Morgunblaðið - 21.04.1968, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 21.04.1968, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. APRÍL 1968. 17 Há verðlaun á búfjársýningu HAFIN er af fullum krafti undirbúningur Landbúnaöar sýningarinnar, sem fram fer hér dagana 9.—18. ágúst í sumar. Stjórnendur sýningarinnar hafa nú skýrt frá því, að einn veigamesti þáttur hennar verði búfjársýning. Verður þar mikii samkeppni og há verðlaun veitt. Hafa þeir látið frá sér fara leiðbeiningar um tilhögun búfjársýningarinnar og hvernig verðlaunum verður skipt. Sýn- ing fer fram á hrossum, naut- gripum og sauðfé. Tilhögun verð ur sem hér segir: HEIMILT er að sýna kynbóta- hross og gæð'nga af öllu land- inu. Stóðhestar verða sýndir í þremiur aldurstflokkum, þ. e. 4—'5 vetra, 6—8 vetra og 9 vetira og eldri. í öllum flokkum þeirra verða verðHunin: 1. verðlauin 20.000 kr., 2. verðlaun 10.000 kr., 3. verð- laun 6000 kr., 4. verðíaun 5.000 k;r., 5. verðlaun 4.000 kr., 6. verð- laun 3.000 kr. Aukaverðlaun fær bezti stóð- hesturinn, kr. 30.000, þannig að sá hestur fær sarrutalis 50.000 kr. Gert er ráð fyrir að taka á mióti 18 stóðhestuim til sýningar. Kynbótahryssur verða sýndar í þremur aldunsflökkum, 4ra og 5 veta, 6—8 vetra og 9 vetra og eldri. í öllum flokkum verða verð- laiunin: 1. verðlaun 10.000 kr., 2. verðlaun 7.500 kr., 3. verðlaun 5.000 kr., 4. verðlaun 4.000 kr, 5. verðlun 3.000 kr., 6. verðlaun 2.000 kr. Aukaverðlun fær bezta hryss- an, 10.000 kr. Sýndir verða tólf gæðingair í tveimur flokkum: klárhestar og vekringar. í báðum flokkum verða verð- launin: 1. veðiaun 8.000 kr., 2. veðlaun 6.000 kr., 3. veðlaun 5.000 kr., 4. verðlaun 4.000 kr., 5. verðlun 3.000 kr., 6. verðlaun 2.000 kr. Aukaveðlaun fyrir bezta hest- inn verða kr. 7.000. Eigendur hrossanna annast og kosta flutning þeirra til og frá sýningunni og greiði þútttöku- gjald fyrir stóðhest kr. 3.000, en fyrir hryssur og gæðinga kr. 2.000. Beiðni um þátttöku í sýning- unni sendist Búnaðarfélagi ís- landis fyrir 15. maí n.k. Af svæðinu frá varnargirð- ingu í Hvalfirði að Markar- fljóti, er ráðgert að velja í sam- ráði við stjóirnir nautgripaækt- arfðlaganna nautgripi til sýn- ingar. Sýnd verða fjögutr úrvals kynbótanaut og væntanlega tvö þeirra með þremur dætirum hvort. Betri hópurinn fær 35.000 kr. verðHaiun. Af yngri nautun- um fær betra nautið 5.000 kr., verðlaun, Sýndar verða 12 úrvals kýr í tveimur flokkum, eldri og yngri kýr. Þar verða sömu veirðiun í báðum flokkum: 1. verðlaun 10.000 kr., 2. verðlaun 8.000 kr., 3. verðlaun 7.000 kr, 4. verðlaun 6.000 kr., 5. og 6. verðlaun 5.000 kr. Ein aukaverðlaun verða veitt fyrir beztu kúna, kr. 15.000. Sú nýbreytni verður tekin upp nú, að unglingar sýna káltfa, sem þeir hafa allið upp og gert taum- vana. Þessir kálfair verða tóltf og sá unglingurinn, sem sýnir fallegasta og bezt hirta káifinn, fær kr. 10.000, en allir ungling- arnir fá peningaiverðlaun. Til viðbótar því, sem nefnt hefur verið, verða þarna sýndir þrír holdagripir, átta nýfæddir kálfar og þrír alikálfar. Flutn- ing gripanna að