Morgunblaðið - 08.06.1968, Síða 30

Morgunblaðið - 08.06.1968, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 196« ísl. liðið vann þýzka atvinnu- liðið á þremur vítaspyrnum Skapið hijóp með Þjóðverjana i gönur og lá við slagsmálum TILRAUNALIÐ landsliðsnefnd- ar vann verðskuldaðan sigur yf ir þýzka „atvinnuliðinu“ (?) Schwartz-Weiss í gærkvöldi. 3:2 urðu lokatölurnar og það óvenju lega var að öll mörk ísl. liðsins voru skoruðu úr vítaspyrnum. Leikurinn var reyndar óvenjuleg ur að mörgu öðru leyti,. Óvenju legt er að sjá jafn mikla dóna á leikvelli og sumir hinna þýzku leikmanna reyndust vera. Var og einum þeirra vísað af velli 2 min. fyrir leikslok- Óvenjulegt mun það einnig vera að „at- vinnulið" sé ekki sterkara en þetta lið reyndist vera. Hlýtur að vera hálfgert sultarlíf hjá þeim ytra — eða þá ekki gerð- ar miklar kröfur. Falleg upphlaup Islenzka liðið sýndi þegar í byrjun ákveðinn leik og náði nokkrum gullfallegum upphlaup- um. Var hægri sóknararmurinn — Hermann, Eyleifur og Reyn- ir — mjög virkur. Á 17. mínútu sköpuðust fjögur upplögð færi til marka. Ef ekki hefði rikt fum og fát við að reka lokaátakið á þessi fallegu upphlaup hefði ísl. liðið átt að gera út um leikinn á þessum fáu mínútum. En hið afgerandi skorti. Það kom á þess um tíma í Ijós að í röðum knatt spyrnumanna er enginn maður sem ákveðið ris upp úr meðal- mennskunni — sem sker sig úr þegar mest á ríður, og fuilnýtir það sem vel hefur ver ið að unnið áður. Reynir átti gott skot rétt ut- an stangar og bæði hann og Reynir komust í „dauðafæri“ en skutu beint í markvörðinn. Tvö klaufamörk Engin hætta hafði steðjað að ísl. markinu allan fyrri helming fyrri hálfleiks, en á 26. mín spyrnir Grenda útherji af um 18 m færi — eða vel utan vita- teigs — jarðarskoti á markið og Sigurður Dagsson er svo seinn niður, að markið verður óum- flýjanlega að skrifast á hans reikning. Rétt 1 upphafi síðari hálf- leiks verður þvaga við ísl. mark ið og Sigurður yfirgefur það og fer út í hópinn. Það var afdrifa- ríkt því skallað er að marki — og í tilraun til að bjarga ýtti Guðni Kjartansson á eftir knett inum í mark. Vítaspyrnurnar þrjár En ísl. liðið hélt eftir sem áð- ur frumkvæði í spili og hafði SKARÐSMÓTIÐ svonefnda fór fram um hvítasunnuna í Siglu- fjarðarskarði. Fjölmenni var við mótið bæði keppendur margir og einnig áhorfendur. Tveir norskir gestir settu svip á mótið — og sigruðu með yfirburðum. Svig karla Sek. 1. Otto Tschúde, Noregi 92.2 2. Jon T. Överland, Noregi 98.7 3. Jóhann Vilbergss., Rvik 106.8 5. Magnús Ingólfsson, Ak. 107.6 í svigi kvenna sigraði Sigriður Júlíusdóttir, Siglufirði, 114.5. 2. Hrafnhildur Helgadóttir, Rvík, 118.0. í svigi drengja 15—16 ára sigr- aði Guðm. Frímannsson, Akur- eyri, 97.1. 2. Þorsteinn Baldurs- son, Akureyri, 100.9. 3. Bjarni Sveinsson, H, 102.9. í svigi stúlkna sigraði Sigþrúð ur Siglaugsdóttir, Akureyri, 66.9. 2. Barbara Geirsdóttir, Akur- eyri, 68.5. í svigi drengja 13—14 ára sigr- aði Haraldur Haraldsson, R, 84.3. undirtökin í leiknum, þó illa gengi er að markinu dró. Ef um hefði verið að ræða keppni um að skapa tækifæri, var um stór- sigur ísl. liðsins að ræða. Á 14. mín kemst Eyleifur þó innfyrir og er kominn í gott skot færi er stjakað er við honum. Víti er dæmt — við miklar mót bárur Þjóðverjanna — og Reyn ir skorar af miklu öryggi. Urðu við þennan atburð átök milli leikmanna og hnefar á lofti þó ekki yrði alvara úr. Á 25. mín verður mikil þvaga við þýzka markið. Um leið og knötturinn liggur í þýzka mark inu, dæmir dómarinn víti á Þjóð Framh. á bis. 31 2. Guðmundur Sigurðsson, Ak„ 84.4. í stórsvigi karla urðu úrslit: 1. Otto Tschúde, N 2:09.0 2. Jon T. Överland, N 2:10.2 3. ívar Sigmundsson, A 2:22.1 4. Jóhann Vilbergsson, R 2:24.4 í stórsvigj kven.na sigraði Sig- ríður Júlíusdóttir, S, 2:32.0. 