Morgunblaðið - 30.08.1968, Síða 1
24 SIÐUR
187. tbl. 55. árg.
FÖSTUDAGUR 30. ÁGtJST 1968
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Smrkovsky í útvarpsrœðu:
Tékkósldvakar hafa enga tryggingu
fyrir því, að herliðið hverfi á brott
— Dubcek reynir að skipa flokksstjórn, sem báðir fái sætt sig við
— Vestur-þýzka fréttastofan DPA segir, að baksamningar hafi
verið gerðir í lUoskvu — Jiri Hajek er á leið heim til Prag
Prag, Moskva, New York,
Róm, Belgrad, Búkarest,
29. ágúst — NTB-AP
ÝMMSAR ráðstafanir hafa
verið gerðar í Tékkóslóvakíu
í dag til að framfylgja sam-
komulaginu, sem gert var
milli Tékkóslóvaka og Sovét-
manna á Moskvufundunum.
Ritskoðun verður komið á
mjög bráðlega, að minnsta
kosti í einhverri mynd.
0 Dubcek sat á stöðugum
fundum í dag í Prag og er
hald manna, að hann reyni
að skipuleggja flokksforystu,
sem báðir aðilar telji sig geta
unað við.
(P NTB-fréttastofan hefur
það eftir v-þýzku fréttastof-
unni DPA að ýinsir baksamn
ingar hafi verið gerðir á
Moskvufundunum, sem ekki
hafa verið birtir opinberlega.
Séu það með eindæmum
harðir skilmálar, sem Tékkó-
slóvökum hafi þar verið
settir.
^ Josef Smrkovsky, for-
seti þjóðþingsins, sagði í út-
varpsræðu í dag, að Tékkó-
slóvakar hefðu í rauninni
enga tryggingu fyrir því, að
sovézka herliðið hyrfi nokkru
sinni á brott úr landinu.
Smrkovsky sagði, að Tékkósló
vakía hefði greitt hugsjónir
sínar dýru verði, og því væri
ekki að leyna, að Tékkóslóvak-
ar hefðu neyðzt til að draga
verulega úr kröfum sínum á
fundunum í Moskvu. Œ>eir hefðu
valið samkomuiags- og mála-
miðlunarleiðiua. f>eir hefðu get-
að valið á milli langvarandi er-
lendrar hersetu eða samkomu-
lags sem gæfi vonir ,um óháða
þróun. Samningaviðræðurnar í
Moskvu voru erfiðar, sagði Smr-
kovsky, en lítil þjóð sem býr
á hættulegu svæði og elur með
sér háleitar hugsjónir verður að
vera við því búin að færa fórn-
ir.
Smrko*vsky hélt áfram og
sagði:
„Við höldum áfram á þeirri
braut, sem mörkuð var í janúar
o.g lögleg stjórn okkar mun
sitja áfram. Utanríkisstefna
Tékkóslóvakíu verður óbreytt
og hinar erlendu hersveitir
verða fluttar burt úr landinu.
En 'hvaða tryggingu höfum við
raunar fyrir því að þær fari?
Sprengja grand
aði vélinni
London, 29. ágúst (AP)
EFTIR langvarandi rannsókn
befur komið í ljós að það var
sprengja, sem grandaði
brezku Comet-þotunni, sem
fórst 12. október í fyrra fyr-
ir suðaustan grísku eyjuna
Kastellorizon. Með þotunni
fórust 59 farþegar og sjö
manna áhöfn. Verið er að
rannsaka hvort sprengjunni
hafi verið komið fyrir í þot-
unni í þeim tilgangi að ráða
af dögum George Grivas hers
höfðingja, sem áður var yfir-
hershöfðingi grískra Kýpur-
búa. Með þotunni fórst einn
af aðstoðarmönnum hershöfð-
ingjans, en Grivas fór sjálfur
samdægurs með annari flug-
vél frá Aþenu.
Comet-þotan var frá brezka
flugfélaginu B.E.A. og var á
leið frá Aþenu til Nicosíu á
Kýpur. Var vélin í um fimm
þúsund metra hæð þegar
sprenging varð í henni, að
því er rannsóknin bendir til,
og steyptist þá í sjóinn. —
Sprengjan virðist hafa verið
geymd i farþegarými, og þeg
ar hún sprakk kom um
tveggja metra langt gat á
skrokk vélarinnar. Hafa
flugstjóramir misst alla
stjórn á vélinni, og hún
steypzt fyrirvaralaust í sjó-
inn.
Alls fundust 51 lík á sjón-
um, og var ekkert þeirra bú-
i’ð björgunarbelti. Bendir
þetta til þess að sprengingin
hflfi 'komið öllum að óvörum,
og skýrir þá staðreynd að
flugstjóramir sendu enga
hjálparbeiðni.
Sérfræðingar segja að orka
sprengjunnar hafi verið á við
um 450 kg. af svipuðu
sprengiefni og notað er við
bygginigaframkvæmdir og
vegagerð.
Við höfum enga tryggingu fyrir
því, við höfum bara heilbrigða
skynsemi okkar, samhug okkar“.
