Morgunblaðið - 20.04.1968, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. APRIL 1968
þurfa að skýra fyrir henni til-
tekin atriði ef hann ætti að geta
gert sér v onir um samsarfs-
vilja hennar. — Byltingin er al-
veg eins og stríð. Það eru ekki
einstaklingarnir, sem verða að
gjalda fyrir syndir hennar, held
ur öll þjóðin. Þú ert nú ekki
nógu gömul til að muna eftir
Hitler, en þú kannt að hafa
heyrt hann nefndan. Stúlkan
kinkaði kolli og Nemetz hélt
áfram: — Herir hans og flugvél-
ar ullu tjóni í næstum öllum
löndum álfunnar, og að lokum
urðu hans eigin borgir að rúst-
um og múrsteinshrúgum og mill"
jónir landa hans drepnar.
— Þannig fer líka fyrir þess-
um Rússadjöflum, sagði dreng-
urinn hátíðlega.
— Vertu ekki að bölva, Joey,
sagði Mimi. — Mamma gat ekki
þolað það.
Nemetz hugsaði með sér, að
betra væri að komast að efninu.
— Viltu segja mér, hvað þú
sást á laugardagskvöldið? Við
höfum marga grunaða og ef þú
hjálpar okkur til að finna þann
rétta, spararðu okkur mikið ó-
mak.
Mimi settist og spennti greip-
ar í kjöltu sinni. — Hverjir eru
þeir? Ég á við, þeir grunuðu?
spurði hún ásakandi.
— Annar er skóari en hinn
læknir, sem er miklu yngri. Og
svo eru ýmsir fleiri.
38
Stúlkan dró djúpt andann. —
Ég sá ekki neinn drepa hana,
sagði hún. — Hún var dauð, þeg
ar henni var hvolft úr.
— Hvolft úr? Hvað áttu við
með því?
— Jú, það var kona með hjól-
börur. Eins og múrarar nota.
Konan í grænu treyjunni lá á
hjólbörunum og önnur kona ók
henni að horninu og hvolfdi
henni úr, svo ók hún hjólbör-
unum burt.
— Kona? Ertu viss um, að það
hafi verið kona?
— Já.
— Sá hún þig?
— Það held ég ekki. Ég stóð
inni í dyrunum á nr. 10. Það
er húsið við hliðina ’ á brauð-
búðinni. Rétt áður en konan
kom, komu tveir rússneskir vöru
bílar akandi, og þessvegna faldi
ég mig þarna í dyrunum. Ég
stóð þar lengi kyrr. Ég ... ég
var svo hrædd. Ég gat ekki skil
ið, að mamma væri dauð. Ég var
svo ... ringluð .. . ég man ekki
neitt af því almennilega.
— En þú manst vel konuna
með hjólbörurnar?
— Já. Seinna sofnaði ég og
mig dreymdi svo undarlega. En
hún var enginn draumur. Alveg
raunveruleg. Og það voru rúss-
nesku bílarnir líka.
— Heldurðu, að þú mundir
þekkja hana, ef þú sæir hana
aftur? _
— Ég býst við því, sagði
Mimi.
— Var hún lítil og digur?
spurði Nemetz og hafði þar frú
Bartha í huga.
Mimi hristi höfuðið. — Nei,
hún var há og grönn ekki dig-
ur ... og heldur ekki grönn.
Rétt svona mitt á milli. Og hún
var í engum frakka og heldur
ekki í treyju. Jú, hún var með
svuntu. Utan yfir kjólnum.
Þessi lýsing gat ekki útt við
frú Bartha og Lillu, en hefði
getað átt við berklaveiku stúlk
una og Alexu Mehely.
— Heldurðu, að þú vildir koma
með mér? sagði Nemetz. Ég hef
bíl, sem bíður hérna við hornið.
Ég ætla að aka þér þangað sem
skóarinn á heima, svo ætlum við
að líta á nokkrar konur og vita,
hvort við finnum þá réttu.
Mimi hikaði. — Ég verð fyrst
að gefa Joey að borða. Mamma
vildi alltaf láta mig gefa honum
matinn stundvlslega.
— Hún sagði líka, að þú mætt
ir aldrei fara neitt með ókunn-
ugum karlmönnum, hvein í
drengnum.
— Láttu nú ekki eins og
bjáni, svaraði hún húsbóndalega,
— hann er ekki neinn venju-
legur maður. Hann er glæpa-
lögga.
— Okay, sagði drengurin^ En
Aðalfundiir
Sjómannafélags Ilafnarfjarðar, verður haldinn
sunnudaginn 21. apríl kl. 2 síðdegis í kaffisal Fisk-
iðjuvers Bæjarútgerðarinnar.
Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
STJÓRNIN.
vei
ASKXIR
BÝÐUE
YÐUR
HELGARMATINN
i handhœgum umbúðum til að táka
HEIM
GRILLAÐA KJÚKIJNGA
ROAST BEEF
, GLÓÐARSTEIKT LAMB
GLÓÐARSTEIKT NAUTAFILLÉ
'GLÓÐARST. GRÍSAKÓTELETTUR
HAMBORGARA
Mntlitm,
0 tí
Gleðjiðfrúna —
jjölskylduna — vinina
— njótið
hinna Ijúffengu rétta
heima í stofujðar.
imm-
Ef þér óskið
getið þér hringt og pantað -
við sendum leiguhíl
með réttina heim
tilyðar.