2. Hrafnhilrur Helgadóttir, R, 2:37.4. í stórsvigi drengja 15—16 ára sigraði Þorsteinn Baldvinsson, A, 2:10.1. 2. Bjarnj Sveinsson, Þ, 2:10.2. 3. Tómas Jónsson, R, 2:16.0. í stórsvigi 13—14 ára sigraði Guðm. Sigurðsson, A, 1:44.5. 2. Haukur Jóhannsson, A, 1:53.6. 3. Sigurgeir Erlendsson, S, 1:58.5. í Alpatvíkeppni sigraði Tschúde með O stig, Jon Terje Överland hlaut 11.23 stig, Jóhann Vilbergsson, R, 108.39, Hákon Ól- afsson, S, 135.60, Magnús Ingólfs- son 141.27 og Svanberg Þórðar- son 144.24 stig. Fjölmennt og vel heppnað Skarðsmót — IMorðmennirnir báru af Bikar fyrir 100 met SUNDFÓLKIÐ hefur vakið verð skuldaða athygli að undanfömu. Óvenjulega „metaríkur" vetur er liðinn hjá því og nú tekur sumarið —• og Laugardalslaugin við. Á fyrsta sundmótinu þar voru 4 met sett og eitt jafnað. Vegna tilkomu 50 m laugar má vænta mikils metaregns á næstu mótum, einum í þeim greinum sem ekki teljast hinar klassísku greinar stórmóta erlendis. En sundfólkfð hefur líka rutt met- um sem sett voru við beztu skilyrði. Reið Guðmundur Gísla- son á vaðið með það við vígslu nýju laugarinnar, er hann synti 100 m skriðsund á 58.2 og bætti eldra met sitt 58.3. Á efri myndinni sem hér fylg- ir eru Ármannsstúlkumar sem mest hefur borið á að undan- förnu. Frá vinstri Matthildur Guðmundsdóttir, Ellen Ingva- dóttir, sem setti met bæði á vígslumótinu og Reykjavikur- mótinu sl. miðvikudag, Hrafn- hildur Kristjánsdóttir, sem setti met í 100 m flugsundi á mið- vikudag og Sigrún Siggeirsdótt- ir. Saman settu þær svo met í 4x100 m skriðsundi. Á hinni myndinni er Guð- mundur Gíslason með heiðurs- bikar sem SSÍ og SRR gáfu hon um í viðurkenningarskyni fyrir að setja 100 met í einstaklings- greinum en það er ,,met met- anna“ hér á landi. Guðmundur var ákaft hylltur á mótinu. ÍR-unglingar á innanhússæfingu, Frjálsíþröttir unglinga FRJÁLSÍÞRÓTTAÆFINGAR ÍR eru nú í fullum gangi og fara fram eins og undanfarin ár á Melavellinum alla virka daga frá kl. 17 til 21. Laugardaga eru sefingar milli kl. 13 og 17 og á sunnudögum kl. 19—12. Æfingar yngstu flokkanna verða mánud., þriðjud., fimmtu- daga og föstudaga kl. 16,30— 17,30. Fjölmennið og takið með ykk- ur nýja félaga. Það er alltaf pláss fyrir fleiri og því eru allir vel- komnir. Verðlaunaafhending fyrir ÍR- meistaramót yngstu flokkanna innan húss og víðavangslaup þeirra fer fram laugardaginn 8. 6. kl. 16,00 í ÍR-húsinu. Ailir 40 sem unnið hafa til verðlauna eru beðnir að mæta stundvíslega. Stjórn Frjálsíþróttadeildar ÍR. 42 mörk í 10 leikjum ReykjanesmótiÖ heldur áfram í dag REYKJANESMÓT drengja í knattspyrnu heldur áfram í dag, en mótið hófst sl. þriðjudag með leikjum, sem fóru fram á 5 völl- um í Reykjaneskjördæmi, Kefla- vík, Njarðvík, Hafnarfirði, Kópa- vogi og Seltjarnarnesi. Voru þá skoruð samtals 42 mörk í 10 leikjum. Átta félög taka þátt í mótinu og er leikið heima og heiman í 5. fl„ 4. fl. og 3. flokki. I dag fara fram 10 leikir, í Kefla vík hefst mótið kl. 15:00 með leik 5. fl. KFK og Hauka, en síð- an keppa 4. fl. KFK og UMFK og í 3. fl. leika UMFK og Grótta. — í Hafnarfirði hefst mótið kl. 14:00 með leik 5. fl. Stjörnunnar og FH, en síðan keppa í 3. fl. Stjarnan og Haukar, í 4. fl. FH og UMFN. Fjórði leikurinn verð- ur leikinn leikur FH og KFK í 3. fl. í Kópavogi hefst mótið kl. 15:00 með leik Breiðabliks og Gróttu í 5. fl„ en síðan keppa Sjarnan og Breiðablik í 4. fl. og Breiðablik og UMFN í 3. fl. Undanúrslit mótsins verða svo leikin í næstu viku og fyrri úr- slitaleikirnir í 5. og 4. fl. nk. laugardag. 10,0 í 100 m. OLIVEE Ford nemi í Southem University í Kaliiforníu hljóp 100 m á 10.0 sek. á mótd í New Mexico á laugardag . Jafnaði hann mieð því heimsmetáð sem 6 aðrir eiga. Gerðist þetta í undan rásum en í úrslitum var tímd Fordis 10.1.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.