Morgunblaðið - 21.04.1968, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.04.1968, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. APRIL 158«. Hinn grunaði sást í Suður Kaliforníu New York, 29. apríl — NTB: ÁFRAM ER haldið hinni áköfu leit að morðingja dr. Martins Luthers Kings, m.a. er mikil á- herzla lögð á að leita í Imperial Valley í Suður Kaliforníu, þar sem lögreglunni barst vitneskja um að hann hefði sézt þar fyrr í þessari viku og þá verið að reyna að fá far til Arizona. Maðurifm, sem leitað er, Jam es Earl Ray, eins og hann mun heita réttu nafni, slapp úr fang- elsi í Missouri 23. apríl sl. þar sem hann átti að afplána 20 ára fangelsisdóm. Fangavörðurinn, sem gætti hans segir, að Ray sé forhertur og gersamlega tillitslaus afbrota maður, sem ekki mundi víla fyr ir sér að myrða mann eins og dr. King. Þá er haft eftir veit- ingamönnum í vínstúku í Los Angeles, þar sem hann var tíður gestur, að hann hafi verið ákaf ur hatursmaður blökkumanna og stuðningsmaður George Wallace sem fer í reynd með embætti rík isstjóra Alabama, þótt heita eigi að kona hans gegni embættinu. Bandarískir könnuð- ir ó Norðurpólnusn Chicago, 19. apríl AP. HÓPUR áhugamanna um land- könnun komst til Norðurpólsins á föstudag og eru þetta fyrstu mennirnir, sem náð hafa að kom ast þangað landleiðis, frá því að leiðangur Pearys fór til Norður- pólsins 1909. Leiðangurinn nú hafði lagt að baki sér 763 km leið yfir heimskautaísinn og far- ið þessa leið á 44 dögum. Var frá því skýrt, að Ralph Plaisted, foringi leiðangursins, hefði tilkynnt um útvarp, að 22000 óro „skúlptúr" íinnst í Asíu New York, 20. apríl AP. • „SKÚLPTUR“ af mannshöfði, sem höggið hefur verið í kalkstein fyrir um það bil 22.000 árum, fannst nýlega í Afghan- istan. Þeir, sem fundu voru fom leifafræðingar frá „The Ameri- can Museum of Natural History" og mun þetta elzti „skúlptúr“, sem til þessa hefur fundizt í Asíu. Höfuðið fannst í Kupruk sum- arið 1965 í klettabyrgi, um þrjá metra undir yfirborði. Hafa síð- an verið gerðar á því nókvæmaT irannsóknir og sérfræð'ngar kom- izt að þeirri niðurstöðu, að það sé 22.000 ára. hann og þrír aðrir af leiðang- ursmönnunum, en þeir eru sex alls, hefðu komist til Norðurpóls ins á föstudaginn, er þeir fóru lokaspölinn til pólsins og var sú leið um 16 km. Plaisted skýrði frá því, að hinir leiðangursmenn irnir væru nokkurn spöl á eftir. Leiðangursmenn hafa notað vélknúna sleða á ferðalaginu og er þetta í fyrsta sinn, sem slík um tækjum er beitt til þess að komast til Norðurpólsins með því að fara eftir heimskautsísn- um. Vistum var varpað til leið- angursmanna öðru hvoru úr flugvélum og fengu þeir þann- ig það, sem þeir þörfnuðust, til þess að standast hörkufrost, snjó storma, sem ollu því, að þeir urðu að haldast við í tjöldum sín um dögum saman, einu sinni í sjö daga samfleytt, svo og fleiri erfiðleika. Leikstjóri og aðalleikendur í „Horft um öxl“ frá vinstri: Ævar R. Kvaran, Helgi Skúlason og Helga Bachmann. Ritverk Einars Kvarans fram- haldsleikrit Útvarpsins — NÆSTKOMANDI fimmtudag, sumardaginn fyrsta, verður flutt ur fyrsti þátturinn af nýju fram haldsleikriti í útvarpinu, sem nefnist „Horft um öxl“. Leikritið er samið eftir Sögum Rannveig ar eftir Einar H. Kvaran, en skáldsaga þessi var gefin út ár ið 1919. Um þessar mundir eru liðin 30 ár frá láti höfundar. — Ævar