Morgunblaðið - 20.04.1968, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 20.04.1968, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1968 13 ICve nnadá Ik -I W f^»^*** Unga stúlkan og eldhússtörfin í HAUST var gefin út bók á vegum Ríkisútgáfu námsbóka, sem nefnist „Unga stúlkan og eldhússtörfin", og er ætluð til kennslu í hússtjórn á skyldu- námsstiginn. Höfundar bókcir- innar eru húsmæðrakennararnir Vilborg Björnsdóttir og Þorgerð ur Þorgeirsdóttir. Þar sem okkur virðist bókin alveg sérlega aðgengileg og skemmtilega saman sett, er ó- hætt að benda á, að hún er mjög vel hæf til notkunar fyrir ungar húsmæður, ásamt auðvitað að henta þeim aldri., sem hún er ætluð. í bók þessari er komið víða við Iögð áherzla á einfaldar vinnu- aðferðir, hélzztu fæðutegundina kynntar ásamt meðferð þeirra. Kaflar bókarinnar eru m. a. þessir: Dagleg störf í eldhúsi, Uppþvottur, fskápur, Að leggja á borð, Borðsiðir, Að ganga um beina, Mjólk og grjón, Mál og vog, Ábætisréttir, Grænmeti og grænmetisréttir, Fiskur og fiski- réttir, Leiðbeiningar um ger- bakstur, Hirðing líkamans, Press un á pilsi, Þvottur á ullarpeysu, Hreinsun á skófatnaði. í bók- inni er tafla um helztu næringar efnin og fæðutegundir, sem nauð synlegt er að hafa á borðum daglega. Margar góðar uppskriftir eru í bókinni, og virðist þær eiga það sameiginlegt, að auðvelt er að fara eftir þeim og að kostn- aði við tilbúning réttanna er stillt mjög í hóf. Við höfum feng- ið leyfi höfunda til að birta hér nokkrar mataruppskriftir úr bók inni, ef einhver vildi reyna. Vonandi eignast sem flestar ungar stúlkur þessa handhægu bók, því eins og höfundar segja í formála: „flest störf krefjast þekkingar, og eru heimilisstörf- in þar sízt undantekning. Konur þurfa að afla sér henn- ar á unga aldri og æfa saman hug og hönd, þá verða störfin léttari og ánægjulegri og nýt- ing tíma og fjármuna betri“. Blandað salat. 1—2 gulrætur 100—150 gr. hvítkál 1—2 epli 1— 2 matsk. púðursykur safi úr hálfri sítrónu Grænmetið er þvegið og flysj- að, síðan rifið niður á rifjárni. Öllu blandað vel saman í skál, púðursykri og sítrónusafa bætt í eftir smekk. Gulrótasalat með rúsínum. 2— 3 gulrætur 2 matsk. rúsínur 1—2 matsk. sykur !4 sítróna Gulræturnar eru hreinsaðar og rifnar smátt. Saman við þær er blandað smátt skornum rúsínum sykri og sítrónusafa. í staðinn fyrir rúsínur má nota epli. Gulrófu- og appelsínusalat. 200 gr. gulrófur 1 appelsína 1 matsk. sykur !4 sítróna Gulrófurnar eru þvegnar, flysj aðar og rifnar smátt. Appelsín- an er flysjuð og skorin í litla þita. Appelsínum og gulrófum er blandað saman ásamt sítrónu- safa og sykri. í staðinn fyrir appelsínu má nota epli. Hvítkálssalat I. 200 gr. hvítkál 1 appelsina 1 matsk. púðursykur 4 fíkjur ef vill Hvítkálið skorið niður í litla bita eða rifið á grófu rifjárni. Appelsínan er flysjuð og skor- in í bita, blandað saman við hvít kálið ásamt sykrinum. Ef fíkjur eru notaðar í salatið, eru þær þvegnar og skornar í þunnar sneiðar. Hvitkálssalat. II. 200 gr. hvítkál !4 bolli brytjaðar rúsínur eða fíkjur !4 bolli súrmjólk, 1 matsk. púðursykur Hvítkál er skorið í litla bita eða rifið á grófu rifjárni, rúsín- Hrá salöt. Hrá salöt eru búin til úr alls konar hráu grænmeti og nýjum eða þurrkuðum ávöxtum. Þau eru mjög holl og góð og ættu að vera á borðum daglega með heitum eða köldum mat. Þau gera máltíðina lystugri og fjöl- breyttari auk þess verður mat- borðið fallegra. Hrá salöt á að- eins að matreiða til einnar mál- tíðár í senn, rétt áður en þau eru borin fram, svo að fjörvin fari ekki forgörðum. Blandað grænmetissalat. 