Morgunblaðið - 21.04.1968, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 21.04.1968, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. APRIL 190«. Minningarorð: Guðmundur Jensson F.: 26. 9. 1892 — D.: 15. 4. 1968 ÞEGAR góður vinur og frsendi, Guðmundur Jensson er kvaddur hinztu kveðju, kalla liðin sam- vistarár margar minningar fram í hugann. En í stuttri minningar- grein verður þó aðeins stiklað á stóru. Guðmundur Jensson var bor- inn og bamfæddur í Reykjavík, sonur hjónanna Ingibjargar Guð mundsdóttur og Jens Bjömssonar, er bæði voru ættuð úr Ámes- sýslu. Kvæntur var Guðmundur Sig- ríði Sigurðardóttur frá Þórarins- stöðum í Seyðisfirði eystra. Eign uðust þau hjón þrjú böm, Þór- unni, sem gift er Ólafi Hallgríms syni stórkaupmanni í Reykjavík, Emu giftri John McKesson, fuil trúa í utanríkisráðuneyti Banda- ríkjanna og Sigurð verzlunar- mann í Reykjavík, sem kvænt- ur er Önnu Flygenring. Ég veit að það var Guðmundi víðsfjarri að á hann væri borið lof eðr færðar þakkir, þó að til hvorttveggja hafi hann ríkulega unnið. Hann kaus að lifa kyrr- látu lífi, áreitnislaust við sam- borgara sína. Guðmundur hafði ákveðnar og mótaðar skoðanir til þeirra mála, Eiginmaður minn Ingimar Finnbogi Jónsson bakarameistari andaðist á Landsspítalanum 20. þ.m. Jarðarför ákveðin síðar. Þorfinna Guðmundsdóttir og vandamenn. Maðurinn minn Vigfús Þórðarson framkvæmdastjóri, Stokkseyri, lézt föstudaginn 19. apríl. Fríða Jóhannesdóttir, börn og tengdabörn. Maðurinn minn Magnús E. Sigurðsson Bryðjuholti, Hrunamannahreppi, sem lézt að heimili sínu 16. apríl, verður jar’ðsunginn frá Hrunakirkju miðvikudaginn 24. þ.m. kl. 2 e.h. Blóm og kransar afbeðin, en þeim sem vildu minnast hans láti Sjúkrahús Selfoss njóta þess. Ferð verður frá Umferðar- miðstöðinni 24. þ.m. kl. 10.30. Sigríður Guðmundsdóttir. Móðir okkar Sólveig Bergmann Sigurðardóttir verður jarðsett frá Fossvogs- kirkju mánudaginn 22. apríl kl. 1.30. Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á líknarstofnanir. Börnin, barnabörn og tengdabörn. er voru efst á baugi, og sagði jafnan hug sinn allan hvort sem likaði betur eða verr. Slíkum traustum stoðum er hverju þjóð félagi góður styrkur að. Ungur að árum brauzt Guð- mundur, þrátt fyrir lítil efni, til mennta og útskrifaðist úr Verzlunarskóla íslands. Mun Thor Jensen bæði hafa hvatt hann og styrkt til náms, enda réðst hann fyrst til verzlunar- starfa hjá honum í verzluninni Godtháb. Síðar varð hann skrifstofu- stjóri við fyrsta húsgagnaverk- stæðið í Reykjavik, sem faðir minn var meðstofnandi að, Jón Halldórsson & Co, að Skólavörðu stíg 6. Þegar faðir minn, sem keypt hafði Nýja Bíó, réðst í nýbygg- ingu fyrirtækisins við Austur- stræti, gerði hann frænda sinn og vin Guðmund Jensson að fé- laga sínum, og frá árinu 1920 ráku þeir fyrirtækið í samein- ingu. Varð samleið þeirra fé- laga og fjölskyldna þeirra bæði löng og gifturík, og óx af náin og gróin vinátta. Margs er því að minnast á þessarri stundu, en sérstaklega eru mér hugleiknar samveru- stundir með Guðmundi og frú Sigríði að Öldugötu 16. Blærinn yfir heimili, ástríki húsráðenda og ylur í orði og athöfn, var allt með slíkum ágætum að á betra verður ekki kosið. Og ég veit, að þó Guðmundur sé nú horfinn og hans skarð ófyllt, mun sama heiðríkjan haldast yfir Öldu- götu 16, því að þar heldur frú Sigríður merkinu hátt. Við kveðj um nú góðan vin, — traustan og trygglyndan, flekklausan mann og höfðingja mikinn. Hörður Bjarnason. