Morgunblaðið - 14.06.1968, Blaðsíða 28
w
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 1968
áhorfendurnir, Rússarnir né
fangar þeirra hreyfðu legg eða
lið. Nemetz leit í kring um sig,
til þess að reyna að finna ein-
hvern úr sjúkrahúsinu, sem
gseti orðið honum að liði. Og allt
í einu varð honum það ljóst
að þarna var enginn slíkur.
Hvar voru þeir allir? Hvar var
Balint prófessor? Og starfsbræð
ur hans? Hversvegna voru þeir
ekki hérna? Hversvegna mót-
mæltu þeir ekki þessu brott
námi? Og hversvegna reyndu
þeir ekki að bjarga lækninum,
hvort sem það nú hefði borið ár
angur eða ekki?
Hann kom auga á Janos burð
arkarl, innan um hóp af hjúkr-
unarkonum. Hann stóð þar hjá
frú Schulz. Hann gekk til
þeirra.
Hvar er Balint prófessor?
spurði hann formálalaust.
Janos og frú Schulz litu hvort
á annað, hissa. Nemetz missti
þolinmæðina. Hann verður að
koma og tala við Rússana. Fá
þá til að sleppa Halmy lækni.
Já, en hann er bara ekki
hér lengur, sagði frú Schulz.
Hann var ... Hún snarþagnaði.
Hann gekk út eins og lamb
... eins og hver annar bjáni,
sagði hjúkrunarnemi einn og lét
sér á sama standa, hver heyrði
það. Sá mikli Balint prófess-
or! Eins og lamb!
Náið þér þá í einhvern
annan, sem einhverju ræður,
sagði Nemetz.
James hristi höfuðið. — Það
hefur enga þýðingu. Hann gretti
sig. Það er félagi Barbas,
sem er orðinn æðstaráð. En það
er betra að kalla ekki á hann,
því að hann hreyfir ekki hönd
eða fót, hvort sem er.
Nei, það gerir bara illt
verra, sagði frú Schulz.
Nemetz mundi eftir þessu Bor
bas-nafni frá því fyrir bylting-
una.
Er þá enginn hér, sem neitt
getur gert? Ekki einhver lækn-
ir eða prófessor, sem kemur sér
vel við Rússana?
Janos hristi höfuðið einbeitt-
ur. Nei, herra.
Nemetz tók eftir því, að þetta
var í fyrsta sinn, sem þessi mað-
ur ávarpaði hann „herra“, en
það þýddi aftur, að hann skoð-
aði hann sem bandamann sinn.
prófessor er kominn aftur, en
hann mundi ekki einusinni opna
sinn munn, þó svo Halmy lækn-
78
lr væri einkabróðir hans. Það
eru margir hræddir í Budapest
f dag, en Lendvai þó allra
hræddastur. Mér kæmi ekki á
óvart þó að hann þyrfti að klípa
sig í handlegginn, til þess að
vita, hvort hann er lifandi, og
hafi ekki verið drepinn í bylt-
ingunni. Nei, hann mundi ekki
hreyfa litlafingur, þó svo bróðir
hans ætti í hlut.
Nú komu enn fleiri sovétdát
ar niður stigann, með fleiri unga
sjúklinga með sér. Meðal þeirra
var drengur, sem hefði fráleitt
verið meira en fjórtán ára gam-
all.
Þetta er Peti, sagði burðar-
karlinn og benti á drenginn.
Hann barðist í byltingunni, á-
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu Gjaldheitmtunnar verður málmrennitoekkur,
talinn eign Adtdo-venkstæðis Sigurðar Einarssonar,
seldur á nauðnngaruppboði að Hafnarstræti 5, mdð-
vikiudag 19. júní 1968 kl. 15.00.
Greiðsla fari fram við haimarahögg
Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
s
Mllífí
f
I
líffl
r
i
i
ífiiii
ii
IL18S8 rETEISe I hr.
SlMI 20313 - BANKASTRÆTI4
Minningarnar eru verðmœtar
og augnablikin koma ekki aftur,
nema þér eigið þau á Kodak filmu/
en þó getið þér líka notið þeirra
eins oft og þér viljið.
samt mörgum öðrum á Szena-
torginu. í Budapest kölluðu
menn nú dagana milli 23. og 31.
október „Byltinguna*1 en frá
endurkomu Rússanna 4. nóvem-
ber, var kallað „stríðið“.
Hann var nær dauða en lífi, þeg
ar mamma hans kom með hann,
hélt Janos áfram. Hún hafði
fundið hann í húsarústum og
getað náð honum upp, og svo
lagði hún hann á handvagn og
ok honum hingað alla leiðina frá
Buda. Það var varla hægt að
segja, að hann héngi saman. Og
það er hreint kraftaverk, að
Halmy lækni skyldi takast að
tjasla honum saman.
