Morgunblaðið - 08.06.1968, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1968
— Gefið þér mér aðalatriðin,
og avo skal ég ajá, hvað ég get
fundið um þetta. Þegar Nemetz
hafði rétt honum blaðið. gekk
hann í átt að dyrunum. A borð-
inu atóðu þrjú aímtól, en hann
vildi augaýnilega síður nota þau.
Hann stanzaði á miðri leið að
dyrunum.
— Hvað er um sjálfan þig?
sagði hann eins og rétt meðal
annarra orða. — Ertu sjálfur
öruggur? Þú býst ekki við erf-
iðleikum þegar allt er komið í
samt lag aftur?
Nemetz leit á hann, hissa. —
Ekki býst ég við því. Hann hik-
aði andartak og bætti svo við:
— Hjálpi oss vel, ég hélt áfram
verki mínu, einnig meðanbylt
ingarráðið hafði völdin. Hann
brýndi raustina ofurlítið: — Og
ég er enn viss um, að þar fór
ég rétt að.
— Það held ég líka. Blavatsky
kinkaði kolli snöggt.
— Já einhverjir urðu að halda
öllu í gangi, meðan hinir voru í
fríi í konungshöllinni, sagði
hann, en óstjórnleg reiði innra
með honum tók að gera vart við
sig.
Þeir litu hvor á annan, vel
vitandi, að ósýnilegur múrvegg-
ur milli þeirra hafði allt í einu
hækkuð og var nú orðinn ókleif
ur.
Svo brá fyrir brosi um varir
Blavatskys.
— Þið Ungverjar verðið
aldrei öðru vísi en svona. Faut-
ar! Hann hló við og gekk út.
Tíu mínútum síðar kom hann
inn aftur: — Ja, kæri vinur.
Það má segja, að þessi læknir
yðar sé heldur betur kominn í
vandræði. Morðákæra er nú
ekkert barnagaman, eða hvað?
Nemetz stökk upp. — Heyrðu
nú til, sagði hann. — Við höfum
rannsakað málið og það liggur
ekkert fyrir, sem gefi ástæðu til
að gruna hann. Konan hans átti
marga óvini og ...
— Já, en þetta er konunni
hans ekkert viðkomandi, tók Bla
vatsky fram í fyrir honum. Yf-
irherstjórnin telur hann sekan
um dauða Milyokovs ofursta.
Nemetz varð steinhissa. —
Þetta hlýtur að vera misskiln-
ingur. Ég hef sjálfur komið á
deildina til hans einum sex
sinnum. Og þar sá ég marga
særða Rússa og ég get með sanni
sagt, að þeir fengu eins góða
hjúkrun og ungverjarnir.
Kannski betri.
— Kann að vera. En Miljukov
ofursti er dáinn. Og það var
Halmy læknir sem skar hann
upp. Og svo vitum við, að hann
var á batavegi, þegar honum sló
snögglega niður og hann dó.
Hann var sjúklingur Halmys
læknis. Og enginn fékk að koma
nærri honum nema læknirinn.
— Þér sögðuð að hann hefði
verið í afturbata. Ef Halmy
læknir hefði vanrækt hann eða
haft eitthvað illt í huga, var
hægur hjá að láta hann deyja á
skurðborðinu. Eða láta ógsrt að
skera hann upp.
— Kemur heim. En þarna er
eitt grunsamlegt. Heilsu hans
hrakaði snögglega, rétt í þann
mund, sem menn héldu, að við
værum að fara úr landinu.
— Nei, heyrið þér nú! Þér
vitið vel hvaða hártogun
svona ályktun er. Læknirinn
hefði þurft að vera fantur til
þess að láta sjúkling deyja, sem
hann var þegar búinn að bjarga.
73
Blavatsky starði niður í gólf-
ið. — Já, en eru ekki allir fant-
ar í þessu bölvaða landi? spurði
hann ábúðarmikill. — Ekkert
annað en hópur af brjáluðum
morðingjum! í morgun var
næstum búið að drepa mig á
leiðinni hérna í skrifstofuna. Við
ókum fyrir horn og í sama bili
gall við skothríð úr vélbyssu.
