Morgunblaðið - 20.04.1968, Page 30
30
MO’RGUNBLAÐIÐ. LÁUCtÁRDAÖU'R 20. AT’RTL 19tm
Örlagaríkasti fundur
Olympíunefndarinnar
Tekin afstaða til þátttöku
S-Afríku og neitunar 30-40 ríkja
Vill flytja danskar
kartöflur til íslands
UM HELGINA kemur fram-
kvæmdanefnd Alþjóða Olympíu
nefndarinnar saman til fundar í
Lausanne í Sviss og er búizt við
að sá fundur verði hinn afdrifa-
ríkasti er nefndin hefur haldið.
Fjallað verður um þátttöku S-
Afriku í Mexíkó-leikunum og
neitun 30-40 ríkja um þátttöku
verði S-Afríku heimiluð aðild
að leikunum.
Hinn áttræði form. alþjóða
OL-nefndarinnar, Avery Brund-
age hefur undanfama daga ver-
ið í S-Afríku og hélt þaðan til
fundarins í Lausanne í gær. Á
Hrafnhildur Guðmundsdóttir.
TVÖ íslandsmet, tvö drengjamet
og sveinamet voru sett á sund-
móti KR á fimmtudagskvöldið
og höggvið nærri öðrum. Keppn-
in sýndi góðar framfarir hjá
sundfólki. Metin settu Guðmund
ur Gíslason í 200 m. fjórsundi og
sveit Ármanns 4x100 m. skrið-
sundi karla-
Guðmundur Gíslason bætti eig
ið met í fjórsundi synti á 2:20.2
en eldra metið var 2:21.9 mín. f
sama sundi setti Ólafur Þ. Gunn
laugsson KR sveinamet 2:56.0.
f fjórsundinu settu þeir Gísli
Þorsteinsson, Gunnar Kristjáns-
son, Kári Geirlaugsson og Guðm.
Gíslason ísl. met 4:03.7 en eldra
metið 4:13.5 átti Ármannssveit
frá 1965.
f sama sundi setti drengja-
sveit KR drengjamet 4:40.7.
Kristbjöm Magnússon KR setti
sveinamet í 50 m. baksundi 36.6.
Höggvið nærri metum
Leiknir Jónsson og Hrafn-
hildur Guðmundsdóttir hjuggu
nærri metunum I 100 m.
bringusundi karla og 100 m.
blaðamannafundi sem hann hélt
á flugvellinum við brottför,
kvaðst hann hafa skorað á
íþróttayfirvöld S-Afríku að
draga til baka þátttökutilkynn-
ingu sína í Mexíkóleikunum.
Honum varð ekki ágengt í því
efni og hann hefur meðferðis til
Sviss þátttökutilkynningu S-
Afríku.
Mexikanar hafa reynt allt sem
í þeirra valdi hefur staðið til að
koma í veg fyrir þátttöku S-
Afríku. Er kominn upp mikil
deila um það, hvort Mexico hafi
boðið S-Afríku aðild að leikun-
um eða ekiki. Neita nú Mexikan-
ar að svo sé, en í Jóhannesar-
borg hefur verið lagt fram ljós-
prentað eintak af boðsbréfi um
þátttöku frá mexikönsku OL-
nefndinni.
Öll Afríkuríkin hafa tilkynnt
að þau muni ekki taka þátt í
leikunum verði S-Afríku heimil-
uð þátttaka. Sovétríkin hafa til-
kynnt að þau muni mjög athuga
sitt mál varðandi þátttöku. Kúba
mætir ekki af þessum sökum og
fleiri ríki hafa haft hótanir í
frammi um að taka ekki þátt í
leikunum.
