Morgunblaðið - 29.06.1968, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1968
M. Fagias:
FIMMTA
Kvmiv
- Já, það sé ég, sagði Stambu-
lov og kinkaði kolli.
- Erica var drepin á sunnu-
daginn var, sagði sú ljósa,
beizkjulega og þrjózkulega. —
Hanna leit hvasst á hana, en
það nægði ekki til að þagga
niður í henni. - Hún barðist með
hópi, sem var að verja Kastal-
ann. Svo var fyrir að þakka
föður hennar, sem var hershöfð-
ingi í síðari heimsstyrjöldinni,
þá var hún ágæt skytta. Hún
hafði unnið fjölda heiðurspen-
inga úr silfri og bronsi og einn
úr gulli. Stambulov starði á
hana og langa tapírnefið skalf,
eins og það væri að berjast við
hnerra. Svo lyfti hann glasinu.
- Skál fyrir Ericu! - og gullpen-
ingunum hennar. Hann tæmdi
glasið og seildist eftir flöskunni
og hellti á bæði hjá sjálfum sér
og Nemetz. - Drekkið þið ekki,
stúlkurnar? spurði hann. - Mig
langar ekkert til að verða fullur
meðan allir aðrir eru ófullir.
Það er rétt eins og að ganga
allsber í líkfylgd. Maður verður
alveg í vandræðum með sjálfan
sig.
Sú Ijósa tók glas og skellti
því á borðið fyrir framan hann.
- Ég vil drekka mig fulla með
þér, sagði hún. - Ekkert vil ég
heldur en drekka mig fulla í
kvöld. Við skulum öll verða full.
Og hættu svo að tala um lík-
fylgd. Það hefur verið talað allt-
of mikið um það í seinni tíð.
Hún_ skellti í sig konjakinu.
- Ég mundi ekki drekka í
þínum sporum, Angela, sagði
Hanna aðvarandi. - Þú veizt
sjálf, að þú þolir það ekki.
- Hún á við, að þá gleymi ég
að hegða mér almennilega,
skríkti Angela. - Segi klámsög-
ur og þessháttar. En er það
kannski ekki í lagi. Hver í heim-
inum kærir sig um siðsama
mellu? Vitanlega vill Hanna
heldur að við séum fínar dömur
- alltaf fínar dömur!
Sem snúa aldrei bakinu í herra,
nema þá í rúminu. Og tali fínt!
91
„Hvernig hafið þér það í dag,
herra? Hefur yður liðið vel?
Skemmt yður? Nokkrar skemmti-
legar aftökur?
Hanna leit á hana, eins og
hún gæti myrt hana, og spark-
aði fast í hana undir borðinu,
svo hún grenjaði upp af sárs-
auka.
Stambulov virtistekki skemmta
sér vel. - Landar yðar koma
mér á óvart,_ sagði hann við
Nemetz. - Árum sarnan var
ekkert múður milli okkar. Ég vil
ekki halda þvi fram, að við
höfum verið vinir, en við héld-
um þó við siðuðu ánægjulegu og
kurteislegu sambandi, til gagns
fyrir báða aðila. Og svo verðið
þið allt í einu vitlausir. Allir
sem einn, allt landið! Ég veit
ekki, hvað hægt er að kalla það.
Múg - taugaveiklun? Skrílræði?
I dag urðum við að senda loft-
flotann til Csepel-verksmiðj-
anna, svo að allt umhverfið stóð
í björtu báli, og samt neita
þessir vitleysingar að g efast
upp! Lofið mér að spyrja yður:
Halda þessir menn virkilega,
að þeir geti sigrazt á okkur?
Eða búast þeir enn við hjálp að
vestan? Eru þeir svo skyni
skroppnir að sjá ekki, að mál-
staður þeirra er vonlaus?
Angela greip flöskuna og
fyllti glas á barma. Hún lyfti því
Skál fyrir vitleysingunum í
Csepel! skríkti hún og hvolfdi í
sig konjakinu, eins og það væri
litað vatn.
Hanna leit á hana, afbrýðis-
sömum augum. - Þetta verður
þér til óheilla, Angela.
- O, ekki alveg, það verður
það svei mér ekki, svaraði hin
og seildist eftir flöskunni. En í
þetta sinn varð Hanna fljótari
til og fór burt með flöskuna.
- Æ, jú, Hanna frænka, bað
Angela. - Bara örlítinn dreitil.
Ég verð að drekka í mig kjark.
Stambulof leit skuggalegur á
svip á kafrjótt andlit hennar.
Augun í honum voru smám-
saman að verða blóðhlaupun, og
þegar hann sagði eitthvað, varð
slavneski hreimurinn meira á-
berandi, og hann hnaut um
mörgu sérhljóðin í ungverskunni
- Til hvers þarftu að drekka í
þig kjark? sagði hann.
Angela brosti til hans. - Hef-
Urðu nokkurntíma iesið um hana
Júdit?'í gamlatestamentinu. Hún
var gyðingakona, sem skar hann
Hólófernis, hershöfðingja Nebú-
kadnesars, á háls. Fyrst svaf
hún hjá honum og svo skar hún
hann á háls. Og svo þagði hún
sem snöggvast en sagði svo: - Ég
er líka Gyðingakona.
Stambulov leit gremjulega á
Hönnu. - Er það þetta, sem þú
kallar að „láta fara vel um sig“?
Því að því^ lofaðirðu þegar þú
hringdir. „Ég lofa, að það skal
fara vel um þig“, sagðirðu.