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Vald. Briem. Þeir fara nú að týna tölunni, sem fæddir voru og uppaldir í gamla Vesturbænum, en Guð- mundur Jensson var fæddur í húsi, sem stóð vestarlega á Vest Útför eiginmanns míns Guðmundar Jenssonar forstj., Öldugötu 16, fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 22. apríl kl. 2 e.h. Sigríður Sigurðardóttir. Útför móður okkar Ólafíu Halldóru Árnadóttur fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 23. þ.m. og hefst kl. 3 e.h. Sigríður Ólafsdóttir, Sigurbjörn Ólafsson, Gísli Ólafsson. Hjartkær móðir okkar og tengdamóðir Guðleif Oddsdóttir sem andaðist 17. þ.m., verður jarðsungin frá Keflavíkur- kirkju þriðjudaginn 23. þ.m. kl. 2.30. Geir G. Jónsson, Sólveig Jónsdóttir, Anna Árnadóttir, Sigurjón 6. Gíslason. urgötunni. Svo til allt sitt líf bjó Guðmundur í Vesturbænum. Óg þegar hann reisti sitt fallega hús, þá var það við Öldugötu, rétt ofan við æskustöðvamar. í bernsku missti hann Jens föð ur sinn, sem var sjómaður. Þar með brást fyrirvinman svo Ingi- björg, móðir hans, varð ein að taka við framfæri heimilisins. Það má geta þess nærri, að oft hafi verið þröng í búi hjá þeim mæðginum. En með mikilli fyr- irhyggju og sparsemi, þá tókst þeim að brjótast í gegnum boð- ana. Morten Hansen kenndi drengj um smíði í barnaskólanum og varð hann hissa þegar Guðmund ur og vinur hans Hafsteinin Berg þórsson báðu hann um að fá að smíða hjólbörur, sem ekki tíðk- aðist, en þær gætu þeir lagt á borð með sér við útvegun á at- vinnu. Þetta tókst. Þannig var það á þessum mögru árum í byrj un aldarinnar, að drengir þurftu að leggja með sér til þess að fá eitthvað að gera. Þetta atvik er nú tilfært hér vegná þess að það sýndi strax hvað í piltinum bjó. Það má segja að þessi fyrir hyggja ásamt stakri reglusemi hafi einkennt allt líf þessa mæta manns. Guðmundur Jensson átti góða konu, frú Sigríði, og samtaka reistu þau sér eitthvert fegursta heimili. Þahgað sóttu alla tíð stór vinahópur, auðfúsugestir, því gestrisni var hjónunum í blóð borin. Guðmundur var elsku legur heimilisfaðir og lét sér fjög annt um sína nánustu með ráðum og dáð. Kæri vinur, hafðu þökk okkar allra. Drottinn, gef þú dánum ró og þeim líkn, er lifa. Ólafur Hallgrímsson. GUÐMUNDUR Jensson, for- stjóri Nýja Bíós lézt 15. þ.m. og verður útför hans gerð á morg- un frá Dómkirkjunni. Innilegt þakklæti fyrir auð- sýnda samúð við andlát og jarðarför mannsins míns, föð- ur, tengdaföður og afa Jóhannesar Sigurjónssonar Breiðabóli, Eyrarbakka. Sigríður Ólafsdóttir, Dóra Jóhannesdóttir, Ólafur B. Jóhannesson, Hjördís Antonsdóttir og barnaböm.___________ Þökkum hjartanlega auð- sýnda samúð við andlát og jarðarför Sigurðar Hannessonar Hólum, Stokkseyrarhreppi. Systkini hins látna og aðrir vandamenn. Guðmundur var fædduir I Reykjavík 26. september 1892 og var þvi á 76. aldunsári er hann lézt. Foreldrar harus voru hjónin Jens Björnsson, sjó- maður og Ingibjörg Guðmunds- dóttir. Aldur sinn allan og starfsæfi átti hann í Reykjavik, og var otft ánægjulegt að heyra hann ininnast „gömlu" Reykjavikur, þegar minningar æsku og upp- vaxtaráranna komu í huga hans. Guðmundur gekk í Verzlunar- skólann að barnaskólanámi loknu, og lauk þaðan prófi árið 1911. Hóf hann þá störf, sem bókihaldari, hjá húsgagnaverk- stæði Jóns Halldórssonar & Co, en einn eigenda þess fyrirtækis var frændi hans Bjami heit. Jónsson frá Galtafelli. Hófst þá samstarf þeirra félaga, er síðar úrðu sameigendur frá 1920 að fyrirtækinu Nýja Bíó, en hjá