Morgunblaðið - 29.06.1968, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1968
Útboð í smíði ísl. hafrann-
sóknarskips
Verðtiboð 136-171 millj. króna
Á SÍÐASTLIÐNU ári leitaði
Bygginganefnd hafrannsókna-
skips til 14 skipasmíðastöðva í
3 löndum, Þýzkalandi, Bretlandi
og Noregi, og spurðist fyrir um,
hvort skipasmíðastöðvarnar
hefðu áhuga á smíði íslenzks haf-
rannsóknaskips.
Eingöngu var leitað til þeirra
stöðva, sem vitað var að hefðu
Smábátarnir rótfiska
inni á Norðfirði
Fékk 5000 kr. virði á 8 tímum
Neskaupstað, 27. júní.
HVER smáfleyta er nú á sjó. Því
síðustu dagana hafa bátarnir rót
fiskað hér rétt undan vitanum.
Þar sem svo stutt er að fara,
eru notaðar allar fleytur, sem
geta flotið. T.d. fór annar lög-
regluþjónninn hér á frívaktinni
sinni einn á báti og eftir 8 tíma
fjarveru var hann búinn að
fiska fyrir 5000 kr. Er þetta frek
ar smár þorskur, sem fæst. Fer
hann allur í frystihúsið og er nóg
að gera þar núna.
Eininig hafa stærri bátar, sem
stunda handfæraveiðar við
Langanes, verið að koma heim
og hafa aflað ágætlega þar.
f sumar verður hér mikil trillu
útgerð, því margir ætla að
stunda þær veiðar. Heldur er
erfitt að fá menm á síldarbátana,
því þeir eru svartsýnir á síld-
veiðar. Verður því mikið af að-
komumönnum á þeim.
í dag var skráð á fyrsta síld-
veiðibátinn hér, Barða NK og
ætlar hann út í nótt. Fer hann
norður eftir, þar sem þeir hafa
verið að finna síldina.
Alger ördeyða hefur verið hér
lengi, kalt og grátt niður í hhð-
ar. Liggur við frosti á nóttunni.
Enginn gróður er kominn og bíð
um við óþreyjufullir eftir að
hlýni og komi sumar. — Ásgeir.
reynslu í smíði rannsóknaskipa
eða skuttogara, en fyrirhugað ís-
lenzkt rannsóknaskip er teiknað
sem skuttogari.
Af fyrrgreindum 14 stoðum
óskuðu 8 stöðvar eftir því að
bjóða í smíði skipsins, en síðar
heltust 2 úr lestinni og voru þá
eftir 6 stöðvar, 4 í Þýzkalandi, 1
í Bretlandi og 1 í Noregi.
Útboð voru send til fyrr-
greindra stöðva hinn 4. apríl, en
útboðsfrestur rann út í dag.
Ekki liggja enn fyrir endanleg
ar upplýsingar um lánakjör allra
stöðvanna. Ber því að líta á yfir-
lit þetta til bráðabirgða þar til
unnið hefur verið úr gögnunum.
Verðtilboðin námu frá 136
millj. kr. upp í 171 millj. kr.
Verðtilboðin taka til skipsins
alls með öllum búnaði og tækj-
um, þar á meðal öllum þeim bún-
aði, sem þegar hefur verið keypt-
ur, en verð hans er um 29 millj-
ónir íslenzkra króna.
(Frá sjávarútvegsmálaráðu-
neytinu).
Svala Þórisdóttir við eina af myndum sinum á sýningunni í
Oxf ord.
Máiverkasýning íslenzkrar
stúlku í Oxford
Cóður afli Skaga
strandarbáta
- en ísinn liggur í fjarðarbotninum
Sauðárkróki, 27. júni.
TOGSKIPIÐ Drangey, sem keypt
var hingað og hóf veiðar um
mánaðamótin marz—april, hefur
Þegar aflað um 600 tonn. Hefur
það mjög bætt úr atvinnuástandi
hér. Auk Drangeyjar, sem er
B50 tonn, er hér gerður úr nóta-
báturinn Týr. Hefur hann fengið
dágóðan afía. Allur afli er verk-
aður í frystihúsinu á Sauðár-
króki.
í síðustu veiðiefrðinni varð
Drangey að landa aflanum á
Hofsósi, en hann var síðar flutt-
ur á bílum til Sauðárkróks. Or-
sökin er sú, að hafís hefur verið
hér í botni Skagafjarðar í rétta
viku og torveldað allar siglingar
hingað. Síðasta sólarhringinn hef
Berlín 28. júni. NTB.