og frá sýningu annast nautgnparæktarsambönd- in eða féiög. Eigendui- gripanna þurfa aö tryggja þá. Leyft hefur verið að taka sauðfé til sýningar af svæðinu á milii Hvítár og Þjórsár, þ. e. úr Hreppum, Skeiðum og Flóa. Gert er ráð fyrir að sýna fimm- tíu kindur veturgamlar og eldri. Allt sýningarféð fær verðlaun og á lægsta uppnæðin að vera það há, að eigandi kindarinnar verði ekki fyrilr fjárhagstjóni af því að sýna kindina. Þá verða sýndar firnm geitur með kiðlingum. Ennfremur allar tegundir alifugla svo og svín. Eymundur Magnús- son, skipstjóri 75 ára Aðalskrifstofan verður d Siglufirði — Ftumvarpið afgreitt sem lög Á FUNDI neðri deildar á föstu- dagskvöld héldu áfram deilur um staðsetning aðalskrifstofa Síldarútvegsnefndar. Fimm þing menn fluttu við þriðju umræðu breytingartillögu við þá grein frv. sem mælti fyrir um að aðal skrifstofa nefndarinnar skyldi vera á Siglufirði. Lögðu þeir til, að í staðinn fyrir aðalskrifstofu Fundur N-deildar stóð til kl. 3 e.m. FUNDI Neðri deildar Alþingis I allra heilla og tóku þingmenn lauk um kl. 3 á föstudagsnótt undir með því að rísa úr sæt- og í gærmorgun lauk fundum | um. Efri deildar. Er Neðri deild stæði skrifstofa, þ.e- ekki væri tekin afstaða til staðsetningar að alskrifstofu nefndarinnar. Birgir Finnson mælti fyrir breytingartillögunni og lagði hann rika áherzlu á, að hún yrði samþykkt. í sama streng tóku Jón Skaftason, Sverrir Júlíusson og Hannibal Valdimarsson. Kom fram í ræðum þeirra, að síldar- saltendur, a.m.k. fyrir austan land, hefðu í hyggju að stofna sölufélag á saltsíld, yrði lögfest, að aðalskrifstofurnar ættu að vera á Siglufirði. Björn Pálsson mælti gegn til- lögunni. Við atkvæðagreiðslu var til- laga Birgis Finnsonar o. fl. felld með 19 atkv. gegn 13. Var frv. síðan samþykkt og afgreitt sem lög frá Alþingi, með 20 atkv. gegn 9. EYMUNDUR Magnússon, skip- stjóri, er 75 á þessum sunnudegi. Vil ég því minnast þessa mæta manns og góða drengs með ör- fáum orðum. Fjörutíu og fjög- ur ár eru liðin frá því að leiðir okkar lágu saman af einskærri tilviljun og ekki árekstralaust. Frá þeim tíma, er hann kær vin ur minn. Eymundur er Strandamaður, fæddur á Hafnarhólmi í Stein- grímsfirði, sonur Magnúsar bónda Kristjánssonar og konu hans Guðrúnar Mikaelsdóttur. Þar er lítið og mjótt land milli fjalls og fjöru, og því fór Ey- mundur á sjó um leið og hann gat staðið einn. og uppréttur. Þeir, sem fæðast á þessum út- skaga heims er í blóð borið að flytjast á fjölum milli bæja og fjarða. Leið Eymundar lá bein og greið úr heimahögum en ekki ágjafalaus. Eymundur var í siglingum á ýmsum skipum á unglingsárum eins og aðrir fardrengir, en fór í Stýrimannaskólann og útskrif- aðist þaðan með farmannaprófi 1917. Þá hélt hann aftur úr höfn, en 1921 réðst hann til Eimskipa félags íslands, og því félagi vann hann æ síðan. Sú kynslóð sjómanna, sem Ey- mundur er sprottinn af, man tímana tvenna og þrenna. Áð- ur fyrr var ekki verið að mylja undir hásetana. Þeir urðu að hafast við í þröngum vistar- verum, láta sér. nægja skarðan kost og vinna hörðum höndum myrkra á