Morgunblaðið - 08.06.1968, Side 2

Morgunblaðið - 08.06.1968, Side 2
2 MORGíljNBLAÐtÐ, LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1968 De Gaulle íhugaði að láta af völdum París, 7. júní. NTB-AP DE GAULLE forseti játaði í sjónvarpsviðtali í kvöld, að hann hefði verið að því kom- inn að segja af sér í síðustu viku en ákveðið að verða áfram við völd til þess að af stýra því að niðurrifsöfl kolL vörpuðu fimmta lýðveldinu. Hann sagði, að ófremdar- ástandið sem ríkt hefði í land inu væri verk hópa sem gerðu uppreisn gegn nútímasamfé lagi, neyzlusamfélaginu, vél væðingarsamfélaginu, hvort sem það kallaðist kommún- ismi í austri eða kapítalismi í vestri. En hann sagði, að þessir hópar vissu ekki hvað koma ætti í staðinn. Forsetinn igagnrýndi bæði kapítalisma og kommúnisma og gei'ði grein fyrir nýrri stefnu sem hann kallaði „þriðju lausn- ina“, sem hann sagði að væri byltingarkennd en fælist í breyt ingum á því sem fyrir hendi væri. Samkvæmt tillögum hans eiga verkamenn að fá aukna hlutdeild í rekstri fyrirtækja og aukinn hluta af arði þeirra þannig að hagur fyrirtækjanna verði hagur þeirra sjálfra. Mikil átök urðu milli stúdenta og lögreglumanna úti fyrir Renault bílaverksmiðjunum skammt fyrir utan París í dag. Óeirðirnar hófust, þegar stúdent- ar og verkamenn reyndu að ná bygginguoni aftur á sitt vald, en lögreglan rak verkfallsmenn það an á brott í gær. Mörg þúsund æstir verkamenn og stúdentar tóku þátt í átökun- um og varð lögreglan að beita táragasi og kylfum til að flæma óeir’ðarseggina í burtu. Ýmsir verkalýðsleiðtogar höfðu hvatt verkamennina til að halda verk- föllunum áfram. Lögireglan kom fyrir vegatálmunum á stóru svæði umhverfis verksmiðjurnar og rannsakaðar voru allar bif- reiðar, sem fóru um. Samkvæmt fréttum AFP fréttastofunnar frönsku meiddust 12 manns, er lögreglan kastaði táragassprengj- um að götuvígjurri, sem stúdent- ar og verkamenn höfðu hlaðið, og urðu þeir síðan að láta und- an síga. >eir héldu þá rakleitt til Parísar aftur, en þar höfðu málmiðnaðarmenn tilkynnt mót- mælafund seinni hluta dagsins. Víðast hvar annars staðar í Frakklandi er allt með kyrrum kjörum og áhugi manna beinist nú að útvarps- og sjónvarps- viðtali de Gaulle, sem markar mun flytja í kvöld og opna þar upphaf kosningabaráttunnar. Það ohapp vildi til í fyrrakvold við nyjusementsafgreiðsluna í Artúnshöfða, er verið var að hífa út í sementsferjuna allmikla mokstursvél, að bóma kranans brotnaði með þeim afleið- ingum að mokstursvélin féll í sjóinn. — Á meðfylgjandf mj>d, er Sveinn Þormóðsson tók sést betur en orð fá lýst, hvað gerðist. Brjóstholsskurðlæknar þinga hér á landi DAGANA 10.—14. júní fer fram í Reykjavík ársþing Félags brjóstholsskurðlækna á Norður- löndum. Þátttakendur verða rúmlega 70 frá öllum Norður- löndunum og auk þess einn frá Hollandi. Aðalefni fundarins verður um skurðaðgerðir við krabbameini í lungum og hjartaskurðaðgerðir á rosknu fólki. Þetta mun vera í fyrsta sinn, sem norræn læknaráðstefna er haldin hér á landi. Forseti fund- ins verður Hjalti Þórarinsson yfirlæknir og flytur hann einnig erindi um krabbamein í lungrun sjúklinga á íslandi. Ráðstefnan fer