R. Kvaran hefir fært sög urnar í leikritsbúning og annast hann jafnframt leikstjórn. Framkvæmdastjóri hljóðvarps, dagskrárstjóri og leikstjórinn skýrðu frá þessu á blaðamanna- fundi nú fyrir helgina. Þar kom fram, að þetta er liður í þeirri Mesta útboö sjálfboðaliða —í sambandi við gildistöku H-umferðai 26. maí EINS og Mbl. sagði frá í frétt s.l. miðvikudag, er nú hafið eitt mesta útboð sjálfboðaliða, sem um getur hér á landi, í sam- bandi við gildistöku H-umferð- ar 26. maí. Sjálfboðaliðarnirmun starfa sem umferðarverðir á H- Fræðslunámskeið um sveitastjórnarmál — SAMBAND íslenzkra sveitarfé- laga heldur fræðslunámskeið um sveitarstjórnarmál í Tjamarbúð í Reykjavík dagana 22.-24. þessa mánaðar. Formaður sambandsins, Páll Líndal, borgarlögmaður, set- ur námskeiðið. Ingólfur Jónsson landbúnaðarráðherra, flytur á- varp. Síðan verða flutt erindi um helztu viðfangsefni oddvita og hreppsnefnda. Fyrsta daginn flytur Hjálmar Vilhjálmsson, ráðuneytisstjóri í félagsmálaráðuneytinu, erindi, um samskipti sveitarstjóma við önnur stjórnarvöld, Ölvir Karls son, oddviti talar um sveitar- stjórn í dreifbýli og Unnar Stef- ánsson blaðstjóri um sameiningu sveitarfélaga. Sigurbjöm Þor- björnsson ríkisskattstjóri, hefur framsögu um staðgreiðslukerfi op inberra gjalda. Aðalsteinn Eiríks son, námsstjóri og Torfi Ásgeirs son, skrifstofustjóri ræða skóla- mál og Gísli Kristjánsson rit- stjóri Freys talar um forða- gæzlu. Annan daginn ræðir Guðjón Hansen, tryggingafræðingur um almannatryggingar, dr. Sigurður Sigurðsson, landlæknir um lækn isþjónustu í dreifbýli, Magnús E. Guðjónsson, framkvæmdastjóri, um Lánasjóð sveitarfélaga og Bjargráðasjóð fslands og Valdi- mar Óskarsson skrifstofustjóri, um nýja fasteignamatið. Einnig verður rætt um þjóðskrá, bók- hald og samskipti sveitarfélaga við Hagstofu íslands. Erindi flytja Klemenz Tryggvason, hag stofustjóri, Ingimar Jónsson, deildarstjóri og Hrólfur Ásvalds son, viðskiptáfræðingur. Seinasta dag námskeiðsins tal- ar Ásgeir Ólafsson, forstjóri, um bmnavarnir í sveitum, Þorsteinn Einarsson, íþróttafulltrúi um fé- lagsheimili, Birgir Kjaran alþm., um náttúmvernd, Guðmundur G. Hagalín, bókavörður, um sveita bókasöfn og héraðsbókasöfn og Vigfús Jónsson, oddviti um fram kvæmd sveitarstjómarkosninga í kauptúnahreppnuml Námskeiðið sækja milli 40 og 50 hreppsnefndarmenn og sveitar stjórar frá sveitarfélögum víða um land. dag og vikuna þar á eftir og er talið, að ekki þurfi færri en 1000 umferðarverði í Reykjavík einni saman. Umferðarnefnd Reykjavíkur hefur tekið að sér að sjá um útvegun sjálfboða- liða í Reykjavík og í gær kvaddi Pétur Sveinbjamarson, forstöðu- stöðumaður Fræðslu- og upp- lýsingaskrifstofu Umferðanefnd- ar fréttamenn á sinn fund og skýrði þeim frá tilhöguninni eins og hún verður í Reykjavík. Reykjavíkurborg hefur verið skipt niður í 17 varðsvæði og verða flokksstjórar yfir hverju svæði sem tengiliðir milli um- ferðarvarða og lögreglu. Flokks stjórarnir eru sjálfboðaliðar og hafa þeir verið fengir frá hjálparsveitum, svo og öðrum félögum og félagasamtökum. Umferðarverðir eiga að að- stoða gangandi vegfarendur, veita þeim ráð og leiðbeiningar og á allan hátt auka öryggi þeirra eins og frekast er unnt. Aftur á móti hafa umferðarverðir eng- in afskipti af stjórn umferðar ökutækja. Til að auðvelda um- ferðarvörðum starfið, verður