er þó ekki ótrúlegt, að
milljónarinn, sem var flestum
glæpamönnum snjallari, grimm-
ari og hugvitssamari, hafi iðrazt
þessarar ákvörðunar sinnar, hafi
hann þá ekki verið upphafinn
yfir hvers konar iðrun yfirleitt
— f öllu falli er það þessari
ákvörðun Goldfingers að þakka,
að James lifir enn og er við
beztu heilsu, að því er áreiðan-
legar fregnir herma.
Þótt Goldfinger væri auðugur
maður og því sennilega ekki
ýkja hlynntur „alræði öreig-
anna“, þá kom það ekki í veg
fyrir, að hann höndlaði við Kína
komma, fengi meðal annars frá
þeim kjarnorkuvopn. Þar fóru
líka hagsmunir beggja aðilja sam
an, því ætlunin var að ráðast á
„Knoxvirki“ í Bandaríkjunum,
þar sem þarlendir menn geyma
gullforða sinn. Taugagas átti að
gera verjendur virkisins óvíga
í einn sólarhring, og er virkið
væri á valdi liðsveita Goldfing-
ers, átti að gera gullforðann,
sem var jafnvirði fimmtán millj-
arða dollara, geislavirkan um
rösklega hálfrar aldar skeið. —
Þetta taldi Goldfinger, sem var
óhemju duglegur gullsafnari, að
mundi fjórfalda verðgildi þess
gulls, er hann sjálfur átti og
væntanlega hefði Mao grátið
tjón Johnsons þurrum tárum.
En sú ákvörðun Goldfingers
að hætta við að kljúfa Bond að
endilöngu, gerði framkvæmd þes
arar áætlunar allmiklu torveld-
ari en hann hafði vænzt, enda
er ekki vitað annað en megin-
hluti áðurnefnds gulls sé enn
ógeislavirkur, þrátt fyrir ítrek
aðar tilraunir De Gaulles til að
grafa undan dollaranum.
Ef dæma skal eftir fyrri mynd
um um James Bond, sem hér
hafa verið sýndar, þá þarf vart
að draga í efa, að mynd þessi
nái hér vinsældum, einkum meðal
yngri fólks. Hún býður upp á
„áhrifamikil" atriði: kaldrifjuð
manndráp, tæknileg forvitnileg
áhöld, sem þjóna raunar ekki
ávallt sem beztum tilgangi, og
einnig bregður þar fyTÍr „sæng-
ursenum", að vísu í nokkuð gam
aldags stíl.
Allt þetta mun styðja að vin-
sældum hennar meðal ungling-
anna, en siðprútt eldra fólk stíg
ur trúlega upp á kassa og hefur
uppi mótbárur gegn því, að ung-
lingum sé veitt sýnikennsla í
því að kyssa, berja eða drepa
annað fólk. — En það er víst
lítið við þessu að gera. Bond
virðist hafa orðið svo fastmótaða
lifnaðarhætti og starfsvenjur, að
það væri líklega erfitt fyrir hann
að taka upp nýjar, þó hann ósk-
aði þess, enda gerir starf hans
ýmsar þær kröfur til hans, sem
fólk úr öðrum starfsstéttum þarf
ekki að uppfylla.
Sem sagt: James Bond er lif-
andi enn og tekur á móti gestum
í Tónabíói kl. 5 og 9 daglega.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 66., 68. og 71. tbL Lög-birtingablaðs
1967 á hluta í Bjargarstíg 15 þingl. eign Áka Jakohs-
sonar hrl., fer fram eftir kröfu Búnaðarbanka íslands
o. fl. á eigninni sjálfri, þriðjudaginn 23. apríl 1968,
kl. 2 síðdegis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
svonefnda, Reykjavík, Hafnar-
firði, Garðahreppi, Kópavogi,
Seltjamamesi og Mosfellssveit.