Deila þessi er risin af kynþátta
deilum og hefur m.a. vakið deil-
ur í Bandaríkjunum þar sem
svertingjar hafa hótað að taka
ekki þátt í lei'kunum sení liðs-
menn Bandaríkjanna — en af-
staða þeirra er mjög mismun-
andi til málsiris.
skriðsundi kvenna. Munaði að
eins sekúndubrotum að þeim
tækist að ná takmarkinu og
sýna bæði að þau hafa aldrei
fyrr verið í betri þjálfun en
nú.
Sigurvegarar í einstökum grein
um urðu:
100 m. bringusund karla: Leikn
ir Jónsson Á, 1:11.2
100 m. skriðsund kvenna:
Hrafnhildur Guðmundsdóttir ÍR,
1:04.2.
50 m. bringusund sveina: Örn
Ólafsson SH, 44.5.
50 m. flugsund drengja: Sig-
mundur Stefánsson Self. 34.0
50 m. baksund telpna: Vilborg
Júlíusdóttir Æ, 39.8
200 m. fjórsund karla: Guðm.
Gíslason KR, 2:20.2
50 m. baksund sveina: Krist-
björn Magnússon KR, 36.6
100 m. flugsund kvenna: Hrafn
hildur Kristjánsdóttir Á, 1:14.0
4x50 m. fjórsund telpna: Sveit
Ægis 2:42 6
4x100 m. skriðsund karla:
Sveit Ármanns 4:03.7.
alþjóða
um helgina
Fundur alþjóðanefndarinnar í
Lausanne um helgina markar lín
una í þessum iriálum og því er
niðurstöðu hans beðið með eftir-
væntingu.
Víðovangshlaup
Hnfnarfjaiðor
VÍÐAVANGSHLAUP Hafnar-
fjarðar hið 10. í röðinni verður
háð sumardaginn fyrsta (25.
apríl) við Barnaskóla Hafnar-
fjarðar við Skólabraut og hefst
kl. 2 e.h.
Keppt verður í 5 flokkum —
þrem flokkum drengja og tveim
ur flokkum telpna.
Hlaupnar verða sömu vega-
lengdir og að undanförnu.
Væntanlegir keppendur til-
kynni þátttöku sína í Verzlun
Valdimars Long næstkomandi
mánudag og þriðjudag.
Lúðrasveit Hafnarfjarðar und-
ir stjórn Hans Franssonar leik-
ur áður en keppnin hefst eða
frá kl. 1.30 e.h.
Litla bikar-
keppnin í dng
LITLA bikarkeppnin hefst í dag
og er þetta því fyrsta knatt-
spyrnumót ársins. Fjögur lið
taká þátt í mótinu, lið Keflvík-
inga, Akurnesinga, Hafnfirðinga,
og Kópavogsbúa. Á Akranesi
leika í dag IA og Hafnarfjörður,
en í Keflavík eigast við Kefla-
vík og Breiðablik. Leikurinn í
Keflavík hefst kl. 14.15, en leik-
urinn á Akranesi kl. 15.15 Leik-
ið verður um hverja helgi, en
mótinu lýkur 18. maí.
WBA vann
Liverpool
2-1
WEST Bromwich Albion sigr-
aði Liverpool í þriðja leik milli
þessara félaga í 6. umferð bik-
arkeppninnar ensku í fyrra-
kvöld. Leikurinn fór fram á velli
Manchester City, Maine Road og
var mjög harður. Liverpool stóð
í andstæðingnum í fyrri hálf-
leik. Jeff Astle skoraði fyrir
West Brom. á 7. mín., en Tony
Hateley jafnaði á 39. mín.
Sigurmarkið skoraði útherjinn
Cive Clark snemma í seinnd
hálfleik. West Bromwich átti
mun meira í leiknum og verð-
skulduðu sigurinn. Eins og fyrr
segir var leikurinn mjög harð-
ur og miðherji West Bromwich
Tony Kaye lék mikið af síðari
hálfleik með sáraumbúðir um
höfuðið.