„Skemmtilegt kvöld með gömlum
vinum“, sagðirðu. Kallarðu þetta
skemtilegt kvöld? Að vera pínd-
ur af þefara og móðgaður af
fullri dræsu? Hann rak kreppt-
veitingahúsið
ftSKUR
BÝÐUR
YÐUR
HELGARMATINN
i handhœgum umbúðum til að taka
HEIM
GRILLAÐA KJTJKIJNGA
ROAST BEEF
GLÓÐARSTEIKT LAMB
GLÓÐARSTEIKT NAUTAFILLÉ
GLÓÐARST. GRÍSAKÓTELETTUR
HAM BORGARA
Gleðjið frúna —
jjölskylduna — vinina
— njótið
hinna Ijúffengu rétta
heima í stofuyðar.
Ef þér óskið
getið þér hringt og pantað -
við sendum leigubíl
með réttina heim
tiljðar.
A S KU R matreiðir fyrir ydur
alla daga vikunnar
Suðurlandsbmut U sími 38550
OlNKOÖ
E3
an hnefann í borðið. - Ég hefði
heldur átt að vera heima hjá mér.
Þar reynir að minnsta kosti eng-
inn að skera mig á háls.
Hanna leit á hann með vork^
unnarbrosi, rétt eins og á keipa
krakka, sem hefur sleppt sér.
- O, þér hefði ekki liðið neitt
betur heima hjá þér, Grigori,
því að þá hefðirðu orðið að vera
með henni mömmu þinni og
tengdamömmu, og heldur vild-
irðu láta skera þig á háls, en
vera með þeim eitt kvöld. Og
svo veiztu mætavsl, að þetta eru
ekki nema látalæti í henni
Angelu. Hún gæti ekki einu-
sinni skorið kjúkling á háls, auk
heldur tvö hundruð punda karl-
mann! Og hvað snertir nauðung
ina hans Nemetz fulltrúa, vinar
míns, þá er hann bara að biðja
þig að gera sér smágreiða - og
það með minni velþóknun!
Slspptu nú veslings lækninum
lausum, og þá gerirðu líka mér
greiða. Og auk þess borgar
þetta sig, því að ég er þekkt að
því að gleyma ekki greiða, sem
mér er gerður. Stambulov ætlaði
að fara eitthvað að segja, en
hún hélt áfram: - Og svo er
annað: Vertu ekki að eyðileggja
borðin mín, ef þú ætlast til, að
þér verði boðið hingað oftar. Það
er fyrsta flokks bar, sem ég rek
hérna, en ekki ómerkilegt hóru-
hús, og ég ætlast til, að þú takir
eftir mismuninum.
Hún talaði blátt áfram og kæru-
Utankjörstaðaskrifstofa stuðningsmanna
EUNNARS THORODDSENS
er í Aðalstræti 7, II. hæð (gengið inn að austan-
verðu). Skrifstofan er opin frá kl. 9 f.h. til kl. 10 e.h.
Símar: 84532' Upplýsingar um kjörskrá.
84536: Almennar upplýsingar.
84539: Upplýsingasími sjómanna.
Stuðningsmenn GUNNARS THORODDSENS eru
hvattir til þess að láta utankjörstaðaskrifstofuna
vita um kjósendur, sem verða fjarri heimilum sín-
um á kjördegi, bæði innan lands og utan.
29. JÚNÍ.
Hrúturinn 21. marz — 19.apríl.
Töms+undaiðja og verklagni eru uppi á teningnum í dag.
Nautið 20. apríl — 20.maí.
Það kann að vera, að þú sért dálítið ónákvæmur. Reyndu að
gera þig skiljanlegan. Skipuleggðu fjármálin framundan vel.
Tvíburarnit 21. maí — 20. júní.
Forðaztu ofþreytu í dag. Líttu yfir skipulagið og endursemdu.
Krabbinn 21. júní — 22. júlí.
Farðu þér eins hægt og kostur er. Láttu aðra dálítið um að
borga brúsann. Sittu hjá 1 kvöld.
Ljónið 23. júlí — 22. ágúst.
Þú mátt gjarnan brýna raust þína, er fram iíða stundir. Reyndu
að halda þig við jákvæðu hliðina.
Meyjan 23. ágúst — 22. sept.
Nú er réttara að leggja ekki við hlustirnar, því að margt ber
já góma, sem ekki er fótur fyrir. Vertu sjálfum þér næstur.
Vogin 23. sept. — 22. okt.
Óáreiðanlegt og gráðugt fólk kann að virðast þér efnilegt, en
leggðu varlega trúnað á þeirra orð
Sporðdrekinn 23. okt. — 21. nóv.
Þér verður óhemju mikið úr verki i dag, eí þú hugsar rökrétt.
Bogmaðurinn 22. nóv. — 21. des.
Farðu ekki lengra í dag, en nauðsyn krefur. Allskonar óþarfi
verður þér að farartálma.
SteingeHin 22. des. — 19. jan.
Nú efast flestir um dómgreind þína, jafnt ættingjar sem samst-
arfsmenn Reyndu að finna hvar þér skjátlaðist. Það er mjög
óviturlegt að taka til láns og ljá öðrum.
Vatnsberinn 20. jan. — 18. febr.
Þetta er góður dagur til að fara smáíerð. En haltu þig við lægri
bakkann. Farðu snemma af stað og taktu fólkið þitt með, ef þess
er kostur.
Fiskarnir 19. febr. — 20. marz.
Kauptu ekkert, ef þú getur komizt hjá því