gef in út handbók, þar sem upplýs- ingar verður að finna um verk- verða einkenndir með hvítum ermahlífum. Heppilegast er tal- ið að hver umferðarvörður starfi tvo tíma í senn á dag. Þeim stöðum þar sem umferð- averðir verða að störfum, er skipt í tvo flokka. í fyrsta lagi frá kl. 08.30 að morgni og fram til kl. 18.30 að kvöldi. í öðru lagi eru staðir, þar sem aðeins er þörf tímabundinnar umferð- arvörzlu. Er umferðarvarzla þar á þeim tímum, sem umferð gang- andi vegfarenda er mest, svo sem er fólk fer til og frá vinnu, í sambandi við kvikmyndasýnin ar, heimsóknartíma sjúkrahúsa o.s.frv. Leitað verður til um eitt hundrað fyrirtækja, um að starf fólk þeirra annist umferðarvörzl á þeim gangbrautum, sem við fyrirtækin eru. Allir geta gerzt umferðarverð- ir, konur jafnt sem karlar, en 15 ára eða eldri. Er hér því Iteerkomið tækifæri fyrir fólk til að gerast virkir þátttakend- ur í umferðarbreytingunni. Kyn ingarrit liggur frammi á lög- reglustöðvum, hjá bifreiðaeftir- liti ríkisins, á pósthúsum og fleiri stöðum, auk þess sem bækl ingi með þátttökutilkynningu hef ur verið dreift. Framkvæmdanefnd H-umferð ar efnir til happdrættis meðal umferðarvarða um allt land og munu þeir fá afhentan einn happdrættismiða fyrir hverja tveggja stundá varðstöðu. Vinn- ingar í happdrættinu eru alls 10, fimm eru ferðir til Banda- ríkjanna ásamt vikudvöl þar í landi, en þá vinninga hafa Loft- leiðir gefið. Fimm vinningar eru dvöl í vikutíma í skíðaskólanum í Kerlingarfjöllum. Þá fá umferð arverðir sérstök viðurkenningar skjöl fyrir þátttöku sína í um- ferðarbreytingunni. Allar nánari upplýsingar veit ir Fræðslu- og upplýsingaskrif- stifa Umferðarnefndar Reykja- víkur, íþróttamiðstöðinni, Laug- ardal, sími 83320, og er æski- legt, að fólk verði heldur í fyrra lagi með að tilkynna þátt töku sína. starfsemi Utvarpsins, að kynna verk eldri höfunda, en leikform ið er einkar vinsælt í því efni. Með aðalhlutverk í leikþátt- um þessum, sem alls eru 6 tals ins, hver um 45 mínútur, fara þau hjónin Helga Bachmann og Helgi Skúlason. Ýmsir aðrir fara með hlutverk í þáttunum svo sem Þorsteinn Ö. Stephensen, Jón Aðils, Þóra Borg, Árni Tryggva- son o. fl. Magnús Blöndal Jóhannsson hefir samið sutta tónverkskafla, sem verða fluttir á undan hverj um þætti og á nokkrum stöðum í þeim. Sögur Rannveigar er frásogn aðalpersónu leiksins, en einstök atvik síðan leikin. Tveir fyrstu kaflarnir gerast heima í sveitinni á æskuslóðum söguhetjunnar, hinn 3. í Kvennaskólanum í Reykjavík og þrír hinir síðustu í Kaupmannahöfn. Atburðirnir gerast á þjóðlífsbreytingarstigi fyrstu tuga þessarar aldar. Leikstjórinn kvað það reynslu útvarpsmanna að íslenzk leik- verk væru vinsæl bæði meðal á- heyrenda og einnig tækju þau leikarana sjálfa sterkari tökum en mörg erlend verk. — Hann kvað áök og spennu mikla í þessu verki og lét í ljós þá von að það mætti vel líka. Á að leggja landsprólið niður? UNDANFARIÐ hafa átt sér stað miklar umræður um skólamál. Af því tilefni verða þau gerð að umtalsefni í þætti Björgvins Guð mundssonar, „Á rökstólum", sem úvarpað verður annað kvöld kl. 20,50. Björgvin Guðmundsson hefur beðið blaðið að geta þáttar þessa en dr. Matthías Jónasson og Matthías Johannessen, ritstjóri, munu þar ræða um það, hvort leggja eigi landsprófið niður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.