Morgunblaðið - 05.10.1968, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. OKTÖRBR 1#W
17
Hallmann Sigurðsson
— Minningarorð
1 DAG verður útför Hall-
marms Sigurðssonar gerð frá Út-
skálakirkju, en hann lézt í
sjúkrahúsinu í Keflavík laugar-
daginn 30. sept. sl., á 84. aldurs-
ári.
Hallmann var Húnvetningur,
fæddur að Svarfhóli í Miðfirði
hinn 10. ágúst 1885. Þar bjuggu
þá foreldrar hans, Sigurður
Halldórsson, skáld og fraéðimað-
ur og kona hans Sigurlaug
Bjarnadóttir.
Tveggja ára gamall missti
Hallmann móður sína og fluttist
þá að Fremri-Torfustöðum í
Miðfirði. Þar ólst hann upp með
föður sínum og stjúpu, Kristínu
Þorsteinsdóttur frá Þúfu í
Kjós.
Alsystkin, er komust upp, átti
Hallmann engin. En foreldrum
hans höfðu fæðzt tveir synir á
undan honum, sem báðir dóu í
frumbernsku. Þrjú hálfsystkin
átti Hallmann, Halldór Sigurðs-
son frá Þverá, nú búsettur í
Reykjavík, Guðrúnu Sigurðar-
dóttur, nú á sjúkrahúsi í Reykja
vík og Ólöfu Sigurðardóttur,
húsfreyju á Gauksmýri.
Hallmann fór að heiman þeg-
ar hann var 16 ára. Vann hann
þá á ýmsum stöðum. Hann
stunda'ði sjó á Austfjörðum. En
á þeim tímum var þar uppgang-
ur mikill, blómlegt atvinnulíf og
sjór stundaður af kappi á sumr-
um. Suður í Garð fluttist hann
1908 og kvæntist hið sama ár,
9. maí, Ráðhildi Ágústu Sumar-
liðadóttur, ættaðri af Vatnsleysu
strönd, dugnaðar og merkiskonu,
er var manni sínum samhent
í störfum að heill heimilisins.
Hún lézt 3. okt. 1965.
Böm þeirar hjóna voru sjö.
Tvö dóu í bemsku, en þau, er
upp komust voru þessi: Matthías,
búsettur í Keflavík, Sigurður,
búsettur í Garði, Þorbjörg, bú-
sett í Króki í Ölvesi, Óskar var
búsettur í Keflavík, hann lézt 1.
apríl sl. — og Sigurlaug, bú-
sett í Keflavík.
Allan sinn búskap bjuggu þau
í Garðinum. Fyrstu misserin í
Vörum, síðan í Sigríðarkoti, sem
nú er komið í eyði, í 2—3 ár, en
frá 1920 bjuggu þau í Lambhús-
um, og vi*ð þann bæ var Hall-
mann oft kenndur.
Sjómennskan var lengst af
hans aðalstarf. Framan af var
hann á opnum bátum, síðar á
vélbátum, en 1922 rálðist hann á
togarann Skúla fógeta með Gísla
skipstjóra Þorsteinssyni frá
Meiðastöðum. Var Hallmann síð-
an á togaranum með Gísla og
síðan Þorsteini bróður hans, þar
til Skúli fógeti fórst vestan við
Staðarhverfi í Grindavík 10.
apríl 1933. Þrátt fyrir þá hrakn-
inga, er þeir skipbrotsmenn urðu
að þola, hélt Hallmann áfram
störfum á sjónum og var næsta
ár á togaranum Kára Sölmund-
arsyni, með Karli skipstjóra
Guðmundssyni. Þá hætti hann
sjómennsku á togurum, en var
næstu árin á vélbátnum Árna
Árnasyni me'ð Kristni skipstjóra
Árnasyni og mun síðasta vertíð
Hallmanns þar, hafa verið síld-
arvertíðin 1943. Eftir það vann
Hallmann öll algeng störf í landi
og síðustu árin áður en hann
missti heilsuna vann hann aðal-
lega í frystihúsinu í Gerðum.
Hallmann var hraustmenni og
eftirsóttur sjómaður meðan
hann gaf sig að þeim störfum.
Hann var alla tíð heilsuhraust-
ur og kenndi sér vart meins,
enda mátti segja, að hann ynni
fullan vinnudag þar til hann var
nær áttræðu. En 1965 veiktist
hann skyldilega og gekk þá und
ir erfiða uppskur'ði. Var hann í
sjúkrahúsinu í Keflavík upp frá
því og komst aldrei til fullrar
heilsu.
Við fyrstu kynni var Hall-
mann fáskiptinn og allt að því
þurr’ á manninn, en við nánari
kynni komu í ljós rík réttlætis-
kennd og hlýhugur til allra
þeirra, er bágt áttu og lægra
hlut biðu í lífsbaráttunni.
