Morgunblaðið - 05.10.1968, Síða 3

Morgunblaðið - 05.10.1968, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 196® 3 „Get ekki lýst tilf inningum minum Birmingham, 4. okt. AP Sexburamóðirin frú Sheila Ann Thorns, sá í fyrsta sinn í dag þá fimm af sexburunum sem lifa. Klæddist hún sér- stökum slopp og grímu og fór ásamt manni sínum til þess að líta á börn þeirra í sérstakri barnadeild sjúkrahússins í Birmingham, þar sem hún og böm þeirra hjóna dveljast. í tilkynningu sjúkrahússins segir að börnunum færi sæmilega fram, enda þótt þau væru eðlilega mjög veik- burða enn. Við höldum áfram að vera vongóð um, að börn- in geti lifað“. Börnin, þrjú stúlkubörn og tvö sveinbörn, eru höfð í hitakössum undir stöðugu eft'irliti sérfræðinga. Normann Thorns, faðir sex Eg á engin orö“ Segir sexburafaðirinn Frú Sheila Ann Thorns, móðir sexburanna. Mynd þessi var tekin af henni á sjúkrahúsinu fyrir fæðinguna. Mynd þessi er af þeim fimm af sexburunum, sem eru á lífi. Þeir em hafðir í hitaköss- um í Birmingham fæðingarsjúkrahúsinu. Af þeim eru þrjú stúlkuböm og tvö svein- börn, en sjötta barnið, sem var stúlka, lézt klukkustund eftir fæðinguna. Börnin vógu 0.9-1.3 kg. Fyrst var þeim gefið sykurvatn, en nú eru þau alin á brjóstamjólk og er þess gætt, að hafa nóg af henni til staðar á sjúkrahúsinu.Börain fæddust tveimur mánuðum fyrir tímann. Norman Thorns, faðir sexbur anna. Hann er 33 ára gamall og starfsmaður í bílaverk- smiðju í Birmingham. „Ég get ekki lýst tilfinningum mín- um. Ég á engin orð“, sagði hann Við fréttamenn. buranna, rædidi stuttlega við blaðamenn í gær. „Við trú- um ekki á heppni“, sagði hann, „en ég er viss um, að sú staðreynd, að börnin fædd ust á þrítugsafmæli konu minnar, hefur allt að segja. Er það nú afmælisgjöf. Ég get ekki lýst tilfinningum mín um. Ég á ekki orð“ Þegar hann var spurður að þvj í dag, hvort hann ætti erfitt með að þekkja börnin í sundur, svaraði hann: „Mér finnst þau öl'l vera eins“. Thorns skýrði frá því, að hann befði ákveðið að þiggja tilboð að upphæð 100.000 pund (um 13,7 millj. ísl kr.) frá dagblaði einu fyrir sögu fjölskyldunnar og myndir af henni svo að hann gæti tryggt framtíð barnanna. STAKSTEINAR Umbætur og gagnrÝni Það er einkennileg afstaða til umbótatillagna, að þær feli endi lega í sér gagnrýni á það, sem fyrir er eða hefur verið gert áð ur. Framsóknarblaðið túlkar t.d. stjórnmálayfirlýsingu ungra Sjálfstæðismanna á þann veg, að í henni felist þung gagnrýni á verk Viðreisnarstjómarinnar. Þetta er alrangt. Auðvitað verð uir Viðreisnarstjórnin að sæta gagnrýni eins og aðrir og eng- um dettur i hug, að ekkert megi finna að störfum hennar og stefnumálum um nær áratugar- skeið. 1 stjórnmálayfirlýsingu ungra Sjálfstæðismanna er hins vegar horft fram á við, bent á verkefnin í þjóðfélaginu næstu þrjá áratugi og sett fram sjónar- mið ungra Sjálfstæðismanna í stórum dráttum um það, hvem- ig beri að Ieysa þessi verkefni. Túlkun Framsóknarblaðsins virð ist fela það í sér, að tiltekin ríklsstjórn geti á tilteknu tímabili leyst öll vandamál þjóð- félagsins og síðan geti menn setzt í helgan stein. En það er öðru nær. Þjóðfél%gið er í stöð- ugri framþróun. Það koma stöð- ugt fram ný verkefni og vanda- mál, sem þarf að leysa. Þess vegna verða menn sífellt að taka afstöðu til mála með opnum huga og gera sér grein fyrir því, að jafnvel stórfelldar