Bíllinn minn varð fyrir skoti og
bílstjórinn særðist. Þá fyrst
tókst skriðdrekanum, sem var á
eftir okkur að splundra upp-
reisnarmannahreiðrinu. Og viltu
trúa því að enginn þessara ræn-
ingja var meira en sextán ára.
Nemetz þorði ekki að spyrja,
hvað gert hefði verið við þessa
unglinga, eftir að „hreiðrinu
var splundrað“. Hann sagði
heldur ekki Blavatsky, að þeir
hefðu lært hermennsku sína í
skólunum í Budapest, þar sem
þeir hefðu verið neyddir til að
læra að barjast gegn auðvald-
inu. Hann þagði vegna þess, að
hann var hingað kominn til að
byðja Blavatsky um greiða og
hafði ekki efni á að fæla hann
frá sér.
— En þar sem læknirinn er
skjólstæðingur þinn, skal ég sjá
Fjaðrir, fjaðrablöð, hljóðkútar
púströr o. fl. varahlutir
í margar gerðir bifreiða
Bilavörubúðin FJÖÐRIN
Laugavegj 168 . Símj 24180
Volkswagen árg. ’67
Tilboð óskast í Volkswagen árg. ’67 í því ástandi
sem bifreiðin er nú. Til sýnis á Bifreiðaverkstæðinu
Armur, Skeifunni 5, í dag kl. 2—6.
Sumarbíiðir í K.R.-skálamim
fyrir telpur. Nokkrar telpur geta enn komizt að.
Upplýsingar í síma 24523.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 57., 58. og 60. töiublaði Lögbirtinga-
blaðsins 1967 og einnig í 60., 61. ag 64. tatublaði sama
blaðs og sama árgangs, á hraðfrystihúsi, fiskimjöls-
verksmiðju o. fl. v/Fífuhvammsveg, þinglýstri eign
Félagshamms s.f., fer fram á eigninni sjálfri föstu-
daginn 14. júní 1968 tel. 15.
Bæjarfógetinn i Kópavogi.
ALLTAF FJÖLGAR VOLKSWAGEN
VOLKSWAGEN 1600 „Fastback
KOMIÐ
SKOÐID ^
og KYNNIST ^
þessum
glœsilega bíl
HEKLA hf
til, hvað hægt er að gera fyrir
hann. Við getum farið saman til
félaga Stambulov. Hann stend-
ur fyrir deildinni, sem hefur
þetta mál til meðferðar.
Stambulov! Nemetz vissi það,
sem fæstir landar hans vissu, að
þessi maður var í tengslum við
ungversku lögregluna sem sér-
stakur NKVD-ráðgjafi. Það mátti
sjá hann á götunni, þar sem
hann steig út úr stóra ziv-bíln-
um sínum, og keypti sælgætis-
vörur eða drakk kaffi á Es-
presso-kaffistofum borgarinnar
— risi að vexti og að því er
virtist meinlaus, þungur í spori,
neflangur og akfeitur.
það voru ekki miklar horfur á
þvi, að sú von væri i þaun
veginn að rætast.
Nemetz endurtók það við hann,
að allir rússneskir hermenn
hefðu sætt beztu meðferð í
sjúkrahúsi Halmys læknis. Hann
mælti á ungversku, þar eð Stam
bulov skildi málið til fullnustu,
og næstum óþarflega vel, af út
lendingi að vera. Einmitt þetta
var eitt af mörgu dularfullu í
fari hans. Annaðhvort var það
árangurinn af langri æfingu,
með þessa atvinnu í Ungverja-
landi fyrir augum, eða þá hann
var eitthvað af ungverskum upp
runa.
Stambulov hafði fyrst komið
fram á sjónarsviðið í Ungverja-
landi árið 1949, og allt til 1953
hafði hann verið aðalmaður lög-
reglunnar í málum viðvíkjandi
njósnum, gagnnjósnum, skemmd
arverkum og landráðum. Á
skárri árunum, frá 1953 til 1955
hafði hann verið sendur heim í
langt frí, en kom svo aftur fram
á sviðið undir árslok 1955.