200 gr. hvítkál 200 gr. gulrætur 50 gr. grænkál. Sósan: !4 dl matarolía % dl edik !4 tsk. salt !4 tsk. sykur Va ts-k. pip-a-r Grænmetið er þvegið og hreins að, rifið smátt á rifjárni. Bland- að saman í skál. Sósunni hellt yfir. um eða fíkjum blandað saman við Súrmjólk og púðursykri er bland að saman og hellt yfir. Fiskur. Fiskur er mikið notaður til mat ar og er bæði holl og ódýr fæða. Næringarefni fisksins eru eggja hvíta og fita. Fjörvi eru A og D, einkum í feitum fiski. í mörg- um fisktegundum er nokkuð af B-fjörvi. Fiskur er flokkaður í feita og magra fiska. Til feitra fiska telj- ast m.a. síld, lúða, steinbítur, rauðmagi, silungur og lax. Til magurra teljast: þorskur, ýsa og koli. Feitir fiskar eru yfirleitt dýr- ari. Innmatur, hrogn og lifur er mjög hollur matur. í lifrinni eru fituleysanlegu fjörvin A og D, en í hrognunum A, B og C. Unnt er að geyma fisk á margan hátt, t.d. frystan, saltaðan, reyktan, þurrkaðan (harðfiskur) og nið- ursoðinn. Fiskflök með eplum, lauk og karrý. !4 fiskflök (roðlaus) 1 laukur 1 epli !4 tsk. karrý %-% tsk. salt 25 gr. smjörlíki Laukurinn er saxaður og hit- aður aðeins í smjörlíkinu, karrý og niðurrifnu epli blandað sam- an við. Fiskstykkjunum er raðað ofan á og salti stráð yfir. Þétt lok er sett yfir eða málmpappír. Látið á minnsta straum í 10—15 mín. Fiskurinn er borinn fram á pönnunni eða í pottinum með soðnum kartöflum og græneti. Ofnsteiktur fiskur 450 g þorskflök, 1 laukur, Vs tsk. salt, % tsk. pipar, 2 msk. tómatkraftur eða þrír tómatar, 2 lárviðarlauf, 50 g smjörlíki. Fiskflökin eru roðflett og skorin í stykki. Lögð í vel smurt eld- fast fat. Salti og pipar stráð yf- ir. Tómatarnir eru skornir í sneiðar og þeim raðað yfir fisk- inn ásamt lárviðarlaufum og smátt skornum lauk. Sjörlíkið er látið ofan á í litlum bitum. Málm pappír eða lok er látið yfir fat- ið. Steikt í vel heitum ofni í 20— 30 min. Borið fram á fatinu. Ofnsteiktur fiskur Mt kg fiskflök (roðlaus), !4 tsk. salt, 25 gr smjörlíki, Vt dl rjómi, 1 di mjólk, 1 matsk. lituð brauðmylsna, 2 matsk. rifinn ostur. Fiskflökin eru skoirin í stykki og lögð í smurt, eldfast mót. Salt- inu stráð á. Smjörlíkið er sett í smábitum ofan á. Mótið er látið inn í vel heitan ofn og fiskurinn steiktur í 8—10 mín. Þá er rjóma, mjólk, brauðmylsnu og rifnum osti hrært saman og hellt gæti- iega yfir fiskinn. Steikt áfram í 10—15 mín. Verði sósan of þykk, má bæta í hana meiri mjólk. Fiskurinn er borinn á borð í mótinu. Fiskbakstur 50 gr smjörlíki, 1 dl hveiti, 214—3 dl mjólk, !4 tsk. salt, Vs tsk. pipar, 1 tsk. sykuT, 200 gr beinlaus fiskur, soðinn eða hrár. Jafningur er búinn til úr smjör- líki, hveiti og mjólk. Kældur dá- líti’ð. Eggin eru aðskilin og eggjarauðunum hrært saman við og að lokum þeyttum eggjahvít- unum. Eldfast mót er smurt og stráð brauðmylsnu, jafningurinn er látinn þar í og rifnum osti stráð ofan á. Bakað við meiri undirhita í 40—50 mín. Borið fram í mótinu. Sé notuð hræri- vél, þarf ekki að skilja eggin. Fallegur vorkjóll fyrir ungar stúlkur eftir Rod- ger Bass, ungan brezkan tízku- teiknara. Kjóllinn er úr drapp- litu ullar-flanneli, beltið er i mjaðmastað. Kragi og uppslög stungin. DR8-68 Stroffur á pilsin PILS, sem ekki er með streng í mittið, breytist mikið, ef við setjum á það stroffur, fremur langar og fáum okkur svo belti við. Stroffumar búum við til á eftirfarandi hátt: Sníðið fjórar lengjur, sem hver um sig er 12 cm löng og 4 cm breið. Notið í stroffurnar annað hvort efni eða leður. 1. Saumið stroffuna saman, þannig að saumurinn verði á miðri stroff u og snúi inn. Stiroffan á að vera ca. 1!4 cm á breidd, þegar búið er að sauma hana saman. Þræ'ðið á réttunni meðfram köntunum, og pressið. 2. Finnið miðjuna á pilsinu að framan og að aftan, og eiga stroffurnar að vera 10 cm til hægri og vinstri frá miðjunni að framan og aftan. Stroff- urnar eru síðan saumaðar á pilsið. 3. Þar næst er fóðrinu á pilsinu aðeins sprett frá og stroff- urnar þræddar í mittið. 4. Stroffurnar saumaðar me’ð fóðrinu í mittið. 5. Pressið. Festa má hnappa á stroffurnar ef vill. Ef efniC í pilsinu er ekki mjög þykkt, má nota tölur, sem eru yfir- dekktar með sama efni. AUt í röð og reglu. Ef við saumum niður endann á hnyklinum, áður en honum er hent niður í garnpokann, helzt hnykillinn fastur saman það varnar því að allt fari í bendu þar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.