BERLÍNARLÖGREGLAN rak í
dag sjötíu stúdenta út úr höfuð-
stöðvum rektors háskólans í V-
Berlín, eftir að námsmennimir
höfðu hafzt þar við um skeið og
neitað að víkja, fyrr en rektor
samþykkti að hefja opinberar
umræður um endurbætur á
kennslufyrirkomulagi skólans.
ur ísinn þó þiðnað, svo á 22
tonna bátur komst hingað inn í
gær með því að þræða alveg með
landi.
Það er gamalla manna mál, að
þegar Húnaflói fyllist af ísi, þá
séu það þrír farmar í Skagafjörð.
En þegar ísinn hverfur af Húna-
flóa, rekur hann fyrir Skaga og
kemur gjaman hér inn. Við von-
um að þetta sé síðasti farmurinn
og við förum nú að losna við ís-
inn. — Jón.
UNG, íslenzk stúlka, Svala
Þórisdóttir Baldvinssonar,
arkitekts, hélt nýlega mál-
verkasýningu í hinum kunna
Christ Ohurch College í Ox-
ford. Svala hefur stundað list
nám í Englandi um fjögurra
ára skeið og síðast við Ruskin
School of Drawing and Fine
Art. í Oxford.
Árlega er haldin í St. Cat-
harine’s College í Oxford sam
sýning 50 nemenda. Verkin á
sýninguna eru valin af nefnd,
sem skipuð er fulltrúum skól-
anna í Oxford. Að þessu sinni
bar svo við, að fulltrúi Christ
Church College í nefndinni
bauð Svölu Þórisdóttur að
halda sérstaka sýningu í sýn-
ingarsal skólans, en þar eru
haldnar sýningar á hverju
vori til kynningar á verkum
ungra listamanna. Þykir mik-
ill heiður að fá þarna inni,
þar sem aðsókn er mikil hvað-
anæva að, og færri komast að
en vilja, þess eru samt sem
áður nokkur dæmi, að nem-
endur fá þarna inni fyrir sýn-
ingar sama árið og þeir út-
skrifast. Christ Church Coll-
ege ber allan kostnað af sýn-
ingurn þeim, sem þarna fara
fram, leggur til húsnæði, ann-
ast gerð sýningarskrár og aug
lýsinga aiuk þess sem gestum
er boðið til hófs, þegar sýning
er opnuð.
Sýning Svölu hófst 2. júní
og lauk 16. f tilefni sýningar-
innar birtist viðtal við Svölu
í timariti Oxford-háskóla,
„ISIS“, þar sem hún segir:
„Hér í Oxford sækjast lista
menn mjög eftir kynningu á
verkum sínum. f Ruskin-skól-
anum erum við hvött til þess
að bregðast vel við gagnrýni,
og sjálf er ég mjög þakklát
fyrir hina fræðilegu kennslu,
sem við hljótum hér.
Atomorkunefnd Candaríkj-
anna styrkir enn rannsóknir
— á þurrlendislífi í Surtsey
RANNSÓKNIR á þurrlendislífi
í Surtsey hafa verið styrktar af
Atomorkunefnd Bandaríkjanna.
Nú hefur nýlega verið ákveðið
að framhald verður á þessum
styrk á þessu ári, og verða veitt-
Prestsstarfið í Kaup-
mannahöfn heldur áfram
ÞEGAR kunnugt varð , að fjár-
veiting fyrir þetta ár til prests-
starfs meðal fslendinga í Kaup-
mannahöfn yrði felld niður úr
fjárlögum, var hafin fjársöfnun
meðal almennings til þess að
standa straum af þessu starfi í
bili. Jafnframt var þess farið á
leit við séra Jónas Gíslason, að
hann gegndi starfinu áfram um
sinn, ef nægu fé yrði skotið sam-
an til þess að kosta það, og varð
hann við þeim tilmælum.
Ráðningartími séra Jónasar er
útrunninn 1. júlí. Mun hann þá
fara í þriggja mánaða leyfi. En
frá 1. okt. n. k. er hann ráðinn til
áframhaldandi þjónustu sem
sendiráðsprestur í Kaupmanna-
höfn í allt að 10 mánuði. Hefur
Biskupsskrifstofan afhent kirkju
málaráðuneytinu það fé, sem
safnast hefur til þessa prests-
starfs og hefur ráðuneytið góðfús
lega samþykkt fyrir sitt leyti,
að sr. Jónas sé ráðinn til starfs-
ins á téðum grundvelli.