umbætur á einu tilteknu sviði geta kannski verið úreltar nokkrum árum síð- ar. En þessi afstaða FVamsókn- arblaðsins er raunar í fullu sam ræmi við þá stefnu „ungu“ mann anna í Framsóknarflokknum aðð vilja hverfa 30 ár aftur í tím- ann í stað þess að horfa fram á við. Opnun þjóðfélagsins Athygíisvert er að grundvall- arstefna Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórninni hefur einmitt ver < \ i Hernámsárin „1940 - 45" síðari hluti brátt f rumsýndur GERð seinni hluta kvikmynd ar Reynis Oddssonar, Hernáms- árin „1940-45“— 67-68, er nú alveg að Ijúka. Er ráðgert að framsýna hana nú um miðjan októbar. Munu sýningar hefjast samtímis í Reykjavík og á Akur eyri, en seinna verður hún sýnd í flestum kvikmyndahúsum lands ins. Þessi hluti er beint fram- hald af mynd þeirri, sem sýnd var í Háskólabíói og Stjörnu- bíói fyrir um það bil ári. Eins og flestir muna fjallaði fyrri hlutinn um gang stríðsins almennt og gaf fó'lki tækifæri til að fylgjast með gangi mála i Evrópu jafnframt hernámi ís- lands. Síðari hlutinn er aftur á móti allur tekinn á fslandi, sett- ur saman úr heimildamyndum, sem kvikmyndafélög í Holly- wood tóku hér á stríðsárunum. Einnig eru þættir, sem teknir eru á síðustu tveim árum sér- staklega fyrir þessa mynd. Eru það meðal annars viðtöl við ým- ist fólk, sem mikið kom við sögu stríðsins hér. Það skal tekið fram til að forðast misskilning, að þótt myndin sé unnin að miklu leýti úr mvndum sem teknar voru fvrir rúmum 20 árum, eru eæði VviVmjrndatökunnar f'fl'lega þau sömu og við sjáum á kvik- myndatjaldinu í dag. Kom í ljós þegar fyrri hlut- inn var sýndur, að fólki fannst hlutur íslands heldur lítill. Úr þessu er fyllilega bætt nú, þar sem þessi mynd fjallar eingöngu um ísland og málefni þess, sam- skipti amerísku hermannanna við íslendinga er m.a. sýnt hvern ig amerikanarnir eyddu frístund um sínum hér, svipmyndir frá böllum og „partýum". Þá er og „ástandinu“ gerð allýtarleg skil. Er óskandi að fó'lk láti liggja milli hluta þótt kunnugu aldliti bregði fyrir, eða einhver þekki Framhald á bls. 27 ið í samræmi við þær raddir, sem hæst ber nú í röðum ungs fólks að það þurfi að opna þjóðfélag- ið og stjórnmálaflokkana. Þeg- ar Sjálfstæðisflokkurinn tók við stjórnarforustu síðari hluta árs 1959, hófust forustumenn hans einmitt handa um að opna þjóð- félagið, aflétta þeim boðum og bönnum, sem þá voru á öllum athöfnum e'instaklinga. Þá var arfleifð vinstri stjórnarinnar sú að menn gátu ekkert gert og ekk ert fengið nema með því að sækja undir einhverja stjóra * málamenn eða embættismenn. Síð ar hefur orðið gjörbreyting á þessu. Það sem unga fólkið gagn rýnir í dag eir fyrst og fremst leifarnar af hinu lokaða þjóðfé- lagi vinstristjórnar áranna. Þeir sem eru þrítugir í dag og vora tvítugir, þegar núverandi ríkis- stjóm komst til valda, geira sér fulla grein fyrir þessu. Annað mál er, að þeir, sem eru tvítug- ir í dag voru aðeins 10 ára þá. Þess vegna er varla hægt að ætlast til þess að þeir hafi sömu yfirsýn yfir hlutina. En þeim er + í lófa lagið áð kynna sér þá. Það fer því fjarri, að gagnrýni unga fólksins nú beinist að stjómarháttum Viðreisnarstjóm arinnar. Gagnrýnin er í sam- ræmi við stefnu Viðreisnarstjóm arinnar og beinist að því að halda áfram því umbótastarfi, sem hún hóf fyrir nær einum áratug. \

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.