1 Reykjavík verður umferðar-
varzla á um 100 stöðum, oig
mun til þeirra starfa þurfa 1000
sjálfboðaliða. í Reykjavík ann-
ast Umferðamefnd Reykjavík-
ur útvegun umferðarvarða, og
fyrir hönd hennar Fræðslu- og
upplýsingaskrifstofa Umferðar-
nefndar Reykjavíkur, sem safn
ar og skráir sjálfboðaliða. I
öðrum byggðarlögum er slíkt í
höndum löggæzluyfirvalda. Lög
reglan hefur yfirumsjón með
framkvæmd umferðarvörzlunn
ar.
Umsjón með framkvæmd um
ferðarvörzlunnar á hverjum
stað hefur flokksstjóri, og er
hann tengiliður lögreglu og
umferðarvarðanna sjálfra. Þá
hefur hann og umsjón með
vaktaskiptum umferðarvarða
og er ábyrgur fyrir hópnum.
Flokksstjórar, sem einnig eru
sjálfboðaliðar, verða m.a. úir
slysavarna- og hjálpaTsveitum,
svo og frá íþróttafélögum.
Starf umferðarvarða er fólg-
fð í því að veita gangandi veg-
farendum aðstoð, leiðbeina
þeim og stjórna umferð þeirra.
Umferðarvörður hefur engin
afskipti af umferð ökutækja.
Umferðarvörður verður búinn
hvítum ermahlífum. Hann verð
ur staðsettur þar, sem umferð
gangandi vegfarenda er mest, og
beinir umferð þeirra yfir ak-
brautina á einn stað. Til merk-
is um að umfer’ðin á akbraut-
inni leyfi að gjmgandi vegfar-
endur fari yfir akbrautina hef-
ur hann hendur niður með síð-
um, en gefur merki um að um-
ferðin á akbrautinni leyfi ekki
umferð gangandi yfir akbraut-
ina með því að halda höndum
út frá öxlum.
Umferðarverðir í Reykjavík
munu fá sérstaka þjálfun lög-
reglunnar, sem mun hafa stutt
námskeið fyrir alla umferðar-
verði. Þá munu og þeir, sem
skrá sig til umferðarvar'ða-
starfa, fá sent upplýsingarit
um starfið.
Lögreglan í Reykjavík hefur
gert athugun á því, á hve mörg
um stöðum í borginni umferð-
arvarzla verður. Samkvæmt
þeirri athugun verður um-
ferðarvarzla á 100 stöðum í
borginni. Stöðunum er skipt í
tvo hópa eftir þörf staðanna
fyrir umferðarvörzlu. I fyrsta
lagi er um að ræða staði, þar
sem stöðug umferðarvarzla
veTður á tímanum frá 08.30 til
18.30 dag hvern, en í öðru lagi
eru staðir, þar sem umferðar-
varzla verður á þeim tíma, er
umferð gangandi er mest, svo
sem er fólk fer úr og í vinnu,
við kvikmyndahús, sjúkrahús
o. fl.
Efnt er til happdrættis með-
al umferðarvarða um allt land.
Vinningar eru 10, fimm eru
vikudvöl í Bandaríkjunum í
boði Loftleiða, en fimm eru
vikudvöl í skíðaskólanum í
Kerlingarfjöllum.
Eins og áður segir annast
Fræðslu- og upplýsingaskrif-
stofa Umferðarnefndar Reykja-
víkur útvegun og skráningu
sjálfboðalfða. Fer skráning
fram daglega í síma 83320.
Upplýsingarit um starf um-
ferðarvarða liggur frammi á
pósthúsum, lögreglustöðvum og
víðar.
Allar
gerdir
Myndamóta
■Fyrir auglýsingar
•Btekur og timarit
• Litprentun
Minnkum og Stcekkum
OPÍÐ frá kl. 8-22
MMDANÓT fcf.
simi 17152
MORGUNBIAÐSHUSINU •