Öllum, sem hafa stutt að því,
að prestsstarfið í Kaupmanna-
höfn þyrfti ekki að leggjast nið-
ur, eru innilegar þakkir færðar.
Greinargerð fyrir söfnuninni
mun birt innan skamms.
Menn eru beðnir að taka eftir
því, a'ð sr. Jónas hefur leyfi frá
starfi mánuðina júlí, ágúst og
september í sumar, en tekur
aftur til starfa 1. október. Þeir,
sem þurfa á fyrirgreiðslu að
halda þann tíma, sem sr. Jónas
er fjarverandi, snúi sér til ís-
lenzka sendiráðsins í Kaup-
mannahöfn.
Frá skrifstofu biskups.
ir 20 þús. dollarar, eða á aðra
milljón ísl. króna. í þessum rann
sóknum á þurrlendislífi í Surts-
ey eru taldar rannsóknir á öllu
dýra- og jurtalífi, aðflutningur
þess til eyjarinnar og landnám á
eynni.
Dr. Sturla Friðriksson hefur
.gengizt fyrir því að þessi styrkur
er fenginn, enda er á hans veg-
um unnið mikið af því verki,
sem styrkurinn gengur til. En
Á grundvelli hennar hef ég
leitazt við að kynna verk mín
í fyrsta sinn, einkum á þann
hátt, þar sem auðveldast er að
gagnrýna þau, með sýningu.
En það er samt sem áður
hættulegt að auglýsa verk sín
með sýningu of snemma. Hér
tíðkast það jafnvel, að nem-
endur vilja fá að halda sýn-
ingu á fyrsta námsári.
Ég tel þetta mikinn mis-
skilning. Fyrstu verkin geta
haft margvísleg áhrif; þa.u eru
gerð á því skeiði, þegar lista-
maðurinn meðhöndlar við-
fangsefni sitt á sama hátt og
myndavélin. Það er rangt að
efna til sýningar á ófullmót-
uðum verkum, hvort sem það
er gert til að auglýsa sjálfan
sig eða græða peninga.
Ég er sannfærð um, að það
sé betra að stunda nám um
nokkurra ára skeið, en
blómstra síðan. Auk þess get-
ur skyndileg og óviðbúin
snerting við gagnrýni haft
mjög skaðleg áhrif á lista-
mann“.
aðrir, sem nota þennan styrk At-
omnefndarinnar, eru dr. Finnur
Guðmundsson með fuglarann-
sóknimar, Eyþór Einarsson með
samanburð á þessum gróðri og
gróðri á svæðum sem koma und-
an jöklum, Carl H. Lindroth frá
Lundi í Svíþjóð sem með aðstoð
Högna Böðvarssonar og Hugo
Andersen, stundar rannsóknir á
skordýrum og ber saman við
skordýr á öðrum nálægum eyj-
um, Bergþór Jóhannsson, grasa-
fræðingur með mosarannsóknirn
ar, Arinbjörn Kolbeinsson og
þýzki bakteríufræðingurinn W.
Schwarts með rannsóknir á bakt
eríugróðri.
Niðurstöður hafa birzt í árs-
skýrslu Surtseyjarfélagsins, en
þessar rannsóknir sem aðrar í
Surtsey eru á þess vegum. Og
Framh. á bls. 27
Smíði strandferða-
skipanna að hefjast
ÞETTA er nú að fara í góðan
gang, sagði Skapti í Slippstöð-
inni á Akureyri, er fréttamaður
Mbl. hringdi til hans og spurði
hvernig gengi smíði strandferð-
arskipanna hjá honum. Hann
sagði að aðallega væri byrjað
á öðru þeirra í einu, en þó væru
vissir hlutir unnir samtímis í
bæði.
Tafir hafa orðið um efnisútveg
un vegna hafíssins og samgöngu
erfiðleika. Hafa flutningar á
efni tafizt um 4—5 vikur, en
er nú um það bil að koma og
þessir erfiðleikar því vonandi úr
sögunni, að því er Skafti sagði.
Um 170 manns vinna nú í
Slippstöðimni, em þar er unnið
við fleiri verkefni en strandferð
arskipin tvö.