Morgunblaðið - 21.04.1968, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. APRÍL 196«.
Á æfinpm „um víða veröld" í
kjallara á Reykjavíkurflugvelli
— Loftleiðaflugmenn œfa aðflug að Skandinavíuflugvöllum,
áður en RR-400 hefur þangað áœtlun
SENN líður að því að Loft-
leiðir fari með RR-400 vélar
sínar inn á flugáætlun til
Norðurlanda. Hefst þá nýr
þáttur í sögu félagsins og eru
Loftleiðamenn þegar byrjaðir
að búa sig undir þessa breyt
ingu- Flugmenn félagsins æfa
nú aðflug að flugvöllum í
Osló, Gautaborg og Kaup-
mannahöfn á nýju vélunum,
en það sem merkilegast er að
æfingin fer fram í kjallara
skrifstofubyggingar félagsins á
Reykjavíkurfiugvelli, en ekki
á áðurnefndum stöðum.
í kjallara skrifstofubygging
arinnar er sjálfvirkur stjórn-
klefi, sem unnt er að fljúga
í, þótt ekki sé það í bókstaf-
legri merkingu. Stjómklefinn
er eftirlíking af stjórnkleía
RR-400 flugvélar og flugmað-
ur, sem situr og stjórnar þess
um klefa finnur engan mun
á því og að stjórna heilli flug
vél með 200 farþega. Eini mun
urinn er, að hann veit að
hann tekst ekki á loft.
Fyrir nokkrum dögum heim
sóttum við Dagfinn Stefáns-
son, flugstjóra, þar sem hann
var að æfa aðflug í Gauta-
borg og þjálfarann Hörð Sig
urjónsson, sem þjálfar alla
flugmenn Loftleiða og er ný-
kominn að utan, þar sem hann
kynnti sér flugvelli og flug-
stjóm í sambandi við þá.
Hörður á varla orð til þess
að lýsa þeirri gestrisni, er
hann maetti á flugvöllunum
erlendis, en þar fékk hann
allar þær upplýsingar, er
hann þarfnast.
Er við komum, er Dagfinn-
ur að fljúga yfir flugvellinum
í_ Gautaborg og búa sig undir
lendingu. Hörður situr rétt
fyrir aftan hann og segir hon
um til í lendingunni, sem
fram fer í algjörri blindni.
Flýgur Dagfinnur síðan' eftir
mælum og boðum Harðar, unz
hann lendir heilu og höldnu
á einni flugbrautinni í Gauta
borg. Er hann lendir breytist
hreyflahljóðið og við heyrum
ísikrið í hjólbörðum flugvélar
innar, er þeir snerta jörðina.
Allt er eins eðlilegt og frek-
ast má vera og er Dagfinnur
stenduy upp úr sæti sínu, tök
um við eftir því að hann er
þreytulegur.
— Það er svo sem ekkert
undarlegt, þótt Dagfinnur andi
léttar, er hann er lentur —
segir Hörður og brosir. í raun
inni er það sem hann hafi lent
RR-400 einn síns liðs, en
Dagfinnur Stefánsson, flugstjóri „lendir“ í Gautaborg, einn síns liðs á RR-400. (Ljósm.:
ÓI. K. M.)
Þannig lítur stjórnklefi RR-400 út.
slíkt kemur aldrei fyrir í
raun, þar eð flugstjórar hafa
alltaf aðstoðarflugmenn. Þetta
er því töluvert erfiði og furðu
legt er, hvel vel þeim tekst
yfirleitt strákunum. Ég verð
M að segja það að leikni Loft-
leiðaflugmanna er aðdáanleg.
Við tökum nú Dagfinn tali.
Hann útskýrir fyrir okkur
mikilvægi tækisins.
— Það er afar mikils virði
að æfa sig á þeim flugvöllum,
þar sem tíðar breytingar eru
í aðflugi og eins er gott að
fara yfir allar aðstæður, þeg
ar flogið er til staða, þar sem
viðlkomandi hefur ekki kom-
ið áður. Það er í rauninni eins
og maður hafi komið þangað
áður og lent, hafi maður lent
Hörður gefur Dagfinni upp stefnu og aðrar upplýsingar sem
flugstjórnarmaður á jörðu niðri.
leysur, en síritar skrá, hverja
hreyfingu, þannig að ekki
þarf vitnanna við. Unnt er að
ræða og spjalla um mistökin
eftir á og þannig læra menn.
Þetta hefur reynzt ungum
flugmönnum mikil stoð og með
hjálp tækisins öðlast þeir
miklu fyrr reynslu og öryggi.
— Hve rnargar slíkar æfing
artíma fær hver flugmaður
Loftleiða?
— Hann fær 2 tíma á mán-
uði og allt upp í 30 tíma á
ári, segir Hörður og Dagfinn-
ur skýtur inn í: Tveggja tíma
gufubað hverju sinni, því að
raunin er erfið, þegar Hörður
byrjar að reyna mann.