A S KU R matreiðir fyriryður
olla daga vilmnnar
Suðurla nd.sb raut 14 sími 38550
svo sneri hann sér að Nemetz.
— Má ég ekki líka koma með
í bílnum?
Á þessari stundu skildist
Nemetz það, að hann var veginn
af þessum ungu dómurum og
fundinn nægilega þungvægur.
Fyrst var farið heim til
Bartha. Kaldy og drengurinn
biðu í bílnum, meðan Nemetz
leiddi Mimi að dyrunum og
barði síðan uppá. Enn var það
konan, sem opnaði. Bartha kom
fram bak við fataskápinn.
Frænkan sat sem fyrr í legu-
JNauðuiiwniupfíboð
Eftir kröfu Ólaf,s Þorgrímissonar hrl., og Gjaldheimt-
unnar í Reykjavík, fer fram nauðsungaruppboð að
Súðarvogi 26. hér í borg, miðvikudag.nn 24. apríl
n.k. kl. 3 síðdegis og verður þar se*it: Borvél, járnsög
rennibekkur, talið eign Norma s.f. Súðarvogi 26.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
______________Borgarfógetaembættig í Reykjavik,
Nauðungariippboð
Eftir kröfu Harðar Einarssonar hdl., fer fram nauð-
ungaruppboð að Laugavegi 42, hér í borg, miðviku-
daginn 24. apríl n.k. kl. 2 e.h. og verður þar selt
Peningaskápur, rafmagnsritvél og skjalaskápur, talið
eign Sokkabúðarinnar h.f. Laugavegi 42 og Guðna
Þórs Nicolaissonar.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
______________Borgarfógetaembættig í Reykjavik.
• v::7: :■ >:•: • •:•;•: X;::::: :-:
'A
20. APRÍL
Hrúturinn 21. marz — 19. apríl.
Hagsýni einkennir daginn á flesta lund. Taktu ákvörðun um
hvað hentast er fyrir heimili þitt og fjölskyldu. Skemmtu þér
i kvöld.
Nautið 20. apríl — 20. maí.
Sennilegt er að sér verði gert boð í dag, sem kynni smám
saman að gefa nokkuð í aðra hönd. Sýndu þó fyllstu gætni í
málinu. Færðu ástvinum þínum blóm eða smágjafir.
Tvíburarnir 21. maí — 20. júní.
Fólk er samvinnuþýðara gagnvart þér en um langa hríð og
skaltu notfæra þér það eftir megni. Þú skalt vinna verk þín af
kostgæfni og skemmta þér svo í kvöld.
Krabbinn 21. júní — 22. júlí.
Það borgar sig að reyna að greiða sem mest af lausaskuldum í
dag og koma frá einhverjum verkefnum, sem lengi hafa setið
á hakanum.
Ljónið 23. júií — 22. ágúst.
Þú ert allóþolinmóður og hefur ekki nógu mikla biðlund I
ákveðnu máli. Reyndu að sýna stillingu og úr flestu mun greiðast
Jómfrúin 23. ágúst — 22. setpember.
Viðburðasnauður dagur að fiestu leyti og þér er eindregið
ráðlagt að vera heima við í kvöld. Nú væri einnig ráð að hætta
að reykja.
Vogin 23. september — 22. október.
Þér vinnst vel í dag og vinir þínir munu sýna að þeir kunna
að meta störf þín. Þú skalt ekki vinna frameftir heldur taka líf-
inu með ró seinni hluta dagsins.
Drekinn 23. október — 21. nóvember.
Þetta virðist vera einkar góður dagur til að útkljá hvers konar
misklíð og ágreining innan fjölskyldunnar og skaltu leggja þitt
af mörkum til að svo megi verða.
Bogmaðurinn 22. nóvember — 21. desember.
Þú færð nasaþef að máli, sem gæti fært þér bæði ánægju og
hagnað. Láttu ekki happ úr hendi sleppa. í kvöld ættirðu að fara
í leikhús.
Steingeitin 22. desember — 19. janúar.
Vertu ekki of eyðslusamur í fjármálum, þó að þú sért gjaf-
mildur og rausnarlegur að eðlisfari. Ekki veitir af að þú farir
vel með peninga þína.
Vatnsberinn 20. janúar — 18. febrúar.
Þú hittir ýmsa góða vini í dag, sem þú hefur ekki séð lengi og
muntu hafa gleði af endurfundunum. Þú skalt njóta samvista
við þá og dylja einmanakennd þína.
Fiskarnir 19. febrúar — 20. marz.
Þú skalt einbeita þér að vinnunni og leggja þig í líma um að
uppfylla þær kröfur, sem vinnuveitendur þínir gera til þín. Það
mun borga sig.