Morgunblaðið - 18.08.1968, Side 4

Morgunblaðið - 18.08.1968, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. ÁGÚST 1968 £ Sjáið landbúnaðarsýninguna í dag! Þegar þetta er rítað er ekki annað vit- að en Landbúnaðarsýningunni ijúki 1 dag, sunnudag. Eftir að hafa skoðað sýninguna oftar en einu sinni, í fylgd ungra og gamalla, sveita- fólks og borgarbúa, vill Velvakandi ein- • dregið skora á fólk, sem hefur ekki séð hana enn, að láta það nú alls ekki undir höfuð leggjast, heldur fara inn eftir 1 dag. Nú eru seinustu forvöð. Sýningin er náttúrulega mjög fróðleg, en það, sem Velvakandi telur henni sérstak lega til gildis, er, að þar er eitthvað skemmtilegt að skoða fyrir alla aldurs- flokka og fyrir fólk úr öllum stéttum og landshlutum. Þetta er eiginleiki, sem svo sannarlega fylgir ekki öllum sýningum. 0 Er Velvakandi íhaldssöm sál? Bílstjóri skrifar: „Kæri Velvakandi! Eg skrifaði þér ekki alls fyrir löngu og sagði frá þvl með vandlætingu, að benzfn- afgreiðslumaður á Kirkjubæjarklaustri hefði látið langa bílaröð bíða eftir afgreiðslu í eina þrjá stundarfjórðunga, meðan hann var að snæða miðdegisverð. Ég taldi þetta ekki sæmandi þjónustu — og geri það enn. Það kom mér mjög á óvart að þú skyld ir taka upp hanzkann fyrir manninn. Hon um til réttlætingar sagðir þú, að benzínaf greiðslur í Reykjavik væru lokaðar í hádeg inu á sunnudögum. í framhaldi af þessu langar mig til þess að benda þér á það, að þjónusta olíufélag- anna í Reykjavík og annars staðar (eins og dæmin sanna) hefur ekki verið til fyrir myndar. Ef þjónustuaðilar almennt ætluðu sér að taka þessi fyrirtæki sér til fyrirmynd ar, er ég hræddur um, að vfða mundu heyr- ast hljóð úr horni, þvi að almenningur á réttilega kröfu á þokkalegri þjónustu. Við borgum fyrir hana, hvort sem við njótum hennar eða ekki. Afstaða Velvakanda i þessu máli ber þess ekki vott, að hann sé vel vakandi, heldur sofandi, íhaldssöm sál, sem telur fátt svo slæmt, að ekki sé það nógu gott. — Bílstjóri". 0 Barna- og unglingablaðið Æskan Faðir skrifar: „Velvakandi góður! Þegar ég var strákur, fékk ég alltaf bamabiaðið Æskuna og beið hvers eintaks með mikilli eftirvæntingu. Eins og að lik- um Iætur, hætti ég að lesa blaðið, þegar ég stálpaðist — og það var ekki fyrr en mín böm tóku að stálpast, að ég endurnýjaði kynni mín við Æskuna, því að ég gaf þeim áskrift strax og þau fóru að stauta. Ég varð mjög ánægður að uppgötva, að Æskan er ennjafn ung, og ég held, að hún sé miklu friskari nú en áður. Ritstjórinn, Grimur Engilþerts, vinnur míkið og vel þakkað starf fyrir börnin I landinu. Æskan er aftur orðin eitt vinsælasta lesefnið á minu heimili — og sjáifur er ég jafnvel farinn að glugga í hana mér til ánægju. Æskan mun nú vera gefin út í fleiri ein- tökum en nokkurt annað timarit á fslandi — og mér finnst það ekkert undarlegt. Berðu ritstjóra og öðrum aðstandendum Æskunnar mínar beztu kveðjur. — Faðir“. g Hvar eru skóburstarar í Reykjavík? „Feðgar" skrifa: „Kæri Velvakandi! Gætir þú frætt okkur feðga um það, hvar hægt er að fá burstaða og pússaða skó í höfuðborg íslands, Reykjavík? Sá eldri okkar þykist muna, að þessi sjálfsagða þjónusta í hverri borg (og Reykjavík er borg núna) hafi verið veitt í s kúr á Lækjartorgi fyrir mörgum ámm, en sá yngri þykist halda, að þessi þjónusta sé veitt í tveimur helztu gistihúsum borgar- innar, ef ekki þremur. Hins vegar kann enginn við að arka þangað inn, sem ekki er gestur, og biðja um skópússun, jafnvel þótt hann greiði vel fyrir það. Menn vilja helzt ekki þurfa að ganga um í óhreinum skóm, og eiginkonur gerast (þvi miður) æ ófúsari á að veita þessa þjónustu. Nú, og jafnvel þótt menn gangi' út í glanzandi skóm að morgni dags, er komin á þá óhreinindahúð innan skamms. Faðirinn lætur þess getið, að hér fyrr á árum hafi allir verzlunarmenn í Reykja- vík gengið í glanzandi skóm, svo og hátt- settir embættismenn og hluti háskólastú denta. Nú virðist allt og mörgum standa á sama, hvernig skómir líti út. Það er áreiðanlegt, að það yrði rifandi bisness fyrir þann mann, sem setti upp skó- burstunarskúr í Miðbænum. Hann gæti selt um leið skóáburð, greiður, eldspítur (jafn- vel sígarettur) o.fl. smávegis, sem menn vanhagar um dags daglega. Hér vantar bara framtakið! Beztu kveðjur, Feðgar". Velvakandi er samsinna því, að hér vant- ar skóburstara í Miðbænum. Væri ekki hægt er að reka svona þjónustu jafnhliða blaðasölu? 