— Æfingar eru búnar að
standa yfir á lendingum í
Skandinavíu hér síðan 20
marz, segir Hörður. Við höf-
um þegar æft Osló, erum með
Gautaborg og tökum þrátt til
við Kjaupmannaböfn.
— Svo er auðvitað kostur
tækisins og er hann ekki hvað
minnstur, segja þeir félagar,
að ekki þarf að nota flugvél-
arnar sjálfar, en hver flug-
tími á þeim er æði dýr, kost
ar líklega einhvers staðar á
milli 1000 og 1500 dollara.
Flugmenn, sem fá þjálfun í
svona tæki þurfa ekki eins
marga æfingartíma á ári, þótt
lögum samkvæmt sé ekki al-
gjörlega unnt að láta þetta
tæki koma í stað flugvélanna.
Minni brögð verða af því að
flugvélarnar séu teknar út úr
áætlun, og þar af leiðandi
minni líkur á að hjólbarðar
eða einhver hlutur bili í æf-
ingarflugi. Allar slíkar tafir
geta valdið miklu fjárhags-
legu tjóni fyrir félagið. Þetta
tæki, þótt dýrt sé í sjálfu sér
sparar því mikla fjármuni.
Flugmaður þarf líklega helrn
ingi færri æfingartíma í lofti,
hafi hann aðgang að svona
tæki.
í stjórnklefanum hér. Munur
inn er enginn og ekkert getur
komið á óvart — lendingar-
skilyrði eru gamlir kunningj
ar, ef svo má segja-
Hörður grípur nú inn í sam
talið og segir:
— Þetta er í rauninni ekki
eini akkurinn í tækinu. Ég
sem sit hér fyrir aftan flug-
manninn og segi honum tiil í
blindlendingu eins og ratsjár
maður á jörðu niðri myndi
gera, get jafnframt látið hvað
eina bila í flugvélinni. Hreyfl
arnir geta tekið að snúast of
hratt, þeir geta stöðvast, eld-
ur getur kviknað í hreyfli eða
annars staðar og þá verður
flugmaðurinn að hafa snör
handtök. Hann getur gert vit
Þingsályktunartillaga samþykkt:
Lög um náttúruvernd, friðun Þing-
valla og þjoðgarða endurskoðuð
í VIKUNNI samþykkti Alþingi
tillögu til þingsályktunar um
náttúruvernd, friðun ÞingvalLa
og þjóðgarða. Tillagan var flutt
af allsherj arnefnd Sameinaðs- A1
þingis, og er svohljóðandi;
„Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjóminni, að láta endursOtoða
lög nr. 59 1928, um friðun Þing-
valla og lög nr. 48 1956, um nátt
úruvemd, friðun Þingvalla og
þjóðgarða. Endurskoðunin miði
að því að auka náttúruvernd og
auðvelda almenningi aðgang að
heppilegum stöðum til útivistar
og náttúruskoðunar. Einnig verði
verk- og valdsvið náttúruvemd-
arráðs og Þingvallanefndar skil-
greint sem gleggst“.
Fyrr í vetur komu fram tvær
þingsályktunartillögur frá þing-
mönnum er fjölluðu um tengt
efni, og leit allsherjarnefnd svo
á, að æskilegt væri, að endur-
skoðun á þeim lögum, er þau
snerti færi fram í einu, svo að
sem bezt samræming fengist og
flutti því áðurnefnda tillögu.
Við umræðu um tillöguna flutti
Magnús Kjartansson við hana
breytingartillögu þess efnis, að
á meðan endurskoðun laganna
um friðun Þingvalla færi fram,
væri Þingvallanefnd falið að
banna byggingaframkvæmdir á
vegum einstaklinga í Þingvalla-
landi. Síðar dró svo þingmaður-
inn tillögu sína til baka, en
studdi tillögu Jónasar Árnason-
ar og Gísla Guðmundssonar,
sem var þess efnis að ekki yrðu
leyfðar nýbyggingar sumarbú-
staða á Þingvallasvæðinu meðan
endurskoðunin færi fram. Til-
laga þessi var síðan felld við
atkvæðagreiðslu í þinginu.
Við umræður á Alþingi hefur
komið skýrt fram, að elkki er
ætlun Þingvallanefndar að leyfa
byggingu fleiri sumarbústaða á
Þingvallasvæðinu, en þegar hef
ur verið gert.
Kosið í stjórn
landshafnar
í Þorlákshöfn
HERMANN Eyjólfsson oddviti í
Gerðakoti í Ölfusi var í gær
kosinn á fundi Sameinaðs þings
sem varamaður í stjórn lands-
hafnar í Þorlákshöfn. Er Her-
mann kosinn í stað Gunnars
Markússonar, er varð aðalmað-
ur, er Magnús Bjarnason andað-
ist í sl. marzmánuði.