West Bromwich mætir nú Birm
ingham City x undanúrslitum
n.k. laugardag. Birmingham leik
ur í 2. deild og hefur sýnt mikl-
ar framfarir síðan Stan Cullis
tók við framkvæmdastjórastöðu
félagsins í fyrrasumar. Cullis
þessi var framkvæmdastjóri
Wolverhampton á þeirra frægð-
arárum, 1950—64.
f hinum undanúrslitaleiknum
mætast Everton og Leeds Und-
ted, en úrslitaleikurinn í bikar-
keppninni verður á Wembley
leikvanginum þann 18. maí n.k.
FORMAÐUR félags danskra
kartöfluútflytjenda, J. C. Wein-
reich að nafni, var kynntur fyr-
ir fréttamönnum í gær. Kvaðst
Weinreich hafa komið til Is-
lands að kanna möguleikana á
því að flytja hingað danskar
kartöflur. Sveinn Ásgeirsson,
formaður Neytendasamtakanna,
kynnti Weinreich fyrir frétta-
mönnum og gat þess um leið, að
koma hans hingað væri Neyt-
endasamtökunum mikið ánægju-
efni þó ekki væri hún á þess
vegum, en samtökin berjast nú
mjög fyrir úrbótum á sviði
kartöflumála tslendinga.
J. C. Weinreich.
Að sögn Weinreichs flytja Dan
ir út kartöflur, bæði útsæði og
matarkartöflur, til 35 landa og
frá 1. apríl til júniloka er inn-
flutningur á kartöflum frjáls í
Danmörku.
Þá mátti greinilega heyra það
á Weinreich, að hann var mjög
hissa á því fyrirkomulagi, sem
hér ríkir í kartöflumálum og þá
einkum á sölufyrirkomulaginu.
Kvað hann varla þekkjast meðal
vestrænna þjóða, að kaupendum
væri gert að skyldu að kaupa
kartöflur í aðeins einum umbú'ð-
um og engum öðrum, auk þess
sem kaupandinn gæti á engan
hátt gengið úr skugga um að
hann væri ekki „að kaupa kött-
inn í sekknum".
1 Danmörku, sagði Weinreich,
er söluverð á kartöflum frjálst
og þar eru þær seldar í plast-
umbúðum, sem innihalda allt frá
1% kg upp i 25 kg. Einnig eru
kartöflur seldar í pappírspokum,
sem hér, en utan á þá er skráð
nafn framleiðanda og stærð og
gæðaflokkur innihaldsins. Þá
eru kartöflur seldar burstaðar
og þvegnar í Danmörku.
Verð á kartöflukílóinu er nú
um 5 krónur íslenzkar í Dan-
mörku.
Þá sagði Weinreich og, að
dönskum bændum væri heimilt
a'ð selja framleiðslu sína sjálfir
hverjum sem hafa vildi, en kaup
andinn þyrfti að koma heim til
bóndans og viðskiptin að fara
þar fram.
Allt þetta stuðlar mjög að því,
að halda verði nu niðri og um
leið tryggir það gæði vörunnar,
sagði Weinreich.
„En þó ekki verði af því nú,
að danskar kartöflur komi á ís-
lenzkan markað, þá vonast ég
til að svo verði síðar“, sagði J.
C. Weinreich að lokum.
♦-------
Sveinn Ásgeirsson gat þess, að
Neytendasamtökin hefðu á sínum
tíma farið fram á að innflutning-
ur á kartöflum yrði gefinn frjáls.
Sagði Sveinjxy að samtökin
myndu ótrauð halda áfram bar-
áttu sinni fyrir því, að íslenzkir
neytendur fengju tækifæri til að
kaupa kartöflur án þess að þurfa
bæði að búa við hærra vöruver’ð
og minni gæði, en mögulegt
væri með öðru fyrirkomulagi.
- LAGANEMAR
Framhald af bls. 3
mun vera einnig komið til á
íslandi.