0 Jag er gul — nyfiken Velvakanda hafa borizt nokkur bréf, þar sem spurt er, hvenær eigi að taka upp sýn- ingar í Stjömubiói á sænsku myndinni, jíag er gul — nyfiken". í tveimur bréfanna er látið að þvi liggja, að sýningar á kvik- myndinni hafi verið bannaðar vegna „kláms“ en I öðrum tveimur bréfum er fullyrt (án rökstuðnings), að endursýning- ar hafi verið bannaðar vegna vinstri sinn- aðs stjórnmálaáróðurs. Velvakandi veit ekki til að sýningar á þessari mynd hafi verið bannaðar. Sjálf sagt er að sýna hana, meðan fólk vill borga sig inn á hana, ekki sizt fyrst hún er svona umrædd og umdeild. Liggur við, að það til- heyri menntun hvers og eins að hafa séð fjárans myndina eftir allt umtalið. Annars fannst Velvakanda myndin held- ur óskemmtileg, þrátt fyrir einstaka brand ara, og hans hugboð er, að myndin verði jafngleymd innan fárra ára og Orphée eft- ir Cocteau er nú, sem hann minnir, að menningarvitar flykktust að til að sjá hér í Nýja Bíói á árunum. Ekkert beint klám er I myndinni að mínu áliti, en hún er viðvaningslega gerð (kannski með vilja) og stundum fárán- Iega hlægileg. Það er auðvitað hrein della, að myndin hafi verið bönnuð „vegna vinstri sinnaðs stjórnmálaáróðurs". Ef nokkuð var um pólitískan áróður I myndinni, fannst Vel- vakanda ajn.k. það vera háð um vinstri. sinnaða sænska velmegunarkrakka. Og hér /estan tjalds eru myndir ekki bannaðar vegna stjórnmálaáróðrar. — Hvað um það, — sjálfsagt er að sýna myndina um stund, svo að menn geti mynd- að sér skoðanir á henni sjálfir, en þurfi ekki að treysta á umsagnir annarra. BEZT að auglýsa í Morgunblaðinu BÍLALEIGAIM - VAKUR - Sundlaugavegi 12. Siml 35135. Eftir lokun 34936 og 36217. Sími 22-0-22 Rauðarárstig 31 1-44-44 WJUWIB Hverfisgötu 103. Sími eftir lokun 31160. BÍLALEIGAN AKBRAUT SENDUM SÍMI 82347 LITLA BÍLALEIGAH Bergstaðastræti 11—13. Hagstætt leigugjald. Sími 14970 Eftir lokun 14970 eða 81748. Sigurður Jónsson. Ljósprentunarvél Til sölu er nýleg, stór og afkastamikil vél til ljós- prentunar á teikningum og skjölum. Tilvalið tækifæri fyrir þann er vildi skapa sér sjálf- stæðan atvinnurekstur. Einnig er vélin tilvalin fyrir stórt verkfræði- eða verktakafyrirtæki. Leiguhúsnæði getur fylgt. Hagkvæmir greiðsluskilmálar. Tilboð óskast sent blaðinu fyrir nk. mánaðamót, merkt: „KÓPÍA 6437“. STÚLKA ÓSKAST Óskum að ráða strax stúlku til skrifstofustarfa í Reykjavík. Góð vélritunarkunnátta nauðsynleg. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofum vorum og óskast skilað til skrifstofu starfsmannahalds fyrir 25. ágúst nk. Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar. VÖRUSKEMMJUi GRETTISGÖTU 2 Mikið of ódýrum og góðum vörum Crepe-sokkar kr. 25.—. Nælonsokkar kr. 10 og 15.—. Sportsokkar kr. 15.—. Ullarhosur kl. 55.—. Nærföt kr. 35.—. Drengja-peysuskyrtur kr. 65.— 75.—. Herrapeysuskyrtur kr. 85—. Herrasokkar crepe kr. 35.—. Barnaúlpur frá kr. 190.—. Drengjaskyrtur frá kr. 70.—. Herraskyrtur frá kr. 90.—. Gallabuxur kr. 140.—. Mikið úrval herra og dömupeysur, margir litir, öll númer kr. 520.— og 580.—. Sokkabuxur bama kr. 90.—. Náttföt barna kr. 110.—. Fót- raspar kr 10.—. Shampoo kr. 10.—-. Mikið af annars konar snyrtivöru á lágu verði. Minjagripir, bollapör, öskubakkar o.fl. frá kr. 60.— til 75.—. SKÓDEILD: Skór frá kr. 30,— til 280,— Mikið úrval. LEIKFÖNG Á HEILDSÖLUVERÐI. Á BÖRNIN f SKÓLANN: Mikið úrval af peysum og síðbuxum. PÓSTKRÖFUSÍMI 11670. Gengið inn frá Klapparstíg. ÓTTAR YNGVASON héraSsdómsIögmaöur MÁLFLUTNINGSSKRIFSTOFA BLÖNDUH^ÍÐ 1 • SÍMI 21296 FÉLAGSLÍF Körfuknattleiksfélag Reykjavíkur Leikfimisæfingar (þrekæf- ingar) hefja®t hjá félaginu 21. ágúst. Uppl. í síma 36955. — Allir velkomnir. Fjaðrlr, fjaðrablöð, hljóðkútat púströr o. fl. varahlutir i margar gerðir bifreiða Bilavörubúðin FJÖÐRIN Laugaveg} 168 - Sínt) 24180

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.