Þótt sjómennskan með sínu
vægðarlausa striti yrði hlutskipti
Hallmanns meginhluta ævinnar,
þá átti hann sér hugarheima,
sem lágu fjær hinu daglega
striti. Hann var bókhneigður
mjög og las allt, er hann komst
yfir, einkum þó fræðirit. Hann
var næmur vel og hafði afbragðs
minni. Þessar gáfur hans nýtt-
ust honum vel, þegar hann á
efri árum, sjúklingur í sjúkra-
húsi, tók sér penna í hönd og
festi á blað með góðri rithönd
ýmislegan fróðleik, er hann
hafði fest sér í minni, um byggð
og býli í heimabyggð sinni,
Gerðahreppi, á fyrrihluta þess-
arar aldar. Greinar þessar birt-
ust í Faxa, blaði Suðumesja.
Einnig birtust þar minningar
hans um ferð til Suðurnesja ár-
ið 1904. Fyrir tveimur árum
skrifaði Hallmann athyglisverða
grein, er hann birti í Alþýðu-
blaðinu um dragnótaveiðar í
Faxaflóa og áhrif þeirra á fisk-
veiðar þar. Allar báru þessar
greinar vott um athyglisgáfu
góða, gott minni og skýra hugs-
un, þrátt fyrir sjúkleika og aðr-
ar erfiðar áðstæður.
Með Hallmanni er fallinn í
valinn kjarnakvistur frá alda-
mótunum síðustu. Hann þekkti
af eigin raun erfiðleika þessa
tíma og kunni því að meta allt
FÉLAGSIÍF
Knattspyrnufélag Reykjavík-
ur, handknattleiksdéild
Æfingatafla fyrir veturinn
1968—1969:
Mfl., 1. fl. og 2. fl. karla.
Þriðjudaga kl. 21.25—23.05.
Fimmtud. kl. 21.20—23.00.
(íþróttah. í Laugardal).
Laugardaga kl. 14.10—15.00.
2. flokkur karla.
Sunnudaga kl. 16.20—17.10.
3. flokkur karla.
Mánudaga kl. 21.20—22.10
(íþróttah. á Seltj.nesi).
Laugardaga kl. 13.20—14.10.
4. flokkur karla, A og B lið.
Sunnudaga.kl. 15.30—16.20.
Mánudaga kl. 18.05—18.55.
4. flokkuT karla, C, D og E lið.
Sunnudaga kl. 9.30—11.10.
Meistarafl, og 1. fd. kvenna.
Mánudaga kl. 22.10—23.00
íþróttah. á Seltj.nesi).
Föstudaga kl. 21.25—23.05.
2. flokkur kvenna.
Sunnudaga kl. 8.40—9.30.
Föstudaga kl. 20.35—21.25.
2. fl. kvenna (byrjendur).
Sunnudaga kl. 8.40—9.30.
Föstudaga kl. 19.45—20.35.
Fjölmennið og mætið stund-
víslega.
Stjórnin.
það, &r áunnizt hefur, til þess
að rétta hlut þeirra, er við
lægstu kjör eiga jafnan að búa.
Ég kveð hann með þökk fyrir
góð kynni og flyt bömum hans
og öðrum ættingjum samúðar-
kveðju.
Ragnar Guðleifsson.
Verzlunin
VALVA auglýsir
Ungbarnafatnaður í úrvali.
Verzlunin Valva,
Álftamýri 1,
Verzlunin Valva,
Skólavörðstíg 8.
Nýlenduvöruverzlun
til sölu eða leigu nú þegar vegna forfalla. Góð kjör
ef samið er strax.
Áhugamenn sendi nöfn sín til blaðsins fyrir mánu-
dagskvöld merkt: „Verzlun — 2174“.
Getum tekið
nokkur eldhús og fataskápa til afgreiðslu strax.
INNRÉTTINGAR II/F.,
Suðurlandsbraut 12 — Sími 81670.
r
Míl /s(n
VINNINGAR
2
MERCEDES BENZ 220
VERÐMÆTI
KR.: 854.000,00
VERÐ KR.: 100
DREGIÐ 5. NÓVEMBER 1968
Unglingslelpu óskust
til sendiferða á skrifstofu blaðsins.
Vinnutími kl. 9—12 fyrir hádegi.
JNtftttltlM&frito
22-24
0-322S2
LITAVER
Belgísk, þýzk og
ensk gólfteppi.
Sama lága verðið
Listdansskóli Cukýjar Pétursdóttur
Lindarbæ Reykjavík og Félagsheimili
Kópavogs, Kópavogi.
Kennsla hefst mánudaginn 7. október.
Síðasti innritunardagur í dag kl. 2—7
í síma 40486.
DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS 000