Morgunblaðið - 21.04.1968, Síða 7

Morgunblaðið - 21.04.1968, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. APRIL 1968. 7 Hrifnust of heitum litum 99 segir Alda Snœ- hólm Einarsson, sem sýnir málverk í Mbl-glugga Um þessa helgi hefst sýn- ing í glngga Morgunblaðsins á myndum eftir Öldu Snæ- hólm Einarsson. Alda hélt málverkasýningu í nýju Templarahöllinni fyrir tveimur árum. Svo sem kunnugt er, dvaldist Alda langdvölum í Perú, meðan maður hennar, dr. Hermann Einarsson, (sem lézt í bílslysi suður í Aden á jóladag 1966) — starfaði þar á vegum Sam- einuðu þjóðanna. Við skruppum heim til Öldu á dögunum, og spurð- um hana um málverkin. „Eins og ég hef raunar sagt þér frá áður, hef ég teiknað og málað síðan ég var litil stelpa, eins lengi og ég man ■eftir mér, — og mér finnst það vera ógnar langur tími. Því meir, sem ég hef unnið við að mála og þroskast í um hverfi lista og vísinda, þá hefur áhugi minn á fögrum listum stöðugt aukist. Mér finnst raunar ekkert líf vera, ef ég get ekki málað og átt við liti. Ætli ég sé ekki litaglöð í meira lagi. Kennara hef ég átt ágæta, og þakka þeim, hvað mér hefur tekizt að festa á léreft.“ „Þú hefur málað í mörgum heimsálfum, Alda. Hvar er bezt að mála?“ „Máski trúir þú því ekki, en ég er svo gefin fyrir heita liti og þess vegna finnst mér bezt að mála í Suðurlöndum. Það á einhvernveginn betur við mig. Finnst þér of mikið af rauðum litum í málverkun um mánuma? Má vera, en sjáðu til, það er heitasti litur, sem ég þekki. Þú hefur stund um sagt, að nautamyndin min frá Perú, væri góð, en athugaðu nefnilega eitt, hún : Aalda Snæhóim Einarsson ásamt hundinum ísabellu, báðar að farast úr hita niður í Lima í Perú. væri ekki fyrir hendi. Hvort steypt, ef þessi rauði litur væri ekkki fyrir hendi. Hvort ég skýri myndirnar mínar? Já, yfirleitt, t. d. þessa, sem ég myndi segja, að þú bland- aðir aldrei saman við hugsun ina um kött. Þó heitir hún í höfuðið á hundi“. „Jæja, og hvaða hundi, með leyfi?“ . „Henni Isaibellu.“ „Já, en ef ég mætti skýra myndina myndi ég kalla hana Eldur í æðum, án þess ég svo sem sé á móti hundinum". „Þú spyrð, hvort ég ætla að halda áfram að mála? Vertu alveg viss. Það mun ég gera. í sumar ætla ég að leið beina íslenzkum ferðalöngum á Mallorca hjá honum Guðna í Sunnu. Ég hef raunar aldrei til eyjarinnar komið, en á Spáni og í spönskumælandi löndum hef ég löngum verið, og þess vegna held ég, að mér sé ekkert að vanibúnaði." „Jæja, svo þú heldur það. Ætlarðu að mála þar suður í heitu litunum?" „Já, endilega, ef mér helzt á penslinum, en það er svo annað mál. Vona hinsvegar, að ég geti orðið að liði lönd- um mínum, þar suður frá.“ Okkur láðist í upphafi að geta þess, að sýning Öldu í glugganum er sölusýning, og má fá upplýsingar um verð hjá auglýsingadeild Morgun- blaðsins, Sýning Öldu stendur yfir í rúma viku. — Fr. S. Kínverji skemmtir r 1 Vikingnsal Það er ekki oft, sem okkur fslenðingum gefst kos tur á að sjá kínversk fjöllistabrögð, en einmitt um þessar mundir er hér á landi kínvierski fjöllistam aðurinn Wong Mow Ting, og sýnir hann hinar ótrú- legustu listir, sem eru okkur jafn framandi og m argt annað, sem þeir takast fyrir hendur þar í Austurlöndum. Ting er sextugur að aldri, og hefur stundað iðju sína um 40 ára sk,eið, enda ekki annað að sjá en hann viti sínu viti i faginu. Hann hefur ferðast h eimshornanna á milli, og skemmt á frægustu fjöl- leikahúsum veraldar, næturkúbbum, sirkusum «g ennfremur komið fram í sjónvarpi nær aJls staS- ar þar, sem hann hefur haft viðdvöl. Hér stendur Ting við fram yfir næstu mánaðamót og skemmtir gestum í Víkingasal. 2ja—3ja herb. íbúð óskast helzt í Kópavogi. Uppl. í síma 41828. Fyrir- fraimgTeiðsla. Atvinnna 14 og 15 ára telpur óska eftir vinnnu. Uppl. í síma 21827. Til leigu Góð 3ja herb. íbúð til leigu í Bogahlíð. Tilb. merkt „Hlíðar — 8502“ leggist á afgr. Mbl. fyrir 25. þ.m. Til sölu trésmíðavélar. Uppl. í síma 83018. BEZT að auglýsa í Morgunblaðinu Harmonikka Góð Exelsior harmonikka með „pick-up“ og magnari, ef vill, til sölu. Sanngjarnt verð. Uppl. í síma 15560. Murarar! Hlúrarar! Tilboð óskast í að pússa að utan húseignina Digranesveg 46, Kópavogi. Tilboð óskast gerð í tvennu lagi; með og án vinnupalla. Æskilegt að verkið fari fram í maí n.k. Tilboðum sé skilað á afgr. Mbl. fyrir n.k. föstudag, merkt ,,Vandvirkni44 5493 RÁÐSKONA Kona, sem er vön hússtjórn, um 50 ára gömul, óskast til að annast heimili fyrir einhleypan, roskinn mann. Góð húsakynni. Einföld matreiðsla. Nöfn og upplýsingar sendist Morgunblaðinu auð- kennt: „Ráðskona — 5491“. V.Í. 53 V.Í. ’53 Áríðandi fundur verður haldinn í baðstofu Nausts, mánudaginn 22. apríl kl. 17.00. Tekin verður ákvörðun um framkomna tillögu um utanlandsferð. STJÓRNIN. ARABIA-hreinlætistæki Hljóðlaust W.C. Hið einasta í heimi Verð á W.C. aðeins kr. 3.375.00 Handlaugar — 930,00 Fætur f. do. — 735,00 Clœsileg vara. Verð hvergi lœgra Einkaumboð fyrir ísland: HANNES ÞORSTEINSSON heildverzlun, Hallveigarstíg 10. — Sími 2-44-55.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.