milli óg meira en það. En úr slíkum jarðvegi uxu hraustir og harðfengir menn. Þessum mönnum eigum við það að þakka að þjóðin svalt ekki heilu hungri í fyrri og síðari heimsstyrjöldinni. Ég geri það áreiðanlega ekki í neins manns þökk að segja frá því, að Eymundur varð fyr- ir því í báðum heimsstyrjöldun- um, að skipum sem hann var á, var sökkt af kafbátum. Þá var hættulegra að sigla yfir Islands- ála en að vera í fremstu víg- línu. Þetta fengu margir ökkar beztu manna að reyna. Sumir guldu með lífinu en aðrir kom- ust naumlega í höfn, og skal ekki fjölyrða um það. Eymundur Magnússon hefur verið farsæll, maður og það hef ur hann orðið af sjálfum sér. Hann er sá dagfarsprúðasti og orðvarasti maður sem ég hef kynnst. Ég hef aldrei séð hann skipta skapi, né heldur að hon- um brygði við voveiflega hlúti. Ávallt var hann sami trausti maðurinn, sem öðrum þótti gott að halda í hönd á. Æðrulaus og hugrakkur hefur hann gegnt skyldum sínum við þjóðfélagið og goldið því meira en það honum. Hátíðarárið 1938, gekk Ey- mundur að eiga Þóru, dóttur séra Árna Þórarinssonar frá Stóra Hrauni, og hefur hún búið honum og börnum þeirra ágætt heimili. Þar er meðal annars mikið safn góðra bóka, sem Ey- mundur hefur viðað að sér á langri ævi, en mestur er þó yl- urinn og hjatrahlýjan á heimili þeirra hjóna. Eymundur vinur minn Magn- ússon hefur aldrei verið marg- máll og því skal hans dæmi fylgt að segja ekki meira, én óska honum og ástvinum hans allra heilla á þessum heiðurs- degi. Hákon Bjarnason. hafði lokið afgreiðslu mála, þakkaði Sigurður Bjarnason, forseti Neðri deildar, þingmönn- um gott og ánægjulegt samstarf vi ðþingstörf og umburðarlyndi síðustu daga þingsins í þeim önnum, er þá voru. Árnaði hann þingmönnum allra heilla og gleðilegs sumars. Lúðvík Jósefsson þakkaði fyrir hönd þingmanna og flutti forseta og fjölskyldu hans árn- aðaróskir. Tóku þingmenn undir með því að rísa úr sætum. Jónas G. Rafnar, forseti Efri deildar, flutti og þingmönnum árnaðaróskir, er afgreiðsla mála var lokið í deildinni. Hann þakk aði gott samstarf við þingmenn og árnaði þeim gleðilegs sum- ars. Páll Þorsteinsson þakkaði fyr ir hönd þingmanna. Árnaði hann forseta o gfjölskyldu hans Fermingarbörn í TILKYNNINGU um fermingar börn séra Jóns Auðuns í Mbl. í gær, en fermingin fer fram kl. 2 í dag misritaðist heimilisfang eins piltsins, Guðmundar Ólafs Haukssonar, en hann býr á Mið- braut 24, Seltjarnarne.si. f GÆR misrituðust föðurnöfn tveggja fermingarbarna í Hafnar firði. Rétt eru nöfnin þannig: — Dóróthea Elísa Jónasdóttir, Hóla braut 8 og Sigurlaug Helga Em- ilsdóttir, Suðurgötu 48. WKARNABÆR TIZKUVERZLUN UNGA FOLKSINS TYSGOTU I SIMI 18970. VOR- OG SUMARTÍZKAN ER KOMIN OG KEMUR NÆSTU VIKU. KAPIJR FYRIR SUMARDAGINN 1. DRAGTIR ★ MINI-PEYSUR í MIKLU ÚRVALI. ★ PEYSUR m/BELTI ★ ALPAHÚFUR í LITUM ★ PÍFUBLÚSSUR ★ RULLUKRAGA- SKYRTUR ★ „CAPONE“-SKYRTUR ★ PÍFUSKYRTUR VÆNTANLEGAR A MORGUN. ★ STAKAR BUXUR í MIKLU ÚRVALI. ★ STAKIR JAKKAR ★ FÖT ★ PEYSUR ★ PEYSUR + KLÚTAR POSTSENDUM UM LAND ALLT.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.