fram í Hótel Loftleiðum. Hinir erlendu gestir koma með leiguflugvél Loftleiða sunnudagskvöldið 9. þ.m. og fara með leiguflugvél Loftleiða til Norðurlanda föstudaginn 14. þ.m. (Fréttatilky nning). Mannbjörg frá ísafiröi er bátur sökk ísafirði, 7. júní. VÉLRÁTURINN Reynir frá ísa- firði sökk í morgun út af Horni, en skipverjarnir 3 björguðust. Tékkóslóvakía: 250 manns vikið úr Öryggisþjónustunni Frá þingi Sambands íslenzkra barnakennara. Þing barnakennara TUTTUGASTA þing Sambands íslenzkra barnakennara var sett kl. 10 í fyrradag í Melaskólan- lun. Stúlknakór frá Hafnarfirði söng í upphafi athafnarinnar, en síðan flutti Skúli Þorsteinsson námsstjóri setningarræðu. — Menntamálaráðherra, dr. Gylfi Þ. Gíslason flutti ávarp, og ávörp fluttu gestir frá Noregi og Sviþjóð, frú Anne Brynildsrud, stjórnarmeðlimur norska kenn- arasambandsins og Han Hellers, formaður sænska kennarasam- bandsins. Ennfremur ávörpuðu þingi'ð Kristján Thorlacius, for- maður BSRB, Ólafur Ólafsson, formaður Landssambands fram- haldsskólakennara, og Jón B. Hannibalsson, formaður Félags háskólamenntaðra kennara. Forsetar þingsins voru Teitur Þorleifsson, kennari, Hjörtur Kristmundsson, skólastjóri, og Hjörtur Hjálmarsson, skóla- stjóri. Að loknum hádegisverði í boði borgarstjórnar, var flutt skýrslá sambandsstjórnar og reikningar lesnir. Þá flutti Gunnar Guð- mundsson, skólastjóri, erindi: Þjóðin og uppeldið, en Skúli Þor steinsson og Kristján Halldórs- son höfðu framsögu um launa- mál. f gær hófust þingstörf með því, að Ingi Kristinsson talaði fyrir lagabreytingum, Þorsteinn Sigurðsson ræddi um norræna samvinnu og Páll Guðnason, skólastjóri, ræddi um námskeið. Síðdegis í gær talaði Þorsteinn Sigurðsson um samningsréttar- sjóð og Skúli Þorsteinsson um 50 ára afmæli Sambands ísl. barnakennara 1971. f dag koma mál úr nefndum, stjórnarkjör fer fram og þing- slit. Fara þingfulltrúar síðdegis til Bessastaða í boði forseta fs- lands. Prag, 7. júní — NTB BLÖF) í Prag skýrðu frá því í dag, að 250 starfsmönnum tékk- nesku öryggisþjónustunnar hafi verið sagt upp störfum. Þá fylgdi fréttinni, að stjórnarvöld myndu sennilega taka til athug- unar um 27 þúsund lagabrot, sem félagar í öryggisþjónust- unni eiga að hafa gert sig seka um á valdatíma Novotnys, fyrrv. forseta. Blöðin vitna í umræður í öryggis- og varnarmáiadeild þingsins, sem hefur rætt þessi mál. Blaðið Literarni Noviny segir, áð það sé einfeldnislegt að halda, að brottvikning Novotny nægi til að allir „íhaldsmenn" hverfi úr opinberu lífi í Tékkó- slóvakíu. Ennþá sé í landinu nokkur hópur manna, sem vilji hverfa aftur til fyrri stjórnar- hátta, en þó án Novotnys. f Rude Pravo skrifar dr. R. Rayman í dag um aðferðir, sem pólitískir fangar voru beittir við réttarhöldin upp úr 1950, en dr. Rayman var þá læknisfræðileg- ur ráðunautur. Hann segir, að Rudolf Síansky fyrrv. flokks- leiðtogi hafi verið neyddur til að taka inn deyfilyf, áður en yfirheyrslur hófust yfir honum. Slansky var dæmdur til dauða ásamt tíu öðrum 1952 og voru þeir teknir af lífi. Josef Pavel, innanríkisráð- herra, sagði á fundi varnarmála- nefndarinnar, áð þetta sé í fyrsta skipti í tuttugu ár, að