Majórinn hafði sýnilega verið
að bíða eftir þessum, sem síðast
komu. Nú æpti hann einhverja
skipun og dátarnir fóru að
hreyfa sig. Sjúklingarnir voru
reknir saman og til dyranna, á-
samt þeim heilbrigðu. Dátarnir
þrír, sem héldu enn Halmy
lækni föstum, stóðu í óvissu um,
hvort þeir ættu að taka hann
með sér eða skilja hann eftir.
Þeir horfðu á majórinn,
en hann var allur með hugann
við hina og virtist hafa gleymt
þeim. Loksins skokkaði einn
maðurinn til hans og spurði um
eitthvað. Majórinn lyfti þung-
lamalegum augnalokunum og
leit þokukenndum augum á zolt-
an Halmy. Þetta minnti mest á
rómverskt hringleikahús, þar
sem keisarinn skar úr um
dauða manna. Allt frá Neró til
Stalíns, endurtók sagan sig, um
þumalfingurinn, sem var snúið
annað hvort upp eða niður.
í þetta sinn var það niður.
Ef til vill hefði Rússinn látið
lækninn sleppa, ef ekki hinn
síðarnefndi hefði horft á and-
stæðkig sinn með augnaráði, sem
var fullt af þvermóðsku og fyrir
litningu. Auk þess gat majór-
inn ekki vitað, hvað AVOmönn
unum tveimur fyndist um þetta
atvik, og hvaða skýrslu þeir
mundu gefa um það. Eins og á
stóð var öruggara að taka þenn
an mann fastan, sem hafði sýnt
sovézkum foringja mótþróa, en
að láta hann sleppa.
Nemetz og allt þetta marga
fólk stóð hreyfingarlaust og
þorði varla að draga andann, en
horfði á meðan læknirinn og
frelsiShetjurnar voru færð út
úr húsinu. En í dyrunum sneri
Peti — sá yngsti þeirra sér við
og æpti með hvellri barnsrödd:
— Lengi lifi föðurlandið!
Þetta hola en hetjulega hróp
frá magra drengnum, sem var
Hrúturinn 21. marz — 19. apríl.
Það er líflegt í kringum þig í dag, taktu þátt í lífsins glaumi en
hægðu á þér er kvölda tekur.
Nautið 20. apríl — 20. maí.
Gott starf ber árangur, sjálfsvirðing þín eykst, reyndu að leggja
fyrir
Tviburarnir 21 maí — 20. júní.
Tækifærin eru allt í kring, hættu að slóra, gríptu eltthvert þeirra
og byrjaðu að vinna af kappi. Einkamál eru tiitölulega auðveld
viðureignar.
Krabbinn 21 júní — 22. júlí.
Þú átrt ekki sjö dagana ssela, á kafi í gömlum skýrslum yfir
iöngu gleymd viðskipti, en þú getur grætt mikið á þessu.
Ljónið 23 júlí — 22. ágúst.
Reyndu að vera hógvær, og kurteis, og haltu þig við störfin,
pótt freistingarnar séu nærtaekar. Þú kannt að sigrast á gömlum
vanda.
Meyjan 23. ágúst — 22. sept.
Vertu alvarlega þenkjandi I dag, en vertu vinnusamur. Ef þú
þarfl að selja eitthvað, Skaltu lieita kaupanda núna. Hættu störfum
snemma. Sinntu því, sem þig langar mest til í kvöld.
Vogin 23 sept. — 22.okt.
Fréttir frá fjarlægari stöðum ættu að gleðja þig. Þú skalt vinna
mikið í dag. Sinntu félagsltfinu í kvöld. Farðu út að dansa, ef
þú vilt
Sporðdrekinn 23. okt. — 21. nóv.
Þér kann að berast hjálp I dag, eimmgis ef þér hugkvæmist að
leita hennar á réttum stöðum. Einhver sjóður kann að skipta
miikiu máli.
Bogmaðurinn 22. nóv. — 21. des.
Erfiði gærdagsins verður launað í dag. Þér verður ágengt með
þau málefni, sem þú hefur mestan áhuga fyrir. Tilfinningamál er
í sigti, sem þér gengur vel með. Þetta ætlar að verða langur dagur
Steingeitin 22. des. — 19. jan.
Staðfesta og vinnusemi borga sig aftur. Sýndu þinum nánustu
einhverja hiýju
Vatnsberinn 20. jan. — 18. febr.
Athyglin beiiiist mest að bömum. Það kann að borga sig að
festa fé í einhverju í dag. Þú skalt vinna venjulegan vinnudag
og lyfta þér upp 1 kvöld.
Fiskarnir 19- febr. — 20. marz.
Viðræður við fólk nvunu kxxma þér lengra áleiðis en nokkuð
annað i dag. Merkilegar ráðagerðir eru gerðar í dag. Njóttu
kvöidsins meðal fárra kunningja.