Peter Gram er norskur laga-
nemi. Hann segir að námstil-
högun þar í lagadeildum sé með
svipuðu sniði og í Danmörku
og á íslandi, þannig að námiimi
er skipt í tvo hluta og próf tek-
in í mörgum fögum eftir hvem
hluta, sé öðru vísi háttar í Finn-
landi og Svíþjóð, þar sem hvert
fag er lesið fyrir sig og síðan
tekið próf í því. f Noregi eru
um 1500 laganenxar, og uppfyll-
ir það varla þörfina fyrir lög-
fræðinga, svo góðir atvinnu-
möguleikar eru að loknu prófi.
Ein kona situr ráðstefnuna,
finnskur laganemi Unnekka
Mákio. Hún sagði, að í Finn-
landi væru um 1800 laganemar
í Helsinki, þar sem eru bæði
sænákumælandi og finnskumæl-
andi prófessorar, og um 400 1
Ábo. Það væri of mikið og far-
ið væri að takmarka í deildirn-
ar, stúdentar þyrftu að taka sér
stakt inntökupróf. Háskólinn á-
kvæði svo við hve mörgum væri
tekið hverju sinni. Síðast voru
teknir 400, sem var fleira en ár-
in á undan. í lagadeildum í Finn-
landi eru smám saman tekin
próf í 14 fögum, ekki þetta
mikla lokapróf, en þá þyrftu
nemar að skila ritgerðum um
ákveðið efni í lokin. í Ábo þurfa
laganemar að læra erlent tungu
mál. En til að fá dómarastöður
og ýmsar aðrar þurfa lögfræð-
ingar að tala bæði sænsku og
finnsku.
Tony Sandell, formaður lög-
fræðinema í Stokkhólmi, sagði
að þar í borg væru 2500 laga-
nemar. í Svíþjóð væri reiknað
með um 8000 lögfræðingum, og
að um 6000 nýir væru í námi
Það væri auðvitað of margt og
gæti ekki gengið. Eftir fá ár
væri reiknað með að aðeins ann
ar hver lögfræðingur fengi starf
í sínu fagi. Væri mjög rætt um
takmörkun á nemum. Margir
stúdentanna vildu það, en þó
yfirvöld hefðu ekki lýst skoðun
sinni, væri talið að þau vildu
komast hjá því. Sjálfur kvaðat
Sandell ljúka prófi um næstu
jól. Sænskir laganemar taka
próf smám saman, í 12 greinum,
og ljúka þeim venjulega á fimm
árum.
John Korsþ Jensen frá Dan-
mörku tjáði okkur, að í hans
landi væru um 3000 laganemar.
Atvinnuhorfur væru ágætar, en
eftir 3—4 ár þyrfti að fara að
fylgjast með offramleiðslu og
lögfræðisamtökin því rétt að
byrja að huga að málinu. f Dan
mörku kvað hann vera eigin-
lega tvenns konar fyrirkomu-
lag á náminu. Samkvæmt gamla
kerfinu tekur fyrri hluti 1% tii
2 ár og seinni hluti 3—4 ár, og
eru þá 2—3 próf í seinni hluta.
Nýtt kerfi hóf svo göngu sína
fyrir tveimur árum með tveggja
ára fyrri hluta. Seinni hluti er
ekki enn byrjaður eftir þvi
kerfi. Hann verður líklega ekki
mjög frábrugðinn þeim gamla
nema hvað talið er að þriðja
prófi verði bætt við.
Ritari NSJR Peter Gram, bað
okkur að lolkum um að geta
þess, að norrænu stúdentarnir
væru mjög hrifnir af móttökum
hér. Undirbúningur væri mjög
góður. Fundarmenn mundu
skreppa til Þingvalla, en annars
gæfu þeir sér ekki tíma frá fund
arstörfum til að sjá sig meira
um.
Tvð Islandsmet
á sundmdti KR
Guðmundur Gíslason og sveit
Ármanns bættu fyrri met