Smrkovsky nefndi ekki rit-
skoðunina beinum orðum, en
sagði, að ráðstafanir yrðu gerð-
ar hvað snerti blöð, útvarp og
sjónvarp. Þá sagði hann að bann
yrði sett við myndun nýrra
stjórnmálaflokka.
Baksamningar gerðir í Moskvu
NTB-fréttastofan hefur það
eftir DPA, að Tékkóslóvakar
hafi verið þvingaðir til að fall-
ast á ýmsa aðra ski'lmála en
birtir hafi verið opinberlega.
Segist fréttastofan hafa þessa
vitneskju eftir áreiðanlegum
heimildum og séu þessi atriði
hin helztu:
1. Tékkneski kommúnistaflokk
urinn skuli gegna forystu-
hlutverki í stjórn landsins,
en ekki þjóðþing eða ríkis-
stjórn.
2. Nokkrir ráðherrar verði
látnir víkja úr stjórninni,
þ.á.m. Jiri Hajek, utanrík-
isráð'herra, og Ota Sik, að-
stoðarforsætisráðherra
3. Aði'lar, sem hafi tjáð sig
fúsa til samstarfs við her-
námslöndin, hljóti ekki refs-
ingu.
4. Tékkóslóvakía hafni lánum
frá kapítalistaríkjum og
Alþjóðabankanum.
5. Tékkneskum blaðamönnum,
sem hafa gagnrýnt Sovét-
stjórnina að undanförnu
skuli vísað úr starfi. Erlend-
um blaðamönnum, sem
þannig hafa farið að ráði
sínu verði vísað úr landi.
Aðrir blaðamenn sem séu
Framhald á hls. 15
Humprey og Muskie
gegn Nixon og Agnew
Miklar óeirðir í Chicago í sam-
bandi við flokksþing demókrata
Chicago, 29. ágúst. AP-NTB
0 Á FUNDI flokksþings
demókrata í Chicago í nótt
var Hubert H. Humphrey
varaforseti kjörinn forseta-
efni flokksins við kosning-
arnar í nóvember með yfir-
gnæfandi meirihluta at-
kvæða.
0 Skömmu áður en fund-
ur átti að hefjast á flokks-
þinginu í kvöld tilkynnti
Humphrey að hann óskaði
eftir því að Edmund S.
Muskie öldungadeildarþing-
maður frá Maine yrði vara-
forsetaefni flokksins. Muskie
er 54 ára, og hefur átt sæti í
öldungadeildinni frá árinu
1959.
0 Miklar óeirðir hafa ver-
ið í Chicago meðan flokks-
þing demókrata hefur staðið
þar yfir, og náðu óeirðirnar
hámarki í nótt þegar verið
var að kjósa forsetaefni.
Beitti lögreglan kylfum og
táragasi á mannfjölda, sem
fór hópgöngu að fundar-
staðnum til að mótmæla
styrjöldinni í Víetnam, og
særðust að minnsta kosti 300
manns í átökunum, og 267
unglingar voru handteknir.
0 Lögreglan í Chicago,
Richard Daley borgarstjóri,
og stjórnendur herdeilda,
sem sendar voru á vettvahg
til að aðstoða við að halda
uppi lögum og reglum, hafa
sætt harðri gagnrýni frétta-
manna fyrir hörku.
Það kcxm fá'um á óvart er
flok'ksþingið tilnefndi Huanp-
hrey forsetaefini flokksins, en
beðið var með eftirvænitinu eftiir
því hvern hann kysi sem vara-
forsetaefni. Voru aðallega nefnd
tvö nöfn í því sambandi, Muskie
og Sargent Shriver, sendiherra í
Framhald á bls. 15
Hubert H. Humphrey.
Nígería mótmælir
— flugi véla frá Norðurlöndum til Biafra
Lagos, Nígeríu, 29. ágúst
(AP-NTB)
RÍKISSTJÓRN Nígeríu lýsti því
yfir í dag, að tilboð Norður-
landanna fjögurra, Noregs, Dan-
nierkur, Svíþjóðar og Finnlands,
um að leggja til fjórar flugvél-
ar til matvælaflutninga til bág-
staddra í Biafra væri „fjand-
samleg aðgerð“.
Bauð ríkisstjórnin jafnframt
Svíum að senda fulltrúa í eftir-
litsnefnd ,sem auk þess yrði
skipuð fulltrúum frá Samein-
uðu þjóðunum, Einingarbanda-
lagi Afríkulanda, Bretlandi, Pól-
landi og Kanada. Hlutverk
nefndar þessarar yrði að fylgj-
ast með aðgerðum Nígeríuhers,
og sannfæra sjálfa sig og um-
heiminn um, að ekki væri verið
að fremja þjóðarmorð í Biafra,
eins og haldiið hefur verið fraim,
segir talsmaður stjómarinnar í
Nígeriu.
Jafnframt þessu tilboði segir
stjórnin í Lagos, að hún lýsi af
sér allri ábyrgð á hverju því,
sem fyrir flugvélar Norðurland-
anna fjögurra kann að koma í
flutningum til Biafra.