því hafði Guðmundur einnig starfað að bófchaldi frá 1914. Samvinna þeirra Bjarna og Guðmundar, sem entist alla tíð meðan báðir lifðu, en Bjami andaðist 20. ágúst 1966, var með eindæmum góð og bar þar aldrei skugga á, var eftir báð- um haft. Guðmund'ur var sérlaga dag- farsrprúður og vel metinn maður og hvar sem hann starfaði eða fór bar hann með sér þofcfca hins grandvara mamns, er ekki mátti vamm sitt í neinu vita. Félag kvikmyndahúseigenda á nú á bak að sjá traustum og góðum félaga, er ætíð var reiðu- búinn að leysa þau vandamál er upp kunnu að koma, stæðd það í hans valdi, en hann var alla tíð áhugasamur um velferð félagsins. Kvæntur var Guðmundur Sigríði Sigurðardóttur, er lifir mann sinn, hinni ágætustu konu. Bjó hún manni sínurn fagurt og smekklegt hehnili, og voru þau einkar samrýmd alla tíð. Böm eignuðusit þau þrjú, er ÖU hafa nú stofnað sín eigin heimili. Samstarfsmenn hans í Félagi Kvikmyndahúseigenda flytja eiginkonu hans og ástvinum ÖH- um inniiegar samúðarkveðjur. Fermingarskeyti ritsímans s'imar 06 og 07 L0KAÐ mánudaginn 22. þ.m. frá kl. 1 e.h. vegna jarðarfarar Guðmundar Jenssonar, forstjóra. Málflutningsskrifstofa Ágústs Fjelsteð og Benedikts Blöndal, Vátryggingaskrif stof a Sigfúsar Sighavtsson h.f., Kaiiphöllin. 22. APRÍL. Hrúturinn 21. marz — 19. apríl. Þú verður að sætta þig við nokkur vonbrigði jafnvel ósigur I einhverju máli, ef til viU þó akki alvarlegra en heimiliserjum. Nautið 20. apríl — 20. maí. Maki þinn eða náinn ástvinur hefur fyrir slysni komið þér í slæma klípu. Notaðu hugvit þiibt og kænsku tiil að kippa þvi i lag. Tvíburarnir 21. maí — 20. júni. Farðu snemma á fætur og rakleitt til starfa. Hlustaðu vand- lega á það, sem starfsfélagar þínir hafa til málanna að leggja, en taktu enga endanlega ákvörðun í því. Krabbinn 21. júní — 22. júlí. Þú skalt gæta þess að fara eftur u'mferðarreglum í dag, eJla gæti óhapp hent þig og þú ert stundum of kærulaus Forðastu að fara með slúður. Ljónið 23. júlí — 22. ágúst. Vogun vinnur, vogun tapar stendur einhvers staðar. Hætt er við að þú teflir nofckuð djarft í dag og afleiðingamar verða ekki sem skemmtilegastar. Jómfrúin 23. ágúst — 22. september.' Allir virðast argast £ þér í dag og vilja fá þig til að hlusta á sig. Taktu því af heimspekilegri ró og leggðu elfcki trúnað á ýmsar sögur, sem þér eru sagðar uim kunningja þína. Vogin 23. sptember — 22. október. Þér hættir við að ofmeta getu þína og skalt sýna meiri hógværð og lítillæti, þá mun og enda betur ganga. Hugsaðu spaklega 1 kvöld. Drekinn 23. október — 21. nóvember. Þú verður fyrir einhvers konar geðshræringu í dag og munu afleiðingar hemnar koma þér á óvart. Þú skalt sýna fjölskyldu þinni þolinmæði, þótt þér virðist hún erfið á stundum. Bogmaðurinn 22. nóvember — 21. desember. Hugsjónasemi þín getur orðið þér erfið I dag, hugleiddu að ekki er allt sem sýnist og ekki eru allir viðhlæEiendur vinir. Steingeitin 22. desember — 19. janúar. Þér er ráðið frá að gera nokkra kaupsamninga í dag og yfir- leitt skaltu sýna fyllstu aðgát, hvort sem er i peningamálum eða ástamálunum og flana ekki að neinu. Vatnsberinn 20. janúar — 18. febrúar. Þú lendir í leiðindum og þrasi á vinnustað, en ósenmilegt að þú eigir þar nokkra beina sök á. Úr öllu rætist betur en á horfir. Fiskarnir 19. febrúar — 20. marz. Heilbrigð skynsemi og kurteisi þoka þér býsina lan.gt í dag, hafir þú vit á að beita þessum eiginleikum. Vertu heiima við í kvöld.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.