Og þarna sat hann nú,
bak við skrautlegt barokskrif-
borð sem var svo liðlega lagað,
að klunnalegur vöxtur hans
varð enn meir áberandi. Skrif-
stofan minnti á einkaherbergi
konu, og það hafði hún líka ver-
ið áður en húsið var tekið eign-
arnámi handa NKVD. Hann var
íklæddur dökkgráum fötum, sem
fóru vel, í hvítri silkiskyrtu og
með ítalskt hálsbindi og þefjaði
allur af ilmvatni. Þrátt fyrir
þennan kvenlega smekk hans,
varð karlmennska hans ekki
dregin í efa, og það gátu skrif-
stofustúlkur og dætur undir-
manna hans vottað. Konur voru
Akillesarhæll hans og óvin-
ir hans vonuðu, að honum ætti
eftir að verða hált á þeim. En
— Tja ... sagði hann, eftir að
hafa hlustað á Nemetz. Ég skal
nú athuga málið. En eitt er þó
víst rétt að segja strax: Þessi
Halmy læknir er ekki maður,
sem við getum notað. í dag þurf
um við umfram allt menn, sem
við getum reitt okkur á.
— Þér þurfið á mönnum að
halda, sem kunna sitt verk, svar
aði Nemetz á móti. — Hjálpi oss
vel . . . auðvitað er Halmy ekki
í Flokknum. Fyrst og fremst
vegna þess að hann hefur engan
áhuga á stjórnmálum. En . . .
— Það kemur ekki málinu við,
greip Stambulov hvasst fram í
fyrir honum. — Hann er ekki
áhugalausari en það, að hann
þrumar gegn okkur við minnsta
gefið tækifæri. Nei, herra full-
trúi, þessi maður er óvinur.
Þá vissi Nemetz það, að seg-
ulböndin hans Karoly zlochs
höfðu komizt til Stambulovs.
— Menn segja svo margt 1
reiði sinni, sem þeir meina ekk-
ert með, sagði Nemetz. — Það er
nú æði munur á því sem menn
segja í opinberum fyrirlestri og
hinu þegar þeir sleppa sér
heima hjá sér. Og ekki sízt ef
Hrúturinn 21. mar/ — 19. apríl.
í dag skalt þú helga þig fjölskyldumálum. Svaraðu bréfum.
Nautið 20. apríl — 20. maí.
Endurskipuleggðu allt sem þú getur. Sannprófaðu hugmyndir
þínar.
Tvíburarnir 21 maí — 20. júní.
Þcr er tamara að tjá þig í dag. Góður dagur til kaupa.
Krabbinn 21 júní — 22. júlí.
Farðu í kynnisför í dag, endursikoðaðu afstöðu þína.
Ljónið 23. júlí — 22. ágúst.
Það birtir til I félagslífinu undir helgina. Sýndu umburðar-
lyndi.
Meyjan 23. ágúst — 22. september.
Þér verður veitt meiri athygli en við var búist. Vertu hrein-
skilinn en gættu hófs. Léttu þér eitthvað upp.
Vogin 23. september — 22. október.
Ef timi gefst til, skaltu létta þér upp með ættingjum þínum.
Sporðdrekinn 23. október — 21. nóvember.
Þú skalt einbeíta þér um helgina. Ljúktu því, sem ógert er.
Bogmaðurinn 22. nóvember — 21. desember.
Vera má að þig langi til að vera meira í félagslífi, en hyggðu
að þínum nánustu fyrst.
Steingeitin 22 desember — 19. janúar.
Leggðu þig allan fram, árangurinn verður mjög góður, breyttu
til í kvöld.
Vatnsberini. 20. janúar — 18. febrúar.
Félagslífið er ofarlega á baugi. Hresstu upp á gömui tengsl.
Rómantíkin er ofarlega á baugi.
Fiskamir 19. febrúar — 20. marz.
Þú ættir ekki að taka félagslega forystu. Árangur af góðu
starfi kemui í ljós í dag. Bjóddu heim í kvöld.