ályktun um störf öryggisþj ónustunnar hafi verið send þinginu. Hann sagði, að ýmsir starfsmenn ör- yggisþjónustunnar væru langt frá ánægðir með nýju stjórnina, en hún mundi hvergi hopa. Bátsverjar voru við eggjatöku á Hornströndum þegar báturinn sökk, en þeir komust í pramma í skipbortsmannaskýlið í Höfn í Hornvík. Þar er neyðarsendir og gátu þeir látið vita hvernig kom- ið var. Varðskipið Albert kom þangað lausx fyrir hádegið í dag og sótti mennina. Mun varðskip- ið hafa haldið áfram til Látra- víkur að flytja þangað Einar Braga rithöfund og konu hans, sem munu leysa af um mánaðar- tíma Jóhann skáld og vitavörð og fjölskyldu hans á Hornbjargs vita. Var varðskipið ekki komið til ísafjarðar um kl. 22 í kvöld er frétt þessi var símuð. V.b. Reynir var átta lesta bát- ur smíðaður í Noregi 1934 og hét áður Karmoy. Hefur hann stund að rækjuveiðar undanfarna vet- ur og verið á handfærum á sumrin. Á bátnum voru þeir bræður Kjartan og Trausti Sig- mundssynir frá ísafirði og Jósef Stefánsson í Búð í Hnífsdal. H.T. Þjóðhöfðingi hefði borið klæði á vopnin' — sagði Cunnar Thoroddsen á Patreksfirði ,64 Patreksfirði, 7. júní. Kynningarfundur stuðnings- manna Gunnars Thoroddsens var haldinn í samkomuhúsinu á Pat- reksfirði í gærkvöldi og hófst kl. 21.00. — Samkomuhúsið var þéttsetið svo sem frekast komst þar í saeti og allmiargir urðu að standa. Jóhannes Árnason, sveit- arstjóri,- setti fundinn með nokkr um ávarpsorðum og bauð fundar menn og heiðuirsge&tina frú Völu og Gunnar Thoroddsen, velkom- in. Nefndur var til fundarstjóra Þorvaldur Thoroddsen, hrepp- stjóri, en fundairritari, Ásmund- ur B. Ólsen, kaupmaður. Þá ávarpaði dr. Gunnar Thor- 8,6 millj. joinoð í Miðneshreppi Sandgerði, 7. júní. í MIÐNESHREPPI var jafnað niður 6.874.600:— kr. í útsvör- um og 1.726.300:— kr. í aðstöðu gjöldum, eða samtals 8.600.900:— kr. Hæstu gjaldendur eru: Haf- steinn Guðnason, skipstjóri: 172.300:—, Jón Axelsson, kaup- maður 151.800:— og Aðalsteinn Gíslason, rafvirkjameistari: 145. 100:—. Hæstu gjaldendur að- stöðugjalds eru: Útgerðarstöð Guðmundar Jónssonar: 650.000:- Hf. Miðnes 306.000:—, en auk þess hefur h.f. Miðnes 99 100:— í útsvar. urðsson, sýslumaður, Ingólfur Þórarinsson, skólastjóri, Davíð Davíðsson, oddviti, og Þórður Jónsson, hreppstjóri á Látrum. Þá varpaði dr. Gunnar Thor- oddsen, sendiherra, fundarmenn. Ræddi hann allítaTlega eðli for- setastarfsins og hina miklu þýð- ingu þess. Hann ræddi um þjóð- veldi íslendinga hið forna og hvernig það leið undir lok og í því sambandi sagði hann: „Mér finnst, að einn meginannmark- inn óg ágallinn á hinu foma þjóðveldi íslendinga hafi verið sá, að þá var enginn þjóðhöfð- ingi. Ef svo hefði verið, tel ég miklu minni líkur til faíls þess. Þjóðhöfðinginn hefði borið klæði á vopnin og reynt að sætta stríð- andi öfT*. Þessu næst bám nokkrir fund- armenn fram allmargar fyrir- spurnir, sem Gunnar Thoroddsen svaraði. Var málflutningi hans öllum ágætlega tekið. Fundinium lauk með því, að Asberg Sigurðs son, sýslumaður, bað fundar- menn hylla frú Völu og Gunnar Thoroddsen. — Óeirðir við Renault-verksmiðju

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.